Dagur - 10.12.1955, Side 1
Dagur
Akureyri, laugardagiun 10. desember 1955
57. tbl.
Þrír ættliðir
Eisenhower forseti gen&ur upp kirkjutröppur í Gettysburg í íyl£d
meö syni sínum o£ sonarsyni.
Afhending Björgunarskútu Norð-
urlands tefst um marga mánuði
Gjaldeyrisyfirvöldin sýna tregðu á
nauðsynlegum leyfum
KEA opnar fyrstu kjörbúS á Norður-
landi, við Ráðhúsforg, næsfa miðvikud.
Samvinnumenn á Islandi hafa forgöngu imi
bætta þjónustu - Sænsk fyrirmynd notuð -
Sérmenntaður verzlunarstjóri
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga og kaupfélögin
hafa um skeiíV kynnt sér hið
nýja verzlunarform, sem gekk
undir nafninu sjálfsafgreiðsla,
nú kjörbúðir, og er að rvðja
sér til rúms í Vestur-Evrópu
og Ameríku.. og hefur gjör-
breytt gerð og Jyjónustu sölu-
búða, þar sem það hefur náð
að festa rætur.
Sænskir samvinnumenn gerðu
sína fyrstu tilraun 1944 við Odin-
gatan 31 í Stokkhólmi. Gafst hún
svo vel, að furðu sætti, og síðan
hafa búðir af þessari gerð rutt sér
til rúms í æ ríkara mæli, með
nokkrum breytingum. A þessu ári,
til dæmis, eru um 300 nýjar kjör-
búðir opnaðar í þjónustu sam-
vinnumanna í Svíþjóð. Auk þess
eru kaupmenn teknir að feta í
fótsporin.
Danir og Norðmenn hafa num-
ið af Svíum og kjörbúðir rísa upp
hvarvetna.
Kjörbúðunum vel tekið.
Hér á landi var, fyrir nokkrum
árum, gerð tilraun, en hún mis-
heppnaðist. En ekki hefur verið
látið þar við sitja, því að í haust
voru tvær kjörbúðir opnaðar á
Suðurlandi, í Hafnarfirði og á Sel-
fossi, og litlu síðar hjá SÍS í Aust-
urstræti i Reykjavík. Virðast þess-
ar nýju verzlanir gefa ágæta raun
og fólkið taka þeim vel.
Undirbúningur hafinn í
sumar.
xxxvm árg.
Síðustu fregnir herma, að enn
verði nokkur dráttur á afhendingu
Björgunarskútu Norðurlands. Átti
að hleypa henni af stokkunum 1.
desember sl., en vegna synjunar á
gjaldeyrisleyfum fyrir ýmsum
hjálparvélum og öxli í skipið,
dregst afhending um langan tima.
Aðalvél skipsins er komin fyrir
löngu, en verður ekki sett niður
fyrr en skipinu hefur verið hleypt
af stokkunum. Hins vegar þarf að
setja öxulinn niður áður.
Stálsmiðjan smíðaði skipið, en
Landsmiðjan mun eiga að setja
vélarnar í það.
Færið þyn^ist í þjóð-
vegununi
Síðustu dægur hefur moksnjóað,
en viðast í logni. Allir vegir í ná-
grenni voru greiðfærir í gær, en
þó kominn nokkur snjór. Oxna-
dalsheiði var rudd á miðvikudags-
kvöld, en þar var lítils háttar haft.
Vaðlaheiði og Fljótsheiði voru
færar i gær. Færi er þó farið að
þyngjast, en snjór er jufnfallinn.
Engin síld í gær
Engin síldveiði vai á Akureyr-
orpolli í gær. En skipin, sem veiði
fengu í fyrradag, lönduðu í Krossa-
nesi í gær. Siómer.n telja líkur fyr-
ir sildveiði ef til sunnanáttar
brigði.
Norðlendingar, og þjóðin öll,
fylgjast vel með smiði hins lengi
þráða skips og mun vissulega ekki
sætta sig við þessi vinnubrögð,
þar sem þau eru ekki vegna fá-
tæktar, heldur af klaufaskap, að
því er virðivt.
Strangari hegningar-
íöggjöf
Svíar vilja fá strangari hegning-
arlöggjöf fyrir akstur undir áhrif-
um áfengis. Skoðanakönnun sýnir,
að 56% af þjóðinni óskar þess.
Hagstofa Svia hefur annast
þessa skoðanakönnun eftir ósk
Bindindisfélags ökumanna.
