Dagur - 23.11.1955, Page 8

Dagur - 23.11.1955, Page 8
8 Bagur Miðvikudaginn 23. nóv. 1955 íþróttafélagið Þór á Akureyri 40 ára Fáni félagsins og fjöimargir verðlaunaéripir, sem það hefur unnið. Grein um félaéið biður næsta blaðs. Gudmund Knutsen héraðsdýralæknir á förum Norski dýralæknirinn Gudmund Knutsen, sem hér hefur starfað um hríð sem héraðsdýralæknir, er nú á förum innan skamms. Mætti hann á síðasta Bændaklúbbsfundi, á mánudaginn, og tók þátt í um- ræðum. A þessum fundi voru hon- um þökkuð vel unnin störf í emb- ætti, er þykja með ágætum. Gudmund Knutsen hefur hvar- vetna unnið sér traust og virðingu meðal eyfirzkra bænda. Hæfni hans og dugnaður er með afbrigð- um og hispurslaus og hrein fram- oma í starfi og utan, hafa aflað honum frábærra vinsælda. Stend- ur baendastéttin i umdæminu í mikilli þakkarskuld við læknirinn og óskar honum brautargengis. Happdrætti U.M.S.E. Dregið var 15. nóvl liapp- drætti UMSE á skrifstofu bæj- arfógetans á Akureyri. — Upp kom númer 4788. Vinningurinn er Chevrolet fólksbifreið 1955, og er í vörzlu sveitarstjórans í Dalvík, Valdimars Óskarss. Ýmis tíðindi úr nágrannahyggðum Kjörbuð - nafn binna nýju búða Úrslit í samkeppni þeirri um nýtt, islenzkt orð yfir „sjálfsaf- greiðsluverzlanir“, er Samband ís- lenzkra samvinnufélaga efndi til í siðastliðnum mánuði, urðu þau að valið var orðiö kjörbúð. Mælir dómnefndin með því, að það orð verði tekið upp í málið yfir allar slíkar verzlanir. Með því að 65 manns sendu til- lögur um þetta sama nafn, var, eins og tilkynnt var í upphafi, dregið um 5.000 krónu verðlaunin, og var það gert hjá fulltrúa borg- arfógeta í gær. Verðlaunin hlaut: Aðalbjörn Arngrímsson, Þórshöfn. Alls bárust tæplega 700 bréf með 2500—3000 tillögum. — í dómnefndinni áttu sæti þeir Þor- kell Jóhannessön, rektor Háskóla íslands, Halldór Halldórsson, dó- sent, og Benedikt Gröndal, ritstj. „Hófel Ákureyri" brennur (Framhald af 1. síðu). Töfðu þær furðanlega fyrir eldin- um, á meðan þær héngu uppi. Neistaflng norður á Oddeyri. Neistaflugið var stórhættulegt í hvassviðrinu. Barst það alla leið norður á Oddeyri. Og sterka hita- bylgju lagði af brunanum. Maður einn er hjólaði suður bæinn, sagði svo frá, að er hann kom inn á móti Samkomuhúsinu hefði hitabylgjan skollið á sig og neistaflugið náð langt fram á Poll. Á húsunum, sem næst stóðu norðan við brunastaðinn, skullu neistarnir eins og haglél og hrundu svo af hallandi þökunum. Urðu smáíkveikjur á nokkrum stöðum, en slökkvilið og sjálfboðaliðar landsins í þá daga og lengi siðan. Byggingin einkenndist af stórhug og bjartsýni og varð fljótt miðstöð bæjarins og setti mikinn svip á hann. Þá þótti fín't að koma á Hótel Akureyri og þóttu mörgum fraini að hafa komið þar. Margt hefur breytzt. Þá var aðalbærinn þar inn frá og Oddeyrin lítið byggð. Var lengi alger vegleysa á milli bæjarhlut- anna og illfært. Reynt hafði verið að koma á símasambandi milli bæjarhlutanna, en það fyrirtæki fór út um þúfur. Meðfram fyrir það, að margir fiktuðu og skemmdu tækin og fólk kvartaði undan því að hafa símalínur nærri Bílaskemma fauk á \ Ðalvik Dalvík 21. nóv. Á fimmtudagsnóttina gerði ofsa veður af suðvestri. Stór bila- skemma, sem Útibú KEA á Dal- vik