Dagur - 07.05.1955, Qupperneq 8
8
Baguk
Laugardsginn 7. maí 1955
Þórarinn Eldjárn í TJörrs læfur
af skólasfjórn efffr 46 ára sfarf
Barnaskóli Svarfdæla flytur í
glæsilegt skólahús
Barnafkólanum á Grund í
Svarfaðardal var slitið 3. maí sl.
Skólastjórinn, Þórarinn Kr. Eld-
jóm, hættir nu kennslu — og
skólastjórastnrfum, en þau störf
hefur hann haft með höndum í 46
ár samfleytt. ,
í tilefni af því, að Þórarinn
lætur af störfum, komu foreldrar
skólabarnanna saman og voru við
skólauppsögnina. Að henni lok-
inni var setzt að kaffiborði í boði
hreppsnefndarinnar. — Ræður
fluttu í þessu hófi þeir séra Stef-
án Snævarr formaður skóla-
nefndar, er bar fram þakkir
skólanefndarinnar og almenn-
ings, Björn Jónsson bóndi á
Ölduhrygg, Jóhannes Haraldsson
í Laugahlíð, Helgi bóndi á Þverá
o. fl. — Staðfestu allar ræðurnar
það, sem kunnugir raunar vissu
áður, — að Þórarinn hefur aflað
sér óskiptra vinsælda í starfi sínu
að skólamálum sveitarinnar. Að
lokum þakkaði Þórarinn ræður
og samstarf og alla vinsemd sér
auðsýnda. Milli ræðna var sung-
ið. — S.'ðar á árinu er ákveðið að
halda Þórarni Eldjárn samsæti,
sem almenningur tekur þátt í.
Verður hann þá sæmdur gjöf,
sem nemendur. hans eru að
safna í.
Nýtt skólahús á Húsabakka.
Annarra þáttaskila í svarf-
dælskri skólasögu var jafnhliða
minnzt í samsæti þessu. Síðan
árið 1912 hefur skólinn verið
haldinn að Grund, en nú flytur
hann í hið glæsilega hús sitt á
Húsabakka, sunnan og neðan við
Tjöm. Er hið nýja hús að rniklu
leyti fullgjört og byrjar kennsla
þar næsta haust. Betra húsnæðis
Óskað eftir bæjar-
ábyrgð til skipakaupa
Á síðasta bæjarstjórnarfundi var
afgreitt erindi frá Skafta Jónssyni,
skipstjóra hér í bæ, þar sem hann
fór fram á að fá aðstoð bæjarins til
þess að kaupa hingað vélskipið Sig-
ríði, RE 269. Óskaði hann bæjai-
ábyrgðar fyrir 300 þús. kr. láni, er
yrði tryggt með 2. veðrétti í skipinu
næst á eftir veðskuld við Fiskiveiða-
sjóð. Bæjarráð taldi sig ekki geta
mælt með ábyrgðarbeiðninni nema
umsækjandi setji frekari tryggingar
en um gat í erindi hans, og staðfesti
bæjarstjórnarfundurinn þetta álít.
Milljón króna haili á
Rafveitunni í ár?
Samkvæmt áætlun þeirri, er Raf-
veita Akureyrar hefur gert um tekj-
ur og gjöld rafveitunnar fyrir yfir-
standandi ár, nema útgjöldin 8.6
millj. en tekjurnar 7.6 millj. í út-
gjöldunum er meðtalin 1 millj. kr.
afborgun af dönsku láni og 200 þús.
kr. vextir af því, og keypt raforka
frá Laxárvirkjun á hinu nýja verði
kr. 5.1 millj. Stjórnar-, skrifstofu- og
innheimtukostnaður og eftirlaun er
áætlað 800 þús. kr. og viðhald og
viðbætur 1.2 millj. Rekstur Glerár-
stöðvar 50 þús. kr. og ýmis útgjöld
180 þús. kr.
var full þörf. Gamla þinghúsið er
ekki lengur nothæft til kennslu,
enda frá upphafi ófullnægjandi
að ýmsu leyti. Ræðumenn þeir,
sem gengið höfðu þar í skóla,
minntust hins vegar verunnar
þar hlýlega, og töldu sig eiga
góðar minningar um „gamla
skólahúsið á Grund“.
Endurskoðun f jallskila-
reglugerðar Eyja-
fjarðarsýslu
Á síðasta sýslufundi var ákveð-
ið að endurskoða fjallskilareglu-
gerð sýslunnar og til þess
kjörnir:
Brynjólfur Sveinsson; Akureyri,
Eiður Guðmundsson, Þúfnavöll-
um og
Valdemar Pálsson frá Möðruvöll-
um.
Leita skal álits og till. hrepps-
nefnda um breytingar, sem þær
kunna að óska að gerðar verði á
reglugjörðinni, og skulu þær
senda tillögur sinar til sýslu-
manns fyrir lok næsta septem-
ber.
