Dagur - 16.05.1959, Blaðsíða 8

Dagur - 16.05.1959, Blaðsíða 8
8 Bagur Laugardaginn 16. maí 1959 Úr frétfabréfi frá Húsavík Innaniandsflugið í sumar ■ Barnaskóla Húsavíkur var sagt upp í Húsavíkur-kirkju fimmtud. 30. apríl, kl. 14, að viðstöddu ijöl- menni. Mátti lieita, að hvert sæti í kirkjunni væri skipað. Skólastjór- inn, Sigurður Gunnarsson, flutti ýtarlega ræðu um starfsemi skól- ans á árinu, afhenti verðlaun og áv'arpaði að lokum barnaprófsbörn- in sérstaklega. Nemendur voru alls 215 og luku 30 barnaprófi, þar af þrír með ágætiseinkunn. Voru það þessar stúlkur: Heiður Sveinsdóttir, 9,02, Ingibjörg Helgadóttir, 9,03 og Sig- urhanna Jóna Salómonsdóttir, 9,54, sem er ein hæsta einkunn, sem nokkru sinni heíur verið tekin við skólann. Heilsufar var með. afbrigð- um gott og mættu langflest börnin hvern einasta skóladag. Allir mættu til prófs. Skólinn efndi til þriggja for- eldrafunda á starfstímanum. Skóla- stjóri og kennarar ræddu þar ýmis atriði, varðandi uppeldi og kennslu, og áttu að loknum fundum einka- viðræður við marga foreldra. Nárns- stjórinn, Stefán Jónsson, mætti á einum fundinum og flutti ávarp. Fundirnir voru allir sóttir sæmilega og hinir ánægjulegustu. Skólafélagið, — barnastúkan Pól- stjarnan, — starfaði vel í vetur eins og undanfarjð, og sóttu foreldrar fundi hennar mjög vel, öllum til ánægju. En hér hafa börnin leyfi til að bjóða pabba og mömmu með á fundina. Auk hinna reglu- bundnu félagsstarfa, fór stúkan í eina skemmtiferð í október og stóð fyrir dansnámskeiði fyrir jólin, eins og hún hefur gert í mörg ár. Verknámssalur drengja í skóla- liúsinu nýja var tekinn í notkun í byrjun október, en verknámssalur stúlkna strax úr áramótum. Veita þeir báðir ágæta aðstöðu til verk- námsins. Fimleikasalurinn nýi var tekinn í notkun 9. febrúar. Nokkru seinna, eða laugardaginn 21. febrúar, var svo efnt til hinnar árlegu fimleika- sýningar skólans og foreldrum sér- staklega boðið. Aðsókn var eins mikil og húsrúm frekast leyfði. Kom í Ijós, að áhorfendasætin rúma 170 manns í sæti, fullorðna. Við þetta tækifæri fluttu skólastjóri og for- maður fræðsluráðs ávörp, minntust hins stórmerka áfanga, sem nú er náð, í byggingu skólahússins og fluttu árnaðaróskir. — Með þessu fimleikahúsi hefur Húsavík eignazt eina glæsilegustu fimleikahöll, sem um getur á íslandi, og þótt víðar væri leitað. Taflstarfsemi fór alloft fram í vetur á vegurn skólans undir stjórn Þetta segi ég nú: FRIÐJÓN Skarphéðinsson deildi á okkur Framsóknar- menn í útvarpsumræðunum um daginn. Það var von, að hann gerði það. Við kusum hann síðast. HEFÐI mér dottið í hug, að hann gengist fyrir því að leggja niður Akureyrarkjör- dæmi, þá hefði hann aldrei fengið mitt atkvæði. Það kemst ekki inn í minn haus, að ÞAÐ sé „réttlæti“, enda hefur bciðni um slíkt aldrei komið frá kjósendum á Akur- eyri. NEI, uppspretta þessa „rétt- læíismáls“ er í Reykjavík. — Grípum hnútuna og köstum henni til baka í hausinn á þeim fyrir sunnan. — X. Sigurðar I-Iallmarssonar og Ingi- mundar Jónssonar. Að lokum var keppt um titilinn „skákmeistari skólans." I þeirri keppni bar sigur úr býtum Jón Olgeirsson, nemandi í 5. bekk. Hlaut hann níu vinninga af 9 mögulegum. Næstir voru Asgeir P. Sigtryggsson, 6. bekk, og Sigþór Sigurjónsson, 5. bekk, með sex og hálfan