Dagur - 11.08.1954, Side 5

Dagur - 11.08.1954, Side 5
Miðvikudaginn 11. ágúrt 1954 D A G U R 5 eyrir og sér Ljósneminn - fótósellan - er furðuleg upp- fundning, sem kemur æ víðar við sögu „Dauði dyravörðurinn“ opnar hurðina fyrir stúlkunni og lokarhenni. Enn um Matthíasarkirkju - Gömul saga og nýjar tillögur - • Ekkert er líklegra.en að ferða- langur, Sem kemur íil Ameríku í fyrsta skipti, reki upp stór augu, er hann kemur t. d. að búðardyr- um, sem opnast, að því er virðist, sjálfkrafa fyrir honinn, án þess að nokkur maður sé þar sjáanlegur í nánd, hvað þá heldur, að hann hafi sjálfur kvatf dýrá á nokkurn Senniléga mup ýmsum, sem ekki þekkja þetta fyrirbrigði óð- ur, detta í hug í fyrstu, að ein- hver ósýnilegur, mannlegur dyravörður muni dyljast þarna á. næstu grösum og fylgjast svo vel’ með ferðum manna, að hann geti „kippt í spottann", einmitt á réttu augnabliki, hvenær sem einhver þarf að ganga um dyrnar. Þeir, sem kynnzt hafa Ijósncman- um, eða fótósellunni, áður og hin- um kynlégu eiginleikum hans, vita Hins vegar: vel, að'það er töframagn hans, dautt og vél- rænt, sem vakir þarna yfir ósýni- legt eða í hurðinni og stjórn- ar útbúnaðinum, sem opnar hana fyrir hverjum gesti, sem að garði ber og inn hyggst ganga, — og lbkar henni á sama hátt að baki honum, þegar inn er komið, að hætti hins kurtejsasta þjóns, hljóðlaust og hógværlega. „Dauðir dyraverðir" einnig í Evrópu. Annars þurfa menn nú orðið ekki alla leið til Ameríku til þess að kynnast „hurðinni, sem bæði heyrir og sér“ og öðrum „göldr- um“ þessa kynjatækis, ljósnem- ans, því að einnig hér í Evrópu hafa slíkir vélrænir dyravérðir verið settir til starfa, þótt ekki séu þeir algengir enn sem komið er. Jafnvel til Norðurlanda hafa þeir borizt. Til dæmis er þess getið í júlíhefti danska samvinnu- ritsins „Samvirke",’ að :einni slíkri hurö hafi verið komið fyrir í hinni nýju sölubúð, sem kaup- félagið í Kaupmannahöfn, Ho- vedsíadens Brugsforening, hefur nýskeð; reist og opnað á Nön-e- vold þar í borg. Hingað innan tíðar. Vér íslendingar erum .oft ekki vonum seinni'að taka upp ýmsar nýjungar, svo að sízt er fyrir það sverjandi, að slíkar hurðir og önnur tæki, sem byggð' eru á sams konar tækni, berist hingað innan tíðar, svo að almenningur hér geti kynnzt þeim af eigin raun. Væri það því vel-til fundið, að einhver málhagur maður og- orðsnjall tæki sig til og smíðaði nýtt orð, er vel færi í íslenzku máli sem heiti á þeim skrítna hlut, sem þarna er að verki og líklegt er að láti til sín taka á æ. fleiri sviðum tækninnar á næstu tímum. En meðan ekkert slíkh nýyrði er til, verða menn annað .tveggja að láta sér nægja hið út- lenda orð fótósella (fotoceL) eða sætta sig við nýgerving þann, sem hér er notaður í greininni, þ. e. Ijósnemi — þegar tækið ber á góma. En í sem skemmstu máli sagt er hér um að ræða áhald, sem hefur þann eiginleika, að breytilegt ljósmagn orkar á það með þeim.hætti, að það framleið- ir breytilegan rafstraum, þ. e. þegar ljósmagnið eykst, magnast og rafstraumurinn, en dvínar á sama hátt, þegar ljósmagnið minnkar. — Þegar ljósbrigði verða, skapar tækið þannig til- svarandi straumbrigði, og á þennan hátt er hægt að orka á rafstraum og stjórna honum beinlínis með ljóshrifum einum. Ljósneminn byggist í aldargam- alli uppgötvim. Þýðingarmesti hluti ljósnemans er venjulega frumefni það, sem nefnt er selen, en það hefur þann merkilega eiginleika, að hæfni þess til að leiða rafstraum stend- ur í beinu hlutfalli við birtuna, sem á það skín. Aðalhluti fótó- sellunnar er því tíðast járnplata, sem