Dagur - 19.10.1955, Síða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 19. október 1955
Heyskapurinn í sumar - æ fleiri
bændur hefja siáfl snemma
Ýmsar búskaparfréttir úr Húnaþingi
S JÖTUGUR:
Pálmi Kristjánsson kennari
MEÐ OKTÓBER skipti um tíð,
stillt og fremur mild haustveðr-
átta. Nautpeningur tekur enn mest
allt fóður sitt úti.
Vegna vanstilltrar tíðar dróst
heyhirðing hjá sumum fram undir
mánaðarmót. Telja mun mega að
heyskapur í héraðinu sé allt að
því i meðallagi.
Nokkrir einstaklingar hófu slátt
upp úr 20. júní, en almennt var
ekki byrjað fyrr en í júlí. Mönn-
um er smátt og smátt að skiljast
naqðsyn þess að hefja sláttinn það
snemma, að sem minnst af töð-
unni verði of sprottið.
Spretta var misjöfn og bar hvort
tveggja til, að mikið bar á kali í
sumum túnum, og í annan stað
tafði jarðklaki mikið sprettu. Jörð
var óvenju mikið frosin eftir vet-
urinn. Meðalhiti sumarsins mun að
vísu hafa verið fullkomlega í með-
allagi, en óvenju iítið um sólríka
daga. Það gekk því seint að þýða
klakann, og á hálendari stöðum
olli jarðklakinn mikium upp-
skerubresti, t. d. á beitarhúsatún-
inu á Guðlaugsstöðum í Blöudu-
dal. Tún það gaf af sér um 750
hesta í fyrra (þá að vísu óvenju
vel sprottið), en núna fékkst ekki
af því nema um 150 hestar. Þetta
niun að vísu einsdæmi, en túnið
liggur hátt á hálsi uppi og mót
austri. Mikið munaði lika á
sprettu úthaga austan og vestan
verðu í dölum, enda hefur klakinn
tafið meira fyrir að vestan verðu.
Annað dæmi má nefna um klak-
ann. A býli einu hér, sem er tæpa
100 metra fyrir ofan sjávarmál, er
klaki enn í steyptu haugstæði við
fjósið.
-A_
TÍÐARFAR var fremur erfitt
til heyskapar. Fyrri partinn voru
að vísu ekki mikil úrfelli, en mjög
skúrasamt, svo að fáir dagar voru
þurrir til enda. Heyskapur gekk
því seint og tún spruttu úr sér. Þó
var þetta eins og fleira á þessu
sumri mjög misjafnt, sumir hirtu
tún sín næstum því á venjulegum
tíma, og fór þar eftir áræðni
manna og árvekni. Áttin jafnan
vestlæg og óvenju vindasamt og
olli víða töfum og sums staðar
töluverðum heysköðum, t. d. í
Svínadál, en þar er talið að fokið
hafi nálægt 100 hestum á býli
meðfraih fjallinu að vestan. Eftir
höfuðdag urðu úrfellin meiri og
og gekk mjög stirt að þurrka, og
áttu margir hey úti í réttum.
Byggingavinnsla og jarðabóta-
störf eru enn í fullum gangi. Mun
meira byggt í héraðinu á þessu
sumri, en nokkru sinni fyrr, sér-
staklega er mikið um byggingu
penlngshúsa.
SAUÐFJÁRSLÁTRUN stendur
enn sem hæst yfir á Blönduósi, og
er gert ráð fyrir að henni verði
ekki lokið fyrr en með vetri, Þyk-
ir mönnum, sem von er til, seint
að verið, en óvenjulegar ástæður
valda, sem er endurbygging slát-
urhússins, er kom í veg fyrir að
slátrun gæti hafizt nógu snemma.
Að lokinni sauðfjárslátruninni
tekur svo við slátrun hrossa, og
verður sláturstörfum ekki lokið
fyrr en um næstu mánaðarmót. —
Hafa þá sláturstörf staðið óslitið
hjá S. A. H. síðan 22. sept. — B. J.
