Dagur - 25.02.1959, Side 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 25. febrúár 1959
HERJÓLFUR SKRIFAR HRINGSJÁ
Hvað tefur aðgerðir ríkisstjórnarinnar?
Ríkisstjórnin dregur dag frá degi a'ð birta tillögur sínar í efna-
hagsmálum og kjördæmamálinu í frumvarpsformi á Alþingi
Þegar minnhlutastjórn Al-
þýðuflokksins tók við völdum
í desember, boðaði hún ýmsar
aðgerðir í efnahagsmálum og
kvaðst mundu framkvæma
áætlun sína í þrem áföngum
aðallega. í fyrsta lagi skyldi
ákveða lækkun launa og
verðlags með sérstökum lög-
um. Lög þessi hafa þegar ver-
ið samþykkt á Álþingi. Er ]iar
gert ráð fyrir að vísitalan
verði 175 stig og laun greidd í
samræmi við hana. Þá eru þar
ákvæði um niðurgreiðslur úr
ríkissjóði eða útflutningssjóði
á verði ýmissa vísitöluvara.
Annar áfangi efnahagsmála-
áætlunar ríkisstjórnarinnar
átti að vera tekjuöflunar-
ákvörðun vegna útflutnings-
sjóðs til þess að standast út-
gjöld af niðurgreiðslum og út-
flutningsbótum til framleiðslu
atvinnuveganna, og þriðji
áfanginn er svo afgreiðslu
fjárlaga.
AFGREIÐSLA EFNA-
HAGSMÁLANNA.
Þingflokkiu- Framsóknar-
manna ákvað að spyrna ekki
fæti við framkvæmd íyrsta
stigs efnahágsmálaáætlunar-
innar, cn á það var bent
af liálfu Framsóknarmanna,
að engan veginn væri
víst, að flokkurinn styddi
efnahagsmálaaðgerðirnar á
öðru og þriðja stigi áætlun-
arinnar. Þegar niðurgreiðslu-
og kauplækkunarfrumvarpið
var samþykkt, var með öllu
óljóst, livað stjórnin hygðist
fyrir um tekjuöflun, er leiddi
af því. Margt virtist benda til
þess, að stjórnin hygðist
skerða framkvæmdafé ríkis-
sjóðs, eða jafnvel afgreiða
fjárlög með halla og velta
byrðunum yfir á framtíðina til
úrlausnar.
HVAÐ VELDUR
DRÆTTINUM?
Langt er um liðið síðan nið-
urgreiðslufrumvarpið var sam
þykkt, en liins vegar bólar
enn ekki á tekjuöflunartillög-
um frá ríkisstjórninni til |>ess
að standast hin nýju útgjöld.
Menn velta því fyrir sér, hvað
valdi þcssum drætti. Oðuin
líður á þingtímann og getur
hver dráttur málsins orðið dýr
úr þessu. En er það ekki svo,
að ríkisstjórnin sé í vanda um
úrlausn málsins? Ætli það sé
ekki reyndin, að ráðherrum
Alþýðuflokksins þyki óvænleg
færð á þcirri braut, sem þeir
hafa markað? Að minnsta
kosti er það víst, að afgreiðsla
fjárlaganan og aðrar fyrir-
hugaðar efnahagsaðgerðir
bögglast nokkuð fyrir brjósti
ríkisstjórnarinnar.
Kjördæmamálið
Annað höfuðmál ríkis-
stjórnarinnar er kjördæma-
málið. Ríkisstjórnin liefur
heitið frumvarpi um breytta
kjördæmaskipun á þessu
þingi, og eftir því sem for-
sætisráðhcrra sagði í nýárs-
ræðu sinni til þjóðarinnar,
miðast hin fyrirhugaða breyt-
ing við það að leggja niður öll
núverandi kjördæmi nema
Reykjavík og taka upp hlut-
fallskosningar í stórum kjör-
dæmum.
