Dagur - 06.12.1958, Qupperneq 8
8
Baguk
Laugardaginn 6. desember 1958
Ymis tíðindi úr nágrannabyggðum
Haganesvík 2. des.
Slátrun hjá Samvinnufélagi
Fljótamanna hófst 24. september
og lauk 17. október. Alls var
slátrað 6100 kindum, en 4762 í
fyrrahaust. Meðalþungi dilka
var 13,75 kg., en var 14,32 kg. ár-
ið áður. Þetta er mesta sauðfjár-
slátrun, sem hér hefur nokkurn
tíma verið. Ber tvennt til:
Bændur áttu fleira fé en áður og
urðu ennfremur að fækka á fóðr-
um vegna harðinda í vor, svo að
fyrningar gengu allar til þurrðar,
og einnig vegna ótíðarinnar. í
sumar og þar af leiðandi lítilla
heyja í haust.
í Fljótum er einmuna tíðeinsog
annars staðar á Norðurlandi. Féð
gengur úti og er ekki hýst nema
stöku nótt.
Sáralítið hefur verið róið, en
fiskur hefur verið töluverður
þegar á sjó er farið.
1 haust var lokið við byggingu
hraðfrystihússins, sem verið hef-
ur í byggingu undanfarið og tek-
ið vai' til notkunar í fyrra, að
nokkru leyti. Mcstallt kjötið var
fryst og er geymt í þessu húsi.
Skurðgrafa á vegum Landnáms
ríkisins hefur unnið í Holts-
hreppi síðan um mitt sumar og
fram á haust. En hún hafði ekki
unnið nema hluta þess verkefnis,
sem fyrii' lá.
Bjargráðasjóður lánar bændum
í Flj ótahreppum 400 þús. krónur
vegna harðindanna í vor og sum-
ar. Er það stórmikil aðstoð og
nauðsynleg eins og á stóð á þess-
um harðbýla stað.
Stutt viðtal við Jón Sisurðsson í Yzta-Felli
Jón Sigurðsson í Yztafelli var
hér nýlega á ferð' og greip blaðið
tækifærið og ræddi við hann um
stund. Lagði það fyrir hann
nokkrar spurningar, sem hann
svaraði góðfúslega á eftirfarandi
hátt:
Hverja félagsmálahreyfingu tel-
ur þú merkasta um þessar
mundir?
Spurningin er of víðfeðm til að
hægt sé að gera henni skil í ör-
stuttu máli, segii' Jón, og tek eg
því þann kostinn, að miða við
mitt hérað eða sýslu. Hjá okkur
tel eg félagsheimilamálið einna
merkast. í því eru þrjár stefnur
uppi. Hin fyrsta sú, að hver sveit
byggi fyrii' sig félagsheimili eftir
efnum og ástæðum. Onnur er sú,
að t. d. Ljósavatns-, Háls- og
Bárðdælahreppar byggi félags-
heimili saman, helzt á heitum
stað, svo sem að Stóru-Tjörnum,
en Aðaldæla-, Reyklæla- og
Reykjahreppar yrðu svo saman
um annað félagsheimili nálægt
Stöðunum. Þriðja stefnan er sú,
að allt héraðið milli Vaðlaheiðar
og Reykjaheiðar byggi verulega
stórt og vandað héraðsheimili til
félags- og menningarnota, en
hvert hreppsfélag hefði þá lítið
funda- og samkomuhús fyrir
sig. Þessi þriðja stefna var vakin
á fundi Bændafélagsins í haust
og borin fram^af Þrándi Indriða-
syni á Aðalbóli. Á þessum bænda
fundi virtist þessi tillaga hafa
mjög mikið fylgi og var nefnd
kosin til undirbúnings í málinu.
Nú íeika um ykkur haustvind-
ar og bæta afkomuna?
