Dagur - 16.06.1956, Side 8
8
Baguk
Laugardaginn 16. júní 1956
Ljó$ift. E. Sjguvgcirsson.
Sutnri fagnað
Lengir daginn,
dvínar nótt,
hækkar sól á himni.
Vetur víkur,
vorið hlær,
heilsar sólhlær sumri.
Hitnar hjarta,
hlýnar geð,
íagnaðsstundum fjölgar.
Bjartur heillar
hug minn senn
fjalla víður faðmur.
JÓN BENEDIKTSSON,
prentari.
Kaupfélag Ingólfs á Hellu og SÍS
Magnús Jónsson frá Mel mun á
framboðsfundi í Sólgarði hafa sagt
frá því, að kaufélag Ingólfs á
Hellu hafi ekki fengið inngöngu í
SÍS — og talið það ljótt til frá-
sagnar.
Kauplélag Ingólfs á Hellu
Frá félagimi
Ísland-Noregnr
Eins og að undanförnu stendur
ungum mönnum, er því vilja sinna,
til boða ókeypis skólavist í Nor-
egi á hausti komanda og frá næstu
áramótum.
Um þessa skóla er að ræða:
Bændaskólann í Geirmundarnesi í
Rómsdal. — Bændaskólann á
Tveit á Rogalandi. — Bændaskól-
inn að Steini á Hörðalandi, og
Búnaðar- og garðyrkjuskólann í
Aurlandi í Sogni.
Umsóknir um skólavist sendist
til félagsins Island—Noregur,Arna
G. Eylands, Sóleyjargötu 35,
Reykjavík, er gefur allar nánari
upplýsingar.
er klofningsfélag. Það er
dulbúinn „Rindill“ fráSjálf
stæðisflokknum. Það er
gert út til J>ess að villa sýn
— af jjví að samvinnustefn-
an er vinsæl. — Það er sér-
hagsmunahyggja Sjálfstæð-
isflokksins undir kaupfé-
lagsformi að yfirvarpi.
Samkv. lögum SIS fær ekkert
kaupfélag inngöngu í Sambandið,
ef kaupfélag er fyrir á sama fé-
lhgsvsæði.
A árum innflutningskreppunnar
kom það sannarlega ekki kaupfé-
lagi Ingólfs á Hellu að sök, þótt
það væri ekki í SIS. Heildsalar
Sjálfstæðisflokksins birgðu það
af annars ófáanlegum varningi, af
því að það er áróöurstæki Sjálf-
stæðisflokksins í Rangárvalla-
sýslu.
Að sjálfsögðu hefði samt félag
þetta fengið upptöku í SIS, ef ann-
að félag hefði ekki verið fyrir á
verzlunarsvæðinu og reglur þess
við athugun reynst fullnægja sam-
vinnulögunum, þó að yfirvarpi
væri.
Barnflesfa heimili bæjarins stofn-
að fyrir 6 árum, en börnin orðin 60
Rebbi slapp
Ofeigsstöðum í Kinn.
Hér er sólskin en lítil spretta,
en úthagi þó orðinn sæmilegur. —
Vegna kuldanna var fé víðast á
túnum fram til síðustu mánaða-
móta.
Grenjaleitum er haldið áfram
og hefur annað greni verið unnið,
en frá hinu var sagt áður. Refur-
inn slapp þó að þessu sinni.
Talsvert ber á beinaveiki í
kúm, en þó er hitt undarlegra að
geldneyti, sem vel hafa verið alin
á grænni töðu í vetur og í ágætum
holdum, hafa snögglega veikzt og
er kennt um steinefnaskorti. Ber
allrnikið á þessum kvilla.
Bændur eru óánægðir yfir því,
hve illa gengur að ná i dýralækni
þegar á liggur, mun annríki valda.
Sauðburður gekk ágætlega, en
fyrningar eru minni en á horfðist
um tíma, því að vorið var gjafa-
frekt vegna kuldanna.
Verið er að steypa brú á Rangá
hjá Hóli. Er því vegurinn tepptur
um skeið.
Trúlofanir eru engar.
Gegnum auglýsingaáróðurinn og
tilkynningafarganið í útvarpinu,
sem hvert kvöld dynur í eyrum
manns, mátti þó í fyrrakvöld
heyra tilkynningar, sem tekið var
eftir. Þær voru frá Þjóðvarnar-
flokki Islands, margendurteknar.
Hann ætlaði að halda aðal kjós-
Áhrif glæpamynda
Fyrir skömmu kom greinilega í
ljós, að nokkrir stálpaðir drengir
í Molde í Noregi höfðu verið ærið
námfúsir á glæpamyndir í æsi-
blöðum þeim, er þar flæða um láð
og lög, eins og hér og víðar. Höfðu
þeir nærri gengið af smádreng
dauðum, er að var komið. Fyrst
höfðu þeir reyrt hann svo fast við
stólpa, að honum lá við köfnun, og
siðan barið hann, svo að blóð rann
úr munni og nefi. Síðan skrifuðu
þeir nafn drengsins á stólpann úr
blóði hans og hengdu hann þar
næst á höndunum upp í tré. En þá
var komið að þeim, og drengnum
bjargað úr höndum þeirra.
