Dagur - 06.07.1955, Side 7

Dagur - 06.07.1955, Side 7
Miðvikudaginn 6. júlí 1955 D AGUR 7 nnafélaganna, að annnar og Ræða Þórarins Björnssoiiar skóla- meistara á landsmóti ungmemia- félaganna á Akureyri Háttvirtu samkomugestir, ungmfennafélagar og aðrir! Ég vil taka ]>að frarn í upphafi, að ég tala hér ekki sem ungmenna- félagi, heldur úr hópi þeirra, sem standa utan við félagssamtökin. En eins og mörgum mun kunnugt, er ekkert ungmennaféjag starfandi i Akureyrarbæ, og er það varla vansa- iaust. Annars ætla ég að byrja a því að endurtaka liér mikinn hluta þess, er ég sagði við stúdentana ungu við síðustu skólaslit í Menntaskól- anum á Akureyri. Vera má, að ein- livcrjum finnist slíkt einkennilegt, jafnvel óviðeigandi. Sjálfum þykir mér vænt um, að slíkt skuli liægt. Ég veit ekki, liversu víða annars staðar en á íslandi það þælti fært. Er hér ein sönnun þess, að á þessu landi eru allir eitt, lærðir senr lcik- ir. Eg efast um, að vér gerum oss þess alltaf nægilega grein, hvílík þjóðargæfa slíkt er. En nú sný ég mér að því, sem ég sagði við stúdéhtána. Uppruni og ættarmetnaður. Vér stærum oss löngum af því íslendingar, að vér séum kynbornir menn, norrænar hetjur af konunga- kyni, jafnvel goðbornir. Að minnsta kosti máii' ég ékki 'betur en fróður maður hafi sagt mér, að rekja mætti ætt mína til Óðius sjálfs, og það meir.a að segja .í bginan karllegg. Þó kvað vera vafi á um einn liðinn! Nú er það engaii véginn ætltin mín að rýra gildi þess ættarmetnaðar, sem fylgja á svo göfugum uppruna né heldur vefengja kyngöfgi vora, enda myndum vér fæst kjósa frem- ur að vera af öðrum kynstofni cn norrænum. En þar með er ekki sagt, að sitthvað megi ekki að oss finna. Víkingarnir, forfeður vorir, þóltu næsta válegir gestir í suðlægum löndum á sínum tíma, enda liöfðu sumir suður þar tekið það upp í bænir sínar að biðja sér verndar fyrir siðleysingjunum að norðan. Og ég er ekkert viss um, að sum nágrannaríki vor hefðu orðið neitt öfundsverð, ef íslendingar hefðu verið 150 milljónir í staðinn fyrir 150 þúsundir. — Jafnvel, að sjálft Bretaveldi hefði ckki verið óhult um sig. En hvað sem líður slíkum bollaleggingum, má telja það víst, að í hópi hinna vösku forfeðra vorra hafi verið ýmsir óstýrilátir ævintýramenn og ribbaldar, menn, scm lét betur að ráða sér sjálfir en þjóna öðrum. Et til vill má segja, að {>etta óstýrilæti hafi verið í senn bölvun vor og björg á liðnum öld- um. Það hefir átt sinn þátt í því, að vér glötuðum frelsi voru, og jáfn- framt sinn þátt í hinu, að vér varð- veittum frelsisþrána í niðurlæging og kúgun. A hinn bóginn uggir mig, að Islendinga skorti nokkuð á í þjónustulúhd, og slíkur skortur er varhugaverður eiginleiki, ekki sízt í nútímaþjóðíélagi, cins og því er liáttað. 1‘jónusta við aðra. Áður fyrr gátu menn að miklu meira leyti en nú vcrið sjálfum sér nógir. Þá gátu menn sagt með all- miklum sanni Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prestur, smiður, kóngur, kennarinn, kerra, plógur, hestur. Nú er öldin önnur. Með sí-auk- inni verkaskiptingu, sem auðkennir allt nútímaþjóðfélag, verðum vér stöðugt meira upp á aðra komin, eigum líðan vora óg jafnvef líf meira og meira undir öðrum og annarra ]>jónustu. Og jafnframt sem vér verðum háðari