þunnt lag af frumefni þessu hefur verið brætt á, undir þunnri gullhúð. Önnur frumefni hafa og þennan sama eiginlieka, svo sem málmarnir kalíum og cæsíum, enda eru þeir stundum notaðir í Ijósnema, svo sem í útvarps- lömpum. Hér um bil ein öld er nú liðin, síðan menn uppgötvuðu fyrst þetta eðli slíkra efna, en fyrst í stað var mönnum ekki Ijóst, hvernig hægt væri að hagnýta sér þá þekkingu. Árið 1890 fundu svo Þjóðverjar tveir, Elster og Geitel, fótóselluna, eða Ijósnemann, sem tæknin hefur þegar tekið í þjón- ustu sína á margvíslegan hátt, og þekkjum vér þó naumast annað en fyrsta upphaf þeirrar sögu, sem vel getur orðið bæði löng og gagnmerk, ef að líkum lætur. Þegar geislinn er rofinn. Ef menn skoða nánar „hurðina, sem heyrii' og sér“, munu menn sjá, að í dyrastöfunum til beggja handa eru örlítil ,gægjugöt“, beint andspænis hvort öðru. í öðru „áuganu“ er komið fyrir ör- smárri Ijósvörpu, er sendir geisla — að vísu oftast ósýnilegan mannlegu auga — þvert yfir gættina, rakleiðis í hitt „augað“, en bak við það ér ljósnemi — fótósella. Gangi nú einhver að hurðinni, rofnar geislinn og ljós- neminn breytir straumstyrknum í rEffútbúnaði — sem oft er raunar komið fyrir annars staðar, t. d. í kjallara hússins, — en þessi út- búnaður (relæ nefnist hann á út- lendu máli) er þannig gerður, að verði hann fyrir spennufalli, magnar hann annan rafstraum, sem gegnum hann er sendur, en sá straumur orkar síðan, m. a. með seguláhrifum, á loftpumpur, sem hreyfa hurðina, opna dyrnar og loka þeim síðan aftur, þegar geislinn frá ljósvörpunni nær aft- ur að skína óhindrað á fótósell- una, — Allt tekur þetta aðeins andartaksstund — miklu skemmri tíma en til þess þarf að lýsa því í orðum. Hljómmyndir, útvarp og sjónvarp byggjast á sömu lögmálum. ( í Á það skal bent, að efnislögmál þau, sem hér eru að verki, eru og megjhatriðið í hljóm- og tal- myndatækninni, þar sem gangur málsins er að vísu öfugur, þannig, að hljóðinu er með hjálp slíkra tækja breytt í ljóshrif, sem orka á kvikmyndaræmuna við upp- töku myndarinnar. En þegar myndin er sýnd í kvikmyndahús- unum, lætur fótósellu-lögmálið enn til sín taka í réttri röð og breytir þeim þætti „filmunnar“, þar sem hljóðhrifin hafa áður verið „ljósmynduð“, — aftur í I tilefni af samtali því, er rit- stjóri Dags átti við mig og birt var í síðasta tbl., tel eg rétt og æskilegt að bæta við nokkrum upplýsingum um eftirfarandi at- riði: Um það leyti, sem kirkjubygg- ingin var hafin, hafði starfað hér um hríð 5-manna nefnd Stú- dentafélags Akureyrar, — og voru tveir þeirra einnig í sóknar- nefnd, — sem beita átti sér fyrir byggingu myndarlegs húss yfir Amtbókasafnið, er bera skyldi nafnið Matthíasar-bókasafn. Var þegar fengin lóð undir byggingu þessa, og einnig fé nokkurt í sjóði. — Skyldi nafn skáldsins Matthíasar Jochumssonar þannig varðveitt hér um aldur og ævi. Þegar teikningar kirkjunnar bárust hingað frá húsameistara ríkisins, voru þær allar tengdar nafni Matthíasar og merktar: Matthíasarkirkja. Mun Jónas Jónsson frá Hriflu hafa átt frum- hugmyndina að nafngift þessari, og hún þaðan borizt húsameistara ríkisins. — En þar sem nú var þegar ákveðið og búið að tengja nafn Matthíasar hinu áætlaða væntanlega bókasafni, drógu sóknarnefndarmenn heldur úr þessari nýju nafngift. Og af þeirri ástæðu- hefii' nafngiftarmál þetta aldrei verið tekið formlega fyrir á sóknarnefndarfimdi. hljóð, tal og tóna. Sjónvarpið byggist og öldungis á sömu lög- málum: þ. e. þeirri staðreynd, að ljóshrif geta orkað á rafstraum með þessu móti, og síðan er hægt