Dagur - 30.04.1955, Side 7
Laugardaginn 30. apríl 1955
DAGUR
7
- Ræða Karls Kristjánssonar
(Framhald af 5. síðu).
Flutningsmenn hugsa sér, að
þessi nefnd, er skipuð sé að jöfnu
af atvinnurekendum og kaupþeg-
um, sé alltaf til og viðbúin.
Hún reikni á hæfilegum fresti
og að gefnum tilefnum hvaða
breytingar sé eðlilegt að gera á
kaupi eftir afkomu atvinnuveg-
anna og þá fyrst og fremst fram-
leiðslunnar. Hún hafi ekki úr-
skurðarvald, en sé ráðgefandi. Af
þeirri ástæðu er heldur ekki gert
ráð fyrir oddamanni í nefndinni.
Tillögumenn stinga ekki upp á
hve margir skuli vera í nefndinni.
Þeir geta verið tveir, fjórir eða
jafnvel sex, ólíklegt að heppilegt
sé að þeir séu fleiri, en sanngjarnt
að talan fari eftir samkomulagi
þeirra, er skipa.
Sexmannanefndin.
Já, vel á minnst! Háttv. þing-
menn muna sjálfsagt eftir hinni
svonefndu sexmanna-nefnd, sem
skipuð var 1943 og því samkomu-
lagi, sem varð innan hennar um
verðlagsgrundvöll landbúnaðar-
vara.
Starf þeirrar nefndar leiddi af
sér frið þann, sem verið hefur alla
stund síðan um þau kjaramál, sem
hún fjallaði um grundvöll fyrir.
Sú reynsla styður sterklega
þessa tillögu, sem hér liggur fyrir.
Ef nefndin hefði verið til.
Það er fullkomin ástæða til að
- FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu).
held áfram upp brekkuna, mig
langar til þess að heilsa' .u'ppf á
vinina okkar allra, fuglana á
pollinum neðan við sundlaugina.
Það er nú tæplega hæga að kalla
hann ,.,andapoll“ lengur, nú eru
þar fleiri fugíategundir. Svanirn-
ir eru sultarlegir, þeir synda fram
og aftur við tjarnarbakkann og
mæna til mín vonaraugum. „Því
miður hef eg ekkert handa ykk-
ur,“ sagði eg, „en skal muna eftir
ykkur næst.“ Gæsirnar rífa í sig
grænu stráin, sem þær ná til. Það
er furða hvað þær geta étið af
grasi, rétt eins og þær væru í ætt
við kýr eða kindur. Endurnar
rabba saman um tilvonandi
hreiðurgerð og hjúskap. Það er
auðséð að þær kvíða engu, þótt
mæður þeirra og ömmur hafi
skýrt þeim frá raunum sínum og
barnamissi af völdum yfirgangs
af óvelkomnum innrásarher í
hólmann þeirra. Stór dúfnahópur
kemur fljúgandi og setzt innan
við gii-ðinguna, ef til vill hafa þær
átt von á einhverju æti, en þegar
það bregzt, hefja þær sig upp á
ný, það þýtur í vængjum þeirra
þegar þær kljúfa loftið og hverfa
niður fyrir brekkuna. Það er
gaman að virða fyrir sér um-
hverfi þessa sérkennilega staðar.
Hér hefur verið unnið af kunn-
áttu og smekkvísi. Þökk sé öllum
þeim, sem hlutdeild eiga í því að
skapa þennan friðsæla reit. Læk-
urinn milli tjarnanna dregur að
sér athygli mína. Niður hans læt-
ur svo notalega í eyrum. Það
hvítfyssar á hnullungum. Hann
er dásamleg eftirlíking af „al-
vörulæk“, eins og litla stúlkan
komst að orði.
Eg rölti heim á leið, þar sem
heimilisstörfin bíða mín. Hvernig
færi ef húsmæður tækju upp á
því að gera verkfall? Hver veit,
hvað fyrir kann að koma?
■ötí'*
GÍéðilegt sumar!
álykta, að ef nefndin, sem tillagan
ræðir um, hefði verið skipuð, —
þó ekki hefði verið fyrr en í fyrra-
sumar, — þá hefði ekki sú deila,
sem nú stendur yfir, komizt á það
stig, sem hún er komin, — hvað
þá lengra.
