Dagur - 07.01.1959, Blaðsíða 7

Dagur - 07.01.1959, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 7. janúar 1959 D A G U R 7 Víða þung færð á vegum en ekki mikill snjór Karl Friðriksson, verkstjóri og f ulltrúi vegamálast j órnarinnar hér, gaf blaðinu eftirfarandi upp- lýsingar í gær: Snjór er yfirleitt fremur lítill, miðað við þennan árstíma, þótt vegir séu orðnir þungfærir. Héð- an fóru um 60 manns í gær i tveim langferðabifreiðum Norð- urleiða og lögðu af stað eftir há- degi. Ýta fór fyrir þeim og alla leið vestur á Oxnadalsheiði. Við Klif mættust bílar að norðan og sunnan og var álíka hópur að koma hingað norður, einnig í tveim bifreiðum. Þar var skipt um bíla. Kl. 11—11.30 voru bíl- arnir komnir í Varmahlíð og um svipað leyti komu ferðamennirn- ir að vestan hingað til bæjarins. Skákþing Norðlendinga stendur nú yfir hér á Akureyri, og eru keppendur víðs vegar að, þrír frá Blönduósi, einn frá Siglufirði, þrír frá Dalvík, tveir frá Olafsfirði, einn frá Húsavík og tveir héðan úr ná- grannasveitum auk Akureyringa. Alls eru keppendur þrjátíu talsins. Fyrsta umferð meístaraflokks: Júlíus Bogason vánn Álbert Sig- urðsson, Halldór Jónsson vann Jónas Halldórsson, Þráinn Sigurðs- son vann Odd Arnason. Jafntefli gerðu: Eggert Gilfer og Steingrím- ur Bernharðsson, Jón Ingimarsson og Kristján Jónsson og Margeir Steingrímsson og Jón Jónsson. Önnur umferð: Eggert Gilfer vann Jón Jónsson, Albert vann Odd, Jónas vann Mar- geir. Biðskákir: Jón Ing. og Stein- grímur, Þráinn og Kristinn, Júlíus og Halldór. „Færið yður ofar“. Og þá kemur röðin að vinnu- konunni, sem vann í húsi í Boston hjá gamalli og ríkri hefð- arfrú. Einn dag lagðist stúlkan í rúmið, og frúin lét strax kalla á heimilislækninn. Gamla frúin fór út úr herberg- inu, er læknirinn tók að rann- saka sjúklinginn, og þá hvíslaði stúlkan að honum, „Læknir, eg er alls ekkert veik. Eg er bara að látast. Gamli kerlingarsvíðingur- inn hefur ekki greitt mér kaup í þrjá mánuði, og héðan úr rúminu fer eg ekki fet, fyrr en hún er búin að borga. mér.“ Læknirinn tók að hýrna á svip- inn. „Hvert í þreifandi!" hrópaði hann. „Nú man eg! Hún skuldar mér líka fyrir tíu síðustu vitjan- irnar. Færið yður ofar!“ Vegurinn frá Öxnadalsheiði er sæmilegur, allt til Reykjavíkur. Vaðlaheiði varð alveg ófær í gær, en mun opnuð í dag, svo að hún verði fær jeppum. Margt fólk bíður þess að kom- ast austur, sérstaklega að Laug- um, en flugvöllurinn í Aðaldal er lokaður eins og er. Reykjadalur er sæmilegur en Ljósavatnsskarð þungfært og einnig Kinn. Dalvíkurvegurinn er fær trukkum og öðrum öflug- um . bílum síðan vegurinn var skafinn um jólin. Svalbarðs- strönd er lokuð norðan Tungu. — Snjólítið er í Höfðahverfi og verður vegurinn hreinsaður þar strax og birtir. — Framan Akur- | eyrar eru vegir greiðfærir. Þriðja umferð: Jón Ing. vann Jón Jónsson, Egg- ert vann Margeir, Júlíus vann Jón- as, Halldór vann Odd, Kristinn vann Albert. Jafntefli: Þráinn og Steingrímur. Eftir þrjár umferðir eru efstir í fyrsta flokki Jón Hannesson og Olafur Kristjánsson. Þeir eru jafnir með þrjá vinninga livor. í öðrum flokki er efstir Hjiirleif- ur Halldórsson og Brynjólfur Eir- íksson með 214 vinning livor. Skákstjóri er Páil Helgason. Hið stóra og merka fyrirtæki í Álaborg, Alborg Værft, hefur fyrir skömmu tekið upp Jrann sið að gefa hverjum starfsmanni sín- um eina vítamínpillu á dag. Auð- vitað er ekki skylda að taka pill- una, en fyrirtækið