Dagur - 17.04.1957, Side 1
Fylgist mcð því, sem gerist
bér í kringuni okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
A'GUR
DAGUR
kemur næst lií miðviku-
daginn 24. apríl.
XXXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 17. apríi 1957
17. tbl.
Sfjórnarfrumvarp
Skíðamóf íslands hefsf í
Fjölraenni í Hlíðarfjalli við Akureyri
Toni Spiess.
Skíðamót Islands hefst í Hlíð-
arfjalli við Akureyri í dag, í ná-
grenni hins nýja, hálfgerða skíða
hóíels. í»ar er búið að Ieggja
brautir og útbúa aðstöðu til
nauðsynlegra veitinga. Á annað
bundrað keppendur taka þátt í
mótinu. Meðal þeirra TONI
SPIESS, hinn austurriski skíða-
garpur. Skíðamcnn eru fjöl-
mennir í baenum og ferðafólk
streymir að hvaðanæva. Búizt
er við harðri kcppni og skemmíi-
legri. ðlótsstjóri er Herniann
Sigtryggsson og skrifstofa móts-
ins er í Hafnarstl'æti 89, sími
1360. Tilhögun mótsins cr birt
annars staðar í blaðinu í dag. —
Áætlunarferðir verða á mótsstað
og margs konar skemmtanir að
Hótel KEA hvert kvöld.
Ársfundur Mjóíkursamfags
haldinn í pr
Meðalverð mjólkur til bæoda kr. 2.Í
Ársfundur Mjólkursaml. KEA
var haldinn í gær og mættu 215
kjörnir fulltrúar af samlags-
svæðinu. Jónas Kristjánsson
samlagsstjóri lagði fram reikn-
inga og rekstursskýrslu fyrir-
tækisins. Bar skýrslan það með
sér, að á árinu tók samlagið á
móti rúml. 11,5 millj. lítra mjólk-
ur. Þar af voru 21% seld sem
ferskmjólk og 79% lóru í vinnslu
mjólkurvara.
Gullna hliðið
Fjörutíu ára afmælislcikrit
Leikfélags Akureyrar cr nú
fullæft og munu sýningar
hefjast annan páskadag. — Sú
sýning er eingöngu fyrir lcik-
félaga og gesti. — Þá er gert
ráð fyrir að opinber frumsýn-
ing verði n.k. þriðjudagskvöld.
23. apríl. — Höfundurinn Da-
víð Stefánsson mun flytja pro-
logus á frumsýningu.
Gcri aðrir betur
Sigurður á Fosshóli brá sér til
R.eykjavíkur sl. fimmtudag. Var
dag um kyrrt, og keypli þá 4 bíla.
Gisti 2 nætur og stjórnaði dansi,
bæði kvöldin. Kom með alla bíl-
ana á sunnudagskvöld.
Útborgað verð til bænda var
mánaðarlega 2 krónur til jafnað-
ar fyrir hvern innveginn líter.
Eftirstöðvar' á reikningunum
reyndust tæpar 11 milljónir kr.,
sem varið er til verðuppbótar
mjólkurinnar. Verður endanlegt
mjólkurverð til bænda kr. 2,94
lítrinn af meðalfeitri mjólk.
Rætt var á fundinum um
byggingu nýrrar mjólkurstöðvar
o. fL, sem nánar verður sagt frá í
næsta blaði.
ismalr byggingasjóS
ungs fólks, lagí fram á Alþingi nýlega
MilIjónamæringar gjaldi að sínurn Iiluta, byggingasjóður
verði stofnaður með 118 milljón kr. stofnfé og unga fólk-
ið á að spara 6% launa sinna gegn ríkislátii við giftingu
Þessi stjórnarfrumvörp voru lögð fram á
ingi síðastl. fimmtudag
Karlakór Akureyrar
Karlakór Akureyrar hélt söng-
skemmtun í Nýja-Bíó á Akureyri
sl. laugardag, undir stjórn Áskels
Jónssonar, en undirleik annaðist
Þyri Eydal. Einsöngvarar voru
þeir bræður Jóhann og Jósteinn
Konráðssynir, og Tryggvi Ge-
<»
orgsson.
Á söngskrá voru mörg lögin
etfir innlenda og norðlenzka höf
unda, svo sem Björgvin Guð
mundsson, Áskel Snorrason, Sig
urð Sigurjónsson, Jóhann Ó.
araldsson, Jakob Tryggvason.
Það er meiri þróttur og einnig
meiri mýkt í söng kórsins að
þessu sinni, en oftast áður. Var
honum ókaft fagnað.
Einsöngvararnir, Jósteinn Kon
ráðsson, sem hefur bjartan tenór,
og Tryggvi Georgsson, með mjög
viðfelldna rödd, fengu ágætar
undirtektir, og þriðji einsnögvar-
inn, Jóhann Konráðsson, sannaði
það er.n einu sinni, að han er
orðinn ein af fáum beztu tenór-
söngvurum landsins.
Hafi karlakórinn þökk fyrir
söng sinn.
„Brúðkaupsferðin44
Þau urðu úrslitin, að hjónin
Nína og Hilmar Hálfdánarson,
Akranesi, hlutu 1. verðlaun,
brúðkaupsferð til Mallorca. — 2.
verðlaun Kristín Jónsdóttir og
Helgi Sigvaldason, Rvík, og Odd-
ný Óskarsdóttir og Björn Þor-
kelsson, Akureyri, 3. verðlaun. 2.
og 3. verðl. hrærivél og ryksuga.
