Dagur - 01.09.1954, Page 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 1. september 1964
Fimmtugur:
Eiríkur Siefánssoo, kennari
Þann 24. f. m. átti Eiríkur
Stefánsson, kennari, fimmtugsaf-
mrali, en hann er nú í kennara-
hópi í boSi danskra kennara úti
í Danmörku.
Hann hefur verið kennari hér
við barnaskólann síðastliðin 11 ár
og er hver sú stofnun heppin, er
nýtur starfskrafta slíkra manna.
Hann er fæddur að Refsstöðum
í Laxárdal í Ilúnavatnssýslu 24.
ágúst 1904. Foreldrar hans voru
Stefári H. Eiríksson og Svanfríð-
ur Bjarnadóttir. Systkinin voru 7,
sem komust til fullorðinsára, en
nú eru 4 þeirra á lífi. Föður sinn
missti Eiríkur á þriðja ári, en
móðir hans lifir enn. Eftir fráfall
Stefáns leitaði móðir hans í átt-
hagana með barnahópinn sinn og
bjó lengst í Skógum á Þalamörk.
Þar ólst Eiríkur upp. Heldur mun
afkoma oft hafa verið erfið meðan
börnin voru ung, en þó voru
æskuárin honum ánægjuleg í
glöðum systkinahópi. Á þessum
árum störfuðu ungmennafélögin
að hugsjónamálum sínum og tel-
ur Eiríkur, að þau hafi verið sér
góður skóli.
Þegar hann var tvítugur fór
hann í Eiðaskóla og var þar í tvo
vetur. Næstu 4 ár var hann far-
kennari í Skriðuhreppi. Þá var
hann við búskap í nokkur ár.
En þegar hann var hálffertugur
að aldri fór hann í Kennai’askól-
ann og lauk kennaraprófi 1940.
Næstu fjögur ár var hann kenn-
ari í Húsavík, en síðan hér á Ak-
ureyri.
Þetta er nú hinn ytri rammi í
lífi Eiríks Stefánssoonar. En hvað
er þá að segja um manninn sjálf-
an? Hvernig starfsmaður er hann
og hver eru hugðarmál hans?
Það, sem einkennir Eirík, er
framúrskarandi skyldurækni í
störfum. Hann hefur það eitt fyr-
ir augum, að leysa verk sitt sem
bezt af hendi. Þetta er dýrmætur
eiginleiki fyrir kennara. Og hjá
því getur ekki farið, að þetta er
mikilvægt til að ná góðum ár-
angri í kennslustarfi.
Annað, sem einkennir öll verk
Eiríks, er vandvirkni. Snyrtileg-
ui' og smekklegur frágangur er ó
öllu því, sem hann gerir. Honum
er mjög sýnt um skrift og teikn-
ingu og venur nemendur sína á
góðan frágang.
Eiríkur er mikill þegnskapar-
maður. Það eru áhrif frá þeim
anda, sem ríkti í ungmennafélög-
unum í æsku hans. Honum er
Ijúft að leggja góðu máli liö end-
urgjaldslaust. Þessi hugsunar-
háttur hefur dvínað með þjóðinni
hin síðari ár, og er það mikill
skaði.
Eiríkur hefur unnið mikið í fé-
lagsskap kennara og ritað margar
greinar um uppeldismál í „Heim-
ili og skóla“. Þá var hann í stjórn
Sambands norðlenzkra barna-
kennara um skeið. Fyrir tveimui'
árum var hann kosinn í nefnd í
Sambandi íslenzkra barnakenn-
ara til að vinna að hjálparbókum
við nám í barnaskólum. í þessari
nefnd tók hann að sér, ásamt Sig-
urði Gunnarssyni, skólastjóra, að
semja handbók í átthagafræði
handa kennurum, og kom bókin
út síðastliðið haust. Hafa þeir
lagt mikið verk í samningu bók-
arinnar, og er eg þess fullviss, að
kennarar munu liafa hennar
mikil not við kennslu.
Af öðrum félagsmálum, sem
Eiríkur hefur unnið að hér á Ak-
ureyri, má nefna skógrækt og
dýraverndun. Er hann formaður
Dýraverndunarfélags Akureyrar
og vcrið í stjórn frá stofnun þess.
