Dagur - 31.07.1959, Blaðsíða 7
IF’östudaginn 31. júlí 1959
DAGUR
7
- Þankar og þýðingar
Framhald af 5. siðu.
Viljið þér gjöra svo vel að segja
herranum hérna fyrir neðan, að
hann reyki svo mikið, að ég geti
ekki sofið.
Þá tók maðurinn í neðra rúminu
pípuna úr munninum og sagði:
— Þetta er Jönsson liúsameistari
frá Emmabotla. Viljið þér gjöra svo
vel að segja herranum olan við'
mig, að hann hafi stjórnað landinu
þannig, að ég hafi ekki getað solið
í mörg ár!
Olaf Poulsen
(1849—1923), danskur leikari.
Olaf Poulsen gekk eitt sinn inn
á sviðið sem riddari lrá miðöldum
og hóf eintal sitt:
— Hestur minn stendur fyrir ut-
an...
Hann komst ekki lengra. Vand-
ræðaþögn. Hvíslarinn gerði sitt
bezta til þess að koma Icikaranum
á sporið aftur, en það varð til
einskis. Hann stóð þarna hinn ró-
legasti og virtist ósnortinn af ástand
inu.
Að lokum sagði hann:
— Það er að líkindum bezt að ég
skreppi út sem snökkvast og athugi,
livort klárinn er ekki þarna enn-
þá!
Hann kom aftur að vörmu spori
og hélt áfrarn þar sem frá var horf-
ið, cins og ekkert hefði í skorizt!
Thorkild Rovsing
(1862—1927), prófessor í skurðlækn-
ingum við Kaupmannahafnar-
háskóla.
Prófessor Rovsing geltk stofugang
á Ríkissjúkrahúsinu með liinn
vcnjulega skara af kandídötúm og
lijúkrunarkonum á hælum sér.
— Afsakið, hr. -prófessor, sagði
cinn kandídatanna. Má ég leiða
athygli yðar að því,- -að þér eruð
með hitamæli á bak við eyrað?
— Guð minti góðuTy sagði pró-
fessorinn, ltvað er þá orðið af penn-
anum mínum?
Eitt sinn skar Rovsing upp
bóndakonu frá Fjóni við botnlanga
bólgu.
Á meðan konan svaf af deyíi-
lyfjunum, kallaði hún hvað eftir
annað:
— Kysstu mig, Jcns, kysstu mig!
Þegar konan var heilbrigð orðin
og var að fara af sjúkrahúsinu,
kvaddi hún prófessorinn, sem sagði
við hana:
— Líði yður nú sem bezt, og ég
bið kærlega að heilsa Jens!
— Nei, sagði konan glöð. Þekkir
prófessorinn vinnumanninn okkar?
James Whistler
(1834—1903), bandarískur málari.
í matarveizlu nokkurri lenti Mr.
Whistler eitt sinn við borð and-
spænis miðaldra manni, sem var sí-
talandi.
— Annars get ég sagt yður það,
Mr. Whistler, sagði sá símalandi
meðal annars, að ég gekk fram hjá
húsinu yðar í gær.
— Það er ég yður þakklátur fyrir,
svaraði Mr. Wliistler.
Kona nokkur gagnrýndi mjög
Suður-Evrópubúa í áheyrn Whist-
lers og sagði meðal antiars, að þessi
nafntogaða kurteisi þeirra væri að-
eins á yfirborðinu.
— Já, en þér verðið að viður-
kenna, sagði Wistler, að það er nú
býsna þægilegt að hafa hana þar.
— Ýmis tíðindi
Framhald af 8. siðu.
óður en það er slegið. Annars
þarf ekki að kvarta yfir því að
hey hafi hrakizt mjög mikið.
Haganesvík 29. júlí.
Heyskapur gengur sæmilega
og útlit er fyrir mikinn heyfeng,
því að sprettan er mikil. Nokkrir
bændur munu vera búnir að
hirða fyrri slátt.
Unnið er að vegagerð frá
Reykjarhóli og út undir Sandós
með 2—3 jarðýtum og ræsi
byggð. Sennilega verður þó ekki
meira gert í sumar en að ýta upp
veginum.
