Dagur - 08.06.1955, Blaðsíða 1
I
Fylgist með því, sem gerizt
hér í kringum okkur. —
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út á mið-
vikudaginn 15. júní.
XXXVDI. árg.
Akureyri^ miðvikudaginn 8. júní 1955
32. tbL
Kotárbrú grafin undir urð Endurgreiðsla KEA til télagsmanna sinna
Grjótkast og straumþungi ógnar veg-
íarendum - Kranabíll hjálpar
Þverárnar, Kotá og Valagilsá í
í Norðurárdal í Skagafirði, hafa
látið allmikið til sín taka að und-
anförnu. í hitunum fyrir hvíta-
sunnuna hljóp ofsavöxtur í Kotá.
Bar hún með sér ógrynni af aur
óg grjóti og fyllti á stuttum tíma,
árfarveginn við Kotárbrú. En
ekki lét hún þar við sitja því hún
færði brúna í kaf. Var brúin með
öllu horfin á hvítasunnudag, 29.
fyrra mánaðar. Rétt ofan við
brúna var Prinshvammur, fallegur
hvammur og góður áningarstaður.
Var þar tjöldum upp slegið og
tekið á móti Friðrik prins, nú
Danakonungi, eitt sinn, er hann
var hér á ferð. Nú er Prinshvamm-
ur horfinn eins og brúin, en Kotá
hleður lagi á lag ofan, fjallagrjóti
yfir mannvirki og sögustað.
Brúin týnd — umhverfið breytt.
Jarðýtur voru þegar sendar á
vettvang, til að draga bíla yfir
torfæruna. Umferð var mjög mikil
daginn fyrir hátíðina og líka á
annan í hvítasunnu. Mátti þá heita
að ýtumar væru alltaf á ferðinni,
fram og til baka, með bíla í togi
eða að jafna farveginn, sem breytti
sér í sífellu.
Á fimmtudaginn var, lá þriggja
Söngur „Vísis“
Karlakórinn Vísh' frá Siglu-
firði, söng í Nýja Bíó á Akureyri
á hvítasunnudag. Söngstjóri var
Haukur Guðlaugsson og ein-
söngvarar þeir Daníel Þórhalls
son og Sigurjón Sæmundsson.
Húsfyllir var og söngnum for-
kunnarvel tekið. Varð kórinn að
syngja mörg aukalög og söng'
stjóranum bárust blóm. — Vísir
hélt af stað vestur og suður, strax
að söngnum loknum og söng á
Sauðárkróki, Akranesi og síðan í
Reykjavík við ágætar viðtökur
alls staðar.
Náms- og skemmtiferð
skólabarna á Akureyri
í s.l. viku fóru skólabörnin á
Akureyri sína árlegu skemmtiferð.
Var farið austur í Mývatnssveit og
tók ferðin þrjá daga. Var legið þar
við í tjöldum og skoðað allt það
merkasta, sem þar var að sjá.
Meðal annars var gengið á Hvei
fjall og í Dimmuborgir. En Mý-
vatnssveit hefur eins og kunnugt
er meiri fjölbreytni upp á að bjóða
í gróðri og jarðmyndun en flestir
aðrir staðir. I ferð þessari tóku
þátt 85 börn og fóru 5 kennarar
með þeim.
metra þykkt lag af framburði ár-
innar ofan á brúnni. „Hérna er
brúin,“ sagði Rögnvaldur vega-
verkstjóri og benti niður í urðina.
Ótrúlegt en satt. Stór landsspilda
fyrir neðan er orðin óþekkjanleg.
Þar hafa myndast stórar urðir.
Grjótið hefur orðið þar eftir en
Norðurá, sem beljar fyrir neðan,
hefur fengið mold og leir sem litur
hennar ber vitni um.
Eftirstöðvar skriðufallanna?
Ekki er vitað að rannsókn hafi
verið gerð í fjallinu upp með ánni,
nú í sumar, sem skýrt gæti að
fullu hamfarir Kotár. En margir
telja þetta eftirstöðvarnar af
skriðuhlaupunum í fyrra. Laus
jarðvegur, sem ekki náði að renna
fram þá, skriði nú fram, jafnóðum
og klakinn þiðnar.