vinning hvor. Við skólaslit afhenti skólastjóri Jóni verðlaun, — fallegt manntafl, — frá skólanum fyrir afrekið. Heimsóknir gest. Prójasturinn heimsótti skólann, eins og fyrr, flesta mánudagsmorgna skólatímans og flutti morgunbænir. Námsstjórinn heimsótti skólann 8. nóvember og var hér í fjóra daga. Fyrsta daginn hafði liahn góðan fund með kennurum úr Suður- og Norður-Þing. En næstu daga hafði hann samband við alla bekki skól- ans og lagði verkefni fyrir efstu bekkina. Einn daginn, 11. nóv., mætti hann á foreldrafundi, sem skólinii boðaði til, eins og fyrr get- ur, og flutti ávarp. — 17. nóv. komu tveir skógrœktarmenn í heimsókn, ræddu við börnin um stund sant- eiginlega í samkomuhúsinu um skógrækt og gildi hennar fyrir ís- lendinga. Einnig sýndu þeir fall- egar litmyndir af skógrækt hérlend- is og af gömlum og nýjum skógum. — Umferðavika skólans hófst 26. janúar. Alla daga vikunnar heim- sótti lögregluþjónninn skólann og fræddi börnin um umferðamál, Svo skemmtilega vildi til, að nokkr- um dögum eftir að umferðavikunni lauk, heimsótti skólann erindreki Slysavarnajélags Islands. Ræddi hann um stund við öll börnin um umferðamál og sýndi þeim lær- dómsríkar kvikmyndir. Tveir jóla- sveinar heimsóttu skólann á litlu- jólum skólans, skemmtu börnunum um stund og fluttu kveðjur og ávaxtagjafir til allar frá vinaskipi skólans Arnarjelli. — Iþróttafull- trúinn, Þorsleinn Einarsson, kom í stutta heimsókn í apríl. — Heim- Framhald á 7. siðu Ákveðið er, að annað æsku- lýðsmót verði á Laugum í Reykja dal, S.-Þing., 13. og 14. júní í sumar. — Eins og í fyrra munu sóknarprestar úr Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum koma þangað með fermingarbörn sin, en jafnframt er óskað eftir því að sem flestir þátttakendur frá sl. sumri geti sótt mótið, þ. e. a. s. unglingar á aldrinum 14—16 ára. Æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar mun skipuleggaj mót fermingar- barna um allt land í sumar, eins og gert var í fyrra. — Mótin tók- ust mjög vel og var mikil þátt- Bakkabræðra- bandalagið Bakkabræður hinir fornu bundu einn bróðurinn í hrísbagga, létu höfuðið standa út úr, svo að það gæti sagt til vegar, og veltu svo bagganum niður fjallshlíðina. Þá fór illa, því að þegar hrísbagginn var kominn niður á jafnsléttu, vantaði höfuðið. Nú hefur valdafíkn og hræðsla við fylgishrun sameinað 3 stjórn- málaflokka í eins konar Bakka- bræðralag, sem hefur það verk- efni að leggja niður kjördæmi landsins utan Reykjavíkur sem slík, án þess þó að nokkurt ein- asta þeirra hafi óskað eftir því. Hinir nýju svarbræður tóku minnsta bróðurinn og bundu hann í nýjan hrísbagga, létu höf- uðið standa út úr og sögðu því að stjórna ferðinni þegar herferð- in hæfist. Þar kenndu menn ásjónu Emils Jónssonar. Og nú er herferðin ákveðin, hrísbaggann ber við loft á hæð- inni og það mótar lítillega fyrir einhverju, sem út úr stendur. Hjá þúst þessari stendur stór maður og stríhærður og glottir. Hann hefur bundið baggann og veit, að böndin bila ekki og hann veit líka, að þegar hann spyrnir fæti við honum tekur þyngdarlögmál- ið að sér alla fyrirhöfn og full- nægir endurtekningu hinnar gömlu sögu um Bakkabræður. TOGSKIPIN Snæfellið losaði 30—35 tonn á Dalvík á fimmtudaginn og Sig- urður Bjarnason 50—55 tonnum í Hrísey á