Dagur - 10.12.1955, Síða 2
2
D A G U K
Laugardaginn 10. desember 1955
„Lifi dalakvæðin vel
og lengi.“
Húnvetningaljóð er myndarleg
viðbót við þau byggðaljóðasöfn,
sem áður háfa verið gefin út.
Hér sitja sextíu og sex ljóðskáld
á Bragaþingii og bera fram sín
lífsviðhorf og hugðarmál.
Þetta fólk er af ýmsum stéttum:
bændur, húsfreyjur, verkamenn,
iðnaðarmenn, kennarar, guðfræð-
ingar, skrifstofumenn, jafnvel for-
setavaldshandhöfum og ambassa-
dörum kann að bregða fyrir í
hópnum.
En þó að hópurinn sé fjölbrevti-
legur að stéttarskiptingu, má raun-
ar segja, að yrkisefnin og Ijóð-
formin sé ekki fjölbreytt, að sama
skapi. Við Islendingar erum flestir
sveitamenn og segja má, að þessi
bók sé enn ein sönnun þess, því að
flestu fólki virðist í blóð borin
sveitamennska, í orðsins beztu
merkingu.
Náttúran verður því óþrjótandi
yrkisefni, ást þess er tengd vorinu
og gróandanum, lífsbaráttan haust-
inu og vetrarhörkunum, í íslenzkri
náttúru endurspeglast jafnan fögn-
uður þess og harmur.
Þetta fólk, sem á sér æskudal,
fyrir handan fjöllin:
„Þar á æskan ótal spor
ótal spor, sem geyma
minningar um vorsins vor,
vorin okkar heima.“
„Hér gæti eg kveðið mig sáttin við
sorg mina og þrá
og sungið mig inn í dauðann með
vor í hjarta.11
Oft var fagnað vori, eftir erfið-
an vetur:
„Vetrarþilju hjaðnar hem,
hljóðnar bylgja, strengur.
Sér í iljar öllu, sem
andstætt vilja gengur."
Ástarævintýrin hafa endað á
ýmsa lund, eins og gengur og ger-
ist í mannlífinu:
„Yndislegt er upp við fossinn
og þar hlaut eg fyrsta kossinn.
Ha’Iaðist að hennar barmi,
hlýtt í sæludraum.
Síðan gat eg sárum harmi
svalað við þann straum.“
Sárt er að missa um sumarmál
sólskinið úr bænum.“
„Þó að orni enn við fund
ylur handabandi,
finnst mér eins og seilst um sund
sitt frá hvoru landi.“
Margur hefur líka einu sinni átt
sér hest:
„Sit eg hljóður harmþrunginn
hugarmóði altekinn,
kasta á góða klárinn minn
kveðjuljóði hinzta sinn.“
Einn og einn hefur komizt i
tynni við pólitíkina:
„Æran glatast ýmsum hjá
í þvi Satans vígi,
þar sem matað allt er á
öfund, hatri og lýgi.“
Þá bregður og fyrir heimspeki-
rgum hugleiðingum:
„Bjartsýni ber að lá
brugðist samt hún getur
þeim, er setja allt sitt á
aðeins góðan vetur.“
„Yfir flúðir auðnu og meins
elfur lífsins streymir,
sjaldan verður ósinn eins
og uppsprettuna dreymir."
Það er freistandi, að halda
áfram að taka fleii-ji sýnishorn
ljóða og yrkisefna, en hér verður
að láta staðar numið.
Svo sem vænta má, er hér mis-
jafnlega að verki verið, þar sem
svo margir leggja hönd að. Hér
eru ýmsir, sem ekki skara neitt
fram úr þvi sern gengur og gerist
með algenga hagyroinga, en hér
má einnig finna marga af þeim,
,.er hlutu stærri pundin og hafa
tendrað ljós.“
Eklci skulu þó nefnd nein nöfn
til samanburðar, enda er þessi bók
ekki vettvangur samkeppni, held-
ur verour að líta svo á, að hér hafi
allir sem hlut eiga að máli, hver
eftir sinni getu, lagzt á eitt í þeim
tilgangi að skapa góða Ijóðabók,
sem væri höfundunum og hérað-
inu til sóma.
Ekki verður annað séð én þetta
hafi tekizt meira en sæmilega. —
Útgefandinn, Rósberg S. Snædal
rithöfundur, sem safnað hefur
ljóðunum og annast útgáfuna að
mestu, ásamt Jóni B. Rögnvalds-
syni, hefur auðsjáanlega unnið
vandasamt starf af hinni mestu
alúð og vandvirkni. Að vísu má
segja sem svo, að bók þessi geti
ekki í heild talizt merkilegt bók-
menntaverk, þó að þar sé margt
gótt að finna.
En sem talandi vottur islenzkr-
ar alþýðumenningar og brot úr
sögu einnar kynslóðar úr dala-
byggðum landsins, er hún gott
verk og ánægjulegt.
I bókinni eru myndir af höfund-
unum og þar er einnig stutt en
greinargott æviágrip þeirra allra.
Bókin er einkar snotur útlits og
frágangur allur hinn vandaðasti,
svo sem gerist um bækur, sem
unnar eru í Prentverki Odds
Björnssonar.
Hún má teljast skemmtileg
tækifærisgjöf, ekki einungis Hún-
vetningum, heldur og hverjum
Ijóðaunnanda, sem getur tekið
undir með Húnvetningaskáldinu:
Oft mér hugljúft yndi bar
ómþýð ljóðahending.
Hún í erjum vetrar var
vörn og þrautalending.