var að láta gera, fauk. Asbest- klæðningin eyðilagðist og grindin skemmdist mikið. Á mörgum bæj- um fauk hey og skemmdir urðu á húsþökum. Fjölmennt og fjörugt hjónaball var um helgina. Jón Norðfjörð og Hjálmar Júlíusson lásu upp kvæði og sögur. Tónlistarfólk og söngvarar út- varpsins héldu samkomu hér, er það var á ferð um Norðurland. Fjölenni var og góður rómur gerður að. Héraðsstjórinn, Valdi- mar Oskarsson í Dalvík, þakkaði gestum fyrir komuna og ágæta skemmtun, en Guðmundur Jóns- son þakkaði móttökurnar. Dettifoss leggst að bryggju í Ólafsfirði í fyrsta sinn Ólafsfirði 21. nóvemher. Hér er óvenjulegt blíðviðri. Hitinn er 10—14 gráður. Hefur svo verið síðan á mánudaginn var, er hann gekk til landáttar aftur. Trillubátar hafa lítið gfitað róið og afli tregur. Á þriðjudaginn lestaði Dettifoss 3 þús. kassa af hraðfrystum karfa og gekk það vel. Er þetta i fyrsta skiptið að þetta stóra og glæsilega skip legst hér að bryggju. Sjór var lágdauður og dýpið yfirdrifið. Voru 3 metrar undir kjöl með fjöru. . Á fimmtudaginn skemmti tón- listarfólk á vegum Ríkisútvarps- ins. Listafólkinu var ágætlega tek- ið og varð það að hafa aðra sýn- ingu, einnig fyrir fullu húsi. — Skemmtu menn sér frábærlega vel. Togarinn Norðlendingur kom á fimmtudginn með 180 tonn af fiski. Fór aflinn að mestu í hrað- frystihúsið. Ejölmenn minningar- guðsþjónusta Minningarguðsþjónusta fór fram í Olafsfjarðarkirkju á föstudaginn um Helga Sigvalda Árnason frá Syðri-Á í Ólafsfirði, sem drukkn- aði af togaranum Norðlendingi. — Sóknarpresturinn minntist hins látna og kirkjukórinn söng. Jón Sigurpálsson söng einsöng með undirleik Guðmundar Jóhannsson- ar organleikara. Athöfnin, sem hófst kl. 5 síðdegis, fór mjög vel og virðulega fram og var fjölmenn. Alautt er í byggð og vonir standa til að Lágheiði verði bílfær innan skamms, ef framhald verður á þessari ágætu tíð. Heyskaðar - Eyfirzkt raet í skurðgreftri Þverá í Svarfaðardal 21. nóvember. í suðvestanrokinu aðfaranótt fimmtudagsins, urðu nokkrir bændur fyrir tjóni. Hey fuku víða meira og minna. Til dæmis á Bakka, Syðra-Hvarfi, Hofsá og viðar. Á Urðum fauk þak af þvaggryfju og lentt það siðan á fjósi og hlöðu til nokkurra skemmda. Straum var hleypt á nýju raflín- una að vestanverðu í dalnum í gær. Mun þess skammt að bíða að fyrstu ljósin verði tendruð. Skurð,grafan er nú hætt störf- um. Vinnan með henni, hefur gengið með ágætum í sumar. Búið er að grafa yfir 70 þús. tenings- mtra. Eru það mestu afköst hér um slóðir. Skurðgröfustjóri er Vil- helm Þórarinsson. Ræktunarsambandið er að fá nýja jarðýtu af stærðinni TD9. Er hún komin til Dalvikur og biða hennar mikil verkefni næsta sumar. Það þykir tíðindum sæta, að ræktunarsambandið hefur hjóla- dráttarvél við jarðvinnslu í Svarf- aðardal á þessum tíma árs. Verið að reisa raflínu- staura Lómatjörn 22. nóvember. Mótorbáturinn Frosti, sem slitn- aði upp af legunni og rak á land, svo sem fyrr getur, er talinn minna brotinn en fyrst var álitið. Hefur honum nú verið komið á flot og er kominn til Akureýrar í viðgerð. Nokkuð hefur verið róið og er reytingsafli. Loksins er verið að reisa raf- línustaurana frá Garðsvikk til Grenivíkur. Verður það undir tíð- arfarinu komið, hvort