Dagur - 02.04.1955, Blaðsíða 7
Laugardaginn 2. apríl 1955
DAGUR
7
- Litli Ijóti andar
unginn
(Framhald af 5. síðu).
líka margt að sjá og nema um líf
skáldsins, sem ekki er annars
staðar hægt. í dag er þetta safn
miðstöð hátíðahaldanna, sem
fram fara víða um heim til að
heiðra minningu skáldsins. Þang-
að eru komin dönsku konungs-
hjónin og annað stórmenni í
Danmörk. Þaðan er útvarpað
ræðum og söng. En í flestum öðr-
um menningarlöndum er skálds-
ins minnst í dag. Sýningar eru í
London og París, frumsýningar
kvikmynda, hátíðahöld í skclum
og svo mætti lengi telja. Hér hjá
okkur er skáldsins minnst í skól-
um og í útvarpi.
Fáið' börmmum ævintýrin!
Þessi minningardagur mætti
verða til þess, að foreldrar
minntust þess, næst er þau þurfa
að segja börnum sínum ævin-
týrasögu eða fá þeim ævintýra-
bók, að ævintýri H. C. Andersens
standa að öllu leyti framar flest-
um þeim nýtízku ævintýrum og
barnasögum, sem útgefendur
hafa auglýst með mestum krafti
á seinni árum. Það barn, sem elzt
upp í heimi nútímans, án þess að
kynnast hinum hugljúfu ævin-
týrum H. C. Andersens, hefur
farið mikils á mis.
Ljóti andarunginn frá Odense
var í rauninni fegursti svanur.
- FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
auðnutittlinga, sem koma á
hverjum morgni til að vekja okk-
urýen hverfa .að því búnu. Og
ekkert verk er okkur eins hjart-
anléga endurgoldið pg mollf þejr,
er -við látum falla til smáfuglanna,
er þeir berjast við kulda og
bjargarskort á veturna.
- Onýt ar tölur ...
(Framhald af 4. síðu).
dökkar og ljótar eftir fyrsta
avott, og molna í sundur í þeim
næsta. Þannig er góðri fram-
leiðslu spillt með óvönduðum
smávarningi. Erlendis sér maður
að framleiðendur setja stolt í að
auglýsa skyrtur sínar með vönd-
uðum tölum, og eru þær e. t. v.
eitthvað ofurlítið dýrari af þeim
sökum. En enginn sér eftir þeim
aurm, því að þeim er ekki kastað
á glæ. En skyrtur með óvönduð-
um tölum eru hvimleiðar fyrir
húsmæðuig og í rauninni blettur
á annars góðri framleiðslu.
Niðursoðnir
ávexfir
til páskanna
KJÖTBÚÐIR K.E.A.
Hafnarstr. 89 — Sími 1111
Ránargötu 10 — Sími 1622
Nýjar gulrætur
og rauðrófur
Hafnarstrv 89 —>Sími l'l 11
Ránargötu 10 — Sími 1622
Orðsending til nemenda
Þórarins Kr. Eldjárns,
ljorn
Ákveðið hefur verið að þakka
Þórarni Kr. Eldjárn, Tjörn, vel
unnin störf í þágu menningar- og
uppeldismála með sérstakri
heiðursgjöf, er hann lætur af
skólastjórn og kennslustörfum nú
á þessu vori.
Nú þegar er hafin fjársöfnun í
Dessu skyni meðal nemenda hans
hér heima fyrir og gefst þeim
nemendum Þórarins, sem bú-
settir eru anners staðar, kostur á
að taka þátt í þeirri heiðursgjöf.
Framlögum þeirra, sem búsett-
ir eru í Reykjavík, verðui; veitt
viðtaka hjá Júlíusi Daníelssyni,
Búnaðarfélagshúsinu, og á Akur-
eyri hjá Kristjáni Aðalsteinssyni,
Húsgagnaverzl. Valbjörk.
Síðar verða tilnefndir fleirt að-
ilar til að annast söfnunina á öðr-
um stöðum, þar sem nemendur
hans kunna að hafa búsetu. Enn-
fremur veitir Baldvin Jóhanns-
son, útibússtjóri, Dalvík, fram-
lögum móttöku, og geta þeir, sem
það kjósa, sent tillag beint til
hans.