Unga fóikíð á að fryggja fram-
f íð sína með sparnaði
Sérstaka athygli ínun það vckja, að í hinni nýja stjórnaf-
frumvarpi um húsnæðismál, cr gert ráð íyrir að allt ungt fólk
ó aldrinum 16—25 ára skuli leggja 6% aí launum sínum í sér-
stakan sjóð, scm síðan láni til íbúðabygginga eða bústofnun-
ar í sveit. Undanþegið cr gift fólk, skólafólk og þeir scm hafa
skylduómaga á framíæri.
Við giftingu, cða 25 ára aldur, verður hið sparaað fé greitt
út, vísitölutryggt og gengur þá viðkomandi fyrir íbúðarlánum
hjá Húsnæðismálastjórn, og mcga þau vera 25% hærri en
önnur lón. Þannig á unga fólkið að búa sig undir eitt crfiðasta
vandamál hvers heimilis.
Er hér um að ræða ■ s<jórnar-
frumvarp um slóreignaskatt, og
verður tekjum af þessuni skatti
varið til þess að efla sjóði, sem
lána fé til íbúðarhúsabygginga í
kaupstöðum og sveitum. Tveir
þriðju lilutar af þessum skatti
fara til byggingarsjóðs ríkisins,
sem lýtur stjórn húsnæðismáia-
stjórnar og lánað verður úr fé til
íbúðarbygginga í kauptúnum og
kaupstöðum, en þriðjungur þess
scm inn kemur rennur til veð-
deildar Búnaðarbankans, sem
auk þess cr ætlað að fá hluta af
skyldusparnaði, sem lagt er til að
lögfcstur verði með annarri lög-
gjöf. Ennfremur fær veðdeild
Búnaðarbankans fimm milljón
króna lán á þessu ári til eflingar
lánastarfseminni.
Skattur þessi reiknast þannig,
að af einnar milljón króna
hreinni eign hjá hverjum ein-
staklingi greiðist enginn skattur.
Af 1—1,5 millj. kr. hreinni eign
greiðist 15% af því sem umfram
eina milljón og 20% af afgangi.
Af 3 millj. kr. eign og þar yfir
greiðist 375 þús. kr. af 3 millj. og
25% af afgangi.
MIÐAST VIÐ EIGNIR UM
SÍÐUSTU ARAMÓT.
Um skatt félaga gilda í þessu
nýja frumvarpi svipuð ákvæði og
um skattlagningu þá er gerð var
í sambandi við eignakönnunina.
Skattaálagningin er miðuð við
eignir um síðustu áramót. Fast-
eignir skulu metnar með því
verði sem ákveðið verður af
þeirri landsnefnd, sem vinnur að
samræmingu fasteignamatsins, en
þó skal endurskoða mat á ein-
stökum lóðum í kaupstöðum og
kauptúnum og annars staðar, þar
sem nefndin telur ástæðu til.
Frá matsverði frystihúsa, slát-
urhúsa og annarra húseigna, sem
notaðar eru fyrir vinnslustöðvar
afurða, skal draga tuttugu af
hundraði.
TEKJUR AF SKATTINUM
ÁÆTLAÐAR UM 80 MILLJ.
Við matsgerð fastcigna skaJ
bæta 200% ólagi. Þá gilda sér-
stök ákvæði wni niatsverð
sldpa og flugvcla. Samkvæmt
upplýsingum, scm birtar cru í
athugasemdum við frumvarp
ríkisstjórnarinnar uin húsnæð-
ismálastofniui, byggingasjóð
ríkisins, sparnað til íbúðabygg-
inga og fl., er áætlað að tckjur
af þessum stóreignaskatti verði
nær því Sð millj. króna.
ÞATTUR RÁDSTAFANA
í EFNAHAGSMÁLUNUM.
í athugasemdum, sem frum-
varpinu fylgja, segir meðal ann-
ars svo:
Frumvarp þetta um skatt á
stóreignir er einn þáttur þeirra
ráðstafana í efnahagsmálum, sem
ákveðnar voru fyrir síðustu ára-
mót, enda þá lýst yfir, að frum-
varp um þetta efni mundi verða
lagt fram innan skamms.
Á undanförnum árum hefur
verðlag hér á landi yfirleitt
hækkað mikið vegna vaxandi
verðbólgu. Af þessu hefur aftur
leitt bæði vaxandi ósamræmi í
eignaskiptingunni milli þegna
þjóðfélagsins og lítt viðráðanlega
erfiðleika við rekstur atvinnu-
vega landsmanna.
(Frarnhald ú S. siðu).
fíappdrætti Ferða-
raálaíélagsins
Nýtt happdrætti er fáum
gleðitíðindi. En Ferðamálafélagið
á Akureyri, sem er að byggja
stórmyndarlegt skíðahótel í
Hlíðarfjalli, er svo bjartsýnt að
efna til eins slíks. Vinningarnir
eru flugferðir innanlands og ut-
an og happdrættismiðarnir verða
seldir í bænum og víðar næstu
daga. Byggingin í Hlíðarfjalli
verður að komast upp. Kostnað-
urinn er nokkur, en skólar og
íþróttafélög bæjarins standa vel
saman og láta ckki sitt eftir
hggja.
Nú verður leitað til almennings
og ættu bæjarbúar að bregðast
vel við.
Dr. Sigurður Þórarinsson pró-
fessor hefur verið kjörinn félagi í
Konunglega, danska vísindafé-
laginu. Hefur fáum íslendingum
hlotnast sá heiður áður.