Dagur - 17.04.1957, Side 8
8
Miðvikudaginjrc 17. apríl 1957
Fyrsfi sfarfsfræðsIifÉprii
Æskulýðsheimili Templara gekkst fyrir honum
með aðstoð Ólafs Gunnarssonar, sálfræðings
Æskulý'ðsheimili templara
gekkst fyrir starfsfræðsludegi á
Akureyri síðastliðinn sunnudag
kl. 2—4 og var hann haldinn í
Bamaskólanum. Ólafur Gunn-
arsson, sálfræðingur, skipulagði
störf dagsins með aðstoð fulltrúa
úr stjórn æskulýðsheimilisins. —
Veittar voru upplýsingar í 62
starfsgreinum og önnuðust þær
42 menn úr viðkomandi greinum.
Ails komu 184 gestir. Mest var
spurt eftir ýmsum greinum há-
skólanáms, tæknilegum störfum
og sjávarútvegi. Um eftirfarandi.
starfsgreinar spurðu flestir:
Flugmál 60, síma 30, háskólanám
í heimspeki 30, sjávarútveg 28,
iðnskóla og iðnnámssamninga 26,
læknisfræði 35, vélaverkfræði 25,
loftskeytafræði 22, hagfræði og
viðskiptafræði 21, byggingaverk-
i'ræði 20, lögreglu 18, lögfræði 17,
blaðamennsku 15, bifreiðastjórn
14, útvarpsvirkjun 14, tannlækn-
ingar 14, arkitekt 10, kennslu-
störf 10, húsgagnasmíði 10, nátt-
Úrufræði 9, landbúnað 8, raf-
virkjun 8, múrun 7, hjúkrun 6,
tónlist 6. En færri spurðu um
aðrar síarfsgreinar. Miklu fleiri
piltar komu en stúlkur.
Segja má að þessi fyrsta til-
raun með starfsfræðsludag á Ak-
ureyri hafi heppnast mjög vel. —
Og eflaust stuðlar hún að því að
vekja unglingana til umhusgunar
um það, hvaða starf þeim hæfi
bezt. En það er undirstaða undir
hamingju í lífinu, að komast þar
á rétta hillu.
Um aðsóknina er það að segja,
að 153 gestir hér svara til að-
sóknar þeirrar, sem var á starfs-
fræðsludaginn í Reykjavík í vet-
ur. Varð hún því hlutfallslega
heldur meiri hér.
Blaðið náði sem snöggvast tali
af Ólafai Gunnarssyni, er hann
var að stíga upp í flugvél síðastl.
mánudag. Lét hann mjög vel yfir
komu sinni hingað ag áhuga fyrir
starfsfræðsludeginum. Fara hér á
eftir nokkur orð úr ávarpi sál-
fræðnigsins, fluttu hér á Akur-
eyri við þetta tækifæri:
„Okkur er öllum ljóst, að unga
fólkið, sem hingað kemur í dag
til þess að afla sér fræðslu,
stendur á merkum og erfiðum
tímamótum á þroskaskeiði sínu. í
huga þess er brennandi spurn-
ingin: vað vil eg verða, hvað á eg
að velja? Vitanlega er ekki öllu
ungu fólki jafnljóst, að vel má
'vera að með starfsvali sínu sé
unglingurinn að velja sér verk og
vinnuumhverfi fyrir næstu 40—
50 árin og þeir, sem hafa það
sjónarmið ríkt í huga vilja vitan-
lega vanda valið sem allra bezt.
Fyrir fáum áratugum var
starfsfræðslu sáralítil þörf hér á
landi. Starfsgreinarnar voru fáar
og tækifærin til þess að kynnast
þeim svo mörg og sjálfsögð, að
starfsfræðsla í nútímamerkingu
þess orðs, hefði verið að mestu
eða öllu leyti óþörf. Þegar við,
sem alin erum upp til sveita, gát-
um skriðið um baðstofugólfið og
síðar vappað um hlaðvarpann,
höfðum við þegar iðandi vinnulíf
heimilisins fyrir augunum, og
þeir sem aldir voru upp í litlum
sjávarþorpum þurftu heldur ekki
langt að fara til þess að kynnast
framleiðslustörfunum. í nútíma-
borg munu þess hins vegar mörg
dæmi, að börn sjái naumast föð-
ur sinn vinna, enda tala þau nú
um að pabbi fari í vinnuna. Hinn
upepldislegi mismunur þesi að
sjá pabba vinna og fá að vinna
með honum annars vegar, og
þess að veifa til hans í kveðju-
skyni um leið og hann leggur af
stað í vinnuna, er svo mikill, að
mikilla átaka er þörf til þess að
bæta síðastnefnda barninu upp
það sem það fer á mis^ið, ekki
aðeins hvað starfsfræðslu heldur
allt eðlilegt vinnuuppeldi snertir.