Já, rétt er það, sggir hinn aldni
bóndi hýr á svip, og ég heldþetta
séu þeir jafnhlýjustu haustmán-
uðir, sept., okt., og nóv., sem eg
man eftir. Heyfengur varð í
minna lagi í sumar og þó munar
meira á því, miðað við það, sem
oft er, að heyfirningar urðu eng-
ar teljandi í vor. Fénu fækkar
no’kkuð í sveitunum að þessu
sinni. En mikið fóður hefui' spar-
azt. Til dæmis voru nautgripir á
beit fram til veturnótta og féð
iiggur ennþá víða úti og
íer vel með sig. — Aldr-
ei hefur verið frost í jörðu, sem
staðið hefur deginum lengur, svo
að hægt hefur vei'ið að vinna að
byggingum og' jarðrækt, sem um
hásumar væri. Til dæmis' er dag
hvern verið að vinna með jarð-
ýtum og skurðgröfu, jafnvel dag
og nótt.
Féð var víðast hvar heldur
rýrara en í fyrra. Orsakir þess
voru fyrst vorkuldarnir og hve
seint greri og síðan hin kalda tíð
í ágúst.
Hvernig finnst þér að búa
núna?
Ágætt, miðað við það sem áður
vai', til dæmis í mínu ungdæmi.
Þá var bæði tíðarfai'ið verra og
tæknin öll minni. Allt varð að
vinna með höndum og hesturn,
þó með litlum tækjum og kunn-
áttu. Smám saman þokaðist þetta
í áttina og störfin ui'ðu léttari en
afköstin margföld.
Bóndinn er þó ennþá hvern
dag ársins bundinn skyldustörf-
unum, þótt tæknin hafi aukizt?
Já, en þau gefa meira í aðra
hönd, og nú getur bóndinn veitt
séi' margs konar lífsþægindi, sem
áður var útilokað. Eitt má þó
aldrei skorta: Vakandi alúð að
rækta hvern blett á réttan hátt,
svo að hann gefi sem mest af sér
og kvikfénað allan til hámarksaf-
urða.
Ennþá vei'ður bóndinn að vera
vakandi og eiga allt sitt undir sól
Með blóm í liöndum
Þriðja desember voru ane-
mónur enn blómstrandi í Lysti-
garðinum á Akureyri. Þann dag
gekk á með hríðaréljum. Lysti-
garðsstjórinn, Jón Rögnvaldsson,
sýndi fréttamönnum nokkur
spellvirki, er framin höfðu verið
í garðinum þá undanfarið. Nokk-
ur tré höfðu verið skemmd og
greinar brotnar af öðrum. Von-
andi sjá menn sóma sinn í því
eftirleiðis, að valda ekki spjöll-
um á jafn fögrum stað. Það vakti
nokkra undrun vegfarenda, þeg-
ar fréttamenn komu úr ferð
þessari með blómvendi í hönd-
um.Og anmemónururnar breiddu
út blóm sín þegar inn kom.
og regni, frosti óg snjó, án þess
að bú hans brenni eða kali, segir
Jón að lokum.
Síðan var tekið upp léttara
hjal og eg gleymdi að skrifa. En
það einkenndist ekki af neinum
kveinstöfum hjá bóndanum í
Yztafelli, svo sem títt er hjá
ýmsum þeim, sem halda, að þeir
geri stétt sinni óleik í baráttunni
um daglegt brauð, ef þeir viður-
kenna opinberlega að þeir hafi
sæmileg'a til hnífs og skeiðar. Á
það raunar ekki fremur við um
eina stétt eða aðra. Blaðið þakkar
svörin og samtalið allt.
E. D.
Kristinn Lórenzson, Stefán Árnason, Jón Gíslason. Knútur Val-
. niundsson og Róbert Árnason.
Sigorsæl róorarsvei! frá
Piltarnir úr róðrarsveit Æsknlýðsfélags
Akui eyrarkirk ju unnu íslandsmótið í sumar
Um miðjan ágúst í sumar var
haldið íslandsmót í róðri. ICepp-
endur vöru aðeins tvéir: Sveit úr
Róðrai'félagi Reykjavíkur og
önnur frá róðrarklúbb ÆFAK.
