Dagur - 19.01.1955, Page 6
6
D AGUR
Miðvikudaginn 19. janúar 1955
í óttans dyrum
Saga eítir DIANA BOURBON
12. DAGUR.
(Framhald).
Eg settist á rúmstokkinn hjá
henni. „Viltu ekki segja mér eitt-
hvað um þennan Milhaud kaf-
tein?“ spurði eg.
Eitthvað í rödd minni hefur
komið upp um mig, því að hún
horfði á mig ásökunaraugum en
sagði síðan: „Það er svo sem
ekkert. Hann er bara einn af
þeim ungu mönnum, sem um-
gangast mig.“
„Eg var bara forvitin," sagði
eg, í hálfgerðum stríðnistón, sem
gefur til kynna að maður gruni
um óleyfilegtástasamband.„Hann
virðist mjög hrifinn af þér.“
Hún hló, og var ánægð. Hlátur-
inn var léttúðugur. „Eg er vön
því, að þeir séu hrifinr af mér, en
það er líka allt og sumt. Hefur
engin áhrif á mig, ef að þú heldur
eitthvað annað.“
„Og hvað heldur hershöfðing-
inn?“ spurði eg í léttum tón.
„Svo sem ekki neitt. Hvers
vegna skyldi hann gera sér grill-
ur út af því? London er sneisafull
af ungum heimskingjum, kæra
mín. Svoleiðis hefur það alltaf
verið og eg get ekkert að því
gert.“
„Nei, eg veit það,“ svaraði eg,
og beið við, átti von á meiru. En
hún þagði. „En mér sýnist Mil-
haud samt ekki tilheyra þeim
flokki,“ bætti eg svo við.
Henni var ekki sama. „Hvers
vegna segirðu það1?" spúrði hún,
og‘ kertndi gremju í röddinni.
„Ekki af neinni sérstakri
ástæðu,“ sagði eg og lék sakleys-
ingja. „En hann virðistt við fyi-stu
sýn að minnsta kosti ekki vera
neinn spjátrungur.“
Babs lá út af, var vör um sig
og gaf mér gætur.
„Það telur Jane líka. Þú hefur
talað um þetta við Jane, er það
ekki?“
Nú skildi eg, hvað hafði komið
upp á milli systranna. Eg svaraði
henni neitandi, og gat gert það
kinnroðalaust. Það var sattt. Eg
hafði ekki haft tækifæri til að tala
við Jane, og mundi aldrei fá það
framar. Við Jane höfðum aldrei
nefnt Fransmanninn á nafn.
„Þið hafið að minnsta kosti tal-
að um mig,“ sagði hún. „Eg veit
það og finna. Þú talar alveg eins
og hún.“
Þarna kom það! Jane hafði
verið áhyggjufull og hafði reynt
að milda taugaæsing systur sinn-
ar. Og fyrst að samband þeirra
Babs og Milhauds hafðl verið
nógu náið til að valda Jane
áhyggjum, þá var áreiðanlegt að
hershöfðinginn hafði ekki verið
blindur heldur En þó hafði eg
ekki séð nein merki þess um
kvöldið. Var hann líka þátttak-
andi í einhverjum leyndum og
dularfullum og kannske háska-
legum leik?
„Um hvað varstu nú að hugsa?“
spurði Babs allt í einu heldur
hvatlega. Hún velti sér á hliðina
og horfði fast á mig.
Eg ákvað að tefla á tæpasta
vað. „Eg hugsaði sem svo: Ef
Fransmaðurinn er þér ekki kær-
ari en aðrir, þá ertu meira en lítið
heimsk að leggja hjónaband þitt
í hæltu vegna ímyndaðs sam-
bands ykkar.“ Eg svaraði henni
hvatlega, í sama tón og hún hafði
talað til mín. „Þarna hefurðu
það, sem eg var að hugsa, þú
spurðir og eg hef svarað.“
Eg hafði búizt við uppþoti, en
ekkert varð úr því. Hún lá kyrr
og starði á mig. „Hvers vegna
segirðu þetta?" hvíslaði hún eftir
stundarþögn. „Hver hefur komið
þessari flugu í kollinn á þér?“
„Eg veit ekki, enginn sérstakur
held eg. Mér var nóg að horfa á
hann í kvöld.“
Hún reis nú upp við dogg í
rúminu. „Og þú trúir því í raun
og veru að hjónaband mitt sé í
hættu?“ Það var eins og hún
legði spurninguna fyrir sjálfa sig
ekki síður en mig.
