Dagur - 06.05.1959, Qupperneq 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 6. maí 1959
Ski il'sliilii í Uafnaistrá'tí ‘Kl — Sími i Kiti
lUTSTjAui:
ERLI N G V R I) A V í I) S S (> N
.'Vuglýsingastjói i:
J Ó \ S \ M Ú E I..SSON
Árgaiigiiiiim kosiai kr. 75.00
HlaðiA kiiiiur út ;i íiiiðvikutiiiguni «g
laugaitltíguni, þcgar cfni stantla til
Cjaltltlagi cr I. júlí
l>«jf.NTVERK OI»DS HJÖKNSSONAIt H.F.
! Skólaskip á Akureyri
ÞÓTT ENNÞÁ ANDI KÖLDU, er þess vonandi
ekki langt að bíða, að sumarið komi í allri sinni
dýrð. Sú er von okkar allra, og ekki sízt ung-
mennanna, sem enn sitja sem fastast á skóla-
bekkjUm, en munu fagna frelsi innan skamms. En
hið uppvaxandi fólk, piltar og stúlkur, þurfa þó
meira en að losna úr skólanum. Það þarf að fá
vinnu, sem því og þjóðfélaginu í heild er samboð-
in. Fimmti hver íslendingur er í skóla og við
skólaslitin losnar óhemjumikið vinnuafl. Sem get-
ur fer, bíða ótal störf til sjávar og sveita, hinna
ýmsu, einstöku nemenda, en allur fjöldinn virðist
ennþá vera óráðinn um veru sína og vinnu í sum-
ar. Gildir það jafnt um unglinga innan og ofan við
fermingaraldur.
Við kunnum því flestir illa, að ætla að skipu-
leggja alla hluti. Samt sem áður virðist óvíða
meiri börf skipulagningar og féJagslegrar aðstoö-
ar, en við það verkefni, að fá skólafólkinu næga
atvinnu við ný störf. Án efa gætu sveitirnar bætt
við sig nokkru af börnum kaupstaðarbúa, ef vilji
væri fyrir hendi frá beggja hálfu að leysa það mál
á félagslegum grundvelli. Þar væri vinnumiðlunar
full þörf. En svcitirnar geta þó ekki leyst málið
nema að litlum hluta, því að hlutfallið millt íbúa-
tölu bæja og sveita hefur raskast mjög. í bæjun-
um hafa verið gerðar tilraunir með ýmiss konar
verkefni handa hinum uiigu, og eru þær virðing-
arverðar, en flestar ófullkomnar. Menn virðast
naumlega vera búnir að átta sig á því, að þessa sé
svo brýn þörf sem margir vilja vera láta.
Hér á Akureyri er nú í athugun að gera út
skólaskip í sumar. Og er sú hugmynd hin athygl-
isverðasta. Mun Gísli Konráðsson framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa h.f. hafa unnið
henni fylgi hjá stjórn Ú. A. og fleiri aðilum. Þeg-
ar hefur verið leitað samninga um leigu á Ester
sem skólaskipi. En fyrirkomulagið er hugsað
þannig, að stundaðar verði handfæraveiðar. Yfir-
menn verði ráðnir góðir sjómenn og uppal-
endur og á skipinu verði 16 unglingar á tímabil-
inu júní, j’.ilí og ágúst og séu þeir hálfdrættingar
og hafi frítt fæði og veiðarfæri. Þessum tíma verði
svo skipt í tvennt, svo að alls komist 32 ungir
menn að. Aldurinn miðist við 13—16 ára. Ú. A.
hefur þegar leitað til bæjarins um fjárliagslega
aðstoð og mun því máli eflaust verða vel tekið
þar og ennfreinur hjá Útgerðarfélagi KEA. Virð-
ist málið vera heppilega leyst með þátttöku bæj-
arsjóðs að einum þriðja, Útgerðarfél. KEA að ein-
um sjötta liluta og Ú. A. að helmingi kostnaðar.