miðvikudag. Trillubátar frá Ólafsfirði hafa fengið 8—9 þús. pd. eftir tveggja daga handfærav. við Grímsey. taka. — Á Laugum voru 140 fermingarbörn úr prestaköllum norðausturlandsins og allmargir prestar. Ríkti mikil ánægja yfir mótinu. í undirbúningsnefnd eru séra Pétur Sigurgeirsson, Akureyri, séra Sigurður Guðmundsson, Grenjaðarstað, og séra Sigurður Haukur Guðjónsson, Hálsi, Fnjóskadal. Þeir, sem ætla að taka þátt í mótinu, eru beðnir um að til- kynna það sóknarpresti sínum, sem gefur nánari upplýsingar. Innanlandsflugið verður rekið með svipuðum hætti í sumar og að undanförnu. Þó verður sú breyting á, að Skymasterflugvélin „Sólfaxi“ verður nú í fyrsta skipti í áætl- unarflugi innanlands. Til þessa hefur hún eingöngu verið send eina og eina ferð þegar ástæða hefur þótt til. Þá verða Viscount- flugvélarnar einnig í innanlands- flugi eftir því sem ástæðui' þykja til. Þessar flugvélar munu verða í innanlandsflugi þrjá daga í viku hverri: föstudaga, laugardaga og sunnudaga. Frá Reykjavík til Akureyrar verða tvær ferðir á dag, kvölds Aðalfundur Héraðssambands Suður-Þingeyinga var haldinn dagana 11. og 12. apríl að Skógum í Fnjóskadal í boði U. M. F. Bjarma. Mættir voru 32 fulltrúar. Formaðui' sambandsins, Óskar Ágústsson, setti fundinn og bauð velkomna fulltrúa og gesti, sér- staklega Þorstein Einarsson íþróttafulltrúa, er sat fundinn. — Þá minntist hann látins félaga, Jóns Forna Sigurðssonar, Forn- hólum, og bað fundarmenn rísa úr sætum og votta hinum látna virðingu. Formaðus flutti ýtarlega starfs- skýrslu. Hjá sambandinu störf- uðu bæði knattspyrnu- og frjáls- íþróttakennari og það tók þátt í annarrardeildarkeppninni. Einn- ig kom sambandið á keppni með- al unglinga á aldrinum 10—15 ára með líku sniði og á íþrótta- mótum F. R. í. Þetta er alger ný- lunda og þótti takast mjög vel og líklegt, að hún glæði mjög áhuga unglinganna fyrir frjálsum íþróttum. Sambandið kom á skólakeppni á vetrinum og þótti það hin bezta nýbreytni. í lok starfsskýrslunnar vakti form. at- hygli á því, að í sumum félögum væru forystumennirnir flestir komnir um eða yfir þrítugt og þar væri félagsstarfið hvað blóm- legast. í öðrum félögum gengju hins vegar flestir úr félögunum er þeir kæmu á Jjann aldur og færi það illa; Jsað veikti félögin og svipti Jjau reyndum forgöngu- mönnum og gæfi þeim yngri miður gott fordæmi; þ. e. ef menn yfirgefa félögin til að forð- ast þær kvaðir er þau leggja mönnum á herðar. Helztu samþykktir fundarins: „Aðalfundur H. S. Þ., haldinn 11. og 12. apríl 1959, lýsir yfir stuðningi sínum við útfærslu fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur. Jafnframt þakkar fundurinn land helgisgæzlunni trausta ög óhvik- ula framkomu í starfi sínu. Ennfremur vill fundurinn benda stjórnarvöldum landsins á þá staðreynd, að eftir meira en 7 mánaða staðfasta baráttu ís- lenzku þjóðarinnar um þetta lífs- hagsmunamál hennar, neitar hið brezka ofbeldi ennjiá að viður- kenna tilverurétt okkar. Lítur því fundurinn svo á, að grund- völlur fyrir stjórnmálasambandi bessara landa sé ekki lengur fyrir hendi og skorar því á ríkisstjórn- ina að slíta því.