Dagur - 19.10.1955, Qupperneq 11
Miðvikudaginn 19. október 1955
D A G U R
11
- Frumvarp tim jafiiyægislánadeild
- Úr cilendum blöðum
(Framhald af 2. síðu).
(Framhald af 1. síðu).
veita lán til hafnarbóta, þar sem
löndunarskilyrði fyrir stór fiski-
skip eru ekki fyrir hendi, enda sé
löndun afla úr slíkum skipum að
dómi deildarstjórnar nauðsynleg
vegna atvinnurekstrar á staðnum.
Hér að framan hafa verið rakin
meginatriði frumvarpsins og skal
að lokum drepið á nokkur atriði
úr greinargerð.
Jafnvægisleysið.
Stöðugur straumur fólks og
fjármagns liggi frá bæjum og þorp
um á Vestfjörðum, Norourlandi og
Austfjörðum til bæja við Faxaflóa.
Af opinberri hálfu hafi verið nokk-
ur viðleitni að ráða bót á þessu.
Megi nefna starfsemi fiskimála-
sjóðs, úthlutun atvinnuaukningar-
fjár, ríkisábyrgðir vegna fiskiðju-
vera, lánadeild. smáibúða, félags-
heimilasjóð, endurbætur jarð-
ræktarlaga og útvegun fjármagns
til hinna eldri lánsstofnana dreif-
býlisins.
Meiri aðgerða þörf.
Hér þurfi þó enn meira átak
til. Efling atvinnulífsins sé undir-
staða annarra framfara. Staðir,
sem búið hafi við árstíðabundið
atvinnuleysi’- þurfi að fá nýja
möguleika. Sama máli gegni um
staði, þar sem bátamið hafa geng-
ið úr sér vegna ágangs togara eða
af öðrum ástæðum. Úrræðin séu
þá að koma upp nýjum atvinnu-
tækjum eða skipta um þau að
miklu leyti.
Fjölga bátum og fá togara.
Einkum eigi þetta við um at-
vinnutækin á sjónum. í seinni tíð
hafi verið komið upp hraðfrysti-
húsum, fiskimjölsverksmiðjum og
öðru til að hagnýta sjávaraflann.
En hin nýju fiskiðjuver og verk-
unarstöðvar vantar víða hráefni til
vinnslu. Komi þá til greina jöfn-
um höndum að fjölga bátum og
að fá togara til löndunar, og fari
það eftir staðháttum hvaða leið
sé farin og að hve miklu leyti.
Sums staðar sé aðkallandi að bæta
hafnarskilyrði, en erfitt að fá lán
til hafnargerða, jafnvel þótt ríkis-
ábyrgð sé til staðar.
Fjármagti. .
Til þess að koma upp atvinnu-
tækjum þarf fyrst og fremst fjár-
magn. í frumv. sé lagt til að komið
verði upp sérstakri lánadeild við
Framkvæmdabankann, sem hafi
með höndum að veita slíku fjár-
magni inn í atvinnulíf þeirra
landshluta, sem mesta þörf hafa á
að efla atvinnulífið. Lagt er til að
þetta fjármagn verði fengið sem
óafturkræft framlag úr ríkissjóði,
50 milljónir kr. á næstu 5 árum
og lán gegn ríkisábyrgð. Frum-
varpið miði að því að flytja til
nokkuð af fjármagninu við sjávar-
síðuna á næstu árum og beina því
þangað, sem þess er mest þörf til
aö stuðla að jafnvægi byggðarinn-
ar. Fjármagninu sé misjafnlega
varið og ekki alltaf á sem heppi-
legastan hátt fyrir þróun þjóðfé-
lagsins og uppbyggingu landsins.
Vejzlun landsmanna virðist óþarf-
lega fjárfrek svo og. ýmiss konar
'fjárfesting í höfuðstaðnum, sem
ekki verði talin bráðnauðsynleg
þjóðinni. En uppbygging atvinnu-
lífsins í þeim landshlutum, sem
örðugasta aðstöðu hafa þoli enga
bið. — Nánar verður sagt frá
þessu frumvarpi síðar, er það
kemur til umræðu og afgreiðslu í
þinginu.
- Setning M. A.
(Framhald af 1. síðu).
af eru 2 nemendur frá fyrsta
skólaárinu, báðir komnir yfir ní-
rætt, þeir Arni Hólm Magnússon
og Þorleifur Jónsson frá Hólum,
fyrrverandi alþingismaður.
I vetur verða 295 nemendur í
skólanum. Þar af 160 í heimavist.