Þótt ekki liggi ennþá fyrir, hverja afstöðu hinir
ýmsu aðilar taka í þessu máli, verður því naumast
trúað að óreyndu, að menn vilji ekki einhverju
fórna fyrir þetta góða málefni. Ef einhverjir
kynnu að efast um börf fyrir atvinnuúrbætur hér,
skal á það bent, að á þriöja hundrað manns, mest
unglingar, hafa beðið um vinnu nú í vor hjá Út-
gerðarfélagi Akurevringa h.f. Auk þess getur dvol
ungra manna á sjónum, undir handleiðslu góðra
sjómanna, orðið sjómannastéttinni ómetanlegur
styrkur, því að alltaf er vöntun á sjómönnum, og
er ekki vanzalaust fyrir þjóð, sem byggir gjald-
cyrisafkornu sína að mestu á sjávarútvegi. i
Um daginn og veginii
Hér hafa verið bjartir dagar en
kaldir. Lítils háttar snjóföl á jörð
hlífir gróðrinum. Jörðin er þýð
og tún voru farin að grænka dá-
lítið. í bænum er fullt af þröst-
um, sem eru farnir að bera í
hreiður sín, og auðnutittlingarnir
eru byrjaðir að verpa í trjám og
runnum. Þegar út fyrir bæinn
kemur heyrist söngur lóunnar og
stelksins, gæsirnar garga á ár-
bökkum og flæðilöndum, en
svanir velja sér grunnar tjarnir
og teygja langa hálsana niður að
botni, þar sem nýgræðingurinn
mætir þeim.
Og tæplega bregzt það, ef leið
manns liggur í nágrenni bæjar-
ins, að sjá hestamenn á ferð á
gæðingum sínum. Á Akureyri er
mikill fjöldi reiðhesta og þar
starfar tamningaskóli á hverjum
vetri. Og engan skyldi undra það
í skólabænum, þótt einnig hross-
um sé kennt að ganga og hlaupa
og bera síg virðulega, og þar
verður oft góður hestur úr göld-
um fola, eins og þar stendur. Og
ef það hneykslar einhvern að tala
um skóla fyrir hesta, þá er því til
að svara, að ungviðin þarfnast
töluvert svipaðrar tilsagnar,hvort
sem þau ganga á tveimur fótum
eða fjórum. Og fróðlegt væri að
bera saman árangurinn af skóla-
starfinu.
í miðbænum eru þurrar götur
og þau kynstur af ryki á ráð-
lausri hreyfingu undan bílum og
blænum, að ekki er annað sýnna,
en því sé öllu ætlað að hafna í
nefi og lungum borgaranna. í
fyrra var ekki hægt að þvo göt-
urnar vegna vatnsskorts. Nú er
sú afsökun úr sögunni, en samt
er göturykið eins og dökkt ský í
miðbænum, þar sem flestir eru á
ferli og þar sem matvælaiðnaður-
inn er mestur.
Fyrsti ferðamannahópurinn,
sem hingað kom á þessu.sumri,
var frá Re.ykjavík, og verðandi
verzlunarfólk.
Þíðvindar og farfuglar eru
góðir og þráðir gestir úr suðri.
Ferðafólk er líka kærkomið. En
ekki söng þetta fyrsta ferðafólk
eins fagurlega og búast hefði
mátt við. Enda mun það hafa
verið forystulaust og kunni ekki
fótum sínum forráð. Urðu því
lögreglumenn og aðrir að taka að
sér leiðbeiningarstarfið að
nokkru, þar sem hið menningar-
lega veganesti úr skóla og heima-
húsum þraut.
Leiklistin er í hávegum hér á
Akureyri um þessar mundir og
hvert leikritið af öðru sýnt við
góða aðsókn. Leikfélag Akureyr-
ar er með fjórða verkefni sitt á
prjónunum og verður það sýnt
einhvern næsta dag, og MA sýndi
einnig gamanleik í vetur. Leitað
er til sunnlenzkra leikstjóra öðru
hvoru og setja þeir ferskan blæ á
leiklistarlífið.