Þriðja maí fór að færast líf í
Valagilsá, sem ekki hafði látið
neitt að sér kveða fyrr. Er þar
skemmst af að segja að hún braut
sér leið gegnum veginn framan við
brúna og rann þar. Var þá kominn
annar farartálmi. Ýtur vegagerðar-
innar reyndu fyrst að verja veginn
en síðan var horfið að því ráði að
verja brúna, sem var í mikilli
hættu og útlit fyrir að gæti farið
sömu leiðina og Kotárbrú. Þessi
brú, sem byggð var í fyrra af
mikilli bjartsýni, rétt neðan við
gömlu brúna er þá tók af, hefði
ef til vill verið betur komin
nokkru ofar. Þar er gott brúarstæði
og aðstaða virðist sæmileg.
Eftir að vegagerðin fór með
ýtur sínar af verðinum, en það var
á fimmtudaginn, hafa stórir bílar
klöngrazt yfir árnar. Áætlunar-
ferðir féllu þó niður þar til á
mánudag að þær hófust að nýju,
með því að Norðurleið h.f. fékk
kranabíl af Akureyri til að vera til
taks og hjálpa ef með þyrfti.
Bráðabirgðabrú.
Gert er ráð fyrir að setja bráða-
birgðabrú á Kotá og lagfæra veg-
inn við Valagilsá, þegar er fært
þykir. Kólnaði nokkuð í veðri um
helgina og hafa ámar minnkað til
muna. Þó er Kotáin enn vatns-
mikil þegar líður á daginn og
grjótkast og annar framburður
undramikill. Kranabíllinn frá Ak-
ureyri dregur bíla Norðurleiðar h.f.
En síðast þegar fréttist var Vala-
gilsá aftur komin á farveg sinn og
því ekki farartálmi í bráð.
Nauðsynlegt er að taka vega-
málin í Norðurárdal til alvarlegrar
endurskoðunar, því svo virðist, að
þessi hluti leiðarinnar milli
Reykjavíkur og Akureyrar, geti
hvenær sem er valdið umferðatöf-
um, eins og nú.
af viðskiplum siðast liðins árs nemur
1 millj. 250 þús. kr.
Aðalfundur félagsins vottaði Jakob
Frímannssyni fyllsta traust og þakk-
aði honum mikil og heillarík störf
Harðbakúr í leit
að fiskimiðum
Akureyrartogarinn Harðbakur,
sem verið hefur í leit að nýjum
fiskimiðum, norður og austurund-
an, um vikutíma, kom í höfn um
helgina.
Skipstjóri Sæmundur Auðuns-
son vildi ekkert segja, að svo
stöddu um árangur þessarar leitar,
en henni mun haldið áfram 2-3
vikur enn. Ingvar Hallgrímsson
fiskifræðingur er með í förinni við
rannsóknarstörf. Það er ríkisstjóm
in, sem leigði Harðbak til þessarar
leitar að nýjum miðum, samkvæmt
samþykkt síðasta Alþingis.
Fiskileit þessi er í samræmi við
þingsályktunartillögu, er þingmenn
Framsóknarflokksins á Norður- og
Austurland fluttu á síðasta þingi
og sameinað Alþingi samþykkti
skömmu fyrir þinglok.
Frá aðalfundi Áburðar-
verksmiðjunnar h.f.
Á þriðjudaginn 24. maí s.l.
var aðalfundur Áburðarverk-
smiðjunnar h.f. lialdinn í Gufu-
nesi. Þar sagði Vilhjálmur Þór
m. a. í yfirlitsræðu um störf og
stefnu verksmiðjunnar að fram
leiddar hefðu verið til þess
dags um 19000 smálestir af
Kjama. Gjaldeyrisspamaður-
inn vegna þessarar framleiðslu
næmi 26 milljónum króna.
Kristallakornin í áburðinum
hefðu verið of smá og valdið
óþægindum í notkun. Úr þessu
væri nú bætt og áburðurinn
geymdist ágætlega. Samþykkt
var á fundinum að leita fjár-
festingarleyfis og lánsfjár fyrir
fosfór og kaliverksmiðju.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga hófst hér í bænum í gær og
sitja fundinn 164 fulltrúar frá 21 félagsdeild. Formaður félagsins
Þórarinn Kr. Eldjám á Tjöm setti fundinn. Minntist hann í upp-
hafi látins félagsmanns, er lengi átti sæti á aðaífundum, Sigurgeirs
Jónssonar organleikari. Vottaði fundurinn hinum látna virðingu
og þökk.
Fundarstjóri var kjörinn Ámi
Jóhannesson hreppstjóri á Þverá.
Hólmgeir Þorsteinsson frá Hiafna
gili, sem verið hefur fundarstjóri
á 22 aðalfundum, hafði óskað að
draga sig til baka. Vottaði form.
félagsins honum þakkir fyrir
störf hans á aðalfundum á þessu
langa tímabili.
Var síðan gengið til dagskrár.
