Dagur - 09.11.1955, Qupperneq 5
MiSvikudagiinn 9. nóvember 1955
D A G U R
5
- Ur erlendum blöðum
(Framhald af 2. síðu).
BJARTARI HLIÐIN Á EVRÓPU
- Örfá kveðjuorð -
Laugardaginn 29. október var
jarSsunginn frá Akureyrarkirkju
einn af elztu borgurum þessa bæj-
ar, Kristján S. Sigurðsson, kirSju-
vörður, eins o% hann var oftast
kallaður í seinni tíð. Kristján var
bárðdælskur að ætt og uppruna,
en hefur víða farið. Lengst hefur
hann þó dvalið hér á Akureyri, og
hér bar hann loks beinin. Hann
var trésmíðameistari að iðn, og
stundaði það starf lengst ævinnar,
þótt hann gerðist bóndi um eitt
skeið.
Um tvennt var Kristján merki-
legur maður. Hann var óvenju-
lega hugvitssamur um margt sem
laut að smíðum og var þar á und-
an sínum tíma, og svo fjölhæfur
var hann í iðn sinni, að hann gat
smíðað nálega hvað, sem hann var
beðinn um, og svo greiðvikinn var
hann, að hann gat aldrei neitað
peinum um greiða. Aldrei held ég
að hann hafii lært að verðleggja
vinnu sína á nútíma mælikvarða.
Og ég hygg, að hann hafi alla tíð
selt vinnu sina ódýrt. Enda safn-
aði Kristján aldrei fé og var hann
þó sparsamur maður. Má sem
dæmi nefna það., að þótt hann
hefði alltaf næga atvinnu og litið
heimili, eignaðist hann samt aldrei
þak yfir höfuðið fyrr en nokkrum
vikum áður en hann andaðist. Þá
keypti hann lítið hús á syðri
brekkunni.
Hitt, sem mér þótti jafnan
merkilegt um Kristján var það, að
hann var fágætur þegnskaparmað-
nr. Hann var mikill áhugamaður
nm ýmis félags- og menningarmál,
og horfði hann þá hvorki í tíma né
fé til að styrkja. þessi áhugamál
sín á ýmsan hátt. Og einmitt þess-
vegna mun vinna hans stundum
hafa orðið ódrjúg. Kristján var
jafnan boðinn og búinn til að
leggja öllum góðum málum lið, en
'þó voru það einkum tvær stofn-
anir, sem hann unni um fram all-
ar aðrar, en það var kirkjan og
Góðtemplarareglan. Þar vann
hann af heilum hug og sá hvorki
eftir tíma né fé, sem til þeirra
rann. Báðum þessum stofnunum
sýndi hann fágæta fórnfýsi og
hollustu, svo að það skarð verð-
ur vandfyllt. Hann var trúmaður
xnikill. Hann trúði alltaf á sigur
hins góða. Hann var frjálslyndur
cg bjartsýnn, og þó kom það
stundum að honum að verða svart-
sýnn, er hann sá unga og efnilega
menn fara gálauslega með ham-
ingju sína og framtíð.
Kristján sótti fundi í stúku
sinni fram til síðustu stundar, og
við kirkjuna sina skildi hann ekki
fyrr en dauðinn kallaði hann.
Hann var trúr öllum sínum hlut-
verkum, og for vel með talentuna
sína. Kannski hefur hann nú þeg-
ar fengið uppfyllt hið dásamlega
íyrirheit: Yfir litlu varstu trúr, yf-
ir mikið muntu settur verða. Gakk
inn til fagnaðar herra þíns.
Fyrir hönd bindindishreyfingar-
innar færi ég Kristjáni alúðar
þakkir fyrir langt cg gott starf í
þeim víngarði.
H. J. M.
.....í húsi Drottins bý
ég langa ævi.“
(Sálm 23, 6 b)
Þannig endar einn af fegurstu
sálmum Davíðs. En allur er sálm-
urinn játning þess manns, sem veit
hvað það er gott að trúa á Drott-
inn og treysta honum. Hann horf-
ir yfir farinn veg og segir: í húsi
Drottins bý é£ langa ævi“.
Kirkjan á Akureyri hefur ný-
lega hvatt í hinzta sinn einn af
starfsmönnum sínum, sem þjónaði
henni á langri ævi. Þessi starfs-
maður var Kristján S. Sigurðsson.