Ráðstöfun tekjuafgangs
ríkissjóðs
Ríkisstjórnin hefur lagt fyrir
Alþingi frumvarp um ráðstöfun
tekjuafgangs ríkissjóðs 1954, og
skiptist hann þannig: Ræktunar-
sjóður og Fiskveiðasjóður fá 8
millj. kr. hvor, 6 millj. verða
framlag rikisins til atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, veðdeild Búnað-
arbankans fær 4 millj. að láni í
20 ár, 3 millj. eru framlag ríkis-
sjóðs til heilsuspillandi húsnæðis,
skv. útrýmingarfrumvarpi stjóm-
arinnar, 1,5 millj. eru uppbætur á
sparifé og 1.5 milj. rennur í brú-
arsjóð til að endurbyggja gamlar
stórbrýr. Loks greiðir ríkið nú
1,5 millj. í vangoldnar skuldir
ríkisins til skólabygginga og 1
miilj. til hafnargerða.
Sjóður til minningar
mn Hallgrím málara
Böm og systur Hallgríms
Kristjánssonar málarameistara á
Akureyri er andaðist á sl. ári,
hafa gefið 10 þús. kr. sjóð til
minningar um hann, og er hann
ætlaður til styrktar munaðar-
lausum börnum. Stjórn sjóðsins
annast eldri sóknarpresturinn í
bænum, skólastjóri aðalbarna-
skólans og einn maður kosinn af
bæjarstjóm.
Samvinnumenn í ííima-
þingi halda fundi
Ur Húnavatnssýslu er blaðinu
símað, að þar verði haldnir að-
alfundir fyrirtækja samvinnu-
manna í næstu viku.
Akfært til Grímsstaða
á Fjöllum
Um miðja vikuna kom hingað í
bæinn á jeppab'l sínum Sigurður
Kristjánsson bóndi á Grímsstöð-
um á Fjöllum og ók hann við-
stöðulaust hingað, Sagði hann
helzta fai-artálmann hafa verið
forarpytt á þjóðveginum í Liósa-
vatnsskarði. Vegurinn á Mý-
vatnsöræfum er ofurlítið grafinn
eftir vorleysingar, en Pétur bóndi
í Reynihlíð, vegaverkstjóri þeirra
Þingeyinga, hafði þegar byrjað á
viðgerð. Vegurinn til Möðrudals
er snjólaus orðinn og þurr að
mestu, en eitthvað grafinn, sagði
Sigurður. Þessi vetur hefur verið
Fjallabændum góður. Leit og vel
út með vorkomu í sl. mánuði og
byrjaði að grænka á sendinni
jörð, en síðan kólnaði hefur stað-
ið í stað.
Hafnarbætur í Grímsey
hef jast innan skamms
Grímsey f gær.
Þess er nú vænst í Grímsey, að
hafnarbætumar þar, sem lengi
hafa verið fyrirhugaðar, geti haf-
izt um miðjan mánuðinn. Er vita-
skipið Hermóður væntanlegt með
efnþ Á að lengja hafnargarðinn
um 20 metra og gera bryggju við
hann innanverðan. Verður dýpi
þar 15—16 fet um fjöru. —
Ógæftir hafa verið í Grímsey um
hálfsmánaðar skeið, og ekki verið
farið á sjó að heitið geti. Fiskleysi
er og við eyna, fá togbátar þar í
grennd lítinn afla, og lítið er um
skipaferðir við eyna. Flugferðir
hafa ekki verið, en þess er vænst
að þær hefjist von bráðar. Flug-
völlurinn er orðinn þurr og lend-
ingarfær að áliti Grímseyinga. —
Fuglinn er setztur að í bjarginu,
og mun varp byrja um miðjan
mánuðinn ef að vanda lætur.
Eggjataka verður lítið stunduð í
ár. Aðeins fáir ungir menn síga í
bjarg, og eru flestir að heiman
um þessar mundir, á vertíð sunn-
anlanns,
y
Glímusýning á Rreiða-
mýri
Á laugardaginn var héldu
nokkrir glímumenn í Reykiadal
samkomu að Breiðamýri. Höfðu
þeir glímusýningu undir stjórn
Haralds Jónssonar á Jaðri, er
hefur æft unga og áhugasama
menn í íslenzkri glímu í vetur.
Þótti hún takast ágæta vel —
Heyrzt hefur að glímuflokkur
þessi muni sýna hér á Akureyri
á landsmóti ungmennafélaganna
í vor, Er það vissulega gleðiefni
öllum unnendum hinnar forn-
frægu iþróttar.
Vegir eru nær ófærir bifreið-
um í Bárðardal, sökum aur-
bleytu. Um Ljósavatnsskarð er
einnig nær ófært bílum. En þar
er verið að gera við veginn þessa
dagana.
Sunnlenzkir skemmti-
kraftar á ferð
Á morgun er auglýst bér
skemmtun, svonefndur revýu-
kabarett, að sunnan Koma þar
fram ýmsir kunnir dægurlaga-
söngvarar og hljóðfæraleikarar
o. fl. Ætlar flokkurinn að hafa 4
sýningar hér meðan við er staðið,
kl. 3, 5, 9 og 11.30. Aðgangseyrir
er 35 kr.
