Dagur - 21.05.1959, Síða 1

Dagur - 21.05.1959, Síða 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út miðviku- dagirni 27. maí. XLH. árg. Akureyri, fimmtudaginn 21. maí 1959 27. tbl. Bernharð Stefansson Garðar Halldórsson Slökkviliðið á ferðinni SNEMMA á þriðjudagsmorgun var sliikkviliðið kallað að Sjöfn. í bak- hýsi var fullt af reyk en eldur lítill, og var liann þegar slökktur. Síðar sama dag kviknaði í rusli í Slippstöðinni. Sliikkviliðið kom þegar á vettvang, en eldurinn hafði þá verið kæfður. Gísli Ólafsson yfir- lögregluþjómi GÍSLI ÓLAFSSON, varðstjóri í lögregluliði Ákureýrarkauþstaðar, hefur nú verið ráðinn yfirlögreglu- þjónn í stað Jóns Benediktssonar, sem lætur af því starfi sökum ald- (iísli Ólafsson cr 49 ára og hefur starfað í lögreglunni frá 1940. „Þríflokkarnir vilja ekki á annað hlusta en að leggja niður núverandi kjördænii, enda þótt á því sé engin þörf til þess að jafna kosningaréttinn meira en nú er í þéttbýli og strjál- býli,“ sagði Bernharð Stefánsson, alþingismaður, m. a. í út- varpsumræðunum. Niðurlag af ræðu Bernharðs Stefánssonar, í eldhúsdagsum- ræðunum, fer hér á eftir: „Ég kem þá að því, sem mestu máli skiptir um þessar mundir, en það er kjördæmamálið. Stefna Framsóknarflokksins var skýrt mörkuð í kjördæmamálinu á þingi flokksins í vetur. Flokkur- inn vill byggja á héraðaskipun- inni og einmenningskjördæmum sem aðalreglu, en hlutfallskosn- ingum í stærstu kaupstöðunum sem undantekningu, vegna þess hve erfitt er að finna þar eðlileg tákmörk fyrir skiptingu í mörg kjördæmi, enda hver kaupstaður félagsheild fyrir sig. Þessari skip- Eddá Eiríksdóttir Björn Stefánsson Framboð ákveðin í Eyjafj.sýslu í gær ákváðu Framsóknarmenn framboð flokksins í Eyjajarðarsýslu Bernharð Stefánsson, alþingis- maður, skipar efsta sæti og þarf ekki að kynna hann eyfirzkum kjósendum með mörgum orðum. Þróunarsaga héraðsins og þing- mannsstörf Bernharðs eru saman tvinnuð um áratugi. Hinn kunni þingmaður nýtur fulls trausts Framsóknarrnanna og raunar hér aðsbúa allra. í blaðiriu í dag er birtur hluti af einni síðustu þing ræðu Bernharðs. Garðar Halldórsson, bóndi og oddviti á Rifkelsstöðum, skipar annað sæti listans. Hann hefur búið ágætu búi á Rifkelsstöðum síðan 1927, verið oddviti sveitar sinnar mörg hin síðári ár, setið á Búnaðarþingi, sem fulltrúa ey- firzkra bænda um árabil og á þingum Stéttarsambands bænda og í tvennum síðustu alþingis- kosningum hefur hann skipað framboðslista Framsóknarmanna í Eyjafjarðarsýslu. Garðar er at- orkuduglegur bóndi, mikill mála- fylgjumaður og nýtur óvenjulega mikils trausts í heimasveit sinni, meðal þeirra er þekkja hann hezt. Kona hans er Hulda Davíðs dóttir og eiga þau tvo syni upp- komna. Frú Edda Eiríksdóttir, Brynj- ólfssonar frá Kristnesi, húsfreyja að Stokkahlöðum, skipar þriðja sæti listans. Hún er aðeins 23. ára, lauk stúdentsprófi á AÍíur- eyri 1955 og síðan kennaraprófi 1958 og er nú skólastjóri barna- skólans í Hrafnagilshreppi. Eig- inmaður Eddu er Rafn Helgason, bóndi og bifvélavirki. Frú Edda er glæsilegur fulltrúi eyfirzkra húsmæðra. Björn Stefánsson, kennari, ÓI- afsfirði, skipar fjój-ða sæti fram boðslistans. Hann er 45 ára og hefur verið kennari í Ólafsfirði um 15 ára skeið og skólastjóri iðnskólans þar. Mörg önnur trún aðarstörf hefur hann annazt, m. a. er hann form. stjórnarnefndar kaupfélagsins. — Kona hans er Júlíana Jónsdóttir. Björn Stefáns