Margt olli því, að Kristján kom
oft í Akureyrarkirkju. Hann sam-
einaði þrjú veigamikil embætti í
þjónustu hennar; hann var bæði
formaður sóknarnefndar, kirkju-
vörður og hringjari um langt ára-
bil.
Störf sín vann Kristján af mik-
illi samvizkusemi. Hann lét sig
aldrei vanta. Fórnfýsi hans var
einstök. Ekkert var honum hærra,
en að rækja skyldur sínar. Hann
var alltaf reiðubúinn til þess að
sinna kirkjunni og hennar málum.
Hugsjón hennar var hans hjartans
mál. Á Iangri ævi hafði hann reynt
hve gott það var að trúa á Drott-
inn og treysta honum.
Hann var alinn upp á trúuðu
heimili. Þar lærði hann bænir sin-
ar og nauðsyn þess, að leita fyrst
guðsríkis. Honum var ljós þörfin
á starfi kirkjunnar. Honum var
mikið éhugamál, að söfnuðurinn
væri lifandi og vakandi af áhuga.
Allt áhugaleysi var fjarlægt eðli
hans. Hann var iðinn og ástund-
unarsamur. Verk féll aldrei úr
hendi hans fyrr en dauðinn kom
og Guð kallaði á hann heim.
Bjart er að líta yfir farinn veg
og Ijúft er að þakka honum fórn-
ir hans é liðnum árum. Eg flyt
ástvinum hans einlægar samúðar-
kveðjur og ber fram þá ósk, að
kirkjan megi eignast marga starfs-
menn með trúfesti Kristjáns og
fórnarlund.
Friður Guðs sé með þér látni
vinur. Hið eilífa ljós lýsi þér. —
Blessuð sé minning þín.
Pétur Sigurgeirsson.
FINNSKAR
karlmannabomsur
Verð kr. 139.75
Karlmannasköhlífar
Verð kr. 39.75
r
Odý rar barnabomsur
allar stœrðir.
Hvannbergsbræður
ORGEL
STORT, vandað og hljónr
fagurt til sölu. (Hentugt
fyrir félagsheimili.)
Tækifærisverð.
Stefán Ág. Kristjánssóú.
brotnasti persónuleikinn í meðal
nútíma norrænna rithöf. Asamt
yfirlýstri róttækri pólitískri skoð-
un, er herra Laxness lika kaþólsk-
ur umskiptingur í landi, sem er
mótmælendatrúar að yfirgnæfandi
meirihluta.
En verk hans fjalla að lang-
mestu leyti um lífið á hinu fjöll-
ótta eylandi við heimskautsbaug,
þar sem góður sögumaður var tal-
inn jafnoki konungborinna manna
á Víkingaöld.
Laxness hefur verið óþreytandi
ferðalangur allt frá 17 ára aldri, er
hann steypti sér út í hringiðu Ev-
rópu eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Hann varð fyrir sterkum áhrifum
af því, sem hann upplifði í Þýzka-
landi og Austurríki, og flýði til
klaustursins St. Maurice et St.
Maure í Clervaux í Lúxemborg,
og þar ákvað hann að verða ka-
þólskur guðfræðingur, á þriðja tug
aldarinnar. En köllun hans að
skrifa og ferðast varð sterkari.
Hún hreif hann til Ítalíu, Kanada
og Bandaríkjanna.
Honum skaut upp í Hollywood,
þar sem hann hreifst mjög af kvik-
myndinni sem nýju listformi.
Hann taldi meðal persónulegra
vina sinna á þessum árum fólk
eins og Grétu Garbo, John Barry-
more og Charlie Chaplin.
I Hollywood gerði herra Lax-
ness frumdrög verks þess, sem
seinna varð þekkt undir nafninu
„Salka-Valka“, en það er ævisaga
íslenzkrar stúlku. Kvikmyndin
varð aldrei til, en skáldsagan, sem
var fullgerð 1932, fór mikla sigur-
för.
I Bandaríkjunum tókst vinátta
með Laxness og Upton Sinclair,
og hin róttæku skrif Sinclairs
höfðu áhrif á þróunarferil hans.
Hann hefur sagt svo frá, að hann
geti aldrei gleymt hungruðu fólki,
sem hann sá sofandi undir berum
himni í skemmtigörðum Banda-
ríkjanna í kreppunni 1929, sama
árið sem hann hvarf frá Banda-
ríkjunum fyrir fullt og allt.