Einar Kristjánsson.
endursagðar fyrir börn. Bókin er
myndum prýdd og prentuð með
stóru letri.
Eg ráðlegg öllum, sem vilja gefa
börnum góða jólabók, að biðja
bóksalann um þessa bók séra
Garðars Þorsteinssonar. Hún ætti
í raun og veru að vera til á hverju
einásta barnaheimili.
Hér er hvort tveggja snilldar-
lega gert: Efnisval og þýðing. —
Bókin leiðir hug barnanan inn í
heim Nýjatestamentisins. Þau lesa
um fæðingu Jesú, skólagöngu
hans, fullorðinsár, kraftaverk hans,
dæmisögur og margt fleira. Hrynj-
andi málsins er skýr og orðfærið
Iétt. Frásagan er lifandi og sér-
staklega við barna hæfi.
Ættu foreldrar ekki að draga
það að gefa börnunum þessa bók.
Pétur Sigurgeirsson.
Fögur barnabók
Eins og endranær hafa komið
út margar bækur fyrir jólin. —
Því miður eru ýmsar af þeim bók-
um í hreinni mótsögn við hina
heilögu hátíð og ættu aldrei að
hafa orðið til.
Sá, sem ætlar að gefa bók í jóla-
gjöf, verður að velja úr bókafjöld-
anum, sem nú er á boðstólum. —
Það er mikill vandi, einkum þar
sem börn eiga í hlut. — Eg rita
þessar línur til þess að vekja at-
hygli á barnabókinni: Ó, Jesú
brúðir bezti, sem séra Garðar Þor-
steinsson í Hafnarfirði hefur þýtt
og er fáanleg í bókaverzlunum.
Bókin er ensk að uppruna og
hefur hlotið miklar vinsældir hjá
ungu kynslóðinni. Hún er eftir
enska skáldið Vera Pewtress.
Efni bókarinnar er úr Nýja-
testamentinu, valdar frásagnir
Fjórar barnabækur
eftir íslenzka höfunda
Barnablaðið „Æskan“ sendir að
þessu sinni frá sér fjórar barna-
bækur og eru þær allar eftir ís-
lenzka höfunda. „Æskan“ er þekkt
að því að senda aðeins frá sér
góðar bækur. Frágangur þeirra er
einnig smekklegur. Bækurnar eru
þessar:
Cott er í Gtaðheimum eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Þetta er
framhald af bókum hennar um
þau Hörð og Helgu, sem notið
hafa mikilla vinsælda. Verið er að
flytja söguna í barnatímum út-‘
varpsins.
Todda í tveim löndum eftir
Margréti Jónsdóttur. Þetta er
þriðja bókin um Toddu og gerist
bæði í Danmörk og hér heima.
Todda er nú orðin svo þroskuð að
bókin mun einkum vera fyrir
stálpuð börn og unglinga. Ekki
þarf að lýsa því, hvernig Margrét
skrifar fyrir börn. Það þekkja all-
ir, sem lesið hafa „Æskuna" með-
an hún var ritstjóri hennar.
Bjallan hringir eftir Jennu og
Hreiðar Stefánsson. Þessi bók er
einkum fyrir yngri börn og var
sagan lesin í barnatímum útvarps-
ins í fyrravetur. Höfundarnir eru
þekktir fyrir Oddu-bækurnar og
sami léttleiki og einkenndi þær í
stil og frásögn einkennir þessa
bók.
Hörður á Grund eftir Skúla Þor-
steinsson er fjórða bókin. Þetta er
saga drengs í sveit og samskipti
hans við dýrin. I bókinni felst
mikill fróðleikur um íslenzkt
sveitalíf og er bókin skrifuð á
ágætu máli. Hún er fyrir stálpaða
drengi og unglinga.
Hnökrar
Ný Ijóðabók með þessu nafni er
nýkomin út. Höfundurinn er Jak-
ob O. Pétursson ritstjóri. Er þetta
fyrsta bókin frá hendi höfundar-
ins og mun mörgum leika forvitni
á, hversu til hafi tekizt. Þótt bók
þessi verði ekki gerð frekar að
umtalsefni í bráð, dylst engum við
fljótlega yfirsýn, að margt er þar
vel sag.t..og skem,mtilega.og.kemur
það kunnugum ekki á óvart, því
ao Jakob er ljóðelskur maður og
orðhagur.
Það nýjasfa frá FLÓRU
er SULTA í plastumbúðum. Kostar aðeins
kr. 7.50 pakkinn (V2 kg.) Ódýr og góð í
jólabaksturinn.
KJÖTBÚÐ KEA.
Pantið fímanlega í jólamatinn
Eins. og ávalt áður verður úrvalið mest og
bezt hjá oss.
Bara að hringja
Allt sem yður þóknast er yður sent heim.
KJÖTBÚÐ KEA.
Er ekki hagkvæmt að fá sér
MJÓLKURÍS
sem ábæti um JOLIN.
Hann fæst I '§niék'k 1 eouin pappaumbúðum í mismun-
andi stærðum ásamt jarðarberjasósu, ananassósu súkku-
laðisósu og apelsínusóu.
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM.
ISBARINN
Hajnnrstrœti 98.
Döölur
Njótið suðrænna ávaxta í skammdeginu.
Höfum miög góðar DÖÐLUR í pökkum.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeildin og útibú.
Húsmæöur!
Sparið pcninga og kaupið FLÓRU-sultu
í plastpokum.
AÐEINS IÍR. 7.50 1/2 KG. POKI.
Þér sparið 3 kr. á kílói miðað við
venjuleg glös.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
Nýlenduvörudeildin og útibú.