Af verkum dýraverndunarfélags-
ns má nefna forgöngu þess fyrir
fuglasýningunni hér í bæ, svo og
tilhlutun þess að bjarga hesti inn-
an af öræfum fyrir nokkrum ár-
um. t
í Skó'grsektarfélagi Akureyrar
hefur Eiríkur verið góður liðs-
maður. Hefur hann oft safnað
sjálfboðaliðum til gróðursetning-
ar og mikið unnið að henni sjálf-
ur. Hefur hann góðan skilning á
því, hve mannræktin og skóg-
ræktin eru skyld í eðli sínu.
1 Stundum ber svo við, að talað
er við mig í síma í stað nafna
míns og oft eru tekin misgrip á
okkur. Þó hafa þessi misgrip
gengið lengst, þegar eg hef fengið
kolin hans heim til mín. Og ham-
ingjan má vita, nema einhverjir,
sem þessar línur lesa, ólíti, að
hann hafi skrifað þetta greinar-
korn, en cg eigi fimmtugsafmæli!
Nú á þessum tímamóturn er Ei-
ríkur að auka reynslu sína og
þekkingu með því að kynna sér
danska skóla. Má af því marka, að
hannn er ennþá að vaxa í starfi
sínu.
Eiríkur Stefánsson er kvæntur
Laufeyju Haraldsdóttur, og eiga
þau einn son uppkominn, Hauk,
skrifstaofumann hjá Gefjuni.
Um leið og eg óska Eiríki allrar
blessunar i sambandi við fimm-
tugsafmælið, vil eg þakka honum
ágxtt samstarf undanfarin ár.
Eiríkur Sigurðsson.
Trillubátiir
til sölu. Smíðaár 1953, 1.5
smálest að stærð mcð 10
hestafla Albinvél. Semja ber
við undirritaðan
Kristmn Þorvaldsson,
Hrísey.
Byggingaefni
fyrirliggjandi svo sem:
TIMBUR
SEMENT
STEYPUJÁRN
MÓTAVÍR
SAUMUR
TRÉTEX
WALLBORÐ
GÓLFDÚKUR
PLASTDÚKUR
MÁLNING
o. fl.
Byggingavörudeild KEA.
lýíf grænmefi:
HVÍTKÁL
BLÓMKÁL
GULRÆTUR
TÓMATAR
AGÚRKUR
RAUÐRÓFUR
KARTÖFLUR
kemur daglega nýtt.
Kjötbúð KEA.
og
Hvítkál
gott og ódýrt.
Kjötbúð KEA.
Málverkasýning
Þorgeirs Pálssonar
Á sólgullnum síðsumardeginum
var bjart yfir fyrrverandi af-
greiðslusal Landsbankans við
Ráðhústorg 7 síðastl. laugardag,
þar sem Þorgeir Pálsson hefur
sett upp til sýnis 60—70 olíumál-
verk og vatnslitamyndir. Enda
eru þar bjartir litir og skærir
mjög áberandi. Þarna er fjöldi
fallegra — og ljómandi fallegra
mynda, er lýsa óvenju mikilli
ljóss- og litagleði, sem vekur at-
hygli og unað áhorfenda. Og auk
þess eru þarna nokkrar prýðis-
góðar andlitsmyndir.
Sýningarsalirnir báðir eru
mjög heppilegir, sérstaklega sá
stærri, svo að myndirnar njóta
sín vel. Ættu bæjarbúar að nota
tækifærið og fjölmenna þangað
næstu dagana og njóta þar
þeirrar ylhlýju gleði, sem fegurð
Ijóss og lita veitir hverju opnu
auga og hrifnæmu hjarta. Og
þarna er að sjá eitthvað við allra
hæfi!
Sýningin er opin daglega frá kl.
2—11 fyrst um sinn.
v.
Héraðsmót U.M.S.E. í
knattspyrnu
Miðvikudaginn 25. ágúst hófst
héraðsmót U. M. S. E. í knatt-
spyrnu. Að þessu sinni tóku þátt
í mótinu 6 félög: U. M. F. Reynir,
U. M. F. Æskan, U, M. F. Fram-
tíðin, U. M. F. Ársól og Árroðinn,
U. . F. Möðruvallarsóknar og U.
M. F. Svarfæla. — Alls munu 15
leikir verða leiknir, og eru þegar
búnir 8. — Standa stigin þannig
að U. M. F. Æskan, Svalbarðs-
strönd, er hæst með 7 stig, þá U.
M. F. Ársól og Árroðinn, Önguls-
staðahreppi, með 6 stig, það
þriðja er U. M. F. Svarfdæla með
4 stig.