Enda þótt hann hafi dvalizt tals-
vert í Sovétríkjunum árin 1932,
1938 og 1953, neitar hann því að
hann sé kommúnisti eða að hann
hafi nokkru sinni verið skráður
meðlimur í kommúnistaflokki
Þannig er umgetning Associated
Press i lausl. þýðingu. Virðist
stefnt að þvi að gera veitinguna
heldur tortryggilega í augum
þeirra, sem lítið þekkja til skálds-
ins, auk þess sem ekki mun ná-
kvæmlega skýrt frá einstökum
atriðum í þessari ófullkomnu ævi-
skrá. Islendingar finna oft til þess,
er málefni þeirra ber á góma í
heimsblöðunum, að stærð og
frægð blaða og hlutleysi og ná-
kvæmni í frásögn fer ekki ætíð
saman.
TAKIÐ EFTIR!
DÖMUÚLPUR kr. 398.00
SKÍÐABUXUR kr. 265.00
PEYSUR kr. 156.00
UNDIRFÖT
NÁTTKJÓLAR
NÆRFÖT
BUXUR
SLANKBELTI
MJAÐMABELTI
BRJ ÓSTAH ALDAR AR
Klæðaverzlun
Sig. Guðmundssonar h.f.
Hafnarstr. 96 —. jSími 1423
Eftir ART BUCHWALD
Hæðirnar níu í Róm
Rómaborg.
KVIKMYNDIN „Stríð og friður"
er sögð vera „risavaxin kvikmynd,
gerð eltir risavaxinni skáldsögu."
Henni er senn lokið hér í Róm.
Þeir hafa þegar hörfað til Moskvu,
og innan lárra daga brenna þeir
Kreml til iisku, og þá liittast þau
þar aftur, Pierre (Henry Fonda) og
Natasha (Audrey Hepburn) og
njótast sæl og hrifin ætíð síðan.
Mörg stórmerki önnur er að íinna
í þessari risayöxnu kvikmynd. Með-
al þeirra má vissulega nefna spengi-
lega, ljóshærða, álitlega stúlku, scm
heitir Anita Ekberg. Hún er sænsk,
eins og Ingrid Bergman, en fús að
játa, að hún sé engin orleansmær
Þegar maður sér hana á hlið, er hún
vissulega samkeppnishæf við Gínu
Lollobrigidu, Softiu Loren og Sylv-
að heyra ofurlitla æviskrá ungfrú
Ekberg. Hún var fyrirmynd hjá
ljósmyndurum í Svíþjóð. Hún sigr-
aði í fegurðarsamkeppni heinta 1951
og fór síðan til Bandaríkjanna,
gerði samning við kvikmyndafyrir-
tækið Universal, en Jxeir sögðu
henni upp eítir árið. Sennilega
eru Jxeir enn að naga sig í handar
bökin fyrir Jxað tiltæki. Þá fór ung-
frú Ekberg í púkk með leikaranum
Jolni Wayne, og lék í myndiani
„Blood Alley.“ En Jxað var ekkert
varið í það, „því að ég lék kín-
vcrska stelpu í druslum, gat ekki
einu sinni fengið að nota varalit,"
sagði hún, „og var <>11 vafin í teppi.“
Vér urðum að játa, að illa hefði
verið skipað í lilutverkið, eins og
á stóð.
—o—
önu Mangano. ítalir, sem vita
hvað Jxeir cru að tala um á þessum
vettvangi, segja, að héðan í lrá verði
vissulega að reikna með Jxessari
telpu írá Málmö. Og einn jxeirra
var svo ntikill chevalier, að hánn
skrilaði í Ixlað sitt: „Rómaborg
helur alla tíð átt sínar sjö hæðir, en
nú, síðan ungfrú Eklxexg kom hing-
að, á hún níu .... “
—o—
HEPPNIN LÉIv við oss liér á
di'xgunum, er vér rákumst á ungfrú
Ekberg rétt frarnan við Bulgaris,
frægustu skartgripaverzlun Róm-
verja. Ungírúin var að skoða hring-
inn sinn í glampanum frá demönt-
ununi í glugganum.
„Þeir eru allir stærri“, andvarp-
aði hún.
„Mættum vér ekki kaupa eitt-
hvað handa yður hérna?" spurðum
vér og settum upp vort bjartasta
bros.
„Jú, reyndar," svaraði hún.