Mörgum varð að víst frá heimavist
vegna þrengsla. Er þetta 25 nem-
endum fleira en í fvrra.
Frelsi og þroski.
Skólameistari gerði síðast að
umræðuefni jafnvægisleysi ungs
fólks, sem því miður væri alláber-
andi og kenndi meðal annars um
frelsi én ábyrgðar. Frelsið væri
ekki takmark, heldur tæki og væri
oft ranglega túlkað og skaðlega.
„Frelsi með ábyrgð elur þroska“,
sagði skólameistari. Þá minnti
hann nemendur sína á að nota
tímann vel og breyta honum í gull
og vit.
Avarp menntamálaráðherra.
Næstur tók menntamálaráðherra
Bjarni Benediktsson til máls og
bar fram árnaðaróskir fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar og færái *skólan-
um að gjöf frá henni málverk af
séra Arnljóti Ólafssyni, gert af Ör-
lygi Sigurðssyni eftir frummvnd
Sigurðar málara. Ráðherrann tal-
aði um þróun skólanna á Möðru-
völlum og Akureyri. Allt frá því
að Þorv. Thoroddsen mældi 22
gráða frost i svefnherbergi sínu á
Möðruvöllum og þangað til hið
mikla heimavistarhús M. A, reis
af grunni. Hann fullyrti, að þessi
skóli Norðlendinga hefði ávallt
staðið í fremstu röð að skólabrag
hið ytra og innra. Hann fór lof-
samlegum orðum um Arnljót Ól-
afgsson, sem bæði hefði verið vit-
ur og snjall stjórnmálamaðui. Og
hann ræddi þau þáttaskil í sögu
skólans, sem urðu þegar Jónas
Jónsson frá Hriflu, þáverandi
menntamálaráðherra, færði skól-
anum rétt til lærdómsdeildar
1927. Jónas hefði verið valda-
mesti stjórnmáiamaður á þeim
tíma, og hefði séð lengra fram en
flestir eða allir samtíðarmenn,
einnig á þessu sviði.
Þá gerði ráðherrann visindin og
lærdóminn að umræðuefni, en bað
menn muna eigi að" síður vel að
hafa hjartað á réttum stað.
ur búpeningi þeirra, og enda borið
á sjúkdómi í kúm af þeim völdum.
(Flúor er gaskennt frumefni, sem
þó aöeins finnst í samböndum
ýmsra bergtegunda og þeirra efna,
sem alúm er unnið úr.)
Flugferðir og flugfrelsi.
í fyrirlestri í „Verzlunarmálafé-
lagi Björgvinjar" fyrir skömmu
hélt Ludvig G. Braathen, útgerð-
armaður, því fram að Noregur
ætti að hafa öll skilyrði til þess að
annast flugferðir á langtum víðari
vettvangi, en nú væri raun á, og
mætti rökstyðja þá skoðun með
reynslu þeirri, sem fengin væri af
siglingum Norðmanna. Hér gæti
verið um að ræða margar sjálf-
stæðar, norskar flugleiðir með
sameiginlegri veltu um 115 millj.
króna.
Braathen var ekki sammála
þeim, sem teldu, að litið land ætti
erfitt með að afla sér nauðsyn-
legra réttinda á flugleiðum. Hann
taldi það þvert á móti mjög lík-
legt, að Norðmönnum myndi
reynast auðveldara en hinum stóru
hlutafélögum að ná slíkum rétt-
indum. Hann taldi einnig, að rík-
isstjórnum Norðurálfu væri farið
að verða ljóst, að hagkvæmt væri
að styrkja og ýta undir félög, sem
fús væru til að lækka gjöldin.
Ríkið sjálft ætti aðeins að reka
flug á aðalleiðum (stofnleiðum),
og helzt aðeins á alþjóðaleiðum,
en aftur á móti ættu sjálfstæð fé-
lög að reka innanlandsflug, en
einnig fá að fljúga á alþjóðaleiðum
utan við stofnleiðirnar.
Hér verður að útrýma hömlum
á loftleiðum engu síður en í sigl-
ignum, sagði Braathen. Og flug-
ferðir gætu orðið mikilvægari fyr-
ir Noreg heldur en önnur lönd
sþjjum aðstöðú Norðmanna í sigl-
ingum. Loftferðir verður héðan af
að telja sem nokkurs konar arf-
taka allmikils hluta siglinganna,
og málefnið er svo mikilvægt, að
það ætti að hljóta sérstaka deild í
„Sambandi útgerðarmanna Nor-
egs“. — Sé velta flugferða nú þeg-
ar um þriðjugur veltu siglingaflot-
ans, verður þess ekki langt að
bíða, að hún verði tveir þriðju
hlutar hennar. Það er því mikil-
vægt, að frjálsir einstaklingar fái
að taka þátt í þeirri þróun.