Hann deilir við
keisarann
Róstusamt er nú í Suður Vietnam,
og hefur Diem forsætisráðherra
(mynd hér að ofan) tekið sér ein-
ræðisvald, en Bao Dai keisari, sem
heldur til á skemmtistöðum Suður-
Frakklands, sett hann af. En keis-
arinn nær ekki til Diems frá Riví-
eraströndinni, og er ólíkiegt, að
ráðherrann láti sig nokkru skipta
fyrirskipanir leppkeisarans heldur
sitji sem fastast.
Pálmi Kristjánsson, kennari,
Hleiðargarði, var sjötugur 16.
september sl. Hann er búinn að
kenna hér í Saurbæjarhreppi um
áratugi, eða nánar tiltekið í 40 ár,
og hefur verið mjög vinsæll í því
starfi. Það sem mér fannst ein-
kennandi við kennslu hans var
það, hvað hann lagði sig sérstak-
lega mikið fram við að kenna
þeim börnum, sem voru styzt á
veg komin eða tornæmust, án þess
þó að vanrækja hin börnin.
Þegar Pálmi var sextugur heiðr-
uðu hreppsbúar hann og konu
hans, Frímanníu Jóhannesdóttur,
með því að halda þeim samsæti í
samkomuhúsinu að Saurbæ og var
þar fjölmennt, bæði eldri og yngri
nemendur hans og vinir. Þar voru
ræður fluttar og þökkuð störf hans
í þágu sveitarfélagsins, að síðustu
var afmælisoarnið leyst út með
gjöfum.
Pálmi tók mikinn þátt í félags-
málum á yngri árum sínum, hann
var einn af stofnendum Ung-
mennaféiags Saurbæjarhrepps og
formaður þess um skeið, og starf-
aði í mörg ár í félaginu, nú fyrir
nokkrum árum var hann kosinn
heiðursfélagi þess.
Hann tók virkan þátt í leik-
starfsemi, sem stóð hér með
miklum blóma og lék mörg hlut-
verk við góðan orðstír.
Það er ekki hægt að segja að
Elli kerling hafi náð tökum á hon-
um ennþá, hann er glaður og reifur
og er mjög gaman að ræða við
hann um ýmis mál, því að hann er
fróður um margt og víðlesinn;
enda á Pálmi mikið og gott bóka-
safn og er sögumaður mikill.
Nú fyrir nokkru síðan tók
hann að sér að safna örnefnum hér
í hreppnum að mestu leyti einn og
var það mikið verk og vel til þess
vandað. Pálmi hneigist mjög að
dulrænum efnum ,enda búinn að
reyna margt um dagana.
Eg vil að lokum, fyrir mína
hönd og fjölskyldu minnar, þakka
þeim hjónum fyrir góða viðkynn-
ingu og sanna vináttu, megi Ijós
kærleikans lýsa þeim á ókomnum
árum.
Halldór Friðriksson.
Stúlka óskast
í vist til KAUPMANNA-
HAFNAR 1. eða 15. nóv,
n. k. Nánari upplýsingar
gefur ísali J. Guðmann,
Brekkug. 41. Sími 2021.
Brúðkcmpskvœði
flutt sunnudaginn 25. sept. 1955, ungfrú Þóru Kristínu Flosa-
dóttur og Gunnari Svani Hafdal, búfræðingi, ungfrú Þórunni G.
Þorsteinsdóttur og Sigurði Gunnari Flosasyni, kennara.
Bvúðhjún keer! n björlum heiðursdegi
nú breiðir eeisla hamingjunnar sól,
um vonrr ungnr vel svo rcvtnst megi
og vöxttir dafna pess, cr lifið ól. —
Þið byrjið för d braul, sem fjöldinn gengur,
þið bundust heit um samfylgd langan dag.
Qg minar óskir vara vetri lengur,
nð verði ykkur ferðin öll i hag!
Það votlar sagan gegn um dr og aldir,
að allofl breyttist skoðun manna og sjón.
