Dagur - 26.08.1959, Blaðsíða 4

Dagur - 26.08.1959, Blaðsíða 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 26. ágást 1959 Daguk Skrifstnfa i HafAarsrraUi ‘)ll — Sítni H66 KITSTjéRh ERLINGUR O A V í I) S S O N AtigtvNÍHgdM ji>ti: J « X S X MÍ? ELSSOX ÁtgangUrinn kostai kr. 75.00 Hlaíiið kemur ót á iniðvikttitiígum og iaugardtigtini, f,cSar t'fni stanila til Ojaldttagi er 1. jútí PRENTVERK <)l)hs HJÖRNSSONAR M.F. FÁNÝTAR HUGLEIDINGAR „ALÞÝÐUMANNSINS44 NÚ ÞEGAR undirbúa stjórnmálaflokkarnir bar- áttu sína fyrir liaustkosningarnar, sem fram eiga að fara tuttugasta og fimmta og tuttugasta og sjötta október næstkomandi. Svo sem að líkum lætur er ákvörðun framboða í hinum emstöku kjördæmum liður í þeim undirbúningi. En lands- menn utan Reykjavíkur hafa nýjan vanda við að glíma vegna hinna breyttu kjördæmaskipunar. — Erfiðara er nú en áður að velja þingmannsefni 1 fyrir hin stóru kjördæmi. Sú staðreynd blasir við, þrátt fyrir áróður og vísvitandi villandi ummæli þríflokkanna um liina dásamlegu einingu, sam- stöðu og samábyrgð, að hin fyrri kjördæmi, sem nú eru lögð niður og svift sérstökum fulltrúum, ! eru eftir sem áður félagslegar, efnahagslegar og víða landfræðilegar heildir með ólíkar aðstæður og verða það eftirleiðis. Þess vegna var það hið i mesta óftappaverk, að kjördæmabreytingm varð ! með þeim hætti, sem raun er á orðin. ! Menn láta sér tíðrætt um fyrirhuguð framboð í hinum nýju kjördæmum, og eftir því sem nær dregur úrslitum á niðurröðun á lista, verður ! mönnum það æ ljósara, hve hin nýja kjördæma- ' skipan er ákjósanleg til þess að grafa undan rétt- mætri áhrifaaðstöðu byggðanna á þróun hinna opinberu mála. í umræðum gizka menn á fráleita i hluti, reyna að spá o. s. frv. En hitt er greypt í 1 vitund alþjóðar, að kaupstaðaflokkarnir hafa söls- að undir sig dýrmætan rétt með því að hafa rangt við. Síðasta tölublað „Alþýðumannsins“ vitnar mjög ' áberandi um hneigðir manna til þátttöku í um- ræðum um framboðin, og kemur þar fram meiri vankunnátta og hneigð til beinna Gróusagna en ! blöð ættu að láta sér sæma að bera á borð fyrir lesendur sína. Þar segir til dæmis, að sagan segi ! „að Bernharð Stefánsson vilji ekki láta af þing- mcnnsku“, Eyfirðingar liafi fundið ráð tilað„losna i við Garðar“ og hvernig eigi að lofa Ingvari að komast inn á Alþingi. Með því að umrædd grein „Alþýðumannsins“, sem birt er á fyrstu síðu ' blaðsins, undir tveggja dálka fyrirsögn, er upp- spuni og hinn mesti þvættingur, að því er sneríir 1 framboð Framsóknarflokksins hér. Ætti ritstj. hið bráðasta að birta leiðréttingu, sér og blaði i sínu til afsökunar. ' Um sögur „Alþýðumannsins“ gagnvart öðrum i flokkum skal látið hlutlaust, en aðeins á það bent, ; að um framboð Alþýðuflokksins er ekki vikið ! einu orði, að öðru leyti en því, að það verði gert ! einhvern tíma seinna. Um framboð þess flokks j var þó trúlegast að blaðinu væri kúnnugast. | í sama tölublaði og vitnað er til hér að ofan gef- ur ritstjóri „Alþýðumannsins" lesendum sínum