Var fyrst skýrsla stjórnarinnar
um helztu framkvæmdir félags-
ins, og síðan flutti Jakob Fri-
mannsson framkvæmdastjóri ýt-
arlega skýrslu um rekstur og hag
félagsins, og birti reikninga þess
og fyrirtækja þess. Er drepið á
nokkur aðalatriði í ræðu hans hér
á eftir.
Framkvæmdastjóra vottað traust.
í tilefni af árásargrein á Jakob
Frímannsson framkvæmdastjóra
sem birtist í bæjarblaði í gær,
fluttu fulltrúar úr mörgum deild-
um svohljóðandi tillögu, sem
samþykkt var samhljóða:
„Aðalfundur Kaupfélags Ey-
firðinga þakkar Jakob Frí-
mannssyni fyrir mikil og heilla
rík störf í þágu félagsins og þar
með alls almennings á Akur-
eyri og í nágranhasveitum henn
ar. Er fundinum ljóst, að það
er á fárra manna færi að afreka
það er Jakob hefur auðnast að
leysa af hendi með sinni al-
kunnu framúrskarandi sam-
vizkusemi, hagsýni og dugnaði.
Harmar fundurinn, að hann
skuli nú í dagblaði hér í bæ
hafa verið borinn óvæntum og
ótrúlegum ásökunum, og vænt-
ir þess, að félagið megi njóta
sem lengst starfskrafta hans.“
Flutningsmenn þessarar tillögu
voru: Þorsteinn M. Jónsson. Sig-
urður O. Bjömsson, Snæbjörn
Sigurðsson, Sigurður Stefánsson,
Baldur H. Kristjánsson, Ánnann
Þprsteinsson, Friðgeir H. Berg,
Einar G. Jónasson Kristján E.
Kristjánsson, Árni Jónsson, Stef-
án Ámason, Hjörtur E. Þórarins-
son, Benedikt H. Júlíusson, Sig-
urjón Valdimarsson og Halldór
Guðlaugsson.
Eins og fyrr segir var tillagan
samþykkt í einu hljóði á aðalfund
inum.
í umræðu um tillöguna og árás
ina á framkvæmdastjóra minnti
Hólmgeir Þorsteinsson, endur-
(Framhald á 2. síðu).
Ráðhústorg tekur stakkaskiptum
- Blómskraut
ir völlinn
Bílar og benzíntankar horfnir
skrýði
Bæjarstjórnin samþykkti fvrir
ári síðan að fjarlægðir yrðu benzín
tankar og bílastæði af Ráðhús-
torgi. Hefur þó allt setið við sama,
þar til nú fyrir rúmlega 2 vikum.
Þá tók bærinn rögg á sig og fól
lögregkistjóra að sjá um að sam-
þykktum þessum væri framfylgt.
Hurfu nú benzíntankar og bílar
af torginu og hefur undanfarið
verið unnið að skreytingum þar,
eins og til var ætlazt.
BSO hafði ekki aflað sér að-
stöðu annars staðar í bænum fyrir
afgreiðslu sína og var því á flæði-
skeri stödd með 30 bíla. Bærinn
veitti þá stöðinni til bráðabirgða
18 metra sneið af Bíótorgi.
BSA afgreiðslan, sem er timbur-
skúr, var dreginn burtu og sett nið-
ur litlu norðar. Er þess að vænta
að torgið verði eftirleiðis til yndis
auka í bænum, enda virðist því
ekkert til fyrirstöðu lengur.
Yfirlýsing frá stjórn;
*KEA
Blaðinu hefur borist eftirfar
andi yfirlýsing frá stjórn KEA.
„Út af persónulegri árás í
Alþýðumanninum í gær frá
Eyrrverandi endurskoðanda
KEA, Ármanni Sigurðssyni, á
Jakob Frímannsson kaupfél-
agsstjóra, lýsir stjórn félags-
ins því yfir, að hún telur þess-
ar ásakanir með öllu órétt-
mætar, enda reikningar félags
ins um margra ára skeið und-
irritaðir fyrirvaralaust af end-
urskoðendum — þar á meðal
greinarhöfundi — og stjórn-
inni aldrei borizt neinar at-
hugasemdir frá þeim. Var hinu
sama skýlaust lýst yfir á aðal-
fundi félagsins í gær af Hólm-
geiri Þorsteinssyni, endurskoð ;>
anda.
Akureyri, 8. júní 1955
Þórarinn Kr. Eldjám, Eiður
Guðmundsson, Bernh. Stef-
ánsson, Brynjólfur Sveinsson,
Björn Jóhannsson.
?