„Þú ætlar þó ekki að telja mér
trú um, að sá möguleiki hafi
aldrei hvai-flað að þér. Hershöfð-
inginn er eldci einn af þessum
„ungu mönnum" þínum, hann er
maður af öðru sauðahúsi.11
Hún svaraði mér ekki beinlín-
is. Eg sá að hendur hennar skulfu.
„Hvað á eg að gera?“ hvíslaði
hún kjökrandi. „Hvað á eg að
gera?“
Eg laut að henni, tók skjálfandi
hönd hennar og sagði: „Hlustaðu
nú á mig, Babs: Þessi Milhaud er
þér ekkert kærari en hver annar.
Taktu rögg á þig og láttu hann
fara.“
„Eg get það ekki!“
„Og hvers vegna ekki?“
Hún opnaði murtninn, hvað
eftir annað, ætlaði hún að fara að
svara, en eg heyrði ekkert orð.
En svo kippti hún að sér hendinni
og sneri sér til veggjar. „Vegna
þess að eg þarf hans með,“ sagði
hún þrjózkulega. „Eg get ekki
verið ein.“
Eg hikaði andartak. Átti eg nú
að spyrja: Við hvað ertu hrædd,
Babs? Eða var það of snemmt og
of hættulegt?
Eg ákvað að reyna aðra leið.
Blátt áfram og rólega brevtti eg
umræðuefninu: „Hver er
Frank?“ spui'ði eg.
Hún di'ó einni sekúndu of lengi
að svara, en svo svaraði hún með
tilbúnu kæruleysi, sem var auð-
lesið: „Frank — nú, þú átt
við símtalið. Og það er meira en
skrítið. Eg hef verið að hugsa um
þetta síðan Anna kom með þessi
skilaboð, en hún hlýtur að hafa
tekið skakt eftir, því að eg get alls
ekki áttað mig á því, um hvern er
að ræða. Eg þekki alls engan með
því nafni.“
Eg stóð á fætur. Ef eg hafði
komizt nærri leyndardóminum,
þá var tækifærið til frekari vitn-
eskju liðið hjá. Við töluðum ofur-
lítið lengur um daginn og veg-
inn, en ekkert nýtt kom fram. Eg
ákvað að fara að hátta.
Eg staldraði við í dyrunum í
milli herbergjanna, sneri mér aft-
ur að Babs og spurði: „Babs, hve
margir símar eru hér í húsinu?“
(Framhald).
ATVINNA
Sá sem vill skapa sér atvinnu
getur fengið keypta eða
leigða smáverzlun. — Nýr
vandaður vörulager. Góðir
greiðsluskilmálar. Verzlunin
er í fullum gangi. Þeir sem
hefðu hug á þessu leggi inn
á afgr. blaðsins, nafn og
heimilisfang fyrir laugar-
dag, merkt — „Framtíð“
Rafmagnsofnar
Höfum fengið litlu 220
volta rafmagnsofna 1000
Watts, kr 115,50 stk.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Olíuvélar
Höfum til fleiri tegundir
af olíuvélum.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
r
1”, 2”, 3”, möskva
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Tilkynning
Ingimar Brynjólfsson bóndi
á Asláksstöðum í Arnarness-
hreppi er ráðinn gjaldkeri
Sparisj(>ðs Arnarnesshrepps
frá 1 febr. 1955. Ber því við-
skiftamönnum sparisjóðsins
að snúa sér til hans frá þeim
degi.
