Dagur - 17.09.1958, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 17. sept. 1958
DAGUR
7
- Brezk blöð cg landhelgismálin
(Framhald a£ 5. síðu.)
Hvers vegna ætti ísland að hafa
þess þörf að ræða enn á ný hinar
alkunnu staðreyndir um sögu-
legan rétt sinn og brýna nauð-
syn á stækkaðri landhelgi? . . . .“
,,.... Eg sendi yður einnig til
athugunar og fróðleiks stutta
skrá yfir sögulega landhelgi ís-
lends í full þúsund ár, sam-
kvæmt íslenzkum lögum, og eru
sum þeirra allmiklu eldri en hin
merka og fræga lögbók Breta
Magna Charta frá 12. júní 1215.“
Nefni eg síðan og lýsi í stuttu
máli Úlfljótslögum, Grágás o.
fl. Þar næst tók eg saman „land-
helgis-annál“ þann, sem Alþýðu-
blaðið birti 31. ágúst sl. með
smábreytingum og viðaukum, frá
söguöld til vorra daga.
„. . . . Síðan hélzt þessi forna
landhelgi fram til 1901, er Bretar
töldu Dani til að gera málamiðl-
unarsamninga um landhelgi ís-
lands með 3 sjómílna takmörkun,
en gegn andmælum fslendinga,
sem þá þegar höfðu kynnzt
miskunnarlausum togveiðum
Breta á fjörðum inni og hvar-
vetna með landi fram, þrátt fyrir
hina fornu, aldagömlu landhelgi.
— Þessa dansk brezku landhelgi
hafa íslendingar aldrei viður-
kennt, þótt hún stæði að nafninu
til fram til 1951....“ Er síðan
„Annállinn" rakinn á enda fram
til þessa dags. —
„ ■ • . . Eg vona að þessi fáu,
sögulegu atriði geti ef til vill
sannfært yður og aðra sann-
gjarna Breta um það, að hingað
til hafi íslendingar smám saman
fært sig upp á skaftið, og enn
aðeins krafizt hluta a£ sinni
aldagömlu, sögulegu land-
helgi. ... “
„Hvernig er þá viðhorf máls-
ins í dag? — Með beitingu her-
skipa í lögboðinni landhelgi ís-
lands hefur ríkisstjórn Breta
sennilega lokað að fullu og öllu
vinsamlegum samskiptum þess-
ara tveggja þjóða... . Eg harma
hennar tiltektir ríkisstjórnar
Breta og tel, að hér hafi hún
stigið hraparlegt og örlaga-
þrungið glappaspor og ósæmi-
legt. . . .“
Samninga'-málefni nefnist síð-
pi'i greinin, sem er aðeins smá-
prein, en virðist þó vera rit-
stjórnargrein. Sneri eg því máli
mínu aðallega til ritstj. blaðsins
og sendi honum enda bréf mitt.
Skýrði eg honum í stuttu máli
fra hlutlausri afstöðu minni, þar
sem eg sjálfur ætti hvorki neina
batsskel né nein ítök í fiskiveið-
um og fiskiðnaði o. s. frv. Og á
hinn bóginn hefði eg lengi liaft
einlægan áhuga á vinsamlegum
og menningarlegum tengslum
þjóða vorra. — Sagði eg honum
síðan m. a. frá persónulegum
kynnum mínum af togveiðum
Breta hér við land frá fyrstu ár
um þeirra hérlendis......
Á bernskuárum mínum
síðasta áratug fyrri aldar höfðu
brezkir togarar hafið veiðar sín-
ar við íslandsstrendur, þar sem
þá var enn 16 mílna landhelgi
eftir nær þriggja alda löghelgi.
Þrátt fyrir þáð hófu Bretar veið-
ar sínar frá öfugum enda allra
réttinda og „ruled the waves“ frá
innstu fjarðarbotnum vorum og
út á haf með þverrandi veiðinni.