Endurbætur á Hrís-
eyjarbryggju í semar
Hrísevingar vænta þess að geta
byrjað á endurbótum þeim. sem
ákveðnar eru á bryggju þeirra, í
næsta mánuði. Járn það, sem
setja á á bryggjuna, ér kevpt frá
Þýzkalandi og er ekki komiS til
landsins enn. Mun taka þrjá
mánuði, frá því að vinna befst, að
ljúka endurbótunum, og er sum-
artíminn dýrmætur til þessa
verks. — Sauðburður er bvrjað-
ur. í Hrísey eru um 300 fjár, og
er það fullálagt miðað við beiti-
land í eynni. — Ekki heíur gefið
á sjó, svo að heitið geti, í hálfan
mánuð. Er sífelldur strekkingur,
sem spillir sjósókn minni báta. Á
miðvikudaginn reri einn bátur á
mið í grennd við eyna og fékk
1500 kg.
Ólafsfirðingar veiða
loðnu
Ólafsfirði á fimmtudag.
I dag veiddust hér 15 strokkar af
loðnu rétt utan við hafnargarðinn.
Var loðnan háfuð upp í- bát en ekki
iásuð. Beittu nú allir nýrri beitu og
gera sér góða von um afla. Á sunnu-
daginn fengust 2000 pund á línu á
einn bát. Sæmilegur handfærafiskur
er, þegar á sjó gefur.
Bamaskólanum slitið.
Barnaskólanum hér var slitið á
þriðjudaginn. Við það tækiiæri var
sýning á handavinnu nemenda. 1
skóianum voru alls 165 nemendur í
vetur. 1 landsprófsdeild við ung-
lingaskólann eru 8 nemendur, sem
þre.yta prófið í ár. Unglingaprófi
luku nú 15 nemendur. Hæstu eia-
kunnir hlutu-Rakel Jónsdóttir, 9.16,
og Guiinar L. Jóhannsson, 8.45. —
Barnaprófi lúku 18 hörir. Hæstu
einkunnir hlutu Sæunn Axelsdóttir
9.05, og Helga Magnúsdóttir, 9.00.
Mývetmngar frvsta
silongsafla
Reynihh'ð.
Krían sást fyrst í Mývatnssveit
þann 28. apríl, og er það fyrr en
venjulega. — Xsinn er nú farinn
af vatninu, nema í Neslandavík
er stór jaki. — Dorgvaiði var
fremur lítil í vetur og er henni að
fullu lokið. En á nokkrum bæjum
héfur veiðzt nokkuð af silungi í
fyrirdrætti. Silungurinn er hrað-
frystur í Húsavík og síðan sendur
á markað til Rvíkur og fleiri
staða sunnanlands. Var þessi sala
á frosnum silungi reynd í fvrra í
fyrsta skipti og gafst þá mjög vel.
Hyggja Mývetningar gott til
þessa markaðs í framtíðinni. —
Sauðburður er að byrja. Tíðin er
köld og föl á jörðu öðru hvoru.
Bleyta seinkar vor-
yrkjuimi
Úr Svarfaðardal 5. maí.
Hér er jörð að mestu alauð í
byggð, en snjór í fjöllum. Kalt er
í veðri og lítill gróður kominn.
Bleyta í túnum seinkar voryrkj-
unni. Aflabrögð: Lítill afl er á
þeim miðum, sem Dalvíkingar
sækja á, enda lélegar gæftir.
Er hægf a8 gera þeffa skip að vinnuskóla unglinga í bænum?
í * 1 L i ’M' \|
í fyrralivöld hringái éiaðsins góður borgari í bænum, Guð-
imindur Gíslason, vcrkstjóri, Eyrarvegi 27, og bar íram þá hugmynd,
cð Akureyrarbær kæmi á flot vinnuskóla á sjó. Unglingunum væri
ekki aðeins kennt að fást við garðrækt, heldur fengju þcir einnig
tækifæri til þess að kynnast sjómennsku og vinnubrögðum á sjó. Er
ikki hægt að leigja skip eins og Gróttu, spurði Guðmundur, sem
íiggur hér f höfninni og er ónotað en er ágætlega hentugt til þess að
verða slíkt skólaskip? Og ekki ætti að vera vandi að fá menn til
þess að stjóma unglingunum og kenna þeim. Nefndi hann til Stefán
Jónasson, hinn kunna skipstjóra, sem væri tilvaJinn skipstjóri og
skólastjóri run borð, og Eið Benediktsson, sem ekki mundi síðri scm
yfirkennari og stýrimaður. Og aðra áhöfn væri hægt að benda á,
sagði Guðmundur. Væri ekki betra fyrir unglingana — og þjófélag-
ið — að senda þá á skak við Gjögur eða Langanes, en vera á götunni
hér? Bærinn hefur undamfarin ár starfrækt vinnuskóla þótt ekki
hafi verið á sjó farið. Er eklti tiliaga þessi þess verð að athuga hana?
Ýmsiun mun sýnast, að hér sé hreyft góðu máli.