Þeir einstaklingar tœþast verða taldir,
sem tóku saman og reyndust ólík hjón.
Ein skorli samhygð, önnur innri þjiðu,
og oft varð það, að hjúskapurinn brdst.
Það vanlaði skilning, viðmót hlýtt og bliðu,
vantaði samúð, kærleika og dsl!
Þið, sem hafið d þessum helgidegi,
hin þýðingarmestu og dýpslu stigið spor,
með göfgum orðslir genguð eeskuvegi
og gœfurikt þið lifðuð œvivor. —
Gdfur og dygð og mennt sé ykkur mdttur
i manndómsstörfum fyrir œttarland.
A rdði ykkar riki ce sœmdarhdttur,
og rósum skreylist ykkar lijónaband!
Iirúðhjón ung! Með bcrn frd vinahjörtum,
þær blíðu óskir sliga hér í dag:
Að dstin tengist tryggð og kœrleik björtum,
svo takist henni að prýða giftuhag!
Og hún megi ykkur heilla-leiðir visa,
af henni séu tryggusl vigin gjörð.
Hún liveikir enn d kyndlum þeim, sém lýsd
d kynslóðanna braulum hér d jörð.
Þið brúðhjón tvenn, þótt leggið lifs d hafið
að liðnu sumri þegar blómskrúð dvín,
þd verði ei í vetrar-skuggum grafið
það vonqland, sem blasir nú við sýn!
Og aldrei skýjin sltyggi d ykkar vegi,
en skcvrir geislar lýsi ef þyngist húm.
Og auðnuslóðir oþnar vera megi
d öllum stundum — gegnum tima og rúm!
Svo gefist ykkur sigurmdtttir mesli,
það manndómsafl, er skapqr fremd og dug.
Gegn örðugleikum ykkur þrek ei bresti,
né andans þrótt, sem göfgar sérhvern hug.
Ljómi ykkur Idnhlý gleðin sanna,
og Ijúfust vinscsld falli i ykkar skaut.
Hljótið blessun Guðs og góðra manna.
Gangið hugrökk fram d lífsins braut!
GUNNAR S. HAFDAL.
f
1
t
|
*
I
I
I
I
1
I
©
5> &
I
I
I
•<-
©
■k
*'
ý-
*
©
s
d>
t
<•
©
I'
í-
&
I
1
t
1
1
t
F
©
I
■<-
I
d-
I
m
í
I
Þórarinn Kr. Eldjárn
(FLUTT í SAMSÆTI)
Heill þér, sem nú með heiðri stcirf þitt kveður!
Hjartgrónar þakkir tjd þér mæður, feður.
Börnunurri þeirra gcefuveg þií greiddir, —
göfgaðir, leiddir.
Stór var þín gifta, göfgi heiðursmaður.
Glaðlyndur, söngvinn, bjartsýnn, verkahraður
laðaðir börnin, leiddir, frœddir, studdir, —
lœrdómsbraut ruddir.
Erfitt var starfið: Ónógt hús og tcekin.
Engu það breytti samt, því skyldurcekin
börnin í skólann brutust, þó að hvessti.
Bylurinn hressti.
Lifið er starf og starf er lífsins gleði.
Starfsvana deyfð mun sízt þér vera’ að geði.
Megi þér brenna allt að efstu stundu
eldur í hmdu!
Vinsœldir áttu allra héraðsbúa.
Árna þér heilla, — biðja, vona, trúa:
Guð þig að verndi, vaki trúr þér yfir.
Vináttan lifir.
Allt er á flugi, — ár og dagar fcekka,
ellinnar skuggar lengjast, dökkna, stækka.
Eitt er þó vafa allan hafið yfir:
Orðstír þinn lifir.
-v Vald. V. Snævarr.
»©-<-»-t-©-f'»-f-©-Hfr-t-©-f-*-t-©-HE-t-©'H!K-©-f-*-t-©-MH'©-H|t-t-©-HlM-©-<HlH'