„Þarna er 26,75 karata steinhring-
ur, sem mér lízt Ijómandi vel á, og
vildi gjarnan eiga.“
„Hvað ætli hann kosti", spurð-
um vér, ofurlítið taugaóstyrkur.
„Rúmlega fjiirutíu Jxúsund doll-
ara,“ svaraði luin, án Jxess að blikna.
Vér héldum leiknum álram, og
buðuin licnni að ganga inn og
skoða hritjginn betur. Tveir gæzlu-
menn hleyptu okkur inn og fylgdu
okkur í salarkynni verzlunarinnar,
þar scm jnaður .veður gólftepþin í
mjóalegg, og lætur livílast í flauels-
fóðruðum stólum við dúumjúka
púða. Þar næst læstu Jxeir dyrunum.
„Þeir eru búnir að loka okkur
inni,“ hvísluðum vér í æsingi.
„Það er allt í lagi,“ svaráði lnin.
„Bétra að vera læstur inni en lok-
aður úti á þcssum stað.“
MEÐAN afgreiðslumáðurinn var
að bera írain hrin'gana, fengtun vér
EN UNGFRUIN stendur betur
að vígi í „Stríð og friði." Hún
leikur Helenu prinsessu. „Ég er
heillandi fögur í myndinni, en
undirförul, griinm og eigingjörn.
Ég sést í rúminu í myndinni."
„Hafið Jxér lesið skáldsöguna,
ungfrú Eklxerg?"
„Nei, en ég hef lesið kvikmynda-
leikritið. Annars er Jxað aukaatriði.
Upphaflega átti að láta drepa mig
í myndinni, eftir að ég hafði látið
vagn minn aka yfir bóndakarl, en
þeir breyttu Jxví. Það var búið að
drepa svo ógurlegá margt fólk í
myndinni áður.“
Ungfrúin fullvrti, að hún væri ekk-
ert afbrýðisöm gagnvart Gínu Lollo-
brigidu eða ungfrú Loren.
„Kynjxokki ungfrú Loren er
miklu jaröbundnari en minn,"
sagði hún. „Ég hef háleitara að-
dráttarafl."
„Og hvað skyldj. þajð pni Jxvða,
svona á mæltu máli?“
„Bara Jxað, að hægt er að sýna
fröken Loren - sem starfsstúlku í
verksmiðju, en aðdáendur mínir
mundu aldrei ganga inn á svóíeið-
is senu, livað mér við kemur.“
Ungfrú Ekberg ljóstraði Jxví upp,
að hana dreymdi um að verða
stjarna í liarmleik. Frægð liennar
er enn sem komið er mest megnis
tengd hitium tveim nýju liæðum í
Róm, en nú segist hún vera búin að
lá leið á Jxví. „Mér er farið að leið-
ast að sjá mvndir af mér í bikini-
baðfötum og undirkjól. Eg hefi
staðið í syoleiðis myndatökum upp
fyrir mitti — já alla leið hingað,"
segir hún, og leggur hendurnar á
brjóst sér. „Fólkið á að horfa á
á íturvaxna stúlku eins og Jxað
horfir á lagurt máh erk, eða fallega
byggingu. Ég vildi að Jxeir vildu
taka myiidir af mér eins uppstilltri
og Grace Kelly éða June Allyson.
Mig hefur alltaf drevmt um að
láta taka myiul af mér í svartri að-
skorinni peysu, með kósakkaháls-
máli Þá mundi ég njóta mín betur.
Maður kemst ekki á leiðarenda á
kynjxokkanum einum saman."
Frökén Ekeberg trúði oss fyrir Jxví
að hún væri alls ekki í neinni
keppni við Marilyn Monroe. „Nei,
ég stefni miklu hærra," sagði hún.
—o—
EN RÉTT í SÖMU svifum kora
afgreiðsíumaðurinn með demants-
hringinn, og ungfrúin hljóðaði aí:
hriíningu. Maðurinn kom með heil-
an bakka með 15000 dollara hrin'g-
um, og svo kom hann með annan
af 50000 dollara hringum, næstf:
klukkutíman gerði unglrú Ekelberg
ekki annað en máta demantshringa.
Eftir nokkra stund náði leik-
urinn tökum á oss, svo að véf
létum scm Jxað væri vor minnsta
kúnst að snara út -15000 dolluruiu.
(Framhald á 11. síðu).