Dagur - 11.08.1954, Síða 2

Dagur - 11.08.1954, Síða 2
2 D AGUR Miðvlkudaginn 11. ágúst 1954 skellur aftur” að baki skólaleiðtogans, er lætur af störfum eftir 45 ára þjónustu sem kennari, skólastjóri og námsstjóri Þar sem DAGUR haíði á skotspónum heyrt þess getið, að SNORRI SIGFÚSSON ílytti búferlum og alfarinn burt úr bænum nú um miðja vikuna og hygðist hér eftir eiga heimili í höfuðstaðnum, en hann lætur nú af embætti samkv. ákvæð- um ísl. laga um hámarksaldur opinberra starfsmanna — lieim- sótti DAGUR námsstjórann og spurði liann, í tilefni þessara tímamóta, frétta af því m. a., hvað honum væri efst í huga að loknum þessum langa og gagnmerka starfsferli í þágu skól- anna og uppeldismálanna. „Skólaliurð SJÖTUG: Ingibjörg Krisijánsdóffir Eldjárn Óþarft er að geta þess, að Snorri er löngu þjóðkunnur mað- ur, og auk þess um langt skeið mikilsvirtur og vinsæll borgari þessa bæjar. Hann fyllir 7. tuginn 31. þ. mán., og verður hans þá að sjálfsögðu minnzt hér í blaðinu rækilegar en að þessu sinni. — En þess skal þó þegar getið, að enda þótt Snorri sé kominn þetta til ára sinna á mælistiku alman- akana og kirkjubókanna, er hann þó enn í fullu fjöri, og mætti margur unglingurinn öfunda hann af áhuga þeim og vinnu- gleði, sem honum brennur enn í brjósti, enda mun það skoðun þeirra, er bezt þekkja hann, að hann sé alls ólíklegur til þess að setjast í helgan stein ,eða halda að sér höndum eftirleiðis, heldur muni hann vinna ótrauður áfram í þjónustu æskunnar og uppeld- ísmálanna, þótt hann verði nú, af áðurgreindum ástæðum, að 'látá af opinberu embætti á þeim vett- vangi. Bendir t. d. hreyfing sú um sparnað og sjóðmyndanir barna og æskufólks, sem hann beitir sér nú fyrir af mikum dugnaði, ein- dregið til þess, að sitthvað nýtt verði af starfsferli hans og hugð- arefnum að frétta í framtíðinni eins og áður. Þú ert sagður vera að kveðja Akureyri? Já, að mestu. Mun eg þó, ef eg tóri, eitthvað dvelja hér um tíma á sumrin og njóta fegurðar bæj- arins og umhverfis hans, gamalla vina og gróinna minninga. Því að Akureyri er minnar æsku bær. Hér kom eg fyrst í „kram- búð“ 15 ára. Hér var eg í skóla um tvítugsaldur í hópi ágætra skólafélaga. Hér var eg heimilis- kennari einn vetur og hér var eg sísyngjandi í hópi góðra drengja. — Og svo kom eg hingað aftur fyrir 25 árum með konu og stóran barnahóp, sem hér hefur vaxið úr grasi. Kom eg þá sem kennari að barnaskólanum eitt ár, en varð svo stjórnandi hans um 17 ára skeið. Það var dýrlegur starfs- og annatími. Skólinn fékk úrvals starfsmannalið, sem vann ágæt- lega saman, og hygg eg, að hann búi lengi að þeim árum. Þá ætla eg og, að Kennarafélag Eyjafjarðar, sem við stofnuðum 1931, hafi unnið eyfirzkum kennslumálum mikið gagn. Og nú kveður þú einnig náms- stjórastarfið? ,,r. Já, en maður kemur í manns stað. En lengi hafði eg hugsað um, að skólum og kennslu væri nauð- synlegt, að slíkri starfsemi væri haldið uppi. Eg hafði kynnzt slíku starfi erlendis og var sann- féi^fui* ‘iim ''c;á^nsérríi þess. —> V.ið,: sem endtírskoðuðum fræðslu1 lögin 1932—34, fengum skotið þessari heimild inn í þau, en það, komst' þq ækki. til ;ftamkvæmda fyrr en 1941. Hef eg síðan haft meíri og minni afskifti af þessú starfi, fyrst með skólastjórninni, en síðan 1947 eingöngu. — Það má því líklegt þykja, að eg sé kunnugur orðinn skólamálum hér norðanlands eftir þetta svo að segja óslitna eftirlits- og leið- beiningastarf hér síðan 1941. Og raunar var eg þegar orðinn all- kunnugur þessum málum hér í Eyjafjarðarsýslu frá 1932, að mér var falið eftirlit hér í innsýslunni, og raunar miklu fyrr. Árið 1911 fól fræðslumálastjórnin mér að kynna mér framkvæmd fræðslu- laganna frá 1907 hér í sýslunni, og skyldi eg jafnframt vera próf- dómari í allri sýslunni, frá Akur- eyri og til Siglufjarðar. Þetta gerði eg og samdi um það álits- gerð. Varð eg því þá þegar kunn- ugur ástandinu hér í þessum efn- um, og hefur mér lengi þótt fróð- legt að bera saman í huga mér tímana þá og nú í þessum efnum, með 30 ára millibili. Og hvað