Við íslendingar verjum mjög
Ðagskrá SKIÐAMOTS ISLANDS 1957
Miðvikudagur 17. apríl:
Kl. 17.45 Mótið sett (Hermann Stefánsson).
— 18.00 Ganga 15 km., eldri og yngri.
Ganga 10 km., 15 og 16 ára.
Fimmludagur 18. apríl:
Kl. 14.00 Stórsvig.
— 15.00 Boðganga 4x10 km.
— 16.30 Flokkasvig.
Laugardagur 20. apríl:
Kl. 14.00 Brun karla.
— 15.00 Brun kvenná.
— 16.00 Stökk, norræn tvíkeppni.
Suimudagur 21. apríl:
Kl. 14.00 Svig karla, .
— 15.30 30 km. ganga.
— 16.00 Svig kvenna.
Mánudagur 22. apríl:
Kl. 16.00 Stökk, meistarakeppni, 20 ára og eldri.
17—19 ára og 15 ög 16 ára.
miklu fé til fræðslumála og sönn
um þannig, að við viljum mikið á
okkur leggja til þess að tryggja
farmtíð barnanna okkar sem
allra bezt. Hins vegar höfum við
til þessa gert alltof lítið að því að
kynna æskunni atvinnulífið á
skipulegan og hagnýtan hátt og
erum við í því efni eftirbátar
frændþjóðanna á Norðurlöndum
og margra annarra menningar-
þjóða.
Hver sá unglingur, sem lendir
á réttri hillu í lífinu, að því er
starfsval snertir, hefur um leið
lagt traustan hornstein að lífs-
hamingju sinni. Með starfi ykkar
í dag eigið þið vafalaust þátt í
því að tryggja lífshamingju ein-
hverra ungmenna. Með það sjón-
armið í huga, vil eg biðja ykkur
að gera svo vel og taka til
starfa.“
Skákmóti Ák. lokið
Skákmóti Akureyrar er nú
lokið, og fóru leikar þannig í
meistaraflokki, að efstur varð
Kristinn Jónsson og þar með
skákmeistari Akureyrar í ár. —
Hlaut hann 7 vinninga. Annar
varð Júlíus Bogason með 6M;
vinning og hinn þriðji Ingimar
Jónsson með 6 vinninga.
Ráðgert að koma upp sptngar-
svæði fyrir landbúnaðarsýningu
Búnaðarþing leggur áherzlu á, að glík sýning
verði haldin eigi síðar en árið 1960
í lok búnaðarþings var sam-
þykkt ályktun varðandi næstu
landbúnaðarsýningu, og má gera
ráð fyrir, að hún verði haldin í
Reykjavík 1960. í ráði er að
koma upp fullkomnu og skipu-
lögðu sýningarsvæði í Reykjavík
og mun Búnaðarfélag Islands
beita sér fyrir því ásamt fleiri
aðilum. Ályktun búnaðarþings
var svohljóðandi:
„Búnaðarþing telur eðlilegt og
nauðsynulegt að landbúnaðurinn
tryggi sér framtíðaraðstöðu til
sýningahalds og leggur til, að
stjórn B. í. gerist aðili að sam-
komulagi, sem fyrirhugað er að
gera til að byggja sýningarsvæði
í Reykjavík, enda verði eftirfar-
andi skilyrðum fullnægt:
1. Að sýningarsvæðið verði
talið nægjanlega rúmt til land-
búnaðarsýningarhalds og að B. í.
hafi íhlutun um skipulag svæðis-
ins vegna sérþarfa sinna.
2. Að kostnaðaráætlun við
stofnun þessa sýningarsvæðis
verði lögð fram.
3. Að stjórn B. í. sjái sér fært
að legg'ja fram það fjármagn, sem
áskilið verður.
Búnaðarþing leggur áherzlu á,
að almenn landbúnaðarsýning
verði haldin í Reykjavík eigi síð-
ar en árið 1960.
Verði ekki hægt að halda sýn-
ingu á áðurnefndu svæði, felur
þingið stjórn B. í. að vinna að
nauðsynlegum undirbúningi á
öðrum stað.“
Landsmót í bridge á Ak-
Um páskana verður haldið
hér landsmót í Bridge. Mótið
hefst í kvöld kl. 8 í Lóni.
Þátttakendur í mótinu verða
4 sveitir frá Reykjavík, 1 frá
Húsavík, 1 frá Siglufirði og
tvær frá Akureyri.
Bridgefélag Akureyrar sér um
mótið, en keppnisstjórar verða
þeir Halldór Ásgeirsson og Árni
Sigurðsson.
Aðgangur verður seldur að
mótinu og kostar kort yfir allan
tímann kr. 40.00, en fyrir hvern
einstakan leik kr. 10.00.
- Stjórnarfrumvðrp um
(Framhald af 1. síðu.)
