Dagur - 02.04.1955, Síða 6
6
DAGUR
Laugardaginn 2. apríl 1955
í óttans dyrum jjf
Saga eltir DIANA BOURBON U
¥i f
25. DAGUR. s^C3^2~s§C3g2~¥
(Framhald).
Hann sagði ekki fleira. Eg
heyrði hann hlaupa niður þrepin.
Þegar á eftir var bílnum ekið á
brott.
Babs gekk óþolinmóð um gólf,
er eg kom til baka „Eg fer ekki
fet,“ sagði hún. „Eg veit ekki,
hvað hann hefur sagt þér, en eg
fer ekki. Eg yfirgef ekki húsið.“
„Hvers vegna ekki?“ spurði eg.
En hún lét sem hún heyrði ekki
þessa spurningu. Eg hélt því
áfram: „Hvers vegna skyldurðu
ekki taka því fegins hendi, að
vera með syni þínum úti á landi?
Þykir þér ekki vænt um hann?“
Eg hafði hleypt þessu skoti af
•blindandi, hafði ekki grun um,
hvernig henni mundi verða við.
En hún tók snöggt viðbragð:
„Vænt um hann!“ endurtók
hún. Eg get ekki lýst raddblæn-
um, en hann minnti mig á sært
dýr. „En það er einmitt þess
vegna....“, sagði hún_ en lauk
aldrei við setninguna. Mér fannst
nú allt í einu, að mér hefði verið
fenginn lykillinn að öllum leynd-
ardóminum.
„Babs,“ sagði eg lágt og stilli-
lega. „Hvað er það sem leynist í
þessu húsi? Hvað er yfirleitt að?“
Hún h örfaði án þess að svara,
en náði sér og tók upp látbragðs-
leikinn. „Um hvað ertu að tala?
Eg hef ekki hugmynd um, hvað
þú ert að fara?“
„Jú. þú veizt það mæta vel,“
syaraði eg. „Við skulum taka
Onnu til dæmis? Hvers vegna er
Anna nú í bráðri lífshættu?11
;Hún er ekki í hættu! Þú veizt
ekki. hvað þú ert að tala um.“
„Víst veit eg það. Eg segi þér
satt, hún átti að deyja. Það er
mergurinn málsins. Allir virðast
líta svo á, að hér hafi orðið slys.
Nema læknirinn, hann er alls
ekki viss um. að sú sé skýringin."
Hún rak upp undrunaróp. En eg
hélt áfram að þjarma að henni:
„Nei, hann er engan veginn viss
um það, og sú óvissa jafngildir
því, að fram muni fara lögreglu-
rannsókn á slysinu. Treystir þú
þér til þess að mæta í slíkum
rannsóknarrétti?" Eg þagði, lof-
aði henni að melta þetta litla
stund. En tók svo til á ný: „Sjáðu
nú til, Babs,“ sagði eg. „Við vit-
um það eg og þú, að Önnu var
hrint. Heldurðu ekki að tímabært
sé að við tölum út um það mál?“
Hún beið ekki boðanna, strunz-
aði fram hjá mér og sagði um
leið: ,,Eg held að þú sért ekki með
öllum mjalla. Eg neita að hafa
meira saman við þig að sælda.
Hypjaðu þig burtu héðan og út
úr húsinu hið fyrsta!" Hún slcalf
af geðshræringu. Hún gekk hvat-
lega yfir þvert herbergið og að
litlu skrifborði, sem stóð út við
gluggann. Þan lá lítil handtaska
opin á borðinu, og hún fór að
leita þar að einhverju af miklu
írafári. En hendumar skulfu svo,
að hún gat ekki hamið neitt.
Henni lá augsýnilega við gráti,
þrátt fyrir allt. „Eg verð að skrifa
tengdamóður minni,“ sagði hún
fremur við sjálfa sig en við mig.
„Farðu, viltu gjöra svo vel að
fara strax,“ endurtók hún.
En eg settist bara og horfði á
hana.
„Eg verð að skrifa tengdamóð-
ur minni,“ endurtók hún. „Hún
er þó ámma barnsjns. Hún....
Eg. . . . “ Engu var líkara en hún
væri hálfrugluð en hún hafði
samt fundið það, sem hún leitaði
að. Það voru gleraugu í dökkum
umgjörðum. Hún setti þau upp og
byrjaði að leita að skrifpappír í
borðinu.
„Eg sé ekkert,“ sagði hún undr-
andi. „Hér er allt í þoku! Drott-
inn minn, er eg að verða blind!“
Mér varð allt í einu þungt fyr-
ir brjóstinu. En ekki var urn að
villast. Engin skýring nægði til
þess að þvo hana af þessu. Eg
stóð á fætur, gekk til hennar og
sagði: „Eg býst við að það sé af
því, að þú hefur sett upp gleraug-
un mín,“ sagði eg.
,Hvað segirðu? Þín gleraugu?"
Eg rétti út hendina og tók gler-
augun af henni og leit á þau. ,;Já,
þetta eru mín gleraugu."
Hún hló kæurleysislega.
,,Jæja,“ sagði hún. „Það var
skrítið. Eg hlýt að hafa tekið þau
í misgripum í svefn'herberginu
þínu.“ Hún byrjaði aftur að leita
í handtöskunni að sínum gler-
augum en eg stöðvaði hana.