allglögga mynd af þjónslund sinni við íhaldið, með rætnum skrifum um kaupfélög landsins og Sam- [ 'bandið. Ilann fer þar sömu blindgötu og Morgun- blaðsmenn. En það er sannarlega gott fyrir liina mörgu, scm lyft hafa Grettistökum í samvinnu- ' starfinu, að fá það jafn skihnerkilega staðfest hverjir vilja rýra hlut samvinnumanna, hverjir það eru, sem eru raunverulegir óvinir tiinna ^ frólsu samtaka fólksins í kaupfélögum landsins. Reiður bifreiðastjóri sendir blaðinu eftirfarandi: „ÚT AF grein í Degi um mis- notkun bíla í opinberri þjónustu hér í bænum, vil eg fá eftirfar- andi upplýst: 1. Er átt við einhvern einn, sem misnoti aðstöðu sína á kostnað almennings? 2. Hver er hann þá og vill blaðið ekki ganga hreint til verks og birta nafn hans, svo að aðrir liggi ekki undir grun? 3. Hver er ákærandinn í þessu máli? 4. Eru bifreiðastjórar í þjónustu opinberra stofnana hér í bæ of vel launaðir? 5. Er ástæða til að sverta heilan hóp manna, þótt finnast kunni, að einhvers staðar væri pottur brotinn?“ Svar: Blaðið þakkar þetta bréf og ýmsar athugasemdir frá fleiri mönnum, sem finnst að til sín hafi verið talað. Sýnir þetta að greinin um misnotkun bifreiða í opinberri þjónustu hér á Akur- eyri hefur verið lesin og skilin — og ennfremur að mörgum finnst sérstaklega átt við sig. En þá skal vikið að spurningunum, hverri fyrir sig. Fyrsta spurning svarast neit- andi, og er þá annarri spurningu svarað um leið. Við þriðju spurningu liggur svarið ljóst fyrir. Greinin er nafnlaus og því á ábyrgð blaðs- ins. Fjórða spurning kemur þessu máli ekkert við. Ekki er þó ástæða til að ganga fram hjá henni. Bent skal á, að launamál bifreiðastjóra eru ekki tengd einkanotkun á bifreiðum í kaup- og kjarasamningum. Fimmtu spurningunni ættu hin opinberu fyrirtæki að svara með því að setja ákveðnar reglur um staðsetningu bifreiða sinna og meðferð, þegar þær ekki eru í notkun, í stað þess, sem nú virð- ist nokkuð algengt, að bifreiða- stjórarnir noti bílana sem sína eign til eigin afnota, þegar dag- legum vinnutíma lýkur. — Hvað eftir annað hafa blaðinu borizt fyrirspurnir um þessi mál og mörg dæmi nefnd. Þess vegna þykir rétt að vekja athygli á þessu á opinberum vettvangi. Greinin um misnotkun bifreiða er alvarleg ábending til þeirra fyrst og fremst, sem fyrirtækjum stjórna. Þeim er skylt að svara til saka, ef þeir láta það viðgang- ast að gálauslega sé farið með sameiginlega eign borgaranna. Hér er því ekki haldið fram, að opinber fyrirtæki megi ekki undir neinum kringumstæðum lána starfsmanni sínum bifreið til einkanotkunar — þegar mikið liggur við. En það ætti þó að til- heyra undantekningum. . Hins vegar hlýtur almenningur að líta það tortryggnu auga, er hann sér nefndar bifreiðir í skemmtiferðum, við heyskap eða aðflutninga á byggingarefni í prívathús eða jafnvel „rúnt- keyrslu" í miðbænum á síð- kvöldum, svo að eitthvað sé nefnt. Sé slíkt með leyfi fyrir- tækjanna og gjald komi fyrir, ætti það að koma í Ijós á reikn- ingunum. í þessu sambandi