son er þekktur að dugnaði og nýtur mikilla vinsælda, jafnt í félagsmálastörfum sem í öðrum störfum. Sæti það á listanum er hann skipar mun því vel skipað. En fiskverðið er lágt li já Grænlandsverzlim Dana Um 60 færeysk fiskiskip munu veiða við Grænland í sumar, þar af 11 togarar. Einnig mun fjöld- inn allur af trillum róa frá ýms- um verstöðvum, sem Færeyingar hafa komið sér upp þar í landi Megn óánægja ríkir meðal Færeyinga með þá ráðstöfun Dana, að Færeyingar, sem róa frá verstöðvum á Grænlandi, verða að leggja inn fiskinn hjá Grænlandsverzluninni, fyrir mun lægra verð, heldur en fæst heima í Færeyjum, og verður því að bæta sjómönnum þetta upp af al- mannafé heima fyrir. Þykir þeim að vonum orðin hláleg réttarstaða þeirra í danska ríkinu, að á sama tíma og allir aðrir danskir ríkisborgarar hafa jafnan atvinnulegan rétt á við þá í Færeyjum, eru þeim settar atvinnulegar hömlur í öðrum hluta danska ríkisins. Færeying- ar eru annars að koma sér upp hraðírystihúsi í Færéyingahöfn í Grænlandi, og er hugmyndin að flytja hraðfryst flök beint þaðan á markað í Bandaríkjunum. an fylgi erigin uppbótarsæti. Hinir flokkarnir allir hafa tek- ið afstöðu gegn þessari stefnu og halda því fram jafnvei, að þeir hafi orðið að grípa til gerbylting- ar á kjördæmaskipuninni vegna þess, að Framsóknarflokkurinn hafi ekki viljað hlusta á neitt nema þessa stefnu sína í kjör- dæmamálinu. Framsóknarflokknum var þessi afstaða hinna flokkanna vel Ijós, og flokknum var vel Ijóst, að honum bar að gera allt, sem í hans valdi stóð, til þess að hafa áhrif á, hvað gert yrði í kjör- dæmamálinu, og reyna að afstýra því versta, en það versta var að flokksins dómi afnám héraða- kjördæmanna. Fyrir þessu var ráð gei’t á flokksþingi Framsókn- armanna og í miðstjórn hans og þingflokki. Flokkurinn ákvað að gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að koma á miðlun í málinu á Al- þingi. Tillögur flokksins til breytinga á stjórnarskrárfrumvarpinu hafa því allar verið við þetta miðaðar og byggðar á því, að hægt er að jafna kosningaréttinn með því að fjölga kjördæmaþingmönnum í þéttbýlinu, en héraðakjördæmin standi. Og ef á þetta yrði fallizt til miðlunar, þá yrði að sætta sig við uppbótarsæti áfram og hlut- Framhald d 5. siöu. Samvinnutrygpgar í örum vexti Iðgjaldatekjur á sl. ári 60 rnillj. kr. Aðalfundur Samvinnutrygginga var haldinn í Reykjavík laugar- daginn 9. þ. m. Frá höfninni: Nýi báturinn Áskell, Grenivík, lengst til vinstri. — ("Ljósmynd E. D.) Formaður félagsins Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjórnarinnar, en framkvæmda- stjóri félagsins, Ásgeir Magnús- son skýrði reikninga þess og flutti skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári, sem var 12. reikn- ingsár félagsins. Heildariðgjaldatekjur Sam- vinnutrygginga námu tæpum 60 milljónum króna árið sem leið, og höfðu þær aukizt um 27% á árinu. Tjónin námu röskum 40 milljónum króna. Aðalfundurinn samþykkti að endurgreiða þeim, sem tryggt höfðu hjó félaginu, samtals kr. 3.211.000.00, og hefur félagið þá endurgreitt til hinna tryggðu samtals kr. 17.734.000.00 frá því að félagið byrjaði að úthluta tekjuafgangi fyrir tíu árum síð- an, en það er stofnað haustið 1946. Iðgjalda- og tjónasjóðir félags- ins námu í árslok samtals kr. 73.598.000.00, og höfðu aukizt um rúmar 16 milljónir á árinu. Framhald d 7. siðu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.