Dagur - 28.02.1959, Blaðsíða 4

Dagur - 28.02.1959, Blaðsíða 4
4 D A G U R Laugardaginn 28. febrúar 1959 Bagus Skrilsiofíi i HafiiíirMrit it !»(> — Síini tlöG imsrjóRi: E R L í N G U R I) A V ! 11 S S () N Auglvsingast jói i: ■J:ÓN S A VI 1 i: 1. SSO N Aigangnrinn kosiai kr. 75.00 HlaAiO ktiiiiir lit á niiAvikutlögum og iaugarritiguni. tirgar cfni standa til (;jaltlflagi rr I. júlí PRENTVERK OIIDS KJÖRNSSONAR H.F. Brot úr ræðu Eysteins Jónssonar Á SUNNUDAGINN flutti Eysteinn Jónsson al- þingismaður ræðu á stjórnmálafundi á Kópavogi. í*ar sagði hann mcðal annars: „Síðan 1957, er Framsóknarmenn tóku við landbúnaðarmálunum af Sjálfstæðisflokknum, hefur verið haldið uppi öflugri framfarastefnu í þcirri atvinnugrein. Áður var stríðsgróðamtm ráðstafað fram hjá landbúnaðinum. En síðan Framsóknarmenn tóku þar forustu á nýjan leik hefur verið haldið uppi stöðugri framsókn á þeint vígstöðvum til ómetanlegra hagsbóta fyrir þjóðina alla. Árangurinn sézt tn. a. á bví, að Iandbúnað- arframleiðslan hcfur farið vaxandi þó að færra fólk vinni nú að þeim störfum en áður. Þá hafa komið til víðtækar aðgerðir til upp- byggingar atvinnulífsins í sjóþorpununt. Þar hcfur orðið áþckk stefnubreyting og í Iandbúnaðinum. Byggð haía verið frystihús, rcist fiskiðjuver, keyptir bátar og togarar og gerðar hafnir. Fjár til þessara framkvæmda hefur bæði verið aflað með lántökum og veitt beint úr ríkissjóði. Greiðsluaf- gangi þeim, sem orðið hefur hjá ríkissjóði á und- anförnum árum, hcfur að vcrulcgu Icyti verið veitt í sömu átt. Atvinnuaukningarféð hefur reynzt stórfelld Iyftistöng til cflingar atvinnulíf- inu í sjóþorpunum. Einn þáttur í þessu viðreisnarstarfi hefur verið sá, að vcita ríkisábyrgðir, einkum í sambandi við togara- og bntakaup, hafnargerðir og byggingu fiskiðjuvera. Fyrirfram var vitað, að ríkið hlyti að verða fyrir cinhverjum töpum vegna þessara ábyrgða, því að framkvæmdir taka oft alllangan tíma áður en þær fara að gcfa arð. En þessar ábyrgðir hafa víða bcinlínis verið undirstaða þess, að í framkvæmdir yrði ráðizt. , Þá má nefna raforkuáætlunina.Hcfur stórfé ver- ið varið til nýrra raforkuaaflstöðva fyrir lands- byggðina. Er það einn þýðingarmesti þátturinn í því, að auka á jafnréttisaðstöðu þéttbýlisins og landsbyggðarinnar og hefur mjög aukið trú manna og bjartsýni á framtíð sveitanna og sjávar- plássanna. * Allar þessar aðgerðir hafa að því miðað, að stuðla að jafnvægi í byggð landsins, enda hefur nú að miklu leyti tekizt að stöðva strauminn til þéttbýlisins til ómctanlegra hagsbóta fyrir þjóð- ina alla. Hér hcfur því orðið mikill og glæsilegur árangur. Trú manna á framtíð eintsakra byggð- arlaga skapast ckki á einu ári cða svo, heldur þurfa menn að geta treyst því, að þeim sé óhætt að tcngja vonir sínar um Iífvænlega afkomu við ákveðin byggðarlög úti um land. Þess vegna er það þjóðarvoði ef ofan á verða jiau öfl, sem nú vilja að ríkisvaldið kippi að sér hcndinni og stór- lega sé saman dregin hin „pólitíska fjárfcsting“, en svo hcita á máli þeirra þær framkvæmdir, sem ríkið styður og drýgst reynast til þess að byggja upp atvinnulífið víðs vegar um Iandið, þar sem einkafjármagn hrekkur ekki til nauðsynlcgra stórframkvæmda. Þeir sem fyrir þessu standa virðast trúa því, að það geti orðið lausn á efnahagsvandamálunum, að skera niður fjárfestingarframkvæmdir út um Ian'd og nota féð til þcss að kasta því í verðbólgu- hítina og kaupa sér þannig völd og frið. Þeir virðast ekki gera sér Ijóst, að með því að stöðva uppbygginguna út um land, eru jieir að leiða yfir þjóð- ina vandræði, sem þeir fá ckkert við ráðið. Fólksflutningarnir hæfust að nýju og mikið yrði eyðilagt af því, sein áunnizt hef- ur .Hér er því meira cn lítið í húfi.