að senda rafstraúminn með þráð- um, eða útvarpá honúm í allar áttir, og breyta honum aftur, með hjálp viðtækjanna, í sams konar ljóshrif og upphaflega ork- uðu á strauminn. Fjöldi annara tækja byggjast á ljósnemanum. — Upphaf en ekki endir. Dyrabjöllur, varúðarmerki gegn innbrotsþjófum og fjölmörg önnur tæki, sem ekki gefst tóm til að nefna hér, starfa undir stjórn þessa sama töfratækis, fótósellurnar eða ljósnemans. Þegar vörur þær, sem framleidd- ar eru í fjöldaframleiðslu í stór- verksmiðjum nútímans, — renna á reim sinni (,,samfellubandinu“); fram hjá hinu sívakandi og allt- sjáandi auga fótósellunnar, orka kraftar þeir, sem hún leysir úr læðingi, á talningsvélarnar, sem itelja og skrásetja hvern hlut, sem framhjá fer. Þannig mætti lengi jtelja hin nýju undur á þessu isviði, en hin verða þó miklu fleiri ’og markverðari, sem eiga eftir að koma til skjalanna í framtíðinni, ef að líkum lætur. Gg ekki er það ósennilegt, að almenningur eigi eftir að kynnast ljósnemanum — fótósellunni — þessu furðuverki tækninnar, sem vissulega hefði forðum daga verið mjög kennt við galdra — miklu nánar en orð- ið er, bæði á heimilunum og vinnustöðvum hvers og eins. Nú virðist mega telja útséð um )að, að fyrrnefnt Matthíasar- bókasafn mimi aldrei rísa a£ grunni. Ætti því ekkert að vera dví til fyrirstöðu framar, að nafn Matthíasar Jochumssonar verði opinberlega tengt Akureyrar- kirkju.-------- í sambandi við það, sem hér hefir sagt verið, vil eg nota tæki- færið til að bera fram tillögu um, að stallarnir (þrepin) í kix-kju- brekkunni verði notaðir undir myndastyttur þær, er hér kunna að rísa upp í framtíðirmi. Eru nú þegar tvær slíkar til, sem bíða ákvörðunar bæjarstjórnar, hvar setja skuli. En fyrst ætti að hefj- ast handa og flytja styttu Matt- híasar úr Lystigarðinum og setja hana á efsta stall kii-kjubi-ekk- unnar sunnan megin við tröpp- urnar, og yrði hún þá nokkurn veginn miðja vegu milli Matthí- asarkirkju og Sigurhæða, íbúðar- húss skáldprestsins. Eins og Lystigarðurinn nú er ox-ðinn, mun öllum ljóst, að stytta Matthíasar er þarna illa sett, og auk þess innilukt úr augsýn gesta — og einnig bæjai’búa — meginhluta ársins. Kristján Sigurðsson. - Þingeyskur bóndi (framhald af 1. síðu). unum krafta sína vestur . á Ströndum. Skoðaði dys Kleppu. í Trékyllisvík sá Helgi bóndi dys Kleppu, en það var tröllkona er átti í bi-ösum við Finnboga ramma. Gerði hún honum það til miska að míga á engi hans, sem eftir það urðu blaut og óhæf til heyskapar. Finnbogi gat síðar launað henni engjaspjöllin með því að hleypa á hana stykki úr fjallinu fyrir ofan. Undir jai-ðfalli þessu hvílir Kleppa síðan og ger- ir engum mein. Staður þessi ber enn í dag nafn skessunnar. Bóndinn og grasafræðingurinn. Hfelgi Jónasson bóndi og grasa- fi-æðingur er einn af þeim fáu ís- endingum, sem stundað hafa grasafræði og gróðurrannsóknir um áratugi og á stórmerkilegt grasasafn. Fátt eitt mxm, enn sem komið er, hafa birzt eftir hann á prenti, eða jafnvel ekki annað en það, sem Náttúrufræðingurinn ihefur birt nokkrum sinnum. En kunnugir telja, að í handriti eigi hann drög að flóru Þingeyjar- sýslnanna beggja. Þær sýslur hefur hann rannsakað meira en nokkur annar maður. Helgi er nú orðinn aldraður maður. Hann telur grasafræði— rannsóknir sínar hafa verið sér til hinnar mestu ánægju á langi-i æfi, •— að ferðinni á Strandir ekki undanskilinni. Vonandi á Helgi á Gvendarstöðum enn margar ynd- isstundir meðal blómanna, við rannsóknir á gróðrarríki lands- ins.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.