Eftir umboði sparisjóðs-
stjórnarinnar.
Hofi, 3. jan. 1955.
Hannes Davíðsson
Herbergi
Lítið herbergi til leigu í
Skólastíg 5
Sími 1303
Stúlka
óskast strax í vist til Auðuns
Auðunssonar skipstj., Rvík.
aðeins til vors. — Mjög hátt
kaup. — Uppl. í sima 1626
f B ÚÐ
Lítil íbúð óskast til leigu nú
þegar eða í vor.
A. v. á.
Verkamannaf élags-
fundur
Fundur verður haldinn í
Verkamannafélagi Akureyrar-
kaupstaðar í Verkalýðshúsinu
og hefst hann í dag miðviku-
dag. kl. 8,30 e. h. Á fundinum
verður m. a. rætt um atvinnu-
ástandið og tillögur til úrbóta.
Þá fer einnig fram fyrri um-
ræða um breytingu á lögum
félagsins og fleira verður þar
rætt áríðandi mála.
Ættu félagsmenn ekki að
láta undir höfuð leggjast að
fjölsækja þennan fund, sem
verða mun síðasti almenni fé-
lagsfundur fyrir aðalfund fé
Iagsins, en hann verður vænt-
anlcga haldinn síðari hluta
þessa mánaðar.
ÍBÚÐ
2 herbergi og eldhús óslc-
ast til leigu frá 14. maí
n. k. — Upplýsingar í
síma 1353 og 1764
Dansleikur
verður haldinn að Hrafnagili
laugardaginn 22. jan kl. 10 e.h.
Góð mússik. — Veitingar.
Umf. Framlíð.
Til sölu
svigskíði og stökkskíði.
Seld ódýrt. — Uppl. í
Strandgötu 27 ,niðri
Nýkomið
VESTU - golftreyjur
nýjir litir, hrokknar,
sléttar.
Verzlunin DRÍFA
Sími 1521.
Svartar kvenbomsur,
með loðkanti niður á ristina,
væntanlegar á morgun.
Verzlun
Péturs H. Lántssonar
TILKYNNING
um skömmtun frá Rafveitu Akureyrar
M iðvikudagur:
1. svæði: Brekkurnar og neðri hluti Oddeyrar:
Straumlaust frá kl. 8—12 og 16—20.
2. svæði: Miðbærinn ,efri hluti Oddeyrar og
Glerárþorp: Straumlaust frá kl. 12—16 og
kl. 20—24.
Fimmtudagur:
1. svæði: Straumlaust frá kl. 12—16 og kl.
20—24.
2. svæði: Straumlaust frá kl. 8—12 og kl.
16—20.
Það eru tilmæli Rafveitunnar a ðfólk takmarki
næturnotkun eftir því sem unnt er, til þess að komast
hjá næturskömmtun.
RÁFVEITA AKREYRAR.
Jarðeignir til sölu
Helmingur jarðanna Lunds og Rangárvalla í Akur-
eyrarlandi, ásamt húsum og mannvirkjum, er til sölu
og afhendingar á næsta vori. Komið gæti til mála sala
á eignunum öllum. — Vélar og verkfæri geta fylgt, ef
um semst. Ræktað land er allt rúmlega 30 hektarar.
Ágæt aðstaða til nýtízku búreksturs.
Semja ber við undirritaðan, sem veitir nánari upp-
lýsingar.
BJÖRN HALLDÓRSSON, lögfr., Akureyri, sími 1312.
Skagfirðingafélagið
heldur skemmtikvöld í Skjaldborg fimmtud. 20 þ. m.
kl. 8,30 e. h. fyrir félaga og gesti.
Skemmtiatriði:
KVIKAfYND, FÉLAGSVIST og DANS
Aðgöngumiðar afh. við innganginn. Mætið stundvíslega.
Skemmtinefndm
Nýkomið!
svartir karlmannaskór
Skódeild