Fjörðurinn minn (Loðm.fj.) er
með minnstu fjörðum á Austur-
landi, grunnur og gróðurríkur
og var um þær mundir ætíð full-
ur af fiski, svo að við strákar og
unglingar hlóðum og stundum
tvíhlóðum bát okkar á handfæri
af þorski, ýsu, ufsa, og stundum
cinnig lúðu og skötu. . . .“
„Hér urðu skjót umskipti: Eft
ir að brezkir togarar höfðu skafið
fjarðarbotninn niður í bera möl-
ina í 2—3 vikur, var aldeyðan
ein eftir, og engu kvikindi þar
lífvænlegt um langan aldur! —
Sömu sögu er að segja um flesta
firði íslands. Hér var um þær
mundir, og fram að þeim tíma, er
íslendingar tóku sjálfir við land-
helgisgæzlu, aðeins eitt fremur
vanbúið' danskt eftirlitsskip með
fiskveiðum umhverfis allt ís-
land. . . . “
„Á þennan hátt hafa togara-
eigendur í Hull og Grimsby öðl-
ast þau „réttindi" og „hefð-
bundna friðhelgi“ á úthafinu við
strendur íslands, sem þeir nú
krefjast langt inn fyrir mitt
Grímseyjarsund, og brezka ríkis-
stjórnin hefur nú staðfest með
vopnavaldi! — Þetta er sárbitur
sannleikui’, sem segjast verður
umbúðalaust. ... “
Þetta er hrafl úr bréfi mínu til
ritstjórnar Daily Telegraph. Og
þótt ekkert af þessu komist á al-
mennt framfæri, tel eg þó nokk-
urs virði, að ritstjórn jafn merks
blaðs sé það kunnugt, sem hér
hefur vérið drepið á.
- Réttarreglur á liafinu
(Framhald af 1. síðu.)
og er því þýðingarlaust að vísa
málinu til frekari sérfræðinga-
ráðstefnu. Við höfum talið og
teljum, að þingi Sameinuðu þjóð
anna beri að komast að niður-
stöðu varðandi þau atriði, sem
Genfarráðstefnan gat ekki kom-
ið sér saman um. Það mun því
verða tillaga íslands, að þing
Sameinuðu þjóðanna, sem nú er
að hefjast, vísi málinu ekki til
sérstakrar ráðstefnu, heldur af-
greiði það sjálft.
Þessi skoðun íslenzku ríkis-
stjórnarinnar var sett fram á
i-áðherrafundinum íKaupmanna-
höfn. Hins vegar var málið ekki
i-ætt efnislega á þeim fundi.
(Frá utanríkisráðuneytinu.)
- FOKDREIFAR
(Framhald af 4. síðu.)
var og.þai’^af margt folaldsmera.
Folöldin gengu hart að mæðrum
sínum. yirtist honum hagar þar
nærri, rótnagaðir og þörf á að
koma hrossum þessum á gras-
lendi. Er ábendingum þessum
hér með komið á framfæri við
eigendur hrossa á þessum slóð
um.
Síutt er til rétta og munu
hrossin þá komast í góða haga.
En sagan um hrossahópinn við
Valagilsá hefur endurtekið sig ár
cftir ár til tjóns fyrir hrossaeig-
endur og álitshnekkis í augum
þeirra, sem um veginn fara.
- Verðliækkanir
(Framhald af 8. síðu.)
tegundum sem hér segir: Nýr
þorskur, slægður með haus,
kostar kr. 3.15 kílóið og slægður
en hausaður kr. 3.80 pr kg. Verð-
hækkunin er 10—30%.
Ný ýsa, slægð með haus, mun
kosta kr. 3.60, en afhausuð kr.
4.30 kílóið. Fram til 15. október
n.k. er þó leyfilegt að selja nýja
bátaýsu hærra verði vegna erf-
iðleika á_ öflun, og nemur við-
bótarhækkunin kr. 0.50 á slægðri
ýsu með baus, en 0.60 á hausaðri.