eggjar fólkið á að gera það og hefur sett upp 6 „átómata“ á hinum ýmsu vinnu stöðvum, svo að sérhver starfs- maður eigi auðvelt með að ná sér í pilluna. Segir forstjórinn, að ekki þurfi að sparast margir veikindadagar, til Jsess að greiða pillurnar. - Frá bókamarkaðinum Framhald af 2. síðu. Hversu sem mönnum geðjast að henni, ber hún vitni um stíl- leikni og frumlega hugsun, Jangt yfir hið venjulega. — E. D. Afgreiðslustíilka Duglega aJgreiðslustúlku vantar okkur nú þegar. KJÖT & FISKUR. Sími 2273. Herbergi til leigu í FRÓÐASUNDI 4. Uppl. rnilli kl. 6 og 7 á kvöldin. GÆSADÚNN fyrsta flokks. HÁLFDÚNN 3 tegundir. VERZLUN JÓHANNESAR JÓNSSONAR Sími 2049 Atvinna óskast! Yantar atvinnu hálfan dag- inn (eftir hádegi). Tilboðum sé skilað á afgr. Dags, merkt: Att innulaus. SPILAKVÖLD Skemmtiklúbbur Léttis hefir sitt fyrsta spilakvöld á árinu 9. janúar í Alþýðuhúsinu kl. 8.30. Spilakvöklin verða 9. janúar, 1. febrúar og 15. febrúar. X’erið með frá byrjun. Góð verðlaun. Þessi mikla sldpasmíðastöð í Álaborg er okkur íslendingum að góðu kunn, því að hún hefur smíðað fyrir okkur mörg og góð skip, t. d. Esju og Heklu. Þar vinna nú um 1800 manns, svo að margar pillur munu hverfa á einu ári, en skyldi það samt ekki geta borgað sig? Er þetta ekki athyglisverð og góð tilraun, sem eklíi síður ætti að geta gefið góða raun hér á landi, ekki sízt eftir sólarlítil sumur? Koma ekki slík útgjöld aftur tþ fyrirtækjanna í auknum afköstum og minni veikindum? Það heldur forstjóri skipasmíðastöðvarinnar í Ála- borg. Hann er vafalaust bezti maður, en hann hugsar fyrst og fremst um hag fyrirtækisins og gefur starfsfólkinu vítamín Jjess vegna, en ekki af brjóstgæðunum einum. Keppnin bófst á simnudaginn og teflt á hverju kvöldi í Landsbankasaleum - Keppendur 30 SKEMMTINEFNDIN. irfsiólki vítamín Forstjórinn segir, að ekki þurfi fjarvistardög- um vegna veikinda að fækka um marga, til þess að greiða kostnaðinn SELJUM ÓDÝRT: TELPNABUXUR frá kr. 7.75. KVENBUXUIÍ kr. 16.75. VÖRUHÚSIÐ H.F. SELJUM ÓDÝRT: ÞVOTTADUFT í 2Va kg. pokum. VÖRUHÚSÍÐ H.F SJÓKLÆÐI SJÓVETTLINGAR, VINNUFATNAÐUR, VINNU VETLLING AR. VÖRUHÚSIÐ H.F. I. O. O. F. — 14019SM> — Kirlvjan. Messað í Akureyrar- kirkju næsttk. sunnudag kl. 2 e. h: Sálmar: 500 — 304 — 105 — 101 — 44. — K. R. Sunnudagaskóli Akureyrar- kirkju er á sunnudaginn kemur. 5 og 6 ára börn í kapellunni, 7— 13 ára börn í kirkjunni. Mætið stundvíslega kl. 10.30 árdegis. StúlluiadeiJd. Fund- ur í kapellunni kl. 5 síðdegis á sunnudag- inn. Dagskrá annast Fjólusveitin (sveitarforingi Edda Þorsteinsdóttir). Nýir félagar velkomnir. Skíðamenn! Fyrsta skíðamótið er á sunnudag. Sjá nánar í götu- auglýsingum. S. R. A. Frá Sjálfsbjörg. Félagsfundur verður n.k. sunnudag, 11. þ. m., í Alþýðuhúsinu kl. 3.30 e. h. — Styrktarfélagar og aðrir velunn- arar félagsins velkomnir. Fyrsta fcndurkvöldið á þessu ári verður föstudaginn 9. þ. m. í Túngötu 2. Sunnudagasltólinn byrjar aftur næsta sunnudag kl. 1. Öll börn og unglingar veílkomiri!. Munið almennu samkomurnar kl. 5. — Sjónarhæð. Strandarkirkja. Áheit frá S. P. kr. 100.00. Msð þökkum móttek- ið. P. S. Frú Fanney Jóhannesdóltir, A.