Dagur - 30.10.1957, Blaðsíða 1

Dagur - 30.10.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist hér í kringum okkur. Knupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út laugar- daginn 2. nóvember. XXXX. árg. Akureyri, miðvikudaginn 30. október 1957 50. tbl. Framkvæmdastjóri Fórshamars h.f., Jóhann Kristinsson (t. v.), og verksíæðisstj., Ma.gnús Jónsson, viö nokkur ný tæki stöðvarinnar. (Ljosmynd: E. D.). Svohljóðandi fréttatilkynning frá Útgeroarfélagi Akureyringn h.f. barst blaðinu. nýlega: „Tilkynr.i yður hér með að nefnd sú, er síðasti aðalfundur Útgei’Sarfélags Akureyringa h.f. fól stjórn félagsins að koma á laggirnar til endurskoðunar á rekstri féJagsins, hefur nú verið fullráðin og skipa hana þeir: Halldór Jónsson, framkvæmda- stjóri, Reykjavík. Baldvin Þ. Kristjánsson, Kirkjusandi. Ti-yggvi Helgason, Akureyri. Ásíuinflúenzan komin Asíuinílúenzan er komin til bæjarins og liggja nokkrir menn. Héx’aðslæknir ráðleggur fólki að fara strax í rúmið er það finnur til lasleika og liggja a. m. k. 2 daga hitalaust á eftir. Ennfremur að forðast almennt vökur, vosbúð og mikla áreynslu. Ekki er þess getið, hvenær nefndin tekur til starfa, en von- andi verður það fljótlega. — Verður þes.s beðið með óþreyju að nefnd þessi ljúki störfum, og þó fyrst og fremst að hún finni þær leiðir, sem geri Ú. A. fært að haga rekstri sínum á hagfelldari hátt en verið hefur hin síðari ár- in, séu þær leiðir til. Ný smurstöð Þórshamars h.f. opnuð iðinn laugardag Tunnusmiði hefst í nóvember Undanfarið hefur síldartunn- um frá Tunnuverksmiðjunni á Akureyri verið ekið til Dalvíkur, til geymslu þar. Um 28 þúsund tunnur munu hafa verið eftir af fyrra árs framleiðslu og verða 10 —12 þús. þar af fluttai' til Dal- víkur til rýmingai'. Komið er til bæjarins verulegt magn af efni í tunnur. Tunnuverksmiðjan tekur til starfa í næsta mánuði. Fuílkomiiust sinnar tegundar á landinu H.f. Þórshamri hefur lengi verið það ljóst, að þau tæki, sem til hafa verið hér á Akureyri, til þess að smyrja með bifreiðar eru úi'elt og langt á eftir tíman- um. Á seinni árum hafa bifreiðar hérlendis stækkað og þyngst, svo að smurlyftur þær, sem til hafa verið, hafa eigi haft þann kraft, sem nægilegur er til að lyfta vögnunum, svo að nokkurt ör- ,yggi sé fyrir hendi, enda hús þau, Frægur íþróttamaður á ferð Hingað til bæjarins kom á fimmtudaginn amerísæur kenn- ari og heimskunnur körfuknatt- leiksmaður, Norlander. að nafni. Er hann hér á landi á vegum ÍSÍ. ÍBA fékk hann hingað til að leiðbeina í körfuknattleik, en hann ryður sér nú mjög til rúms víða um heim. Hér hefur hann leiðbeint á æf- ingum og sýnt kvikmyndir, og þykir koma hans hin bezta. komnustu gerð. Flest öll eru þau keypt frá Gilbert & Barker, og lítið eitt frá 3 öðrum bandarísk- um fyrirtækjum. Austast í vinnusalnum er fólksbílalyfta, sem lyft getur 3,5 tonnum, næst er vörubílalyfta, sem lyft getur 8 tonnum, og er það stærsta gerð af lyftum, sem framleiddar eru, fyrir stærstu bílana. Þannig er hægt að smyrja 3 bíla