“ Um kjördæmamálið sagði þing- maðurinn m. a.: „Þcir vita vel hvað jjeir eru að gera með jiví að lcggja niður ein- mennings- og tvímenningskjör- dæmin. Með því á að slíta fólkið úr sambandi við jiingmcnnina og síðan innlciða nýja fjárfestingar- stcfnu, þar sem horfið verður frá þeirri uppbyggingu atvinnulífs- ins, sem hefur stóraukið fram- leiðsluna, en sá niðurskurður mun valda nýrri fólksflutninga- bylgju úr sjávarþorpum og sveit- um. En það cr auðvelt að jafna kosningarétt án jiess að leggja niður kjördæmin. Framsóknar- menn hafa lagt til að fjölga kjör- dæmakjörnum þingmönnum, þar scm fólksfjölgun liefur orðið mest. En fólkið í þeim kjördæm- um, scm á að leggja niður, getur bjargað þeim. Um það verður teningunum kostað í vor, og það verður örlagarík ákvörðun.“ - Akureyrarblásarinn... Framhald af 8. siðu. sem allir bændur þekkja, er ár- angur af þessum heilabrotum Magnúsar er í’aunar aðeins hag- nýt útfærsla á þessu einfalda tæki. Þetta bráðnauðsynlega verkfæri er orðið mjög útbreytt og eftirspurn vex ört. Onnur góð tæki. Af öðrum landbúnaðartækjum, sem Magnús hefur smíðað, má nefna þúfnaskera, rásaplóg og áburðarplóg. Allt eru þetta vel þekkt verkfæri, sem áður voru ekki framleidd fyrr hér á landi, svo að blaðinu sé kunnugt. Auk þessa smíðaði Magnús svo fjölda heyvagna, ýtusleða o. fl., sem ekki heyra til uppfyndninga, en eru á ýmsan hátt mjög hent- ug verkfæri. Samhliða smíðunum annaðist verkstæði Magnúsar samsetn- ingu á landbúnaðarvélum, sem inn voru fluttar og var sjálfkjör- inn ráðunautur bænda um mjög marga hluti er að vélum og verkfæruni lutu. Þar þótti hann jafnan og þykir enn bæði glöggur og hollráður. Súgþurrkun. Magnús fylgdist með þróun súðþurrkunarinnar frá fyrstu tíð. Hann skoðaði til dæmis fyrstu tækin, sem reynd voru á Vífils- stöðum og hefur haft forgöngu um niðursetningu þeirar tækja í héraðinu fram á þennan dag. — Fyrst voru það erlendir blásarar, sem upp voru settir, en síðan hefur Magnús smíðað mikinn fjölda þeirra. Fram að 1955 höfðu bændur ekki kynnzt því, að hægt væri að nota einn og sama blásarann til að blása þurru og votu heyi í hlöður og jafnframt til að þurrka heyið með. Magnús leysti þá þraut, að láta einn blásara af nýrri gerð leysa öll þessi hlut- verk og spara með því vélakaup bænda að stórum mun. Þessi „Akureyrarblásari Magnúsar Ámasonar", eins og hann er nefndur í opinberum skýrslum, er hinn athyglisverðasti. Hann tekur öðrum blásurum langt fram. Hann er frístandandi, þarf ekki að grafa hann niður þótt hlöðurnar séu niðurgrafnar og sérstakt hús eða skýli utan um þennan blásara er ekki til bóta. Þessi gerð Akureyrarblásara er komin allviða og hefur hún reynst vel. Verkfæranefnd ríkis- ins hefur rannsakað Ak.blásarann og gefið út skýrslu um árangur- inn. f