Akureyrartogararnir draga
mikla björg í bú og við hrað-
frystihús ÚA er löngum mikil at-
vinna og kærkomin. Tvö togskip,
Sigurður Bjarnason og Björgvin
á Dalvík, bættust í skipaflotann
fyrir áramótin og hafa þau aflað
mjög sæmilega ásamt hinum
eldri fiskiskipum.
Hér er einnig mesti sægur af
trillubátum. Eigendur þeirra eru
flestir bundnir í fastri vinnu
meginhluta ársins. En um helgar
og „þegar vel veiðist“ geta þessir
litlu bátar borið furðu mikinn
afla að landi.
Hundruð manna hafa fasta at-
vinnu hjá iðnfyrirtækjum sam-
vinnumanna og annarra og setur
iðnaðurinn svipmót sitt á hinn
norðlenzka bæ. Hér er oftast
fremur rólegt, jöfn velmegun yf-
irleitt og ekki árstíðabundnir
fólksflutningar eins og í útgerð-
arbæjunum.
Hér í næsta nágrenni bæjarins,
að Hrafnagili, verður myndarlegt
félagsheimili vígt á morgun. —
Æska bæjarins sækir mjög sam-
komur sveitanna, því að hér í
bænum er vöntun á skemmti-
stöðúm fyrir ungu kynslóðina, en
myndarleg og vel búin félágs-
heimili örskammt frá.
Skólafólkið er að verða nokkuð
fölt á vangann eins og venja er til
þegar komið er að prófum. Von-
andi bíður atvinnan að prófum
loknum. En í því sambandi væri
vert að taka til athugunar, hvort
ekki væri hægt að auka mjög
þau viðskipti bæja og sveita, að
kaupstaðabörnin fengju að taka
þátt í framleiðslustörfunum hvért
eftir sinni getu, eftir því sem
bændur framast gætu haft þeirra
einhver not við vinnu. Sennilega
væri hægt að. auka þau samskipti
að mun og báðum aðilum til
nokkurs gagns. En að sjálfsögðu
verður að miða sveitadvöl kaup-
staðabarna við vinnu og ábyrgð-
arstörf við hæfi þeirra, en ekki
við iðjuleysi. — (29. apríl 1959,)
- Iðnskóia Ak. slitið
Framhald af 8. síðu.
anna verður í skólahúsinu næstk.
sunnudag kl. 1—7.
BRAUTSKRÁÐIR IÐNNF.MAR 1959:
Arnar Sigtýsson, rafvirki.
Bjarki I>. Baldursson, rafvirki.
Björgvin Leónardsson, rafvirki.
Einar Karlsson, vélvirki.
Eiríkur I. Ingvarsson, húsasmiður.
Grctar Ólafsson, húsasmiður.
Gunnar Þorsteinsson, rennismiður.
Hafsteinn Þorbergsson, rakari.
Haukur Guðinarss., ketil- og plötusm.
Hclga Hannésdöttir, kvenklæðsk..
Hildur Júlíusdóttir, hárgreiðslumær.
Hiirðtir Kristgeirsson, bifvélavirki.
Jóhannes Arason, bakari.
Jónas Jóhannsson, pípulagningam.
Kristján Árnason, prentari
Otto Tuliníus, vélvirki.
Rafn H. Gíslason, bifvélavirki.
Róbert Árnason, múrari.
Sigmar Sævaldsson, rafvélavirki.
Sigurður J. Jónsson, ketil- og plötusm.
Siguróli M. Sigurðsson, bókbindari.
Sigurst. Brynjar Jónsson, húsasmiður.
Skúli Svavarsson, skipasmiður.
Stefán Árnason, luisasmiður.
Steinberg Ingólfss., ketil- og plötusm.
Sveinn Tryggvason, húsgagnasmiður.
Þorsteinn Áskelsson, húsgagnasmiður.
ÞAHKAR OG ÞÝÐIK6AR
Upp með maðkinn!