Unnið er með tveim skurð-
gröfum að landþurrkun í Holts-
hreppi, en búizt er við að önnur
skurðgrafan verði flutt hingað í
Haganeshrepp áður en langt líð-
ur.
Umferð er gífurleg og sýnast
flestra leiðir liggja til Siglufjarð-
ar um þessar mundir, enda at-
vinna þar alveg óvenjulega mikil
við síldarsöltun og fleira.
Bíll til sölu
í Aðalstræti 13.
Til sölu!
Fjögra manna Moskvitch-
bifreið frá 1955, í mjög
góðu ásigkomulagi. Upp-
lýsingar gefur
Knud E. Hansen, Skjaldarvík.
Akureyringar eru
miklir ræðarar
Róðrarmót íslands fór fram í
Skerjafirði um síðustu helgi. —
Keppt var í vegalengdum: 500,
1000 og 2000 metrum og ungling-
ar kepptu í 1000 m. vegalengd.
Róðrarklúbbur Æskulýðsfé-
lags Akureyrarkirkju vann í
þremur greinum af fjórum. —;
Sveitina skipuðu: Knútur Val-
mundsson, Jón Gíslason, Róbert
Árnason, Stefán Árnason og Gísli
Lórenzson (stýrimaður). — Þessi
róðrarsveit hefur áður getið sér
mikinn orðstír og virðist ekki í
neinni afturför.
•iMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiuifn*
= -
BORGARBÍÓ
SlMI 1 500 f
Næsta mynd:
| GULLNI FÁLKINN |
(il Falco d’Oro). i
| Bráðskemmtileg og spennandi 1
\ ný, ítölsk kvikmynd í litum og i
| Kdi I )
j Þessi kvikmynd hefur alls i
: staðar verið sýnd við mjög |
j mikla aðsókn, enda óvenju i
i skemmtileg og falleg. — Mynd j
j sem allir ættu að sjá og allir |
hafa ánægju af. |
jAðalhlutverk: j
Massimo Serato,
Anna Maria Ferrero, i
Nadia Grey.
| ATH. Cinemascope-myndir i
sýndar á mikið stækk j
uðu tjaldi af nýjustu i
j gerð. j
7u uiiiiiiiiin i iii iiiiiii ii ii ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 11111111111111»
MIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMllt
| NÝJA-BÍÓ
j Aðgiingumiðasala opin frá 7—9 j
SPORTBOLIR og
SÓLFÖT barna.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
DÖMUR! Fyrir verzlunarmanna- helgina PEYSUR úr ull og bómull, BLÚSSUR, verð frá kr. 95,00. — SPORTBUXUR, köflóttar STUTTBUX- UR, margir litir. Hvergi meira úrval. VERZL. DRÍFA SÍMI 1521
Um helgina:
BETLISTÚD I
ENTÍNN -j
(DER BETTELSTUDENT.) í
Þýzk úrvals músikmynd í lit- i
um, byggð á hinni frægu j
cpcrcttu með sama nafni eftir i
Carl Millöcker.
sýndi þessa óperettu í vor við i
fádæma undirtektir og góða j
aðsókn.
Aðalhlutverk:
GERHARD RIEDMANN [
og
WOLTRAUT HAAS.
I Mlllllllllllllllll.......1111111111111.....11111111111 lllllllllll?
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemur, 2.
ágúst, kl. 10.30 árdegis. Sálmar
nr.: 143 — 384 — 144 — 351 —
648. — P. S. — Messað í Lög-
mannshlíðarkirkju kl. 2 e. h. á
sunnudaginn kemur, 2. ágúst. —
Sálmar nr.: 534— 384 — 144 —
143 — 97. — P. S.
®Um aðra helgi (8.
og 9. ágúst) verður
farið í ferðalag um
Skagafjörð á vegum
Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju
og tekið þátt í móti í sumarbúð-
unum á Löngumýri. — Yngri
Dátttakendum einnig heirnil þátt-
taka. Nánar í næsta blaði.