öðrum, ciga og aðrir að sama skapi og af sömu ástæðum meira undir oss, þannig að starf hvers og eins verður æ meiri þjónusta við aðra. Allir starfs- menn ríkisins eru þjónustumenn. eins og uppruni orðsins embætti bendir til. Iðnáðarmenit eru og þjónustumenn, inna af hendi þjón- ustu við aðra, hvort heldur þeir Þórarinn Björnsson skólameistari, í ræðustól s ðastliðinn sunnudag. skera hár vort eða smíða fyrir oss húsgögn. Og læknar eru þjónustu- nienn sjúklinga sinna, og mætti svo lengi telja. Verzlun er í eðli sínu fyrst og fremst þjónusta, en ekki gróðaiðja, eins og henni, af mann- legum ástæðum, hættir um of til að verða. Og hvernig lialdið þið svo, áheyrendur góðir, að þjóðfélagið verði, ef iill þcssi margvíslega þjón- usta er ekki veitt af trúnaði og holl- ustu við þá, sem hennar eiga að njóta? Hollusta í starfi. Því miður óttast ég, að forystu- menn hinna ýmsu stétta brýni það ekki nægilega fyrir mönnum sfnum að vera vandaðir þjónustumenn, enda sennilega ekki mjög þakklátt verk, eins og niálum er kornið. Ég veit, að orðið þjónusta lætur ekki sérlega vel í eyrum íslendinga. Væn- legra til árangurs væri ef til vill að tala um hollustu í starfi. En hvaða orð sem notað er, veltur mikið á, að þessi hollustuandi skapist samfara aukinni verkskiptingu. Annars verð- ur öll smíð' samfélagsins hrákasmíð og byggingin ótraust. Nútíma-þegn- skapur er áreiðanlega mjög fólginn í þessu hollustuviðhoríi, þessum trúnaði í verki gagnvart þeim, sem unnið er fyrir. Slíkan trúnað ætla ég að ekki hafi verið svo sjaldgæft að finna áður fyrr hjá hjúum á sveitaheimilum, ef húsbændur voru góðir og sýndu nærgætni og skiln- ing á móti. En hér varð um per- sónulegt samband að ræða, sem síð- ur kemur til greina í nútímaþjóðfé- lagi. Þegar smiður smíðar nú hús- gagn veit hann oft ekki lyrir hvern hann smíðar. Hann er að þjóna nafnlausum manni, og þá fyrst reynir alvarlega á trúmennskuna. Opersónubundinn trúnaður er stórurn mun erfiðari en persónu- bundinn. Slíkur trúnaður er í raun- inni trúnaðurinn,við sjálfa oss, til- finningin fyrir því, að á oss hvíli ábyrgð, að vér séuð að gera gagn og verðum því þarfari, því meira gagn sem vér gerum. En ein af þörf- um mannssálarinnar er sú, að finna að maður sé gagnlegur. Það sjáum vér hvergi betur en lijá litlu börn- unum, líve glcði þeirra cr einlæg, þegar þau geta orðið að gagni. I þeim skilningi erum vér öll börn, veik og vanmáttug börn, sem gleðj- umst ylir gagni, sem vér gerunr, af því að það veitir oss styrkleika- kcnnd, sem oss alla skortir meira eða minna. Manni, scm ekki gerir gagn, getur ekki liðið vel, og því meira gagn sem vér gerum, því bet- ur líður oss. Gagnsleysiskenndin er sennilcga átakanlegasta vanmáttar- kenndin, scm til er. Uppeldi í sveit er meðal annars svo gott af þeirri sök, að þar geta börnin gert meira gagn en í borgunr og bæjum, og þannig öðlast þau meira sálarjafn- vægi og raunar líka meiri þroska, þvi að ]>aiT eykur ábyrgðarkennd að vita sig gagnlegan, en ábyrgðar- kenndin styrkir ekki aðeins skap- höfnina, lieldur og vitsmunina, því að ábyrgðin eykur íhyglina. ICæru- laus maður getur, held ég, aldrei orðið djúpur. Þessi trúnaður í starfi, ]>essi þjón- ustulund, sem liinu verkskipta þjóð- félagi nútímans er svo mikil