HVAÐ LÍÐUR
FRUM V ARPINU ?
Enn hafa tillögur þessar
ekki verið felldar í frum-
varpsform á Alþingi, og er hið
sama að segja um það, sem
efnahagsmálin, að mönnum
þykir dráttur ætla að verða á
þeirri vitneskju, hvað ríkis-
stjórnin hyggst gera í málinu
í einstökum atriðum. Að vísu
er ljóst af blaðagkrifum og
yfirlýsingum málsmetandi
manna í þeim flokkum, sem
ríkissíjórnina styðja, hvað
koma skal, ef ráðandi menn
þessara flokka fá vilja sínum
framgengt. Þarf ekki annað en
benda á ályktanir Alþýðu-
flokksþingsins í nóvember sl.
og yfirlýsingu forsætisráð-
herra, sem fyrr var nefnd, svo
og tillögur þær, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn gerði og birti
nokkru fyrir jól, aðalíega. að
því er virtist, til þess að veiða
Alþýðubandalagið og Al-
þýðuflokkinn í net sitt, þótt
það yrði Alþýðuflokkurin,n
einn, sem lét veiða sig.
VANHUGSAÐAR
TILLÖGUR.
Framsóknarmenn skáru
strax upp úr um afstöðu sína
til hinnar v'æntanlegu kjör-
dæmabreytingar. Þeir hafa
bent á með rökum, að með
slíkum breytingum sé ekki
einungis verið að breyta,
heldur miklu fremur að bvlta
þeim grundvelli, sem kjör-
dæmaskiptingin hefur ávallt
byggzt á. Þá liefur einnig ver-
ið á það bent af Framsóknar-
manna hálfu, að með hlut-
fallskosningum í því formi,
sem ríkisstjórnarflokkarnir
hugsa sér, sé stefnt enn lengra
út í forað margflokkakcrfisins
en þcgar hefur verið, þar sem
sýnilegt sé, að hlutfallskosn-
ingarnar muni fremur stuðla
að flokkafjölgun og þannig
valda vaxandi flokkabaráttu
með allri þeirri skelfingu, sem
af henni getur lioltizt og hefur
lilotizt í fjölmörgum lýðræð-
islöndum. Það er því síður en
svo til styrktar lýðræðinu að
stofna til kosningakerfis, sem
auðveldar smáflokkum tilveru
sína. Hitt væri nær að Alþingi
sameinaðist um að finna þá
lausn á kjördæma- og kosn-
ingafyrirkomulagi, sem knýr
á til samvinnu flokksbrota og
smáflokka, því að venjulega
ber ekki svo mikið á milli. að
ekki sé hægt að semja um
deilumálin og finna meðalveg,
sem kemur í veg fyrir óeðli-
lega flokkamyndun.
Verður kjördæma-
frumvarpið fellt?
Svo sem kunnugt er, hafa
Alþýðuflokksmenn og Sjálf-
stæðismenn ekki þingstyrk
einir saman til þess að koma
venjulegum lagafrumvörpum
gegnum þingið. I sambandi við
afgreiðslu væntanlegs kjör-
dæmafrumvarps virðast þessir
flokkar treysta því, að Al-
þýðubandalagið ljái atbeina
sinn til framgangs þess. Mörg-
um mun að sjálfsögðu þykja
líklegt að svo verði. „Verka-
maðurinn", sem fram að þessu
hefur farið sér hægt í umræð-
um um kjördæmamálið, birtir
sl. föstudag ritstjórnargrein,
er fjallar um málið. Það er
áberandi við grein þessa, að
engin afstaða er þar tekin með
tillögum ríkisstjórnarinnar og
á það bent, að engir samning-
ar hafi verið gerðir við Al-
þýðubandalagið um stuðning
við kjördæmabreytinguna. —
Það er því á þessu stigi óhætt
að fullyrða, að eins miklar
líkur séu til þess að frum-
varpið verði fellt cins og að
það verði samþykkt. Hér eiga
Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
flokksmenn allt sitt undir af-
stöðu Alþýðubandalagsins. —
Það er von að menn spyrji
„Ilver verður afstaða Alþýðu-
bandalagsins til kjördæma-
frumvarpsins?“
KJÓSENDUR HAFA
STÖÐVUNARVALDIÐ.