Fundur. Vegna ónógrar fund-
arsóknar á aðalfundi Veiðifélags
Eyjafjarðarár, 26. júlí, til þess að
ganga frá samþykktabreytingum,
verður haldinn fundur að Laug-
arborg 6. ágúst kl. 9 síðdegis, og
þar gengið frá nauðsynlegum
breytingum til samræmis við
landslög.
Sjálfsbjargarfélagar! Ókeypis
sundtímar í sundlauginni á
hverjum sunnudegi frá kl. 5—6
e. h. Nánari upplýsingar gefur
Emil Andersen.
Gjafir og áheit á Flateyjar-
kirkju. — 1957: Jón H. kr. 500. —
Guðríður Kr. kr. 200. — Jóh. Kr.
100. — Frá Reykjavík, N. N., kr.
150. — Sesselja Kr. kr. 130. —
Jón Hólmg. kr. 100. — Björgvin
P. kr. 200. — Sigurbj. S. kr. 200.
— Flateyjarhreppur kr. 2000.00.
— Samtals kr. 3.580.00. — 1958:
Ævar H. kr. 500. — Aðalbj. H.
kr. 500. — Jón Hólmg. kr. 600. —
Guðríður Kr. kr. 400. — M.b.
Pétur Jónsson kr, 300. — Hildur
H. kr. 100. — Jóh. G. Jóh. kr.
100. — Bára Herm. kr. 50. —
Hermann J. kr. 1.100. — Her-
mann R. kr. 30. — Unnst. E. kr.
5. — Ásta H. kr. 30. — Elsa H.
kr. 5. — Samtals kr. 3.720.00. —
Hjartans þakkir. Sigurbjörn.
Athugasemd
í dagblaðinu Tímanum birtist
igféih,' 18. þ.' ín. undjr fyrirsögn-
inni ■Sáeðingatstöðvap leýsa náut-
in af hólmi. Þar er lauslega rakin
saga nautgripasæðinga hér á
landi. í greininni segir að sæddar
séu um þúsund kýr á ári frá
sæðingarstöðinni á Grísabóli á
Akureyri. Frá 1952 hefur tala
þeirra kúa, sem sæddar eru á
starfssvæði stöðvarinnar stöðugt
vaxið og var 1958 á fjórða þús-
und, og ennþá mun þeim fjölga á
þessu ári, enda komið fyrir að
sæddar hafa verið um og yfir 40
kýr á dag nú í sumar. — Kunna
bændur vel að meta þau þægindi,
sem þessu fyrirkomulagi eru
samfara, svo og að eiga þess kost
að fá sæði úr viðurkenndum kyn
Hjúskapur. Þann 18. júlí voru
gefin saman í hjónaband brúð-
hjónin Auðbjörg María Sigur-
steinsdóttir og Kristinn Jónas
Steinsson húsasmiður. — Heim-
ili Mýrarvegi 122, Akureyri. —
Þann 25. júlí brúðhjónin Sigríður
Dagmar Óskarsdóttir og Gunnar
Þór Þórðarson, pípulagningar-
nemi. Heimili Barmahlíð 37,
Reykjavík. — Þann 25. júlí brúð-
hjónin Guðný Kristjana Kjart-
ansdóttir og Pétur Eggertsson,
vélvirki. Heimili Hjaltareyrar-
götu 1, Akureyri. — Þann 26.
júlí brúðhjónin Kristín Guðrún
Guðmundsdóttir og Sigtryggur
Jón Helgason, gullsmiður, Skóla-
stíg 3, Akureyri.
Hjúskapur. Hinn 27. júní sl.
gifti sóknarpuresturinn á Völlum
Hrein Heiðmann Jósavinsson frá
Auðnum í Öxnadal og Margréti
Helgu Aðalsteinsdóttur frá Flögu
í Hörgárdal. Ungu hjónin hafa
reist bú á Auðnum. — Ennfrem-
ur 2. júlí: Höskuld Bjarnason frá
Hátúni á Árskógsströnd og Ingi-
björgu Ólafsdóttur.
