Dagur - 19.10.1955, Side 1

Dagur - 19.10.1955, Side 1
12 SÍÐUR Dagur XXXVIII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 19. október 1955 49. tbl. Minnir á gildi kaupfélagsverzlunar Verðgœzlustjóri birli hinn S. /?. m. greinargerð um lursla og lœgsla smd- sö/uverð ú nokkrum vörutegundum i Reykjávik. Kcmur þar í ljós, eins og «áður, að verulegur inunur er á verði ýmissa algengra matvörutegunda; og minnir það á, að rík ástacða er fyrir almenn- ing að íylgjast með verðlagi og láta þá njóta viðskiptanna, sem þar gæta liófs. Molasykur 3.90 4.60 4.10 Strásykur 2.80 3.40 2.65 Púðursykur 3.30 4.50 3.30 Kandís 5.70 5.75 5.50 Rúsínur 12.00 14.40 12.00 Sveskjur, 70/80 15.00 18.00 16.00 Sítrónur 14.00 17.00 14.00 Kaífi, br. og. malað 40.00 40.00 Káffibætir 16.00 13.20 Blaðið hefur aflað sér upplýsinga um verðlag á þessum sömu vörum húr hjá KEA, og kemur í Ijós, að sam- anburðurinn er mjög hagstæður fyrir fólk hér. Kaupfélagið selur margar vörutegundir á lægra verði en þekkist í Reykjavík. Er þó aðstaða til inn- flutnings og verzlunar orðin erfiðari úti á landi en syðra. En þetta minnir á gildi kaupfélagsverzlunarinnar fyrir almenning. Tölurnar líta þannig út. í fremsta dálki er lægsta verð í Rvík, í öðrum hæsta verð í Rvík og í þeim þriðja cr verðið hjá KEA. Verðið á við 1 kg af vörunni, sé annars ekki getið. Rúgmjöl 2.25 2.55 2.33 Hveiti 2.60 2.80 2.45 Haframjöl 3.10 4.00 3.50 Hrísgrjón 6.00 6.25 5.80 Sagógrjón 5.00 5.85 4.25 Hrísmjöl 3.50 6.65 3.00 ICartöflumjöl 4.65 4.85 4.50 Baunir 4.50 6.70 5.10 Te. i/8 lbs. pk. 3.40 5.00 4.00 Kakaó, /2 Ibs. 8.30 10.25 9.50 Suðusúkkulaði 58.40 64.00 60.00 Búnaðarsamband Eyja- f jarðar opnar skrif- stofu Eins og getið var um í blaðinu í vetur, var samþ. á síðasta aðal- fundi Búnaðarsamb. Eyjafjarðar, að hafa skrifstofu a. m. k. nokk- urn hluta ársins, þar sem bændur gætu náð tali af ráðunaut samb. á ákveðnum tímum og notið ýmiss konar fyrirgreiðslu. A komandi vetri mun B. S. E. og S. N. K. opna skrifstofu í þessu skyni í verzlunarhúsi KEA við Hafnarstr. Munu ráðunautar beggja samband anna hafa þar ákveðinn viðtals- tíma. Til bráðabirgða verður ráðu- nautur Búnaðarsamb., Ingi Garð- ar Sigurðsson til viðtals á Hótel Goðafoss, Hafnarstræti 95. herb. nr. 2 á annarri hæð. Viðtalstíminn er ákveðinn kl. 10—12 og 1—4 á mánudögum og fimmtudögum. Séð heim að Möðruvöílum síðastliðinn laugardag. — (Ljósmynd: Vignir Guðmundsson). Mennfðskólinn á Akureyri setfur að meSf háfí Treg rjúpnaveiði enn sem komið er Heimilt var að skjóta rjúpur frá 15. okt., og var mannmargt á heið- um og hraunum um sl. helgi. En veiðin mun hvarvetna hafa verið treg þrátt fyrir mikla rjúpnamergð í sumar. Er talið að rjúpan haldi sig mest á öræfum og háfjöllum enn sem komið er. Frv. Framsóknarmanna um jafnvægis lánadeild við Framkvæmdabankann Fái 150 milljón krónur til lánveitinga til byggðarlaga sem hafa erfið atvinnuskilyrði Fram er komið í neðri deilcl Alþingis frumvarp til laga um jafnvægislánadeild við Frainkvæmdabanka íslands. Flutn- ingsmenn eru tveir þingmenn Framsóknarflokksins, þeir Eiríkur Þorsteinsson og Páll Þorsteinsson. Hlutverk hinnar nýju lánadeildar skal vera að veita lán til aö auka atvinnu- rekstur í þeim landshlutum, sem erfiðasta aðstöðu liafa sök- um skorts á atvinnutækjum. Jafnvægislánadeild skal fá frá ríkissjóði 10 millj. kr. stofnframlag árlega næstu 5 ár og einnig er gert ráð fyrir að fjármálaráðherra ábyrgist fyrir liöncl ríkissjóðs allt að 100 millj. kr. lán handa deildinni. Hið árlega stofnframlag ríkis- sjóðs skal vera stofnfé deildarinn- ar. í 1. gr. er tekið fram að jafn- vægislánadeild skuli vera undir umsjón þriggja manna, sem annast lánveitingar. Stjórnina skipi skrif- stofustjórarnir í félagsmálaráðu- neytinu, atvinnumálaráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu og skal skrifstofustjóri félagsmálaráðu- neytisins vera formaður. 