Fyrirferðalitil en þörf stofnun í
þessu bæjarfélagi er Barnaheimil-
ið Pálmholt við Akureyri. Konur
í Kvenfélaginu Hlif stofnuðu
heimilið og sýndu með því fram-
úrskarandi dugnað og atorku, eins
og konum er oft lagið, þegar þær
bindast samtökum um menningar-
mál.
A mánudaginn átti stofnun
þessi 6 ára afmæli og er raunar
ekki komin á þann aldur ennþá, að
afmælisgreinar séu skráðar. En
vissulega er þó vert að minna á
starfið að Pálmholti og hlut þess
í bæjarfélaginu.
Kvenfélagið Hlif, undir forystu
frú Elinborgar Jónsdóttur, hóf
framkvæmdir 1948. Fésterkt var
það ekki, en eignaðist þó hús og
húsmuni og hóf starf 1950 og hef-
ur notið ofurlítils styrks frá bæn-
um árlega.
endafund sinn í Reykjavík og
fundarstaðurinn var Listamanna-
skálinn. Hann var þá ekki dauður
eftir allt saman.
Klukkan tíu minútur yfir 9 voru
áheyrendur taldir í Listamanna-
skálanum í miðri ræðu Bergs
Sigurbjörnssonar. Reyndust þeir
82 í sætum og nokkrir fram við
dyr, sem komu og fóru. Alls tekur
salurinn 700 manns. Er þetta fá-
mennasti, opinber kjósendafundur,
sem haldinn hefur verið í höfuð-
borginni um áratugi.
Eina von Þjóðvarnarflokksins
byggist á kjörfylgi í Reykjavík. —
Bókaútgefandi og nokkrir menn
aðrir í Reykjavík, er móðurskip
flokksins og eina athvarf, en hrað-
boðar fengust þó víða umlandmeð
milligöngu Sjálfstæðisflokksins.
Allt útlit er fyrir að móðurskip
Þjóðvarnarflokksins sé að síga í
sæ, en ekki er vitað hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar að kasta
björgunarbelti til áhafnarinnar, i
þakkarskyni fyrir hjálpina í kosn-
íngunum.
Pálmholt er alltaf fullskipað. —
Það tekur, eftir viðbótina í fyrra,
um 60 börn. Börnin eru flutt á
morgnana um kl. 9 og heim aftur
á kvöldin rétt fyrir kl. 6.
• Ekki er það neitt þegjandalegur
hópur, sem að garði ber á morgni
hverjum að Pálmholti, og mundi
sumum finnast nóg um, að
minnsta kosti þeim, er ekki vilja
sjá annarra manna börn og frá-
leitt skjóta skjólshúsi yfir hjón,
sem sú óhamingja hefur hent að
eignast erfingja, en það er önnur
saga.
Börnin byrja daginn með söng,
og þótt undarlegt sé, kallar söng-
urinn fram kyrrláta gleði í stað
ærsla.
Að Pálmholti er allt undir veðr-
inu komið. Úti við eru bátar og
bílar, rólur, sölt og sandkassar og
dagurinn er fljótur að líða við
leiki.
Heimleiðis halda börnin laust
fyrir klukkan 6 síðdegis og hafa þá
verið þvegin og greidd.
Forstöðukona heimilisins er frú
Þórný Þórarinsdóttir, og með
henni 3 fóstrur, og ráðskonan, frú
Sigurlaug Pétursdóttir, og hjálpar-
stúlka, annast að sínum hluta hin
vandasömu störf.
Mánaðargjald fyrir börnin er kr.
300,00, en heimilið starfar frá 1.
júní til 15. september.
Dval&estirnir eru 3ja til 5 ára og
kemur það æ betur í ljós, hve þýð-
ingarmikið það er mörgum efna-
litlum heimilum að geta komið
börnunum fyrir á daginn, meðal
annars veitir það húsmóðurinni
oft tækifæri til að vinna utan
heimilis og ennfremur að gera
húsmæðrum á barnbörgum heim-
ilum kleyft að annast heimilis-
störfin að öðru leyti.
Sjöunda starfsár Barnaheimilis-
ins Pálmholts er hafið. Aðsóknin
er mjög mikil og vitnar um góða
reynslu undanfarinna ára. Ungir
borgarar þessa bæjar munu vera í
góðri umsjá þessarar stofnunar og
sækja heilbrigði og hreysti lítið
eitt utan við ys og þys bæjarlífs-
Er móðurskipíð að sökkva?
Rarnaheimilið Pálmholt. Ungir sægarpar sækja á miðin.