Blöð allra flokka hafa í sam-
bandi við þessa deilu viðurkennt
að ófriður á þessum sviðum sé
þjóðarhöl, sem forðast beri af
fremsta megni. Oll hafa þau einnig
viðurkennt, að hagfræðilegir út-
reikningar sé það, sem gilda eigi.
Sama hefur komið fram hjá öll-
um, sem á málið hafa minnzt hér
á hinu háa Alþingi.
Gerðir hafa verið hagfræðilegir
útreikningar, en þeir eru véfengd-
ir, með skírskotun til að ekki hafi
verið teknir réttir liðir til útreikn-
ings.
Ef nú hefðu verið til niðurstöð-
ur útreikninga, sem fulltrúar beggja
aðila í nefnd, eins og þeirri, sem
tillagan er um, hefðu áður með
rólegri yfirvegun og ýtarlegri
komið sér saman um, hvernig leita
skyldi, þá hefði verið óþarft að
deila, — og lausn málanna fengin.
Sé þetta ekki rétt ályktað, —
þá er ekki að marka þær yfirlýs-
ingar um friðarvilja, sem ég hef
vitnað í, að komið hafa fram í
blaðaskrifum og ræðum.
I nefndina þurfa vitanlega að
veljast góðir menn, réttlátir og
glöggir.
Samtökin viga hæfa menn.
Enginn vafi er á því að bæði
samtök atvinnurekenda og verka-
Iýðs- og launþegasamtökin haía
slíkum mönnum á að skipa, eí þau
vilja kveðja þá til málanna. En
það verða þau einnig., að geta í
tæka tíð, eða með öðruin orðum:
fiafa' þá áfltaí á verði itm vinnu-
friðinn, eins og tillagan gerir ráð
fyrir.
Eg leyfi mér að vænta þess, að
allir háttvirtir þingmenn fallist á
tillöguna. Hún stefnir að því að
Éerð verði mikilsverð tilraun, fé-
lagsleg oé menningarleé, — til þess
að viðhalda vinnufriði of> vernda
hann, og tryggja jafnframt rétt
hvers og eins til þess að fá sinn
hlut af þjóðartekjunum, svo sann-
éjarnlega og rétt mældan sem unnt
Vor - þrátt fyrir allt!
„. . . . Hljóðglöggir menn heyra
eigi aðeins slunur og harmatölur i
þjóðlifi íslendinga. Þeir heyra og,
að þjóðarmetnaður vor dregur úrn-
súg d flugnum, og þeir lieyra
veengjaþyt vorboðans i visindum og
listum og ófredda óma þeirrar hug-
arununar er þjóðin mun hafa þar
af. Ldtið eigi arnsúginn dvína,
vcengstýfið eigi vorboðatin, bjargið
hinum ófœddu ómum. Minnizt
þess, að listaverk er aldrei of dýrt,
þvi að það ber öllum dvöxt, öld-
um og óbornum og öld ejtir
öld....“
(Bjarni Jónsson frá Vogi,
í ræðu 1914.)
- Vegir og vegaviðhald
(Framhald á 2. síðu).
þá stöðug þíðviðri, svo að klaka
tók að leysa úr jörð, grófust þá
vegir nokkuð, einkum þeir, sem
þimnt malarlag er á og mestur
umferðarþungi hvíldi á, en vegna
undangenginna þurrviðra eru
þeir flestir nú orðnir það þurrir,
að langt er síðan að brýna nauð-
syn bar til að hefla þá. Vegahefill
er staðsettur í Húsavík, sem að
líkum er undir yfirstjórn vega-
málastjórans á Akureyri. Eitt-
hvað mun hefill sá hafa myndast
við að slétta veginn í Aðaldal, en
aðeins komizt lengst suður að
Helgastöðum í Reykjadal. Allir
vegir þar fyrir framan þorna sem
ótræðis hraun. Og þegar við
mjólkm-hílstjórar berum fram
kvartanir við nefndan yfirmann
vegaeftirlitsins yfir ófremdar-
ástandi veganna hefur hann ekki
manndóm til þess að svara beiðni
okkar og óskum eins og ábyrgum
yfirmanni sæmir, heldur slítur
símtali, sem við höfum keypt við
hann, til þess að óska eftir að
hann framkvæmi þá skyldu, að
skoða.vegina sjálfur og gera ráð-
stafanir til úrbóta. Er þá eins og
hér sé um hégómamál að ræða,
sem honum komi ekkert við.