sam- tímis, og 4 ef um litla bíla er að ræða, því að taka má 2 í gryfj- una í einu. í geymslu uppi á lofti eru smurningsolíutnnurnar, í hverri tunnu er komið fyrir dælu, sem dælir viðkomandi smurolíutegund út í gegnum pípur í svokölluð rílasett, sem komið er fyrir við hverja lyftu og í gryfjunni. í endanum á hverri slöngu í þessum rílasettum er mælir sem sýnir hve mikið magn fer á bílinn hverju sinni um leið og tekið er í handfang. Þeir smyrja bílana og rnunu eflaust íá nóg að gera. (Ljósm.: E. D.). Bændaklúbburinn Fyrsti fundur mánudaginn 4. nóvember kl. 9 e. h. að Hótel KEA. — Sagðar verða fréttir af síðasta fundi Stéttarsain- bands bænda. Framsögutnað- ur: Garðar Halldórsson. 'er notuð hafa verið fyrir smur- stöðvar hér, heldur eigi nægilega rúmgóð. Af þessum ástæðum réðist Þórshamar h.f. í að reisa fu.ll- komna smurstöð, sem nú hefur verið opnuð til notkunar fyi'ir almenning. Er hún sunnan við bifreiðaverkstæðið Þórshamar. Nokkrir gestir við opnun hinnar nýju smurstöðvar. Innsett mynd af ur loftprcssurnat' í gang og opnar stöðina. — (Ljósmynd: E. D.). — Hús þetta er 342 ferm. að flat- armáli. Aðalvinnusaiur er 230 ferm., afgreiðslusalui' 48 ferm., 64 ferm. fara í geymslur fyrir smurningsolíur, hitunarherbergi, kaffistofu og snyrtiherbergi fyrir starfsmenn og snyrtiherbergi fyrir viðskiptamenn. . Húsið er byggt úr járnbentri steinsteypu og einangrað með 2” koi’ki. Neðsti hluti veggja í vinnusal er lagðui' plastdúk, svo og neðsti hluti af súi'um. Gólf í vinnusal er lagt terrasó. Húsið er byggt í 4 deildum, þó að ekki séu skilrúm í milli. Þx'jár þær austustu verða notaðar til að smyrja í, en sú vestasta fyx’ir bóningu og þess háttar. Húsið er hitað upp með Gil- Ingimundi Árnasyni, er hann set- barcolofthitunarkatli. Öll áhöld og tæki eru af nýjustu og full- Til algerði’ai’ nýjungar má telja áðurnefnd „rílasett“, sem komið er fyrir við lyftui'nar og í gryfj- unni. Smurningsolíunni er dælt úr tunnunum, sem standa í sér- stöku herbei'gi í ca. 2V2 m. hæð, með þar til gerðum loftdrifnum dælum, út í „i’ílasettin“, en úr „rílunum“ ganga slöngur með áföstum rennslismælum, sem mæla nákvæmlega olíuna á bíl— ana. Við notkun þessax'a tækja er mikill flýtis- og þrifnaðarauki frá því, sem áður var. Þá er það til nýlundu, að komið er fyrir ljósum í gólfið, sem lýsa upp undir bílana með- an þeii' eru smurðir. Þá er fyrirhugað að koma upp (Framhald á 8. síðu.) Sovétlistamennirnir koma til Akureyrar Listamannasendinefnd sú, sem nú dvelzt hér á landi á vegum MÍR, mun koma hingað til Ak- ureyrar n.k. föstudag og halda hér hljómleika þá um kvöldið. Listdansarai’nir koma þó ekki, þar eð hér vantar öll skilyrði til þess að sýna listdans. Listafólk þetta er frá Sévsénko óperunni í Kiev og er forstjóri hennar fararstjóri nefndarinnar. Listafólkið hefur þegar komið oft fi-am í Reykjavík og víðar sunnanlands, fengið húsfylli og hinar ágætustu viðtökur. Koma þeirra hingað verður mikill við- burður í listalífi bæjarins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.