áætlun stenzt í þessum framkvæmdum. Tveir bátar eyðilögðust við Flatey Húsavík 21. nóvember. Flateyingar rnisstu tvo trillubáta í norðangarðinum um daginn. Eig- endur voru þeir Gunnar Guð- mundsson og Hólmgeir Jónatans- son. Voru bátarnir báðir óvá- tryggðir og er því tjón eigendanna mjög tilfinnanlegt. Húsavíkurbátarnir reru alla fyrri viku og öfluðu vel. Þorskur- inn er saltaður en ýsan fryst. Jeppi kom yfir Reykjaheiði í dag. og var aðeins 3 klukkutíma milli byggða. Snjólaust má kalla, nema í lægðum, þar með töldum veginum, sem víða er niðurgraf- inn. voru vel á verði, svo að ekki varð tjón af. Tuttugu manns húsnæðislausir. Góðir nágrannar og vinir skutu skjólshúsi yfir hið heimilislausa fólk til bráðabirgða. Það hefur misst aleigu sína flestallt og sumt af því, sem fórst í eldinum, verður ekki bætt. Efalaust munu margir bæjarbúar verða til þess að rétta hinum bágstöddustu hjálparhönd. íbúarnir í Hótel Akureyri voru þessir: Þorkell V. Ottesen, kona hans, Sigfríður Hóseasdóttir, átta manna fjölskylda, Magnús Sölvason, Mar- grét Sigfúsdóttir, Bjarni Hóseas- son, Árni Jóhannesson, Randver Pétursson, Þorlákur Einarsson, Gunnar Þorsteinsson, Svavar Zóphoníasson, Jónas Hallgrímsson, Marinó Baldvinsson, Ingimar Sig- urjónsson og Gunnbjörn Arnljóts- son. Eigendur hússins voru Jón An- tonsson og db. Hallgríms Davíðs- sonar. Veglegastíi veitingaJiús landsins. Hótel Akureyri var byggt eftir stórbrunann 19. 'des. árið 1900, en. þa brunnu 7 hús á Akureýri, Iþar á meðal Veitingahúsið; svöneínda. Þá var ekkert slökkvilið og enginn slökkviliðsstjóri og. éngþútæki. |» að berjast við eldsvaða önnur en vatnsfötur. Með þessum stórbruna hófst nokkurs konar brunaöld í bænum. Rak hver stórbruninn annan. • v En á rústunum voru byggð ný og veglegri hús en áður.Þar á með- al Hótel Akureyri. Það var talið veglegasta veitinga- og gistihús húsum sínum. Það gæti þá ekki sofið. Meðan Akureyri var enn svo lít- ill bær og ófullburða og framfarir hægfara, var Hótel Akureyri „staðarins stolt“, að nokkru leyti. Þar var glaumur og gleði, ys og þys. Þar hittust menn og meyjar og þar voru ráðstefnur haldnar um andleg jafnt sem veraldleg málefni. Allir þekktu Vigfús vert Sigfússon og hótelsystur. Enn bregður fyrir glampa í augum roskinna manna, er talið berst að Hótel Akureyri. Lengi var það rekið með glæsi- brag, en hafði þó fyrir nokkru misst sinn forna og fagra svip, er það brann. Sagan skipaði því líka á bekk allfjarri miðbænum er tímar liðu. Yngri menn kannast við Gamla Hótel Akureyri af afspurn, en þó raunar fremur sem hálfgerða þjóð- sögu. Menn vissu naumast að það væri ennþá til. En það minnti á sig á eftirminnilegan hátt, um leið og það hvarf að fullu í einum stór- kostlegasta bruna, sem um getur hin síðari ár. Hið fomfagra stórhýsi á merka sögu. Hana þarf að skrá. Hún er merkur þáttur í sögu bæjarins, fyrstu tugi þessarar aldar. ~ Stjátn Félags ungra Framsókn- .armanna í- Kyjafirði vill minna félaga sína og aðra unga Fram- sóknarmenn á framhaldsaðalfund félágsins, sem. haldinn verður að Hótel KEA næstk. sunnudag kl. 9 e. h. Að fundarstörfum loknutn mun Haraldur Sigurðsson sýna kvikmynd,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.