Setjum svo, að Alþýðu-
bandalagið slysaðist til þess að
fylgja breytingartillögunum
— sem engan veglnn er víst —
og málið fengi afgrciðslu á
þessu þingi og efnt yrði til
kosninga um málið í sumar.
En þótt svo færi, eru fyrirlið-
ar kjördæmabreytingarinnar
ekki búnir að sigrast á ölluin
hindrunum, því að þá eru það
kjósendur, sem hafa stöðvun-
arvaldið. Ólíklegt er að kjós-
cndur í núverandi kjördæm-
um ljái mjög fúslega atfylgi
þeim flokkum, sem sameinast
um að leggja niður kjördæmi
þcirra ,Þó að t. d. yfirstjórn
Sjálfstæðisflokksins þyki það
nú góður „business“ að gjör-
Framhald á 7. síðu.
„Vimiuskylda unga fólksins cr lækningin“
Rætt við Hallgrím Tryggvason, prentara,
um prentun á „Degi“ og fleira.
Þegar lesendur blaðanna
renna augunum yfir lesmál
þeirra, hvarflar sennilega
sjaldan að þeim, hversu geysi-
leg vinna og fjölþætt liggur á
bak við hvert tölublað. —
Einn hlekkurinn í sögu hvers
blaðs liggur að sjálfsögðu í
prentsmiðjunum. Fáir munu
hafa nokkra innsýn í vinnu
þá, sem þar er framkvæmd, og
hefir þátturinn því snúið sér
til Hallgríms Tryggvasonar,
setjara í Prentverki Odds
Björnssonar, í því skyni að
fræða lesendur „Dag's“, í
stuttu máli, um þann þátt í
útkomu blaðsins, sem fram-
kvæmdur er í „Prentverkinu“.
— Hallgrímur hefir nú um
alllangt skeið séð um „um-
brot“ á „Degi“ og á sinn þátt í
hinu smekklega útliti hans.
Vilt þú ekki, Hallgrímur,
íræða okluir örlítið um þann
þátt í útkomu „Dags“ sem er
framkvæmdur í „Prentverk-
inu“? spyr fréttamaður þátt-
arins, er hann hittir hinn
snarlega, rauðhærða setjara.
í rótgrónu blaði sem „Degi“
er allt komið í fast form, og
því útliti blaðsins settar mjög
fastar . skorður. Fastir þættir
hafa ákveðna dálksbreidd og
ákveðin fyrirsagnaletur. —
Vandaverk er að semja góðar
fyrirsagnir, þar sem þær
verða helzt að ná nákvæmlega
yfir einhverja ákveðna dálks-
breidd, ef blaðið á að líta
smekklega út. — Eftir að
handritin koma í „Prentverk-
ið“ eru þau fengin í hendur
vélsetjurunum, sem síðan
setja allt lesmál í blaðið. Meg-
inmálinu (þ. e. allt utan fyrir-
sagpir og auglýsingar) er að
lokinni setningu raðað laus-
lega upp í dálka og „þrykkt
af“ (þ. e. tekið eitt eintak af
leturfletinum), sem ritstjóri
fær til prófarkalesturs. —
Síoan eru línurnar, sem villur
voru í, leiðréttar af vélsetjur-
unum og skipt um þær línur í
dálkunum, áður en efninu er
raðað niður í síður. — Starf
mitt er fólgið í því að raða
efninu niður í síður (umbrot)
og koma því fyrir á sem hag-
anlegastan og smekklegastan
hátt. Er það, ásamt leiðrétt-
ingum, um eins dags verk. —
Þegar lesendur „Dags“ renna
augunum yfir auglýsingasíð-
urnar, hvarflar sennilega
sjaldan að þeim hversu mikið
starf liggur að baki hverrar
síðu. Athuga þarf vel við
hverja auglýsingu að setja rétt
bil á milli hvers atriðis aug-
lýsingarinnar, og síðan þarf að
setja ramma utan um þær. —
Allar síðurnar í blaðinu verða
að vera nákvæmlega jafnstór-
ar, og má þar engu um muna,
jafnvel ekki pappírsþykkt. —
Langfljótlegast er að „brjóta
um“ langar greinar, en erfið-
ast, og jafnframt skemmtileg-
ast, er að vinna við 1. og 8..