skýrslunni segir, að blás- arinn þurfi nær 20 hestöfl. Reynslan hefur hins vegar sýnt, að 10 hestöfl nægja, samkvæmt reynslu bændanna og jafnvel minni orka. Hér ber mikið á milli. Margir bændur eru fúsir til að segja sitt álit. „Undanfarin tvö sumur hef eg notað heyblásara frá vélaverk- stæði Magnúsar Árnasonar, Ak- ureyri. Hefur hann verið notaður við tvær hlöður, bæði til inn- og undirblásturs, 10 ha. rafmótor hefur verið notaður og virðist það nægilegt. Stærð á hlöðum er: 13+9+6 m. og 15+4+5,50 m. Reynsla mín af þessum blásara er að öllu leyti góð. Þverá, Ongulsstaðahreppi, 28. jauúar 1959. Árni Jóhannsson (hreppstjóri).“ „Sumarið 1957 fékk eg hey- blásara er smíðaður var á véla- verkstæði Magnúsar Árnasonar, Akureyri. Blásari þessi er ætlað- ur bæði til að blása heyinu inn og súgþurrka það. Eg get ekki annað sagt en að hann hafi reynst mér mjög vel, hann er mjög afkasta- mikill til innblásturs og einnig súgþurrkar hann prýðilega. — Hlöðustærð er: 8+16+5,50 m. 10 ha. mótor einfasa hef eg notað, og virðist algjör óþarfi að hafa það meira. Veigastöðum, 30. janúar 1959. Eiríkiu' Geirsson.“ Þessi vottorð virðast taka af öll tvímæli um notagildi hins fjöl- hæfa, blásara. Nú hefur verið drepið á nokk- ur atriði, sem Magnús Árnason járnsmiður hefur unnið fyrir bændastéttina. Sjálfur er Magnús aldraður orðinn og stendur ekki lengur við aflinn í smiðju sinni, en verkstæðið nýtur hans þó á tvennan hátt:. í fyrsta lagi hug- vits og andlegrar orku hans, og í öðru lagi vinsældanna, sem hann aflaði því í giftudrjúgu starfi. í þessu sambandi vill blaðið vekja athygli bænda á því, að þeir hafa vissulega ástæðu til að veita Magnúsi Árnasyni opin- bera viðurkenningu fyrir hin óvenjulegu og þýðingarmiklu störf í þágu landbúnaðarins. E. D. Lagt til að 1963 verði barattuár gegn liungursneyðinni A byggðum bóluni jarðar, jiar sem helmingur mann- kynsins býr nú eða réttara sagt dregur fram lífið við sult og seyru, búa milljónir manna. „Þetta er mesta vandamál mannkynsins á jiessari öld,“ sagði Indverjinn B. R. Sen, forstjóri FAO, Mat- væla- og landbúnaðar'stofnunar Sameinuðu jijóðanna, í ræðu, sem hann flutti á dögunum í Aljijóðlega félag- inu ítalska í Róm. „Öll önnur vandamál sem að steðja, eru lítilfjörleg í samanburði við jictta eina,“ sagði Sen. Sen forstjóri hefur borið fram tilliigu jiess efnis, að árið 1963 verði gert að baráttuári gegn liungursneyð- inni í heiminum. í ræðu þeirri, er fyrr greinir, gerði Iiann nánar grein fyrir þessari hugmynd sinni. Tillagan facr góðar undirtektir. Tillaga Sens um að helga heilt ár baráttunni gegn sulti og seyru, hefur fengið góðar undirtektir, t. d. hjá fulltrúum aðildarþjóða FAO, Efnahags- og félagsmála- ráði Sameinuðu jijóðanna, og hjá ráðamönnum ann- arra sérstofnana Sameinuðu þjóðanna. Tilgangur Séns með tillögu sinni er, að hans eigin sögn, að vekja athygli alheimsins á jjessu mikla vanda- máli og að vekja menn til umtals og umhugsunar um, á hvern hátt það verði bezt leyst. Margir telja það hina mestu hncisu, að milljónir manna skuli kvöld hvert ganga soltnir til sængur eða hreint og beint horfalla, á meðan matvæli liggja undir skemmdum annars stað- ar í heiminum eða skemmur eru fullar a£ smjöri og korni, sem ekki selst. Það