skal hér að lokum bent á Mjólkursamlag KEA sem fyrirmynd. Þar er bif- reiðunum lagt á vinnustað að dagsverki loknu, svo sem þéir taka eftir er þar eiga leið. Hvers vegna ekki að hafa þann hátt á annars staðar? Eða vilja fyrir- tækin liggja undir grun, svo að ekki sé nú meira sagt, um vönt- un á heiðarleika í meðferð fjár- muna? Auðvitað áttum við skilið jafntefli. ÍSLENZKIR íþróttafréttaritar- ar — það eru mínir menn. Þeir eru alltaf sanngjarnir í okkar garð, og eiga til frásagnargleði í ríkum mæli. „Ríkarður hefur brotizt í gegn! Hann lyftir fætinum og ætlar að sparka — en. .. . “ . Já, það er reyndar satt, að þetta „en“ heyrist nokkuð oft, en hvað um það. Einhvern tíma verða þeir að segja en, það er svo al- gengt orð, og hví ekki segja það af tilfinningu. I einu Reykjavíkurblaðanna var sagt frá landsleiknum við Norðmenn. Fyrirsögnin var: fslendingar áttu skilið jafntefli. Auðvitað áttum við það skilið, og eg hef lúmskan grun um, að við ■ höfum átt enn betra skilið, kann- ■ ski ekki vegna frammistöðu, heldur af því bara. Fyrri liálfleikur. Blaðið lýsir fyrri hálfleik, og þar stendur orðrétt: „Norska lið- ið hefði átt að vera þremur til fjórum mörkum yfir í hálfleik.“ Já, það er nú það. En við hefðum nú samt átt skilið að standa okk- ur betur. Þetta var nú erfitt ferðalag, mjög heitt í veðri stund um, og maturinn ekki ávallt sem heppilegastur. Þrátt fyrir allt var aðeins eitt mark skorað í fyrri hálfleik og ekki munaði nema hársbreidd að við fengjum jafntefli, sem við áttum sannar- lega skilið. Síðari háltleikur. í frásögn blaðsins stendur orð- rétt: „f síðari hálfleik jafnaðist leik- urinn nokkuð. Noregur var þó sá aðilinn, sem átti meira í leikn- um.“ Það er engin sanngirni í því, að sá aðilinn, sem meira á í leiknum, þurfi endilega að vinna. En samt fór það nú svo. Norð- menn gerðu tvö mörk, dæmalaus óheppni, íslendingar eitt. í fyrirsögn blaðsins stendur, að íslendingar hafi átt skilið jafn- tefli, og eg er sannfærður um, að það er rétt. Við erum miklu færri en Norðmenn, og knatt- spyrnumennirnir okkar eru Ijóm- andi strákar, afbragðsstrákar. — Fararstjórarnir okkar voru bæði margir og öflugir. Nei, við hefð- um a. m. k. átt að fá jafntefli, og það hefði ekki verið nema rétt eftir okkur að sigra. — Sparkó. Heildverzlun með kjörbúðarsniði Kjörbúðir hafa rutt sér mjög til rúms í heiminum á síðustu árum. Hefur eingöngu verið um smásöluverzlun að ræða, en nú virðist röðin vera komin að heiidverzlununum. Heildverzlun nokkur í Kaup- mannahöfn hefur nú opnað eins konar kjörbúð fyrir kaupmenn- ina. Koma þeir og velja sér vör- urnar, og aðstoðarmenn þeirra eða þeir sjálfir, bera vörurnar út í bifreið. Á þennan hátt fá þeir vörurnar við eitthvað lægra verði. — Er ekki talið ólíklegt að fleiri heildverzlanir í Dan- mörku taki þetta upp. íbúð til sölu Tvö herbergi og eldhús á Ytri-Brekkunni. — Uppl. í síma 1720 frá kl. 7—9 á kvöldin. LJÓSGEISLAR LEIFTRA i f alheims geimnum ljósgeislar leiftra, Ijómar þín gæzka við þinn