“ „Aðalfundur H. S. Þ. 1959 lítur svo á, að stjórnarskrármál ís- lenzka í'íkisins varði alla lands- menn, hvar í flokki sem þeir standa. Fundurinn telur, að vegna þess eigi ekki að draga 'únstök mál, eins og kjördænis- málið, út úr eðlilegri afgreiðslv væntanlegra stjórnarskrárbreyt- mga, sem ætl amá að komi fram 'hjá tilskipaðri stjórnarskrár- og morgna, og að auki miðdags- ferðir á þriðjudögum, fimmtu- dögum og föstudögum. Til Vest- mannaeyja verða einnig tvær ferðir alla daga, nema sunnudaga og mánudaga. Til ísafjarðar verða ferðir alla virka daga. Til Egilsstaða er flogið frá Reykjavík alla daga nema mánudaga og til Hornafjarðar verður flogið Jjris- var í viku. Tvisvar í viku verður flogið til eftirtalinna staða: Kópaskers, Þórshafnar, Húsavíkur, Fagur- hólsmýrar, Siglufjai'ðar, Þing- eyrar, Flateyrar, Patreksfjarðar, Blönduóss og Sauðárkróks. Einu Framhald á 5. siðu. nefnd. Fundurinn heitir því á alla velhupgsandi menn, innan þings ig utan, og beinir því til ungmennasambandanna í byggð- um landsins, að vinna gegn jDeim kjördæmabreytingum, sem þegar hafa verið lagðar fram á Al- þingi.“ „Fundurinn beinir þeim til- mælum til ritnefndar Skinfaxa, að senda sýnishorn af blaðinu á hvert heimili á sambandssvæðinu til kynningar, og ennfremur, að andvirði blaðsins verði innheimt með póstkröfu einu sinni á ári.“ „Aðalfundur H. S. Þ. 1959 sam- þykkir að skora á ungmennafélög héraðsins að hvetja alla skóla- stjóra á sambandssvæðinu til þess að koma á glímukennslu í skólum sínum, svo að allir piltar fái aðstöðu til að læra að glíma. Einnig felur fundurinn við- komandi ungmennafélagi að út- vega glímukennara, ef kennarar skóólans geta ekki annast kennsluna.“ „Aðalfundur H. S. Þ. 1959 lýsir megnustu óánægju yfir því ófremdarástandi, sem ríkir hér um innflutning á íþróttatækjum, þar sem tollar munu nú nema stundum 3/4 hlutum kaupverðs, og má í því sambandi nefna skíði. Telur fundurinn Jietta því verra sem íþróttir eru að flestra dómi heilbrigðasta tómstundaiðja allra, og þó einkanlega æsku- fólks. Skorar því fundurinn á fjármálaráðuneytið að lækka þessa innflutningstolla til stórra muna.“ „Aðalfundur H. S. Þ. 1959 stkorar á framkvæmdastjórn í .S. í. að stofna nú þegar slysatrygg- ingasjóð, sem nái til allra virkra íþróttamanan innan f. S. í.“. Þá var mikið rætt um land- græðslu, og er mikill áhugi ríkj- andi um það merka mál. Óskaði fundurinn eftir samstarfi við önnur félög í sýslunni um þessi efni. Héraðsheimili og félags- heimilabyggingar mikið rætt, og lýsti fundurinn yfir, að ekki mætti dragast að marka stefnu í þessu máli f.vrir héraðið. SamJjykkt var, að sambandið gengist fyrir héraðshátíð 17. júní næstkomandi að Laugum. Sambandið verður 50 ára 1964 og var nokkuð rætt hversu þess skuli minnst. Er í ráði að rita sögu sambandsins og komi hún út fyrir afmælið. Ymis fleiri mál voru rædd, svo sem gerð sögulegrar kvikmyndar úr héraðinu, stækkun íþrótta- vallarins að Laugum og síðast, en ekki sízt, íþróttastarfsemin, sem segja má að sé aðalmál sambands ins. Knattspyrnan er nú efst á baugi, hefur verið tilkynnt þátt- ‘aka í annarrardeildarkeppninni. Einnig var rætt um unglinga- keppni og hún ákveðin í sumar og þátttaka í íþróítaviku F. R. í., Frarnhald á 5. síðu. Frá fyrsta æskulýðsmótinu á Laugum. Þátttakendur við aðaldyr skólahússins. Æskuiýðsmót á Laugum í júní Tilkynnið sóknarprestum þátttöku Aðalfundur Héraðssamb. S.-Þing.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.