Helztu atriði frumvarpsins eru
sem hér segir:
1) Sett verði á stofn HÚSNÆÐ-
ISMÁLASTOFNUN RÍKIS-
INS, er beiíi sér fyrir umbót-
um í byggingamálum, stjórni
byggingasjóði ríkisins og hafi
yfirumsjón lónsfjáröflunar og
lánveitinga til íbúðabygginga.
2) Stofnaður verði BYGGINGA-
SJÓÐUR RÍKISINS og hon-
um t ryggt 118,2 milljóna
stofnfé. Er gert ráð fyrir, að
hann hafi á næstu árum um
40 milljónir á óri til útlána.
3) Tekinn verði upp ÍBÚÐA-
SPARNAÐUR ungs fólks, 16
—25 ára, og s-kal það leggja
6% af launum sínum til hlið-
ar — vísitölutryggt. — Viíj
giftingu eða 25 ára aldur fæst
féð útborgað, og viðkomandi
gengur fyrir lánum til íbúðar
byggingar, allt að 25% hærri
en aímennt gerist.
Þetta eru þrjú höfuðatriði þess
nýja skipulags íbúðarbygginga,
sem ríkisstjórnin befur undirbúið
síðustu vikur og nú liggur fyrir
Alþingi. Hefur þetta kerfi þann
höfuðkost, að tryggt er langt
fram í tímann lánsfé til bygginga,
en ekki byggt á aðstæðum eða
duttlungum bankanna, eins og
það veðlánakerfi, er fyrrverandi
stjórn kom á fót og strandaði
gersámlega á síðastliðnu ári.
Samhliða þessu frumvarpi,
sem miðað er við næstu ár og
framtíðina, haía verið gerðar
ráðstafanir til að útvega fé til
lána þeim 3000 húsbyggjend-
um, sem enn hafa engin eða
mjög lítil lán fengið. Segir í
greinargerð frumvarpsins, að
ríkisstjórnin muni sjá um, að
húsnæðismálastjórn fái til út-
hlutunar á þessu ári, auk bygg
ingasjóðs, eigi minna en 44
milijónir króna. Auk þess
renna í ár 12 milljónir til
verkamannabústaða( 2 millj. í
fyrra).
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN.
Samkvæmt fyrirmyndum, sem
gefizt hafa mjög vel á hinum
Norðurlöndunum, verður yfir-
stjórn íbúðabyggingamála sett í
hendur einni stofnun, húsnæðis-
málastofnun ríkisins. — Henni
stjórna 5 menn, 3 kosnir af AI-
þingi, einn tilnefndur af Lands-
bankanum og einn af félagsmóla-
ráðherra. Hún á að fylgjast með
byggingaþörf og byggingakostn-
aði, halda uppi víðtæku tilrauna-
og leiðbeiningastarfi og stuðla á
fjölmargan hátt að heilbrigðari
byggingaháttum. Hún má einnig
beita sér fyrir byggingu heilla
íbúðarhúsahverfa.
BYGGINGASJÓÐUR
RÍKISINS.
Allt þetta kerfi byggist að
sjálfsögðu á fjáröflun og er bygg-
ingasjóður ríkisins settur á fót til
að tryggja það.
Stofnfé hans er sem hér segir:
Millj.
1. Varasjóður hins almenna
veðlánakerfis ......... 20,9
2. Lón ríkisins til Lánadeild-
ar smáíbúða ........... 32,8
3. A-flokksbr. ríkisins keypt
fyrir tekjuafgang ríkisins
1955 ................. 11,3
4. 2/s hlutar af væntanlegum
stóreignaskatti ......... 53,2
Samtals milljón kr.: 118,2
Árlegar tekjur sjóðsins 1958
ættu að nema 23 millj., en auk
þess er í frumvarpinu gert ráð
fyrir 7—8 milljóna tekjuöflun ár-
lega og um 15 milljón króna
sparnaði unga fólksins. Saman-
lagt má gera róð fyrir, að eigin
fé sjóðsins til útlána verði á
næstu árum um 40 millj. árlega.
Eign sjóðsins í árslok 1966 er
áætluð um 300 millj. kr.
ÍBÚÐASPARNAÐUR.
Það er athyglisverð nýjung,
sem frumvarpið felur í sér, að 16
25 ára fólk verður skyldað til
íbúðasparnaðar, 6% af launum
sinum. Eru þó undanþágur fyrir
giít fólk, skólafólk og hægt að fá
undanþágur fyrir fleiri, ef að-
stæður krefjast. Þessi sparnaður
verður framkvæmdur með spari-
tekjum eins og orlofsfé, og verð-
ur skatta- og útsvarsfrjáls, svo
og vísitölutryggður.
Fjölmörg önnur ákvæði eru í
hinu nýja frumvarpi, um útrým-
ingu heilsupspillandi íbúða,
breytingu á verkamannabústaða-
lögunum o. f 1., enda er þetta
mikill lagabálkur.