100 milljón kr. lán. í 3. grein segir: „fjármálaráð- herra ábyrgist fyrir hönd ríkissjóðs allt að 100 millj. kr. lán, sem jafnvægislánadeild tekur til starf- semi sinnar. Ríkisstjórn og Fram- kvæmdabankinn hafa forgöngu um útvegun lánsfjárins.“ Tvenns konar lán. Jafnvægislánadeild veitir tvenns konar lán: A-lán gegn 1. veðrétti í botnvörpuskipum og iðnfyrirtækj- um, sem ekki geta fengið lán úr Fiskveiðasjóði eða Ræktunarsjóði. B-lán af stofnfé, gegn síðari veð- rétti í fiskibátum og skipum, iðn- aðarfyrirtækjum og félagsmann- virkjum. Vextir af A-lánum skulu vera jafnir almennum útlánsvöxt- um í bönkum á hverjum tíma. Vextir af B-lánum skulu miðast við að bera kostnað af starfsemi deildarinnar, en þó ekki vera hærri en 4%. Stjórn deildarinnar ákveður lánstíma. Lánsskilyrði. Lán úr deildinni verða því að- eins veitt að færð séu rök fyrir þvi, að skortur sé á atvinnutækj- um í sveitarfélaginu, atvinnutæki, sem sótt er um lán til bæti úr þeim skorti að verulegu leyti og ekki sé um aðra heppilegri lausn að ræða. Lán til hafnarbóta. í 6. gr. segir, að heimilt sé að (Framhald á 11. síðu). egum Miimzt 75 ára afmælis Möðruvalla- skóla og þróunar alþýðuskólans til |>ess að verða aðalmenntasetur Norð- urlands og arftaki Hólaskóla Síðastl. laugardag var Menntaskólinn á Akureyri settur a>> Möðruvöllum í Hörgárdal. Tilefni þess að skólasetningin fór fram að Möðruvöllum, er 75 ára afmæli hins foma Möðru- vallaskóla, fyrirrennara Akureyrarskólans. — Kl. 2 síðdegis var gengið í kirkju, og þar hófst athöfnin með messugjörð prófastsins, séra Sigurðar Stefánssonar. Fluti hann stutta en snjalla pre- dikun. Að guðsþjónustu lokinni flutti skólameistarinn, Þórarinn Björnsson, skólasetningarræðu sína. Var hún hin ágætasta. Fjall- aði hún öðrum þræði um sögu skólans frá upphafi til þessa dags og ýmsa sögulega atburði, sem tengdir eru Möðruvöllum. Hann minntist séra Arnljóts prests að Bægisá Olafssonar, er talinn er vera faðir Möðruvallaskóla og hann fór með hluta úr fyrstu skólasetningarræðunni, er flutt var 1. október 1880 af Jóni A. Hjaltalín skólameistara. Þrír þættir. Skólameistari skipti sögu skól- ans i 3 meginþætti: Fyrsta tíma- hálið var gamli Möðruvallaskóli, sem var tveggja vetra alþýðuskóli undir stjórn Jóns A. Hjaltalíns. Annað tímabilið var Gagnfræða- skólainn á Akureyri, sem tengdur er nafni Stefáns Stefánssonar skólameistara. Og þriöja tímabilið, sem kennt mun verða við Sigurð Guðmundsson skólameistara, er Menntaskólinn á Akureyri eins og hann er nú. En menntaskólarétt- indin hlaut skólinn 29. október 1927. Þáverandi menntamálaráð- iierra, Jónas Jónsson, kom sjálfur til Akureyrar og mætti „á sal“ með þennan fagnaðarboðskap. Frá þeim degi hafði skólinn heimild til lærdómsdeildar. Fjöldi nemenda og kennara. Fra Menntaskólanum á Akur- eyri hafa 988 stúdentar verið brautskráðir og 2453 gagnfræð- ingar. En í Möðruvallaskóla voru samtals 372 nemendur. Þar störf- uðu 10 kennarar, en við Akureyr- arskóla 100 kennarar. Jónas Snæ- björnsson hefur starfað lengst allra kennara, eða 41 ár. Þá gat skólameistari þess að Ottó Jóns- son M. A. hyrfi frá skólanum í haust en fastur kennari í hans stað yrði Jón Arni Jónsson. Þórarinn Björnsson ávarpar nem- endur í Möðruvallakirkju. Möðruvellingar. Af nemendum Möðruvallaskóla eru 65 enn á lífi cg voru allmargir þeirra mættir á þessari hátið. Þar (Framhald á 11. síðu). DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 26. október. Fylgist með því, sem gerizt hér í kringum okkur. — Kaupið Dag. — Sími 1166.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.