En nú sný eg mér til vegamála-
stjóra ríkisins, þegar þessi þjónn
hans er ekki viðmælandi um þau
mál, sem honum eru falin í opin-
berri þjónustu, og spyr: Eru þess-
um manni ekki ætluð meiri störf
en hann er maður fyrir? Væri
eklti athugandi að létta eftirlitinu
af.. veguip- j^^ingeyj^s^skv . af
hpkmm pgx, fékL hað'. síáH'í jTidÁhh;.
bú’sélfúm'hér f heráði,‘mánni,séri>'
við ættum hægara með að um-
gangast og sem hefði betri að-
stöðu til þess að fylgjast með
végaviðhaldinu hér? Eg h.eld að
það væri nauðsynleg ráðstöfun
og þakkarverð.
Einarsstöðum, 26. apríl 1955.
Einar Jónsson,
sérleyfishafi.
ERLEND TÍÐINDI
(Framhald af 4. síðu).
Bændur óttast þvingaðan sam-
yrkjubúskap og afnám eignarrétt-
arins, ungt fólk óttast sögur um að
„alþýðulögreglan“ verði brátt efld
um helming og útbúin sem her, til
andsvara við hervæðingu Vestur-
Þýzkalands. Kennarar eru í mjög
erfiðri aðstöðu um þessar mundir,
því að þeim er uppálagt að fá
kommúnistiskar hollustuyfirlýsing-
ar frá ungmennum, er gildi í stað
fermingarheits.
Allt þetta ýtir undir flóttann
vestur á bóginn frá hinu óbærilega
öryggis- og réttleysi einstaklingsins
í hinu tillitslausa kommúnistaríki.
BÍLL
Mjög rúmgóður fjögurra
manna bíll (Morris) er til
sölu. Keyrður ca. 34 þús km.
Á nýjurn dekkum með nýj-
an rafgeynti og nýuppgerð-
um fjöðrum. Greiðsla eftir
samkomulagi.
A. v. á.
Messað í Akureyrarkirkju kl.
10.30 f. h. á morgun. — Sálmarn-
ir eru þessir: 510, 687, 220, 681 og
685. Syngið sálmana. — P. S.
Hreppsbúar í Glæsibæjarhreppi
buðu Einari G. Jónassyni á
Laugalandi til samsætis í þing-
húsi hreppsins í tilefni af 70 ára
afmæli hans, en ekki hrepps-
nefnd, eins og sagt var í síðasta
tbl. Var mjög almenn þátttaka í
samsætinu.
Guðrún Brunborg sýnir kvik-
myndina „Þrír menn á biðils-
buxum“ í Nýja-Bíó nú um helg-
ina og er þetta frumsýning mynd-
arinnar hér á landi.
m
Á fimmtudaginn varð frú María
Hafliðadóttir, fyrrv. Ijósmóðir í
Akureyrarkaupstað, Brekkugötu
27, 80 ára.
Hún er fædd á Eyrarlandi þar
sem foreldrar hennar, Hafliði Þor-
kelsson og Sigríður Grímsdóttir,
bjuggu um skeið, en sama árið og
hún fæddist, 1875, fluttu þau til
Akureyrar og hér hefur María átt
heima alla tíð síðan. Árið 1902
sigldi hún til Kaupmannahafnar
til að nema ljósmóðurfræði við
fæðingardeild rikisspítalans. Voru
þar þá 36 nemar, og voru 6 frá
fyrrverandi og núverandi nýlend-
um Dana, 2 frá Islandi, 2 frá Græn-
________;____> > i - »• ___
f j |
KA-kabarettinn heim-
sótti Skagfirðinga
Um s.l. helgi fór KA-kabarett-
inn, sem hefur skemmt Akureyr-
ingum nokkrum sinnum í vetur,
í sýningarferð til Sauðárkróks og
hafði kvöldskemmtun í félags-
heimilinu Bifröst á laugardags-
kvöldið við ágæta aðsókn. Til
skemmtunar var m. a.: Sjón-
hverfingar, gamanvísur, upplest-
ur, söngur, kveðskapur og spurn-
ingaþáttur. Róma Akureyring-
arnir mjög samkomuhúsið Bif-
röst, og segja það vel búið og
ánægjulegt. Að loknu kabarett-
kvöldinu var dansað, og lék
hljómsveit Sigurðar Jóhannes-
sonar hér á Akureyri fyrir dans-
inum.