nauð- syn á, er í ætt við góðvildina. Og góðvildin eða kærleikurinn eru vitsmunir hjartans. En gáfaðir menn, sem svo eru kallaðir, gcta þvf nriður stundum verið hjarta- heimskir — og þá ekki vitrir. Þjónustan eykur manngildið. En hvað verður um sálina í allri þessari elskulegu þjónustusemi? munu einhverjir spyrja. Gerir hún oss ekki alla að þrælum? Því miður er sú hætta til. Vandinn er hér, scm oftast, að samþýða tvær andstæður. Vér þurfum í senn að gefa oss og eiga oss sjálfa. Vér verðum að vera þjónar, en megum ekki verða þræl- ar. Sannleikurinn er sá, að vér þurf- um allir, sjálfra vor vegna, að þjóna einhverju, sem er utan og ofan við oss sjálfa. Það víkkar oss, gerir oss að meiri mönnum. Það er ein af þörfum mannssálarinnar, fórnar- eðlið, sem alræðisstefnurnar liafa kunnað svo ískyggilega vcl og mis- kunnarlaust að nota sér. Hins veg- ar megum vér ekki verða þrælar neins, jafnvel ekki þess, sem í sjálfu sér er gott. Um leið og vér erum orðnir ]>rælar hvers sem cr, hvort hcldur er vorra eigin skoðana eða annars, er hinu andlega frclsi glat- að, vér hættum að sjá rétt og leið- umst þá auðveldlega á glapstigu í áróðursmoldviðri nútímans. Til þess að svo fari ekki, er tvennt nauðsynlegt. Annars vegar verður helzt hver maður, að minnsta kosti hver menntaður maður, að eiga sér eitthvcrt menningarlegt athvarf, ó- háð liinni hversdagslegu skyldu þjónustu. Það getur vcrið lestur góðra bóka, samræður við þroskað- Allf er orðið breytf að kallar nema nátfúran sjálf Séra Sigtryggur á Núpi heimsækir bernsku stöðvar í Eyjafirði 93 ára gamall Þessa dagana hefur gist bæ og hérað virðulegur öldungur með sítt, grátt skegg, furðu kvikur á fæti þrátt fyrir 93 ára aldur. Gest- urinn er séra Sigtryggur Guð- laugsson á Núpi í Dýrafirði, hhm þjóðkunni uppeldisfrömuður, skólastjóri og kennimaður. Bernskustöðvar í Kaupangssveit. Hingað kom hann til þess að heimsækja bernskustöðvar sínar í Kaupangssveit og til að afhenda Ulugastaðakirkju í Fnjóskadal að gjöf vandað orgel, til minningar um fyrri konu sína. Ólöfu Sig- tryggsdóttur frá Steinkirkju. Fór afhendingin fram að Illugastöðum sl. sunnudag. Hinn nýi sóknar- prestur í Hálsprestakalli, séra Sig. Haukur Guðjónsson, messaði, og veitti gjöfinni viðtöku, en Jónas Tómasson organisti og tónskáld, afhenti gjöfina, f. h. séra Sigtryggs, og lék á orgelið við messugjörðina. Ýmsir bændur úr sókninni töluðu að lokinni messu og þökkuðu séra Sigtryggi tryggð hans og ræktar- semi við fornar slóðir, og fólkið þar. En hann mælti að síðustu nokkur orð sjálfur. Var athöfn þessi öll hátíðleg og eftirminnileg. Byggingar og ræktun hið nýja svipmót. Blaðið hitti séra Sigtrygg að máli stundarkorn, nú eftir helgina, á heimili Björns Sigmundssonar deildarstjóra hér í bæ. Nú eru 18 ár, síðan eg hef komið hingað, sagði séra Sigtryggur, og breytingin er mikil á þeim tíma, svo að maður líti nú ekki lengra aftur í timannn. Einkum eru það byggingarnar og hin stórfellda ræktun, sem mótar hið nýja andlit bæjar og héraðs. Allt er nú orðið breytt að kalla — nema nátúran sjálf — síðan séra Sigtryggur ólst upp á Þremi í Garðsárdal, en þar er hann fæddur árið 1862 og átti þar heima Iram um tvítugsaldur. í Garðsárdal. Sigtryggur brá sér fram að Garðsá, að líta yfir