Þá hefur einnig verið ákveðið
að safna myndum af nemendum
Þórarins og er þess fástlega
vænst, að nemendur bregðist vel
við þeirri málaleitun og sendi hið
fyrsta mynd af sér til áður-
greindra umboðsmanna, ásamt
nafni, fæðingardegi og heimilis-
fangi.
Til leigu 14. maí:
2 stofur og aðgangur að eld-
í tluisij á ytrijbtakkuúni. ‘I
Uppl. í .síma'1913
eftir kl. 2 í dag.
BRÉFASKÓLI S.Í.S.
Námsgreinar bréfaskólans eru:
Skipulag og starfshættir samvinnufélaga. — Fundarstjórn
og fundarreglur. — Bókfærsla I. — Bókfærsla II. —
Búreikningar. — íslenzk réttritun. — íslenzk bragfræði.
— Enska fyrir byrjendur. — Enska, framhaldsflokkur. —
Danska fyrir byrjendur. — Danska, framhaldsflokkur. —
Þýzka fyrir byrjendur. — Franska. — Esperanto. — Reikn-
ingur. — Algebra. — Eðlisfræði. — Mótorfræði I. —
Mótorfræði II. — Siglingafræði. — Landbúnaðarvélar og
verkfæri. — Sálarfræði. — Skák, fyrir byrjendur. —
Skák, framhaldsflokkur.
Hvar, sem þér stundið nám, getið þér stundað nám við
bréfaskólann og þannig notið tilsagnar hinna
færustu kennara.
BRÉFASKÓLI S.Í.S.
V.-X> fcáMs V N V
a HULD, 5955467 — IV — V — 2
Messað í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 2 e. h. (Pálma-
sunnudagur) og minnst kristni-
boðsins. Olafur Olafsson kristni-
boði prédikar. Eftir messu verða
tekin samskot til kristniboðins. —
Sálmar: 143, 202, 142, 144 og
232 — K. R.
* fcj<> fe « rf <a 8''t 9 «II u 3 tt S @ flU
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju er á morgun klukkan
10,30 f. h. Sömuleiðis fundur fé-
laga í drengja- og stúlknadeild
ÆFAK á kirkjuloftinu. í kapell-
unni fyrir 5—6 ára börn, en í
kirkjunni 7—13 ára börn. Sein-
asti sunnudagaskólinn á vetrin-
um! — Æskulýðsblaðið kemur út
með skrá yfir öll fermingarbörn á
þessu vori.
Drengjafundur í
kapellunni á morg-
un kl. 5 e. h. Síðasti
fundur vetrarins.
Barnastúkumar Sakleysið og
Samúð hafa fund í Skjaldborg á
skírdag á venjulegum tíma. —
Nánar auglýst í skólanum.
Sameinaðar samkomur. í Varð-
borg föstudaginn langa kl. 4.30 e.
h. — í Nýja-Bó páskadag kl. 8.30
e. h. — Hljóðfærasláttur, söngur,
raéður. — Allir velkomnir. —
Sjónarhæð. Hjálpræðisherinn.
Látin er í sjúkrahúsinu í
Húsavík Kristín Friðlaugsdóttir,
ekkja Indriða skálds og fræði-
manns Þórkelssonar á Ytra-Fjalli
í Aðaldal, 80 ára að aldri.
Leiðrétting. f dánarfregn frá
Húsavík hér í blaðinu var sagt að
látist hefði Auðunn Hermanns-
son, ungur maður, rétt er Auð-
unn Aðalsteinsson. Hann var 26
ára, og hafði átt við sjúkleika að
stríða mestan hluta ævinnar.
Barnaverndarfélag Akureyrar
heldur aðalfund í fundarsal
Landsbankans (gengið inn um
austurdyr) á pálmasunnudag kl.
4 síðdegis.
Bazar hefur verkakvennafélag-
ið Eining í Verkalýðshúsinu
á morgun kl. 2 e. h. — Nefndin.
Skemmtiklúbbur Einingar hef-
ur dansleik í Alþýðuhúsinu, mið-
vikudaginn 6. apríl kl. 9 e. h —
Aðgöngumiðar seldir við inn-
gangin neftir kl. 8. — Nefndin.
Gæzlumaður verkamannaskýl-
isins við höfnina var ráðinn á síð-
asta bæjarstjórnarfundi. Var það
Jón Baldvinsson, Munkaþverár-
stræti 17.