Barnakerra
(Silver Cross) til sölu,
Sigfrið Einarsdóttir
Símar 1904 g 1521
KFUK lýkur vetrarstarfsemi
sini með almennri samkomu í
kristniboðshúsinu Zíon í kvöld
kl. 8.30. Fjölbreytt efnisskrá, svo
sem: söngur, upplestur, samtals-
þáttur. Einnig verður happdrætti
til ágóða fyrir skálasjóð félagsins.
Margir vinningar. — Allir vel-
komnir.
Fimmtugsafmæli. Sigurður
bóndi Stefánsson á Ondólfsstöð-
um varð fimmtugur í gær. Hann
er vinsæll og kunnur atorku-
maður.
Aðalfundur Kaupfélags Þing-
eyinga verður haldinn á Laug-
um 4. maí næstk.
landi og 2 frá Vestur-Indíum.
María útskrifaðist með bezta vitn-
isburði og hlaut verðlaun skólans.
Árið 1904 tók hún við ljósmóður-
starfi hér af frú Guðnýju Jóns-
dóttur, ekkju Friðbjarnar Steins-
sonar, en hún hafði gegnt starfinu
í 48 ár. Var María ljósmóðir
kaupstaðarins, unz hún sagði starf-
inu lausu 1920, en gegndi því þó
2 ár enn vegna áskorana. Árið 1905
giftist María Jóni Guðmundssyni
byggingameistara, en hann var
kunnur og mikilsmetinn borgari
og einn af forustumönnum iðnað-
armanna. Áttu þau ágætt heimili.
Jón andaðist 1945, þá nýlega sjö-
tugur að aldri. Líknarhendur frú
Maríu Hafliðadóttur hafa veitt
fjölda Akureyringa hina fyrstli
umönnun. Hún var einstaklega
heppin ljósmóðir og naut virðingar
og vinsælda jafnt í starfi sínu út
á við sem húsmóðir á heimilinu
og ágætur þegn bæjarfélagsins.
Vinir frú Marlu og heimilis
hennar, fyrr og síðar, minnast
hennar með virðingu og þakklæti
á þessum tímamótum.
- Nýjii samningarnir
(Framhald af 1. síðu).
nefndarmaður getur áfrýjað
ákvörðun meirihluta um bætur
til Tryggingaráðs ríkisins. At-
vinnuleysistryggingasjóður rná fá
að láni af vörzlufé Trygginga-
stofnunar ríkisins til að byrja
með,' og eins má lána fé í inilli
sérreikninga sjóðsins. Starfs-
svæði sjóðanna eru bæir og kaup
tún með 500 íbúum eða fleiri, en
bæir með 300 íbúum geta gerzt
þátttakendur af þess er óskað.
Samið var um að niður falli
sakir, er orðið hafa í deilunni. —
Auk þess, sem hér er sagt, eru
sérákvæði ýmis eftir félögum sem
ekki liggur fyrir hver eru að
sinni, en munu ekki raska þeirri
heildarmynd, sem hér er lýst.
Aðalf undur
Sambands nautgriparæktarfélaga EyjafjarÖar verður
haldinn að Hótel K.E.A. á Akureyri þriðjudaginn 10.
maí n. k. og hefst kl. 10 árd.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður þar tekin
ákvörðun um stofnun tilraunastöðvar í búfjárrækt.
Akureyri 29. apríl 1955.
] Stjórnin.
r
Attræð:
Frú María Hafliðadóftir,
fyrrverandi ljósmóðir
F. K