síðuna, vegna þess fjölda fyr-
irsagna og mynda, sem koma
þarf á þessar síður. — Að um-
broti loknu er tekið ,,afþrykk“'
af síðunum, sem ritstjóri fær-
sem síðustu próförk. — Eftir
leiði'éttingu eru síðurnar sett—
ar í prentvélina, sem prentar-
upplag „Dags“, hátt á 5. þús..
eintaka, á liðlega tveimur-
tímum. Kemur blaðið saman—
brotið og tilbúið til útburðac
úr vélinni.
Hvað um myndir, sem birt-
ast í blaðinu?
Flestar myndir, sem birtast
í Akureyrarblöðunum, eru
gerðar í sérstakri mynda—
mótavél, sem er hér í „Prent-
verkinu". — Hún vinnur-
þannig, að á sívalning er feát.
ljósmyndin, sem gera á
myndamót eftir og á annan
samstæðan sívalning er fest
efni það, sem myndamótið er
gert í (plastefni). Síðan snú-
ast báðir þessir sívalningar-
með sama hraða og grefur nál
öfuga mynd af ljósmyndinni í
plastefnið jafnóðum og hið
næma auga „fotocellunnar“
færist yfir liósmvndina.
Hvað vilt þú segja um útlit
dag- og vikublaða?
Leturval í bla'ðaprentsmiðj-
um virðist mjög handahófs-
kennt og prentvélar gamlar og’
úr sér gengnar. — Mætti og'
segja mér að ekki væri svo
góð samvinna milli blaða-
manna og umbrotsmanna, sem
æskilegt væri. — Útlit blað-
anna virðist þó smám samaíi
verða líflegra og betra.
Þú hefir farið utan til fram-
haldsnáms í þinni iðngrein?
Já. — Árið 1957 sótti ég
ágætt námskeið Danska
prentarasambandsins í Ála-
borg. — Þar sannaði ég sjálf—
um mér hversu geysimargt ég'
á ólært í minni iðngrein, og
hef ég því fullan hug á áfram-
haldi á náminu og mun að öll-
um líkindum fara til Svíþjóð-
ar, í því skyni, á næsta hausti.
— í Danmerkurferð minni
gafst mér einnig tækifæri til
að skoða nokkrar prentsmiðj-
ur, og þ. á. m. „Gutenberg-
hus“, þar sem meðal annars
er prentað hið þekkta vikú-
blað „Hjemmet".
Að lokum, Hallgrímur, þar
sem þetta er þáttur unga
fólksins. Ilvað viltu þú segja
um ungu kynslóðina?
Að mínu áliti er hjal góð-
borgaranna um spillta æsku
ekki fullkomlega réttmætt.
Flest ungt fólk nú á tímum
virðist vera mjög heilbrigt í
liugsun og taka hlutverk sitt
alvarlega. — Að vísu hafa
alltaf verið til tómthausar, en.
munurinn er aðeins sá að þeir
hafa nú í flestum tilfellum góð
fjárráð og láta því meira á sér
bera en þeir gerðu á sokka-
bandsárum góðborgaranna. —
Framhald á 7. síðu.