Aldrei meira úrval en nú!
Málningarvörur Garðáhöld:
allar íáantegar tegundir Garðsláttuvélar
Plastvörur í geysimiklu úrvali Garðkönnur Garðslöngur Arfaklær
Burstavörur Arfasköfur
og Penslar Stungugafflar
at öllum tegundum Garðhrífur
Rafmagnsvörur Við höfum aðeins vönd- uðustu tæki, t. d. hina heimsþekktu Arkiv-viftuofna, Prometheus-straujárn Ryksugur, Garðstólar o. m. fl. Bílavörur Þetta er nýkomið: Bílalyftur, m. gerðir Topplyklasett Stjörnulyklar, stakir og í settum
Rafmagnsþráð, Járnvörur
Klær, og Verkfæri
Innstungur, allar algengar tegundir
Rofa o. m. fl. ávallt fyrirliggjandi
Axel Kristjánsson h.f.
Málning. & Járnvörur Brekkug. 1 — Sími 1356
**<*1SI
- „Hæringur“
(Framhald af 1. síðu).
þar er ýmissa viðgerða þörf. Þarf
að hreinsa botninn vel og ræki-
lega og athuga vélar allar og hvað
eina eftir svona langt hlé. Skipið
verður því sett upp — sennilega
á Storð, óðar og það kemur
hingað.
— Og hvenær mun það geta
orðið?
— Fari allt samkvæmt áætlun,
eins og vonandi er, mun skipið
koma hingað fyrri hluta septem-
bermánaðar. Teljum við víst, að
þá geti orðið lokið nauðsynlegum
viðgerðum í tæka tíð fyrir síld-
veiðarnar í vetur, svo að Gang-
stövíkur-verksmiðja verði þá
raunverulega st-arfhæf. — Þar
eru nú síldarþrær undir 140.000
hl. í landi, og sé meðtalið
geymslurúm skipsins, verður það
þá 165.000 hl. — Sólarhrings-
vinnslan 8000 hl. er allmikil, svo
að sambærileg verður við verk-
smiðjuna í Vedde (hinum megin
fjarðarins. — H. .).
— Er tilgangurinn með kaup-
um á fljótandi síldarverksmiðju
sá, að hætta við hina langþráðu
fasta-verksmiðju í Gangsttövík?
— Nei, fjarri fer því. Verk-
smiðjuskipið breytir engu á þeim
vettvangi, en kemur aðeins, til
bráðabirgða í hennar stað.
— Er þá nokkur sérstök und-
irhyggja í pokahorninu hjá ykk-
ur í sambandi við kaup þessi á
verksmiðjuskipi?
— Nei, ekki af okkar hálfu. En
skyldi síldin hafa eitthvert
laumuspil undir uggum, t. d. að
yfirgefa Sunnmærasterndur, —
sem þó er ekki sennilegt, — þá
myndi síldarversmiðjuskip vera
mjög mikilvæg eign. Þá getur
það fylgt síldinni eftir, ef að því
kæmi, að hún flyttist til nýrra
hrygningarsvæða.
,Gangstövika“ (áður eflaust
Gagnstöðvarvík, samkv. staðhátt-
um þar!) er mikil síldarsöltunar-
stöð skammt fyrir innan Álasund.
Hafa Álasundsbúar og aðrir
Sunnmæringar um langt skeið
undanfarið barizt fyrir því að
setja þar á stofn mikla síldar-
verksmiðju, er tekið gæti á móti
miklum hluta af því geysilega
síldarmagni, sem rifið er upp í
allt að tug-milljónir hl. á hverj-
um vetri á skömmum tíma á
Sunnmærahafi, svo að þær verk-
smiðjur, sem fyrir eru hafa alls
ekki undan. En hingað til hefur
ríkisvaldið spyrnt á móti og neit-
að um gjaldeyrisleyfi og stungið
þannig undir stól þessu mikla
áhugamáli Álasundsbúa og Sunn-
mæringa.
Kaupin á Hæringi eru því
bráðabirgðalausn á þessu máli.
Hclgi Valtýsson.
Fegursti skrúðgarðurinn
Fegrunarfélagið hefur dæmt
skrúðgarðinn við Helgamagra-
stræti 26 fegurstan í ár. Hann er í
eigu hjónanna frú Guðrúnar
Karlsdóttur og Sigurðar Guð-
mundssonár. Hlýtúr hánii því
verðlaun félagsins.