Dánardægur. Hinn 25. júní sl.
andaðist að heimili sínu, Litla-
Koti á Upsaströnd, ekkjan Krist-
in Jónfríður Gunnarsdóttir, 97
ára gömul, fædd 6. maí 1862. Var
hún elzt allra íbúa Vallapresta-
kalls. — Ennfremur er látin frú
Valgerður Júlíusdóttir, kona
Eiðs Sigurðssonar, fyrrverandi
bónda á Ingvörum og víðar.
Ferðafélag Akureyrar fer í
Iíerðubreiðarlindir n.k. laugar-
dag kl. 1.30. Ennþá nokkur sæti
laus. Upplýsingar i Skóverzlun
Lyngdals, sími 2399, og á skrif-
stofu félagsins, simi 1402 kl. 8—
10 e. h.
Umferðamálin. Hér í bænum
er nú meira gert að því en áður,
að merkja götur og gangstéttir
vegna umferðarinnar, og er það
þakkarvert. Umferðamenning-
unni er þó i mörgu áfátt eftirsem
áður og þarf ekki lengi að virða
fyrir sér umferðina hér í bænum
til að sjá það, að þörf er á meiri
fræðslu um þau efni, og gildir
það jafnt um stjórnendur öku-
tækja og.gapgandi fólk. — Ólv-
un-og qf hi'Sðtir'akstúr eru tíðast
orsakir bifreiðaslysa • yfirleitt og
segja þær orsakir einnig til sín
hér hjá okkur. — Hér í blaðinu
hefur oft. verið bent á umferða-
viku, sem nokkra úrbót, hvað
snertir almenna ^ þekkingu í
venjulegri umferð og er minnt
hér á hana einu sinni enn.
Tvö sundmet sett á
Akureyri nýlega
Á sundmóti KA fyrir nokkru
setti Rósa Pálsdóttir nýtt Akur-
eyrarmet í 50 m. baksundi og
synti húnu vegalengdina á 45,1
sek. Eldra metið, 46,2 sek., sett
nú í vor, átti Rósa sjálf. Önnur í
bótanautum.
&VOLÐFERÐIR
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna efnir til kvöld-
ferða þriðjudagskvöldið 4. ágúst og finnntudags-
kvöldið 6. ágúst. Á þriðjudagskvöldið verður ek-
ið t-il Dalvíkur og um Svarfaðardal, en á fimmtu-
dagskvöldið verður ekið um Höfðahverfi og kom-
ið við í Vaglaskógi. Öllum heimil þátttaka! Lagt
verður af stað frá Ferðaskrifstofunni kl. 7.30 bæði
kvöldin. — Fanniðar á kr. 30.00 verða seldir á
skrifstofu verkalýðsfélaganna og á Ferðaskrif-
stofunni.
S t j ó r n i n.
í öðru tímablaði nú fyrir
skömmu var birt mynd og sagt
frá tvíkelfdri kú og sagt að frem-
ur sé sjaldgæft að kýr séu tvi-
kelfdar. Hér um slóðir er slíkt
ekki óalgengt, þótt ekki sé til
hagsbóta, og nú sl. vor fæddust
þríkelfingar hjá Óttari bónda
Ketilssyni á Árbæ í Hrafnagils-
hreppi. Voru það allt kvígur,
frískar og fallegar, og lifa allar.
Faðir þeirra er Skjöldur Reyk-
dal, elzta naut sæðingarstöðvar-
.innar. — H. J.
keppninni varð Erla Möller, sem
synti á 45,8 sek., einnig undir
eldra mettímanum. Helga Har-
aldsdóttir sigraði í 50 m. bringu-
sundi á 42,4 sek., sem er einnig
nýtt Akureyrarmet, hið eldra
átti Ásta Pálsdóttir, 43,9 sek. —
Árangur Helgu er hinn 3. bezti
hérlendis í ár. Hreinn Pálsson
vann 50 m. bringusundið á 40,6
sek., Eiríkur Ingvarsson og Óli
Jóhannsson syntu 50 m. skrið-
sund á 31,4 sek., Sigrún Vignis-
dóttir vann telpnakeppni í 50 m.
bringusundi á 47,5 sek.