fornar slóðir, an mann, iðkun einhverrar listar, ræktun moldarinnar eða enn ann- að. 1 slíku eigum vér að taka oss eins konar sálarbað. Og ]>etta á að hjálpa oss til við hitt, sem er enn vandasamara og um leið mikilvæg- ara. En það er þctta: Mitt í trún- aði vorum við sjálfa oss og aðra verðum vér stundum að geta eins og horfið úr sjállum oss, ef svo má (Framhald á 11. síðu). og naut þess í rikum mæli. Saknaði þess þó, að ekki var unnt að aka að Þremi, og hestar ekki tiltækir. — Ef eg hefði verið dálítið yngri, sagði hann við fréttamann. blaðsins, hefði eg kosið að fara rið- andi fram Garðsárdal, og austur yf- ir Gönguskörð allt að Reykjum í Fnjóskadal. Á þeirri leið þekkti maður sig á yngri árum, er geld- féð var rekið á afrétt. Á þeirri tið voru götuslóðar miklir á bökkum Fnjóskár, í Bleiksmýrardal, og minnti það á munnmæli um að dal- urinn hafi verið byggður til forna. — Nei, ekki gat orðið af þessari ferð, en eg kom samt í Fnjóskadal- inn mér til mikillar ánægju, sagði séra Sigtryggur. Skólafrömuður á Vestfjörðum. Héðan heldur hann suður til Reykjavíkur og þaðan heim að Núpi, þar sem hann hefur dvalið óslitið sxðan 1905 Hér nyrðra brauzt hann til mennta, fyrst hjá séra Jónasi á Hrafnagili, síðan í Iatinuskóla og prestaskóla. Vann um stund að barnakennslu, og tók ástfóstri við kennslu- og uopeldis- störf. Stundaði þau um tíma í Reykjavík, en gerðist síðan prestur að Svalbarði í Þistilifirði, og á Þór- oddsstað í Kinn, unz hann fékk Dýrafjarðarþing árið 1904, og fluttist vestur 1905. Kristinn bróð- ir hans var þá fluttur vestur og tekinn að gegna forustustarfi í ræktunarmálum á Vestfjörðum. -— Vestra hóf séra Sigtryggur . að hjálpa ungmennum til mennta, og var Núpsskólinn stofnaður vetur- inn 1906—1907. Vann séra Sig- tryggur mikið og þjóðkunnugt starf fyrir æskuna á Vestfjörðum, og þjóðina í heild með skólastarfi sinu. Skrúður er skólagarður. Hann stofnaði hinn þjóðkunna garð Skrúð árið 1909, og varð brautryðjandi í trjá- og blómar.ækt á Vestfjörðum. Raunar átti Skrúður að gegna hlutverki skólagarðs, sagði séra Sigtryggur, er blaðið vildi fræðast um starf hans á þessu sviði. Hann var stofnaður til að veita nemend- um tækifæri til að kynnast mat- jurtarækt, blómarækt og trjárækt, í einum garði. Nú ei orðið erfitt að halda garðinum við, því að umönn- un kostar mikið starf, og vinna er dýr. Aldur varnar séra Sigtryggi að vinna sjálfur í garðinum, en seinni kona hans, Hjaltlína Guð- jónsdóttir, annast nú garðinn að mestu. Gaman að heilsa upp á bæinn! Séra Sigtryggur hefur haft mikla ánægju af þessari ferð hingað. Hef- ur m. a. haft gaman af að heilsa upp á bæinn hér að nýju. Hér hófst hans fyrsta menntaganga, ef svo má kalla. Hann fékk að vera áhey- andi og áhorfandi að kennslu í barnaskólanum hér í 3 daga. er hann var unglingur! Það var öll hans skólavist, unz latínuskólanám- ið hófst 1888. Fáir menn hafa lika betur skilið nauðsyn þess, að greiða sem flestu æskufólki veg til menntunar og þroska. Ævistarf séra Sigtryggs er orðið mikið. Margir djörfustu draumar hans um menntun ungu kynslóðarinnar hafa rætst. Hlýjar kveðjur úr Eyjafirði fylgja þessum 93 ára gagnmerka Eyfirðingi, er hann heldur heim að Núpi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.