alveldis stól. [ Hátt upp til hæða hugurinn leitar, ( ljós þitt mér lýsir himnanna sól. j Þinn faðmur er opinn, ég Iæt mig hvíla í örmum þínum, Frelsari minn. , i Að brjóstinu þínu, hlýtt ég mér halla, ; þar hvíldina og friðinn og öryggið finn. Bið ég nú Guð minn mér lýsa og leiða : * og ljósgeisla tendra í skugganna dal. Birtu og fegurð að breiða yfir alla, blessa og vernda hvert sprund og hvern hal. Send þú af himnutn heilagan kraft þinn, helga þú hugsun, orð vor og verk. Gef oss þinn anda, ástkæri faðir, , í viljanum þínum svo verðum við sterk. t Um jörðina láttu ljósgeisla líða, láttu hann verma hvert blóm og hvert strá. Börnunum smáu, blessunar bið ég og bið þig að vera alltaf þeim hjá. Ollum sem á liafinu þurfa að vera , og þangað sækja björg sína í bú. Vertu þeim viti, veittu þeim styrk þinn, hættum og erfiði í hagsæld þú snú. Og alla þá, sem um loftgeiminn líða, leiði höndin þín voldug og sterlc. Við lofum og þökkum þér ljúfasti faðir, við lofum og þökkum og undrumst þín verk. KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR frá Syðra-Hvarfi. ÞANKAR OG ÞÝÐINGAR Brezk eiginkona nokkur sendi tilkynningu til lögreglunnar um daginn og kvað mann sinn vera týndan, hann hefði ekki komið heim í nokkrar vik- ur. Vinkona hennar var viðstödd, er hún hringdi til lögreglunnar, og varð steinhissa, er hún heyrði lýs- inguna: „Hár, gjörvilegur, dökkhærður, með mjallhvítar tennur.“ — Nei, heyrðu mig, Hazel, sagði hún, h'vers vegna lýsirðu manninum þínum svona? Þú veizt, að hann er lágur, feitur og sköllóttur, og hann er þar að auki gjörsamlega tannlaus! — Uss, segðu þetta ekki hátt, sagði konan. Eg; veit, að þetta er rétt hjá þér, en heldurðu, að eg kæri mig um að fá slíkan mann aftur? ---o---- Kona nokkur í Bandaríkjunum fór til sálfræðings og bar sig illa út af manni sínum. — Hvað á eg að, gera? Þetta er óþolandi! Hann er sítalandi upp úr svefninum. — Nú, já, sagði sálfræðingurinn. — Eg skil það. Bældar hvatir, innilokaðar tilfinningar. Leyfið honum að tala á daginn. Bóndi nokkur í Minnesota átti gamla móður á elliheimili. Hann kom alloft að heimsækja hana og tók alltaf með sér mjólkurflösku handa henni að heiman. Hann setti alltaf dálítið af koníaki saman við mjólkina og minntist aldrei á það við gömlu konuna. Hún minntist heldur aldrei á það, að sér þætti mjólkin undarleg á bragðið. Einn daginn sagði hún við hann: „Alfreð minn, eg ætla nú að biðja þig að gera dálítið fyrir mig.“ „Sjálfsagt, mamma mín,“ sagði hann. „Hvað er það?“ „Seldu ekki þessa kú, sem mjólkin er úr.“ ---o---- Bandaríkjakona nokkur var að koma frá Evrópu. Hún kom með nokkrar flöskum af ilmvatni, sem hún faldi vandlega í einni töskunni, svo að toll- þjónarnir fyndu ekki. Tollþjónarnir límdu miða á farangurinn, án þess að nokkuð væri við að athuga, en er þeir komu að lokum að töskunni, þar sem ilmvatnið var, sagðfl 8 ára dóttir hennar: „Mamma, nú fara þeir að verða dálítið heitir, er það ekki?“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.