Hvernig myndi t. d. því reiða
af, ef allur siglingarekstur vor —
Norðurlandasiglingar og á heima-
höfunum — ætti allur að vera í
höndum aðeins eins félags? spurði
Braathen að lokum. Har.n lagði
áherzlu á, að það væri algert öfug-
mæli, að Noregur, sem á marga
vegu væri forgönguland annarra,
skyldi halda í öfuga átt gegn allri
þróun, þegar um loftferðir væri að
ræða.
Braathen lauk máli sínu með
því að láta í Ijós þá von sína, að
Norðurlöndin vildu breyta afstöðu
sinni og leyfa sjélfstæðu félögun-
um að komast að jafnframt einka-
leyfisfélagi Norðurlanda (SAS)
í samræmi við þróunina úti í
heimi.
Saga staðar og skóla.
Þá tók Steindór Steindórsson
menntaskólakennari til máls og
flutti mjög fróðlegt erindi um
skóla og stað á Möðruvöllum. Að
síðustu sagði skólameistari Þórar-
inn Björnsson Menntaskólann á
Akureyri settan, og bað að sung-
inn væri sálmurinn: Faðir and-
anna.
Kirkja nvar troðfull, og 75 ára
minningarhátíð Möðruvallaskóla
var öll hin virðulegasta.
Síðar um daginn var nemendum
og ýmsum gestum boðið til sam-
kvæmis í Menntaskólanum, Þar
ílutti Fáll Hermannsson, fyrrv.
alþingismaður, einn hinna gömlu
Möðruvellinga, aðalræðuna. .
m HULD, 591510197 — IV-V — 2
í. O. O. F. 2 — 13710218 Vz
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e. h.
Vetrarkoman. — Sálrnar: 514 —
518 — 516 — 520 — 675. — K. R.
Hjúskapur. Þann 15. október
sl. voru gefin saman í Akureyr-
arkirkju brúðhjónin Sóley Jóns-
dóttir hjúkrunarkona og Jón
Hilmar Magnússon skólastjóri. —
Heimili þeirra verður á Dalvík.
Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju
er á sunnudaginn kemur kl. 10.30
f. h. — I kapelluna koma 5 og 6
ára börn; í kirkjunni 7—13 ára
börn. — Bekkjastjórarnir eiga að
mæta kl. 10 í. h. — Æskulýðs-
blaðið (fyrsta blaðið á vetrinum
kernur út).
©Æskulýðsfélagar!
Á sunnudaginn kem-
ur verður stofnuð
aðaldeiid í féiaginu
með þeim félögum, sem nú eru
16 ára og eldri. — Eru þeir því
beðnir um að koma í kapeiluna
kl. 1.30 á sunnudaginn (23. okt.).
Allir þeir, sem á fyrri árum hafa
tekið þátt í félagsstarfinu, eru
einnig velkomnir, sömuleiðis þeir
sem vilja gerast féiagar í þessari
deild.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli. Kaupangi, sunnudag-
inn 23. október kl. 2 e. h. —
Grund sunnudaginn 30. október
kl. 1 e. h. (Minnzt verður 50 ára
afmælis kirkjunnar.) — Munka-
þverá, sunnudaginn 6. nóvember
kl. 1.30 e. h.
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins heldur fund í Alþýðuhúsinu
föstud. 2. okt. kl. 9 e. h. Ýmiss
skemmtiatriði. Gjörið svo vel og
takið með ykkur handavinnu og
kaffi. — Stjórnin.
Símanúmer leikskólans á Odd-
eyri er 2379.
Kaþólska kapellan (Evrarl.v.
26). Lágmessa alla sunnudaga kl.
5.30 síðdegis.
Slysavarnadeild kvenna á Ak-
ureyri þakkar öllum bæjarbúum
fyrir rausnariegar gjafir og allan
stuðning við hlutaveltuna 16.
þ. m.
Hjónaefni. Fyrir skömmu op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Lára Svansdóttir frá Akureyri og
Egill Tryggvason hreppstjóri
í Víðikeri, Bárðardal.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband Jakobína
Sigurðardóttir skáldkona og Þor-
grímur Starri Björgvinsson,
bóndi á Garði í Mývatnssveit. —
Ennfremur Bjarnfríður Vaidi-
marsdóttir frá Arnarfirði, og
Haukur Aðalsteinsson, Gríms-
stöðum í Mývatnssveit.
Happdrætti Landgræðslusjóðs.