hefur þú svo helzt að segja um þróunina í þessurn efn- um? Farskólinn var þá drottnandi form, kennt á bæjunum, sumum allvel hýstum, öðrum lélega. Og kennslan var stutt, venjulega 8 vikur, sem hvert barn fékk. Og mig furðar nú, hve mikið þau vissu og kunnu í lesgreinum. Að sjálfsögðu var mörgu áfátt og þætti nú ekki boðlegt, en þessi börn loguðu af áhuga og náms- vilja, og á eg ógleymanlegar minningar um það. — En það sem eg sé þó fyrst og fremst í huganum við þennan samanburð er það, hve sorglega börnum hef- ur fækkað í flestum sveitum. Þar sem sums staðar áður voru stórir hópar, um 20 börn eða fleiri, eru nú 10—12 eða færri. Þetta er hin sorglega staðreynd. Og því er það, að mér finnst stundum, er eg sé þessa fámennu hópa sveitanna, og sé þá enn fara minnkandi, að þetta sé eitt hið allra ömurlegasta tákn tímanna, er þeim börnum fækkar svo mjög, sem fá uppeldi sitt í sveit við gróandi líf og gagn- leg störf. Sú þjóð, sem varpar sér þannig í skyndi úr grasi og gróanda á mölina, hlýtur að taka miklum stakkaskiptum, og efa eg ekki að svo verði um okkar þjóð. — Eg tel það ákaflega nauðsyn- legt, að koma sem allra flestum börnum af malbikinu í sveit að sumrinu, og ætti það að verða íhugunarefni milliþinganefndar, sem valin væri í því skyni að leita ráða til þess. Þetta er aðkallandi nauðsyn, og ein hin þýðingar- mesta uppeldisleg ráðstöfun sem framundan er. Hvað hefur þú svo að segja um ástandið nú? Um ástandið nú mætti vitan- lega margt segja og mun eg |sennilega gera því skji^ða’i'. En' í dag vil eg gjarnan segja það, sem eg er með sjálfúm méf viss um, án þess þó, að eg hafi neina löngun til að fága ástandið, að hvað sem um skólana er sagt — því að ærið oft fá þeir misjafna dóma — þá held eg nú samt, að ekki hafi áður verið betri skólar í landinu en nú, nema að síður sé, þótt hitt skuli jafnframt ját- að, að ýmislegt er að, og mörgu þarf að kippa í hagfelldara horf í skóla- og uppeldismálum þjóðar- innar. Á þessum 30—40 árum er mikil framför auðsæ í öllu hinu ytra. Börnin eru betur fædd og klædd og fræðsla þeirra og kunn- átta er jafnari og með hagnýtara sniði. Um hitt má vafalaust deila, hversu háttað er um hinn sið- ferðilega og menningarlega þátt í uppeldi æskunnar nú. En þar kemur margt til greina, sem skólarnir eiga ekki sök á, svo sem áhrif tveggja heimsstyrjalda o. fl. Og svo ber einnig að muna það, að „skólar“ eru nú líka á götum og torgum, vinnustöðvum úti og inni, að ógleymdum svokölluðum skemmtistöðum, sælgætisholum og „sjoppum", og mörgu því, sem spillir öllu heilbrigðu uppeldi og elur og nærir nautnasýki og óhófs-eyðslu þessa mennilega fólks, sem við viljum þó í aðra röndina gera allt fyrir. En í mörgu, sem nú er leyft og ekki horft á, liggja háskalegar rætur að ómenningu og ófarnaði allt of margra sona þjóðarinnar og dætra. Við þurfum að hyggja að mörgu þessu betur en nú er gert, Hinn 9. þ. m. varð Ingibjörg Kristjánsdóttir Eldjárn frá Tjörn sjötug. Hún er fædd að Tjörn í Svarfaðardal, dóttir séra Krist- jáns E. Þórarinssonar prófasts í Vatnsfirði Kristjánssonar prests að Völlum Þorsteinssonar, og er sú ætt alkunn .Kona sr. Kristjáns á Tjörn og móðir Ingibjargar var Petrína Soffía Hjörleifsdóttir prests að Skinnastað, Tjörn og Völlum Guttormssonar og Guð- laugar Björnsdóttur frá Garði. Lét sr. Hjörleifur byggja Skinna- staðakirkju 1854, og er hún því 100 ára þessa dagana og hefur þess verið rækilega minnzt af ættmennum hans og fleirum. Ingibjörg Kristjánsdóttir ólst upp á Tjörn í systkinahóp á hinu margmenna og myndarlega heimili, sem var jafnan fullt af ungu fólki, sístarfandi og síkátu og fjörmiklu, og eiga þaðan margir sínar yndislegustu minn- ingar. Þar var hún hverju barni betri, skipti aldrei skapi, vildi öll- um vel og var á sífelldu stjái til þess að bera sáttarorð milli og sannarlega ber ekki að skella allri skuld á skólana: Þeir vinna sitt menningarhlutverk, misjafn- Iega að vísu, en margir vel og Úyggilega. Hvað svo um . fyrirkomulag ;firæðslunnar og skólahúsin? . ! j Á svæði því, sem eg hefi