ðalstræti, hefur fært Kvenfé- laginu Framtíðin sem gjöf í Elli- heimilissjóð félagsins tuttugu þúsund krónur til minningar um ömmu hennar, Soffíu Jónsdóttur, og móður, Sigríðar Bjarnadóttur. Þaklsar kvenfélagið þessa höfð- inglegu gjöf. Ingibjörg Halldórs- dóttir, formaður. Kvenfélagið Framtiðin heldur aðalfund þriðjudaginn 13. J>. m. kl. 8.30 e. h. í Húsmæðraskólan- um. Að fundi loknum verður af- mælisfagnaður með kaffidrykkju og skemmtiatriðum. Félagskon- ur, fjölmennið. Stjórnin. Fermingarbörn, sem ' fermast eiga í Akureyrarkirkju á þessu vori, eru beðin um að mæta í kapellu kirkjunnar, sem hér seg- ir: Til séra Péturs Sigui'geirsson- ar fimmtud. 8. janriar kl. 5 síð- degis, til séra Kristjáns Róberts- sonar föstudaginn 9. janúar kl. 5 síðdegis. Verkakvennafél. Eining heldur almennan félagsfund í Ásgarði sunnudaginn 11. janúar kl. 4 e. h. Á dagskrá verður inntaka nýrra félaga, ýmis áríðandi félagsmál og skemmtiati'iði. Herbergi til leigu SÍMI 2295. Hjónaefni. Á gamlaársdag op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Ragnheiður Garðarsdóttir, Hrís- eyjargötu 1, og Konráð Aðal- steinsson, Klettaborg, Akureyri. — Um jólin opinberuðu trúlofun sína ungfrú Auður Guðvinsdótt- ir, Gunnlaugssonar kennara, Æg isgötu 25, og Hörður Jörundsson, málarameistari, Norðui'götu 33. Skagfirðingar! Árshátíðin verð- ur 10. þ. m. Sjá augl. í blaðinu í dag. Hjúskapur. — Annan jóladag voru gefin saman í hjónaband af sóknarprestinum í Laugalands- prestakalli ungfrú Arnheiður Jónsdóttir frá Borgarhóli og Freyr Ófeigsson, stud. juris á Akureyri. — Laugardaginn 27. desember sl. voru gefin saman í hjónaband af sóknarprestinum að Syðra-Laugalandi ungfrú Magnea Ólöf Oddsdóttir frá Þorpum í Strandasýslu og Jón Laxdal Jónsson, ættaður frá Gröf í Kaupangssveit, bæði til heimilis á Akureyri. Hjúskapur. 21. des. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Sig- rún Kristín Kristjánsdóttir frá Hæli í A.-Hún. og Jón Hólm- geirsson frá Völlum í Reykjadal í S.-Þing. — Heimili þeirra verð- ur að Þórunnarstræti 93, Akur- eyri. — Á jóladag voru gefin saman í hjónaband (í Keflavík) Erla Sigurjónsdóttir og Kjartan Sigurðsson, stýrimaður. — Heim ili þeirra er að Austurgötu 19, Keflavík. — Þann 27. des. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Gréta Baldvinsdóttir og Eiður Eiðsson, sjómaður. — Heimili þeirra er að Skipagötu 6, Akur- eyri. — Á gamlaársdag voru gef- in saman í hjónaband ungfrú Kristjana Björg Pétursdóttir og Jón Ingvi Sveinsson, iðnverka- maður. — Heimili þeirra er að Uppsölum, Glerárþorpi. Árshátíð Iðju, félags verk- smiðjufólks verður haldin í AI- þýðuhúsinu laugardaginn 17. jan. n.k. Nánar auglýst síðar, I. O. G. T. f tilefni af 75 ára af- mæli Reglunnar og ísafoldar- Fjallkonan nr. 1 halda st. ísafold og Brynja sameiginlegan hátíðar- fund í Landsbankasalnum laug- ardaginn 10. janúar kl. 8.30 e. h. Fundarefni: Vígsla nýliða, minni ísafoldar, skemmtiatriði, dans til kl. 2 e. m. Veitingar. Félagar, fjölmennið og takið nýja félaga með. — Æðstutemplarar. Drengjasamkoma er á laugar- dögum kl. 5.30. Framhaldssaga lesin. Allir drengir velkomnir. — Sjónarhæð. Farsælt komandi ár! Þakka viðskiptin á árinu. Bókaverzlun Jólianns G. Sigurðssonar, Dal\ ík. SPIL AKLÚBBUR Skógrcektarfél. Tjarnargerðis og Bilstjórafél. i bcenurn Ný fjögurra kvölda keppni hefst með FÉLAGSVIST í Alþýðuhúsinu sunnudaginn 11. janúar kl. 8.30 e. h. Veitt verða fern glæsileg heildarverðlaun (málverk), senr verða til sýnis í Rammagerðinni, Brekkugötu 7, fimmtudag og föstudag. — Einnig verða veitt kvöldverð- laun hverju sinni. Verið nreð frá byrjun og mætið stund- víslega. Hljómsveit leikur. — Óðinn syngur. SKEMMTINEFNDIN.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.