Ekki er leyfilegt að selja fiskinn
dýrara pr. kg., enda þótt hann sé
skorinn í stykki.
Nýr fiskur (þorskur og ýsa),
flakaður, án þunnilda, kostar kr.
8.50 kílóið. Stórlúða kostar kr. 14
kílóið; sé hún beinlaus kr. 16.00
pr. kíló. Smálúða, heil, kostar kr.
9.00 kílóið, en sundurskorin kr.
11.00.
Smásöluverð á saltfiski verður
kr. 9.00 pró kíló, og er þá miðað
við 1. fiokks, fullþurrkaðan fisk,
að frádreginni niðurgreiðslu rík-
issjóðs. Verðið helzt óbreytt,
enda þótt saltfiskurinn sé af-
vatnaður ogsundurskorinn.Fisk-
fars kostar kr. 12.00 kílóið.
Þá var auglýst nokkur verð-
hækkun á brauðum, en hún er
þó nokkru minni en á þeim vör-
tegundum, sem hér hafa verið
taldar.
Landhelgismálið
(Framhald af 1. síðu.)
Laganefnd Sameinuðu þjóð-
anna taldi, að 12 mílna land
helgin bryti ekki í bága við
alþjóðalög.
Fiskimálaráðherra Breta lofar
mjög stillingu og þolinmæði
brezkra togarasjómanna við ís-
land!!
12 landhelgisbrjótar að veið-
um.
13. september. Brezka herskip-
ið Eastbourne kom í nótt upp
undir Keflavík og skilaði íslend
ingunum 9, sem voru þar fangar
frá 2. sept. Voru þeir settir í
léttibát cg skipað að róa til lands
íslendingar höfðu krafizt að þeir
yrðu settir um borð í Northern
Foam, þar sem þeir voru teknir
með valdi við skyldustörf. Her-
skipið fór langt inn fyrir 3ja
mílna landhelgisa. Ríkisstjói’n
íslands hefur harðlega mótmælt
því að herskipið fór inn í land-
helgina og braut þar með alþjóða
reglur.
Landhelgismálin ennþá hélzta
umræðuefni blaða og fréttastofn
ana.
' 14. september. 15 brezkir tog
arar í landhelgi. Bretar hafa
brotið allar brýr að baki sér með
fyi’ii’greiðslu og landvar í vetur
Brátt má búast við vályndum
veði’um á norðui’slóðum, ef að
vanda lætur og munu þá hinir
erlendu togarar vilja leyta land
vai’S og ennfremur þurfa þeir
margháttaðra aðgerða við. Land
helgisbrjótar verða teknir innan
12 mílna fiskveiðitakmarkanna
þótt seinna vei’ði, og sóttir til
saka. En að sjálfsögðu er þeim
gi’eið leið til lands með sjúka
I. O. O. F. — 140919814 — I.
Kirkjan. Messað á Akureyri kl.
e. h. á sunnudaginn kemur. —
Sálmar: 68 — 351 — 113 — 447
— 584. — P. S.
Kirkjan. Messað í skólahúsinu,
Glei’ái’þorpi, næstk. sunnud. kl. 2
h. Sálmar: 26 — 226 — 117 —
114. — K. R.
Hjálpræðisherinn. — Deildar-
stjórinn, major og frú Nilsen,
halda sínar fyi-stu samkomur á
Akui’eyri dagana 20. og 21. sept-
ember. Laugardaginn kl. 20.30:
Hátíðasamkoma, kaffi, happ-
drætti og mikill söngur og hljóð-
fæi’asláttur. — Sunnudaginn kl.
10.30 f.h.: Helgunai’samkoma. Kl.