haft t'il e'ftirlits lengst af, en það er milli Skaga og Langaness, má segja að farskólafyrirkomulagið sé enn drottnandi h sveitunum. Þó er það á undanhaldi, en í vegi stendur einkum það, að erfitt er að fá litlu hreppana til að vinna saman með einn og sama skóla, og auk þess eru menn yfirleitt fremur andstæðir heimavistar- skólunum. Þó hygg eg, að það sé hið eina fyrirkomulag, sem fram- tíðin muni geta fellt sig við í strjálbýlinu. En höfuðatriðið er þó það, að heimilin þar haldi áfram að kenna börnunum að lesa. Þá notast stuttur skóli vel, í hvaða formi, sem hann er. — Annars skal það játað, að annars- dagsskólinn er ágætt fyrirkomu- lag, þar sem hann á við. Þar stunda börnin nám sitt heima annan daginn, sinn hópurinn hvorn dag, og koma svo glöð og óþreytt í skólann með tilhlökkun hinn daginn. Eg hygg, að þetta fyrirkomulag mætti reyna víðar en nú er gert. Húsnæðið hefir víða batnað til muna. Á þessum 13 árum, sem eg hefi mest af- skipti haft af þessum málum hér norðanlands, hafa verið byggð 10 skólahús og nokkur viðgerð og aukin, og nú er einn stór heima- vistarskóli í smíðum og fleiri koma á næstunni. Barnafjöldinn á s.l ári mun hafa verið um 2750 börn. En eins og áður er sagt, eru það börnin í sveitunum, sem fækka heldur, en fjölgað hefur nokkuð í þéttbýl- inu, einkum á Akureyri. (Framhald á 7. síðu). „stríðandi aðila“, sem stundum áttust við í ærslafullum ólátum barns- og unglingsára. Frá þeim árum er nú margs að minnast, þegar allt var leikur og lífið brosti við hinum glaða hóp. Og minningarnar um Imbu eru allar á einn veg. Hún var hinn góði engill í hópnum, í starfi og leik og skóla, alls staðar hinn greindi glaði og góði félagi, sem hugsaði fyrst og fremst um aðra, setti ætíð sjálfa sig hjá, fremur en að aðrir nytu sín ekki. Eg hef aldrei þekkt betra hugarfar. Og eg hygg, að allir, sem hafa kynnzt henni um æfina, og þein eru margir frá þeim árum, þegar þær systur, Sesselja og hún höfðu greiðasölu hér á Akureyri, muni ljúka upp einum munni um það, að betri sál sé vandfundin. Hún hefur aldrei ötað sér fram, aldrei hugs- að um eigin hag, alltaf verið að hugsa um aðra, gleðja aðra, þjóna öðrum og gera öllum gott. Þannig hefur hún verið, og þannig er hún enn í dag, þessi fasprúða og hljóð láta kona, sem er hlaðin sæmd hins fórnfúsa, trúverðuga og kærleiksríka þjóns, er af heiðar- leik og hreinleik hjartans miðlar gleði og góðvild til allra, sem á vegi hans verða. Þetta veit eg svo sem, að henni muniöþykja of stór orð, svo vel þekki eg lítillæti og hlédrægni þessarar fermingar- systur minnar og félága frá barns aldri. En þau eru sönn eigi að síð-: ur, og munu allir, sem- til- Ingi- bjargar þekkja, gjalda þeim já- kvæði. Það hefúr máske farið- meira fyrir sumum „maddöm-: "í um“, formæðrum hennar, en eg efast um, að nokkur þeirra hafi verið betri en hún og þær systur. Æskuheimili sitt og æsku- stöðvar elskar Ingibjörg eins og hjartað í brjósti sér. Og Svarf- dælinga á hún alla. Og eg þekki engan þann mann, engan þann brotlega bróður, sem ekki á Ingi- björgu að, ef eitthvað væri í hann hnjóðað. Hún er svo ótrúlega fundvís á málsbætur, að eg hef aldrei heyrt hana komast í vand- ræði með það, enda skortir hana ekki greind og rökfimi. Þess vegna gefast flestir upp á því að hnjóða í náungann, þegar Ingi- björg er nærstödd, því að hún hefur eitthvert lag á því að setja þá alltaf út af laginu. Já, það væri ekki alveg ónýtt, ef slíkt hugarfar væri drottnandi á ráðstefnum stórveldanna nú á dögum. Mann- heimur allur mundi þá líta öðru- vísi út en hann gerir í dag. Eg veit, að heitur andblær vel- vildar og þakklætis hefur streymt heim til Ingibjargar og þeirra systra afmælisdaginn. Það eiga þær margfaldlega skilið.Og núbið eg Ingibjörgu „systur“ minni og öllu fólki hennar og öllu því, sem henni þykir vænzt um, mikillar blessunar, og að afmælisbarnið megi enn lengi lifa meðal vor, því að það er eg viss um, að hún verður öðrum til góðs, meðan hún járogtu' andann. Sn. S.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.