Næsti Bændaklúbbsfundur verð-
ur á þriðjudaginn kemur, 5 apríl
nk., á venjul. stað. Ketill Guð-
jónsson segir fréttir af Búnaðar-
þingi.
Einhver af hestamönnum bæj-
arins vann það afrek á mið-
vikudaginn, að fara ríðandi
niður grasstallana frá kirkj-
unni að Kaupvangstorgi. Sýndi
Finnur Árnason, garðyrkju-
ráðunautur, fréttamanni blaðs-
ins verksunnnerkin. Hesíurinn
hafði spænt upp mjúkan gras-
svörðinn og eru stallarnir stór-
skemmdir. Furðulegt er, að
fullorðnir menn skuli leika sér
að því að eyðileggja þannig það
sem gert er bænum til ptýði, og
ætti að taka hart á slíku.
Samkomur í Zíon. — Pálma-
sunnudag kl. 8.30 síðd. talar Ól-
afur Ólafsson á opinberri kristni-
boðssamkomu Tekin verða. sam-
skot til stuðnings íslenzka
kristniboðinu í Konsó. — Allir
velkomnir. Kristniboðsfélagið.
Frá Amtsbókasafninu. Safnið
verður lokað 6.—11. apríl, að
báðum dögum meðtöldum.
Næturvarzla. — f nótt og aðra
nótt er næturvarzla í Stjömu-
Apóteki.
Niðursuðuvörur:
Grænar baunir
Gulrætur
Gulrætur og
gr. baunir
Rauðrófur
Rækjur
Súpur margar teg.
KJÖTBÚÐIR K.E.A.
.M . nt'jitj L
Hafnarstr. 89 — Sími '/727
Ránargötu 10 — Sími 1622
Barnakór Akureyrar hefur
skemmtun og kaffisölu í Varð-
borg á morgun kl. 3—5 síðdegis.
— Þarna verða á boðstólum
mörg skemmtiatriði, svo sem
kórsöngur, einsöngur, tvísöngur,
fimleikasýning, gamanþættir o. fl.
Allur ágóðinn fer til að greiða
sk.uldir kórsins frá Noregsföi innii
Komið og drekkið síðdegiskaffið
í Varðborg.
Afmælisfagnaður kvennadeild-
ar Slysavarnafélagsins er að
Varðborg í kvöld (2 apríl). Hefst
með kaffidrykkju. Til skemmtun-
ar: Söngur, hljóðfærasláttur, gam
anþáttur og ýmislegt fleira. Kon-
ur eru beðnar að gjörar svo að
taka aðgöngumiða sína, þai sem
þær hafa tilkynnt þátttöku sína.
Stjórnin.
Pálmasunnudagur sér-
staklega helgaður
kristniboðsmálum
Ólafur Ólafsson, kristniboði,
hefur beðið blaðið að láta þess
getið, að pálmasunnudagur verði,
eins og undar.farin ár, séistak-
lego helgaður kristniboðsmálinu.
Verður þess minnst við guðs-
þjónustu í kirkjunni og á sam-
komu í Zíon og þá veitt viðtaka
frjálsum gjöfum því til stuðnings.
— Þrír ferðaprédikarar vinna á
vegum sambandsins hér á landi,
þeir Gunnar Sigurjónsson, cand.
tehol., Benedikt Jasonarson,
kristniboðskandídat, og Ólafur
Ólafsson. En í Konsóhéraði í S,-
Epíópíu eru fyrir nokkru tekin
til starfa hjónin Felix Ólafsson og
Kristín Guðleifsdóttir, og hafa
þegar reist fyrsta hús íslenzkrar
kristniboðsstöðvar. — í vor eða
sumar verður send íslenzk hjúkr
unarkona þeim til aðstoðar. Ger-
ist þess mikil þörf, þar sem 30
þúsundir manna eru án læknis í
Konsó. Nýlega er búið að útvega
kristniboðanum jeppa, enda
verður hann að annast alla að-
drætti stöðvarinna rsjálfur.
Allt þetta starf kostar miklar
fórnir, en nýtur einskis opinbers
stuðnings. Gefit riú1 Akuryýfíng-1
um gott tækifEbri til að IJá góðu'
málefni stuðning.