16: Ungbarnavígsla. Kl. 20.30:
Hjálpræðissamkoma. — Útisam-
ur verða bæði kvöldin, ef veður
leyfir. — Kapt. Guðfinna Jó-
hannesdóttir aðstoðar á öllum
xessum samkomum. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Stúkurnar á Akureyri halda
sameiginlegan fund fimmtudag-
inn 18. þ. m. kl. 8.30 e. h. í kirkju
kapellunni. Vígsla nýliða. Æðsti-
templar.
Gefið til kynna með stefnu-
Ijósum, ef þér ætlið að beygja
út af aðalvegi.
Gangandi fólk sé hægra megin
á vegum.
Herbergi vantar
fyrir tvo Menntaskólanem
endur, sameiginlega.
Uppl. i síma 1363.
Frá UMSE. — Félagar! Munið
sundmótið að Laugalandi á Þela-
möi’k sunnud. 21. sept., sem hefst
kl. 2 e. h.
Strandarkirkja. L., Dalvík, kr.
15.00. — Áheit frá konu kr. 25.00.
— Áheit frá H. S. kr. 100.00. —
Áheit frá G. G. kr. 100.00. —
Áheit frá ónefndum kr. 30.00. —
Áheit frá M. G. kr. 25.00. —
Áheit frá X. kr. 50.00. — Gamalt
áheit fi’á N. N. kr. 50.00. — Gam-
alt áheit frá G. B. kr. 50.00. —
J. H., áheit, kr. 100.00.
Munið að víkja strax til hliðar
eða neniið staðar, ef brunabíll
eða sjúkrabíll' eru á ferðinni.
Á Akureyri hafa bifreiðastjór-
ar fulla þörf á þessum áminn-
ingu.
Friðbjörn Olgeirsson bóndi að
Gautsstöðum II á Svalbarðsstr.
varð sextugur 13. þ. m.
ída Þórarinsdóttir, Gautsstöð-
um I á Svalbarðsströnd, varð
fimmtug 7. þ. m.
Sundmót
(Framhald af 8. síðu.)
50 m. baksund karla.
1. Eii’íkur Ingvarsson KA
2. Björn Þói’isson Þór
3. Einar V. Kristjánsson L.
36.8
37.4
37.8
4x50 m. boðsund karla.
1. Leiftlr 2.07.2.
2. KA, A-fl. 2.09.4 — Ak.met (j.).
3. KA, B-fl. 2.24.4.
4. Þór 2.33.3.
ASSIS
appelsínusafi
í flöskum.
Súkkat
Rúsínur
veskjur
NYKOMIÐ:
TÉKKNESK
BARNASTÍGVÉL
(reimuð)
hvít og brún.
BARNABOMSUR
Nr. 23—34.
GÚMMÍSTÍGVÉL
barna og unglinga.
ATH. Enn lucgt,að /d skó
mcð gamla verðinu.
Hvannbergsbræður
Harðf iskur
°g
Riklingu
í pökkum.
MATVÖRUBUÐIR
Stúlkur eða unglingar
óskast til kartöfluupptöku
að Skarði í haust.
Hringið i
síma 1291.
Bíll til sölu
Móskwitch 1957 er til sölu.
Uppl. i sima 1533.
Bíll til sölu
6 manna bíll
til sölu. —
greiðsluskilmálar.
i 2
óðu
lagi
Hagkvæmir
Uppl. i Hafnarstrœli 9.
Grænn páfagaukur
FUNDIN N.
Uppl. i sima 1421,
eftir hádegi.
MATVÖRUBUÐIR
Nýkomið!
APASKINN
Kr. 35.00 metr.
RENNILASAR
opnir og lokaðir.
MOLSKINN SBUXUR
á drengi.
Allar stærðir.
Klæðaverzlun
Sig. Guðmundssonar h.f.
TIL SÖLU:
Svefnsófi og armstólar,
borð, karlm.reiðhjól o. fl.
í Ránargölu 26 (uppi).