„Hlustaðu á mig, Babs. Þú
tókst gleraugun míu, það er rétt,
en ekki í svefnherberginu heldur
heima hjá Janie. Eg skildi þau
eftir þar í gærkvöldi áður en eg
kom hingað.“
Nú var grafarþögn. En svo and-
varpaði hún og lét fallast á hnén
við skrifborðsstólinn og horfði
undrandi og hrædd á mig. „Hver
ertu þá eiginlega, og hvað ertu að
gera hér?“ hvíslaði hún.
,jVæri ekki nær að þú svaraðir
spurningum, Babs?“ Eg settist
fyrir framan hana og greip hönd
hennai'. „Segðu mér heldur, hvað
'þú ert. Ertu kannske föðurlands-
svikari, Babs?“
Hún horfði á mig skelfdum
augum. „Veiztu allt?“ stundi hún
upp. „Nei, eg er ekki svikari það
er ekki þannig vaxið.“
„Segðu mér þá sanleikann,
Babs?“
„Eg get það ekki Eg segi þér
það satt, að eg get það ekki,“
hvíslaði hún hásri röddu.
„Hvað um Janie? Myrtii þú
hana, Babs?“
„Þú getur ekki látið þér detta
slíkt í hug!“ Og orðin hljómuðu í
eyrum mínum, sem hún væi'i að
segja satt.
„Hver gerði það þá? Þú hlýtur
að vita það.“
„Nei, eg veit það ekki.“
„En þú fórst þangað í dag. Þú
sagðist ekki hafa lykil, en það var
ósatt. Þú fórst þangað og þú tókst
gleraugun mín, það sannar að þú
varst þar.“
„Já, eg fór þangað, það er satt.
Og — og eg fann hana.“ Það fór
hrollur um hana.
„Hvers vegna var hún myrt,
Babs? Þú hlýtur að vita það?“
„Nei, eg veit það ekki.“
„Jú, þú veizt það vel og þú
veizt hver gerði það. Og það
verðurðu nú að segja mér.“
„Eg get það ekki. Eg veit það
ekki.“ Vein loftvarnaflautanna
barst inn til okkar og blandáðist
ákafri neitun hennar.
„Æi nei, ekki aftur í kvöld. Eg
get ekki afborið það,“ stundi hún
upp.
„Hugsaðu ekki um loftárásina,“
sagði eg. „Svaraðu mér! Þú veizt
víst, hver gerði það. Þú fórst heim
til Janie í dag til þess að fela
glæpinn. Þú hringdir í ráðuneyt-
ið í dag og laugst til um Janie, en
dú gerðir það til þess að ekki yrði
farið að grennslast um hana. Og
iú endaðir með því að kveikja í
húsinu hjá henni til þess að forða
iví að líkið fyndist. Einhver hef-
ur sagt þér, hvernig þú ættir að
fara að því, annars mundirðu
aldrei hafa gert það eins sniðug-
lega.“
Eg þagnaði. Hún horfði orðlaus
á mig.
„En þetta er misskilningui. Eg
kveikti ekki í neinu. Eg lokaði
aðeins skápdyrunum til þess að
hylja líkið. Eg segi þér satt. Eg
vildi bara forða því að það kæm
ist upp, í nokkra daga.“
„Hvers vegna?“
„Bara þangað til. ... “ Hún
þagnaði skyndilega.
„Þangað til hvað?“
„Það er ekkert.“
„Þetta dugar þér ekki, Babs.
Þú reynir að dylja morðið af því
að þú veizt, hvei' myrti Janie. Og
ef þú kveiktir ekki í, veiztu vel,
hver gerði það.“
(Framhald).
Til fermingarinnar
Fyrir stúlkur: Fyrir drengi:
Náttkjólar Gaberdineskyrtur
Undirföt Skyrtur, hv. misl.
Undirlcjólar, nylon Nærföt
Nærföt Sokkar
Sokkar, m. teg. Bindi
Veski Slaufur
Hanzkar Hanzkar
Hanzkaklemmur Treflar
V efnaðarvörudeild.
Hvað vanlar yður til páskanna?
Amerískt HVEITI á 3 kr. kílóið og 10 lb. pokar á 17 kr.
pokinn. - FLÓRU-GERPÚLVER kr. 10.50 kg. - FLOR-
SYKUR kr. 3.40 kg. - PÚÐURSYKUR kr. 3,20 kg. -
STRÁSYKUR kr. 3,10 kg. - MOLASYKUR kr. 4,10 :kg.
KANDÍS kr. 5,50 kílóið.
JARÐARBERJASULLTA kr. 10,50 og kr. 20,00 í gler-
krukkum. - BLÖNDUÐ HINDBERJA og EPLASULTA
á kr. 8,50 og kr. 15.00 - KÚRENNUR kr. 12,50 pr. kg.
og 7 kr. pakkinn. - HJARTARSALT - NATRON -
Allskonar BRAUÐDROPAR - SUCCAT, dökkt -
KANELL, heill og steyttur - KARDEMOMMUR, heilar
og steyttar - KÚMEN - KARTÖFLUMJÖL - KOKOS-
MJÖL - KAKÓ í lausri vigt og baukum. - SÚKKULAÐI-
DUFT í baukum, sætt.
Niðursoðnir ávextir:
FERSKJUR - PERUR - APRICOSUR
JARÐARBER - KIRSUBER - PLÓMUR
★
SÍRÓP - HUNANG - CORN FLAKES
RICE KRISPIES - ALL BRAN
★
Jaffa appelsínur
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
NÝLENDUVÖRUDEILDIN og útibú.