Niðurstaða skoðanakönnunar-
innar er, að 56% vilja þyngja
hegningarákvæðin, 37% vilja hafa
þau óbreytt, en 1% vill létta þau.
Meiri hluti þeirra, sem Vill
strangari hegningarákvæði, eða
81%, álita að öll áfengisneyzla
ökúmanna varði við lög, en 12 %
vilja hafa takmörkin við 0,5';lf)
af áfengismagni í blóðinu. Konur
eru strangari en karlar í þesSu
efni og eldri menn strangari en
þeir yngri.
Sennilegt er talið, að þessi skpð-
anakönnun sé í samræmii við
þjóðarvilja Svia i þessu efni, þvi
að enginn áróður komst nð í sam-
bandi við viðtöl við þátttakendur.
Verður friðunartími
rjúpunnar styttur?
Samkvæmt gildandi lögum, má
aðeins veiða rjúpur á tímabilinu
frá 15. okt. til 28. des. „Blessuð
rjúpan hvíta“ er umdeildasti fugl-
inn á landinu. Og svo einkennilegt,
sem það kann að viriðast, hvílir
enn mikil leynd yfir lifnaðarhátt-
um hennar. Sum árin hverfur hún
nær gjörsamlega, en fjölgar brátt
aftur með ótrúlegum hraða. Vís-
indamenn og leikmenn deila um
ástæður fyrir þessu og jafnvel á
löggjafarþingi þjóðarinnar hefur
rjúpan v.erið eitt af þeim umræðu-
efnum, er hleypt hafa hita í hina
virðulegu sstfnkomu. Nú<umskeið
hefur rjúpum fjölgað svo ört, að í
sumar voru þær viða í þúsunda-
tali heima.’við bæi og í heimahög-
um bændabýlanna, víðs Vegafi á
landinu. í vfetur hafa þalF viða
verið skotnar töluvert. En* vegna
snjóleysis, munu þær hafa haldið
sig mest til fjalla og horfð alveg
af láglend, nema á stöku stað.
Nú er rjúpan ennþá orðin um-
ræðuefni Alþingis. Komið er fram
frumvarp um að stytta friðunar-
timann. Flutningsmaður er Páll
Zóphoníasson. Þykir honum sýnt
að fjölgun og fækkun rjúpunnar
lúti ákveðnum lögmálum, en veiði
hefði minni áhrif en margir ætl-
uðu. Samkvæmt reynslunni myndi
rjúpum fækka mjög á næstunni,
hvað sem allri veiði liði,
Varð 140 ára
Elzti maður Indlands er nýlega
látinn. Hann hét Rasya Ram og
var 140 ára. Hann er þvi fæddur.
sama árið og Napóleon háði sina
frægu orrustu við Warterloo.
Eignarrétturinn á
tunglinu
Fyrir stuttu síðan var hafin sala
á landskikum á tunglinu. Félag
eitt vestan hafs seldi ekruna á
einn dollar. Svo virðist, sem
margir hafi haft áhuga á kaupun-
um, þvi að 4500 manns keyptu sér
skák.
En nú er komin upp deila, því
að maður einn segist hafa látið
skrásetja kröfu til landa á tungl-
inu í marz í fyrra. Hóta báðir að-
ilar kærum og er ekki gott að
gizka á hver málalokin verða. En
það getur óneitanlega tafið nokk-
uð framkvæmdir hjá hinum nýju
eigendum, sem þegar hafa keypt.
Ekki fylgir frétt þessari, til hverra
nota hið nýja land er ætlað!
KEA á Akureyri hefur um ára-
bil haft áhuga á að gera tilraun
með hið nýja form hér norðan-
lands.
Leigði það í sumar verzlunarhús
með þetta fyrir augum, við Ráð-
húsorg (Brekkugata 1). Hefur þar
siðan verið unnið að undirbúningi
og lagfæringum að sænskri fyrir-
mynd. Vélar allar og verkfæri eru
frá Svíþjóð.
Baldur Ágústsson, starfsmaður
hjá KEA, sem var á skóla i Sví-
þjóð, var þegar ráðinn til að veita
hinni nýju búð forstöðu. Sneri
hann sér af alhug að þessum fræð-
um ytra og gekk á skóla fyrir
verzlunarstjóra i þessari grein. Er
hann fyrir nokkru kominn heim
(Framhald á 7. síðu).
Nú er stutt á síldarmiðin!
Síldarskipin á Akureyrarpolli hafa iengið nokkuö af smásíld. Snæfelliö, sem er næst Iandi, er aöeins táa
metra framan viö tjamla slippinn.