er sem sagt ekki nóg, að auka framleiðslu matvæla í heiminum, heldur verður líka að ráða fram úr jiví vandamáli, hvernig flytja megi matvæli frá allsnægtarsvæðunum til jieirra staða, jjar sem allsleysið rikir. Alþjóðlcg matvælaráðstcfna. Það er hugmynd Sens, að „baráttan gegn liungurs- neyðinni" ljúki með.alþjóðlegri matvælaráðstefnu, jiar sem menn frá öllum löndum heims beri saman ráð sín um jiað, á hvern hátt verði ráðið fram úr vandamálinu, og að með aljijóðlegu átaki verði gerðar ráðstafanir til jiess að fá hungruðum mönnum mat, hvar sem jieir búa í heiminum. Forstjóri FAO fer ckki í launkofa með þá staðreynd, að ]m lengur sem J>að dregst að ráða fram úr jjessu máli og því, á hvern hátt verði hægt að brauðfæða allt mannkyn, jjv/ verra verður ástandið, því að hagfræð- ingar hafa nú reiknað út, að mcð sömu viðkomu mun jarðarbúum fjöga úr jjcim 2.700 milljónum, sem [jeir eru í dag, í 6.000 milljónir í lok þcssarar aldar, eða á næstu 40 árum. Nýr íramfarasjóður á vegum S. Þ. Nýr alþjóðasjóður, sem verja skal til framfaramála í vanyrktum löndum í heiminum, er nýlega tekinn til starfa á vegum Sameinuðu jjjóðanna. Sjóður jjessi nefnist á ensku „Special Fund“, en mætti að réttu kallast Framfarasjóður á íslenzku. Til [ressa liafa átján Jjjóðir lagt fé að mörkum til sjóðsins, en vonazt er til að fleiri aðildarjjjóðir SÞ leggi sjóðnum til fjármuni. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Bandaríkjamaðurinn l’aul G. Hoffman, er stjórnaði Marsliall-hjálpinni á sínum tíma og síðar varð forstjóri Studebaker-bíla- verksmiðjanna. Bctri hfsskilyrði fyrir hundruð milijóna manna. A fyrsta fundinum, sem stjórn Framfarasjóðs Sam- einuðu þjóðanna héh, sagði Hoffman, að tilgangurinn með sjóðnum væri fyrst og lrcmst sá, að skapa betri lífsskilyrði fyrir hundruð milljónir manna í vanyrktu löndunum. Þessu takmarki yrði Jjó Jjví aðeins náð, bætti hann við, að Jjjóðir jiær, sem Jjcssí fátæku lönd byggja, vildu sjálfar leggja fram krafta sína og sýndu vilja til að bæta lífskjör sín. Hoffman sagði, að sjóðurinn myndi fyrst og fremst styðja að framförum á eftirtöldum [rremur sviðum: 1. Á sviði stórframkvæmda. Myndi Jjað hafa í för með sér kostnað, er næmi 5.000.000 dollurum lil að byrja með. Hér gæti verið um að ræða slórframkvæmd- ir sem skipta hagsmuni margra landa í senn, svo nefnd- ar umdæmisframkvæmdir, sem taka myndi mörg ár að koma í kring. 2. Framkvæmdir, sem kosta mun um 1.000.000 doll- ara að styrkja. Hér er um að ræða rannsóknir á mögu- leikum til framfara og framkvæmda, styrki til skóla og rannsóknarmiðstöðva. 3. Loks er um að ræða fyrirætlanir, er kosta munu sjóðinn 100.000—500.000 dollara. í þessum flokki er átt við styrki til rannsókna á áætlunum, sem.myndu verða framkvæmdar með eigin fé frá viðkomandi jjjóð eða lánum frá öðrum en Sameinuðu þjóðunum. Undirbiíningsvinna. Framkvæmdarstjórinn lét þess getið, að fyrst í stað myndi vera nóg að gera fyrir starfsfólk sjóðsins áð kynna sér og velja verkefni, er síðar yrði ráðizt í að íramkvæma. Hann lagði til, að stjórn sjóðsins kæmi saman á ný í júní næstk. til Jjcss að ákveða, hvaða framkvæmdir í vanyrktu löndunum Framfarasjóðurinn skyldi byrja að styrkja.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.