Nú er hver síðastur að fásérmiða
í happdrætt Landgræðslusjóðs.
Dregið verður fyrsta vetrardag.
Þeir sem vilja styi-kja gott mál-
efni og freista gæfunnar ættu að
ná sér í miða í dag eða á morgun.
Þeir fást hjá stjórn Skógræktar-
féi. Eyfirðinga, á bifreiðastöðv-
um og bókaverzlunum í bænum
. og víðar.
Hjúskapur. Laugard. 15. okt.
voru gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Ásta
Pálína Baldvinsdóitir frá Dæii í
Sæmundarhlíð í .Skagafirði og
Þorsteinn Marinó Hallfreðsson,
Gránufélagsgötu 28, Akur.eyri. —
Heimiii þeirra verður að Gránu-
féíágsgötu -28; Akureyri.
Hjúskapur. 16. okt. voru gefin
sama.n í hjónaband ungfrú Petra
Antonsdóttir, Dalvík, og Herbert
Jónsson, stýrimaður, Akureyri.
Barnaverndarfélag -Akureyrar
efnir til fjársöfnunar fyrsta vetrar-
dag, svo sem verið hefur undan-
farin ár. Verða seld merki í bæn-
um, en auk þess verða kvikmynda-
sýningar í báðum kvikmyndahús-
unum. I Nýja-Bíó kl. 5 á laugar-
dag, en í Skjaldborgarbíó kl. 3 á
sunnudag. — Félagið hefui nú
komið á fót leikskóla fyrir börn
innan skólaskyldualdurs, og rennur
ágóði þessarar fjársöfnunar til
hans. Heitir félagið á bæjarbúa að
styrkja þessa starfsemi, með því
að kaupa merki þess næstk. laug-
ardag og sækja kvikmyndasýning-
arnar. Einnig verður tekið á móti
gjöfum til starfseminnar.
Amtsbókasafninu berst bóka-
gjöf. Bókaverzlun POB hefur
gefið Amtsbókasafninu á Akur-
eyri 358 bindi erlendra bóka. —
Safnið þakkar þessa gjöf.
Ljósastoía Rauðakrossins er
tekin til starfa að nýju í Hafnar-
stræti 100. Sími 1402. Ættu for-
eldrar að láta börn sín njóta ijós-
anna eftir þörfum.
Áheit á Æskulýðsfélagið. 75.00
kr. F. J. — Kærar þakkir. Gjald-
kerinn.
I. O. G. T. Stúkan Brynja nr. 99
heldur fund næstk. mánudág í
Skjaldborg kl 8.30 e. h. Kosning
og innsetning embættismanna. —
Hagnefnd skemmtir.
Möðruvallakl.prestakall. Mess-
að á Bakka í Oxnadal sunnudag-
inn 23. okt. kl. 2 e. h.
Skákmcistarinn Pilnik, sem
væntanlegur var hingað til Ak-
ureyrar um næstu helgi, verður
að fresta heimsókn sinni' um
nokkra daga og verður það augl.
síðar. Skákmenn á Norðurlandi
eru hvattir til að taka þátt í
skákmótinu er hér fer fram í til-
efni af komu hins erlenda skák-
meistara.
Skemmfiklúbbur Iðju
Skemmtiklúbbur Iðju byrjar
vetrarstarf sitt nú á næstunni. Er
gert ráð fyrir að klúbburinn starfi
með líku sniði og undanfarna vet-
ur: Spiluð félagsvist, skemmti-
atriði og dansað á eftir. Félagskort
verða seld þeim, sem gerast með-
limir á kr. 35.00 og gilda þau að
þrem skemmtikvöldum. Góð spila-
verðlaun verða veitt hvert sinn, og
en aðalverðlaun fyrir flesta sam-
anlagða slagi eftir 6 spilakvöld
(karlmannafataefni). Félagsskír-
má panta á skrifstofu verkalýðsfé-
laganna, sími 1503, og trúnaðar-
mönnum á vinnustað. Þetta er án
efa lang ódýrustu skemmtanir sem
almenningur i bænum á völ á, og
ættu þeir því ekki að draga að
tryggja sér aðgangskort. Athygli
skal vakin á því i tíma, að sölu fé-
lagsskírteina þarf að vera lokið
áður en klúbburinn tekur til starfa.
Nefndin.
í haust var inér dregin
hvít gimbur með mínu
marki; miðhlutað í stúf
hægra, ómarkað vinstra. —
Lamb þetta á ég ekki og
getur réttur eigandi vitjað
þess til mín.
Þorkell Björnsson,
Gróðrarstöðinni.