Allir þekkjum við Akureyringar ánamaðkinu
stóra og góða, sem laxi og silungi þykir ljúffeng-
astur alls. Við tínum hann í mikilli rigningu eða á"
síðkvöldum í döggvotu grasi. í langvarandi þurrk-
um er oft erfitt að ná í maðk, og er þá helzt reynd
sú aðferð að taka Vatnsveitu Akureyrar í lið með
sér og vökva duglega. Ber það oftast árangur, en
lítinn, ef kalt er í veðri.
En þörf veiðimanna fyrir ánamaðk er víðar en
hér á landi. í bandarísku blaði stendur nýlega, að
efnaverksmiðja nokkur í Cleveland sé tekin að
framleiða efni nokkurt, sem hrært sé út í vatn.
Vatninu sé svo hellt á jörðina, og þá þurfi ekki að
bíða lengi, unz maðkurinn komi upp. Nóg af efni
þessu til þess að setja í 15 vatnsfötur kostar vestra
einn dal. — Skyldum við nokkurn tíma taka þessa
tækni í þjónustu okkar? Það er ekki alveg víst, að
maðkarnir yrðu mjög ódýrir — en hvað um það.
Er nokkurn tíma of dýrt það, sem laxinn tekur?
------o-----
í 12 mílna fjarlægð.
Kaupmannahafnarblaðið Politiken segir nýlega
frá því, að brezki ambassadorinn í Danmörku, Sir
Riderick Barcley, muni sigla á 11 þús. smélesta
beitiskipinu „Bermuda“ til Færeyja oð koma
þangað 25. júní. Eftir nokkurra daga dvöl þar munl
svo ambassadorinn halda áfram ineð skipinu til
Grænlands, í kurteisisheimsókn, en hann muni
sigla fram hjá íslandi í meira en 12 mlna fjarlægð.
Mikill öðlingur hlýtur maður sá að vera.
------o-----
Góðar gjaldeyristekjur.
Á árinu 1958 skildu erlendir ferðamenn eftir í
Danmörku erlendan gjaldeyri sem samsvarar 552'
millj. d. kr. Árið 1957 var upphæð þessi 100 millj.
kr. lægri. Danmörk er að verða eitt af helztu
ferðamannalöndum Norðurálfu.
----—o------
Björgun úr lífshættu.
1 borginni Sao Paulo í Brazilíu bjargaði fluga lífi
16 manna.
Þetta fólk vinnur á opinberri skrifstofu, það var
komið að kaffitíma, og einn starfsmannanna opnaði
kaffibauk og ætlaði að fara að hella upp á. Kom þá
fluga flögrandi og settist á baukinn. Maðurinn varð
undrandi, er hann sá fluguna velta um dauða, svo
að hann beið eftir annarri flugu, en það fór á sömu
leið fyrir henni.
Hætt var við að hella upp á kaffi úr þessum
bauk, og er innihald hans var rannsakað, kom £
Ijós, að banvænt eitur var í kaffinu.
---:—o------ i
Umhyggjan fyrir öðrum.
Læknirinn: Kvefið er enn mjög slæmt, en eg
óttast ekki, að úr því verði neitt verra.
Sjúklingurinn: Það er nú það, já. En sjáið þér til,
læknir. Ef þér hefðuð mjög vont kvef, þá myndi eg
heldur ekki óttast afleiðingarnar.
Ferðalög Bandaríkjamanna.
Sérfræðingar vestanhafs gizka á, að um 700 þús.
Bandaríkjamenn muni ferðast til Evrópu á þessu
ári.
------o------
Næstu Ólympíulcikar.
ítalir hafa tekið að sér að sjá um næstu Olympíu-
leika. Þeir verða haldnir í Rómaborg árið 1960. —
Margir leikvangar eru nú í smíðum, en þeir verða
13 alls með áhorfendapöllum fyrir'250 þús. menn.
ítalskur ráðamaður gizkaði á það fyrir skömmu,
að alls myndi undirbúningskostnaðurinn verða
um 28,8 millj. dollara, en þetta myndi þó svara
kostnaði. i