Keppt vai' á þremur vegalengd-
um og sigraði Akureyrarsveit-
in í þeim öllum og hlaut verð-
launabikar
Róðrarsveitin frá Akureyri var
þannig skipuð: Gísli Kr. Lórenz-
(Framhald af 1. síðu.)
LAUSNÁRBEIÐNIN VAR
ÓHJÁKVÆMILEG.
Síðan frestuninni var hafnað
og vísitöluhækkunin gekk í gildi,
hefur verið reynt að ná sam-
komulagi um málið innan ríkis-
stjórngrinnar, en án árangurs. —
Það hefði verið algert óráð og
ábyrgðarleysi, ef ríkisstjórnin
hefði ekki beðizt lausnar undir
þessum kringumstæðum.
Það, sem öllu veldur um það,
að þannig hefur farið, er afstaða
forkólfa Sósíalistaflokksins, sem
nú í'áða orðið lögum og lofum
innan Alþýðubandalagsins, svo
að það er raunar ckki lengur
annað en nafnið cit. Þeir höfnuðu
tillögum Framsóknarflokksins og
son, stýrimaður, Knútur Val-
mundsson, Stefán Árnason, Ró-
bei't Ái-nason og Jón Gíslason. En
þessi róðrarsveit hefur áður ver-
ið sigursæl, sigraði til dæmis á
fyrsta drengjamótinu, sem haldið
var í þessari íþróttagrein hér á
landi. Einnig sigraði hún íslands-
meistarana árið 1957 í keppni,
sem fram fór hér á sjómannadag-
inn.
bentu ekki á annað en óraun-
hæft skrum í staðinn. Þeir vildu
ekki veita hinn umbcðna frest.
Þeir réðu mestu eða raunar öllu
um hina óraunhæfu afstöðu Al-
þýðubandalagsins.
Frá hendi Alþýðuflokksins hafa
ekki komið fram tillögur fyrr en
nú eftir flokksþing hans, en þar
var samþykkt ályktun, sem að
verulegu leyti nálgaðist sjónar-
mið Framsóknarflokksins, t. d.
varðandi eftirgjöf launþega og
bænda á einhverjum hluta vísi-
töluhækkunarinnai'. Kommún-
istar hafa hins vegar aldrei vilj-
að ljá máls á slíku og haldið sig
við hinar óraunhæfu skrumtil-
lögur sínar. Þess vegna er
stjórnin fallin.
Síðastl. fimmtudag var kapp-
í'óðrarmönnunum haldið samsæti
af félögum sínum og fór það fram
í kirkjukapellunni. Þar sagði
Gísli Kr. Lórenzson frá förinni
suður og keppninni, en formaður
aðalfélagsins þakkaði þeim góða
frammistöðu á mótinu.
Kappróðrar eru lítt í tízku, enn
sem komið er. Sennilega er of
stutt liðið, síðan menn notuðu
árina í alvöru við alla sjósókn
hér á landi, og gleðja sig fremur
af því að vera lausir við róður-
inn en að taka hann upp að nýju,
sem íþróttagrein.
Róðrarsveitin á tvo kappróðr-
arbáta. Enn vantar reglur um
gerð kappróðrarbátanna, sem
notaðir eru í opinberri keppni
hér á landi.
Jólatrén eru komin
Eins og að undanförnu eru flutt
inn frá Danmörku jólatré og
grenigreinar á vegurn Land-
græðslusjóðs. Til Akureyrar
'er nú væntanleg með ,,Heklu“
sending af jólatrjám og greinum.
Verður það aðallega selt á veg-
um Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Mun félagið hefja sölu á því um
miðja næstu viku.
DAGUR
kemur næst út miðvikudag-
inn 10. deseniber. — Aug-
lýsingum sé skilað fyrir kj.
2 á þriðjudag.
- Ríkisstjórnin baðst lausnar