Dagur - 04.11.1959, Side 1
Fylgizt með því sem gcrist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 11. nóvember.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 4. nóvcmber 1959
61. tbl.
Fyrsfa leiksýiiing LÁ í næsfu viku
„A elleftu stund“, spennandi gamanleikur;
sem Guðmundur Guonarsson sviðsetur
Leikfélag Akureyrar hóf leik-
æfingar í byrjun október og valdi
enska leikritið Á elleftu stundu,
og er það gamanleikur í þrem
þáttum.
Með aðal-hlutverkin fara: Björg
Baldvinsdóttir og Jón Kristins-
son. En alls eru leikendur 12 og
þar af nokkrir nýliðar.
Bráðlega munu æfingar hefjast
á næsta viðfangsefni félagsins og
VANTAR FÓLK
Töluverður afli hefur borizt
til Hraðfrystihúss U. A. undan-
farna daga. En ekki hefur feng-
izt nægilega margt fólk til að
vinna að aflanum og er það í
sannleika hart. Margar húsmæð-
ur munu geta unnið t. d. hálfan
daginn, ekki sízt síðan nýi leik-
skólinn tók til starfa og getur
annazt börnin. Þá er fjöldi fólks
í skólunum, sem vissulega getur
hlaupið undir bagga.
það verður hið gamalkunna leik-
rit fEvintýri á gönguför. Leik-
stjórnina mun Jóhann Ogmunds-
son, formaður LA, annast.
Og fleira mun á prjónunum
hjá Leikfélaginu. Heyrzt hefur
að óperetta sé þriðja verkefnið,
en ekki hefur blaðið fengið það
staðfest, en það mun koma fram
á sínum tíma.
Leikféiag Akureyrar býr nú
við betri skilyrði en fyrrum og
má því nokkurs af því vænta.
Því miður er það þó staðreynd,
að stundum gengur erfiðlega að
fá leikfólk í okkar 8 þúsund
manna bæ og er það ekki vansa-
laust.
Tómlæti er versti óvinur leik-
listarinnar og gengur næst dekr-
inu. En fjölbreytt leiklistarstarf
er menningarauki í hverju bæj-
arfélagi, og víst eru það gleði-
fréttir, sem vekja nokkra eftir-
væntingu, hve L. A. hyggst af-
reka á leiksviðinu í vetur.
Tryggvi Helgason flugmaður og nýja sjúkravélin. (Ljósm.
Nýja sjúkraflugvélin er komin
Tiyggvi Helgason og Aðalbjörn Kristbjarnarson flugu henni frá Bradley
Field í fimm áföngum - Síðasti áfangimi, frá Syðri-Straumfirði á vestur
strönd Grænlands til Akureyrar, tók 6.25 klst. - Vélin kom á sunnudag
Klukkan 10 á sunnudagskvöldið bcið hópur Akureyringa á flug-
Vellinum cg horfði til Iofts. Frétst hafði að Tryggvi Helgason væri
á leiðinni í nýjú sjúkraflugvélinni. Og innan stundar greindu menn
liós vélarinnar í kvöldhúminu og mun þá mörgum hafa hlýnað um
hjarta. Eftir fáeinar mínútur renndi flugvélin sér niður á ílugbraut-
ina og að flugskýlinu, og var ferðalöngunum Tryggva Helgasyni og
Aðalbirni Kristbjarnarsyni ákaft fagnað aí vinum og vandamönnum.
NYI DRANGUR ER KOMINN I HEIMAHÖFN
bráðlega leysa gamla Drang af hólmi, en hann hefur gegnt þörfu hlutverki
Hið f ríðasta skip og mun
gzr*‘s*-* ■'
Um það bil þremur klukku-
stundum síðar en hin nýja sjúkra
flugvél Ienti á Akureyrarflug-
vell á sunnudagskvöldið, lagðist
Drangur hinn nýi að Torfunefs-
bryggju á Akureyri. Má því
segja, að síðasta helgi hafi ekki
verið viðburðasnauð hvað sam-
göngumálin snertir hér um slóð-
ir.
Drangur er 191 brúttolest að
stærð eða nálega helmngi stærri
en hinn aldni nafni hans, sem
búinn er að gegna hinu þarfasta
hlutverki á annan áratug.
Hið nýja skip er með 400 hest-
afla Vichmann dieselvél og tvær
35 hestafla Bolindervélar og búið
öllum venjulegum öryggis— og
siglingartækjum. Seturúm er
fyrir 42 farþega og „kojupláss“
og bekkir fyrir 12 manns. Skipið
mun geta flutt um 150 tonn af
vörum. Það kostaði 4 millj. ís-
lenzkra króna.
Allur sýnist frágangur hinn
vandaðasti og vel séð fyrir því,
að farþegum geti liðið vel. Að
ytra útliti er Drangur fallegt
skip. Ganghraði hans var 10 míl-
ur til jafnaðar á leiðinni hingað,
en mestur ganghraði 11,3 mílur.
Eigandi hins nýja skips er
Steindór Jónsson útgerðarmaður,
sá hinn sami, sem gert hefur út
gamla Drang.
Drangur er smíðaður hjá
Ankerlakken í Florö í Noregi og
er fyrsta skipið frá þeirri skiþa-
smíðastöð, sem byggt er fyrir út-
lendinga. Umboðsmaður skipa-
smíðastöðvarinnar er Magnús O.
Ólafsson, Reykjavík.
Steindór lætur hið bezta af
þessari skipasmíðastöð, svo og af
sjóhæfni skipsins í heimsigling-
unni. Iiann var sjálfur skpstjóri
á heimleið og verður það fyrst
um sinn.
Um 5000 farþegar ferðuðust
árlega með Drang síðustu árin.
Búast má við að farþegum fjölgi
með tilkomu hins nýja skips. En
ferðir hans hafa verið tvær til
þrjár í viku hverri. Viðkomu-
staðir eru: Hrísey, Dalvík, Ólafs-
fjörður, Siglufjörður og Sauðár-
krókur og eru þær ofurlítið
breytilegar i sambandi við land-
ferðir vestur.
Kjölur Drangs var lagður 2.
apríl í vor. Hann var sjósettur 2.
október og þá skírður með við-
höfn og í heimahöfn kom hann,
eins og fyrr segir, 2. nóvember.
Vonandi reynist Drangur hið
bezta skip, bæði eiganda sínum
og hinum mörgu sem njóta ferða
hass. En þeir eru ótrúlega margir
eins og fyrr getur. 1 ,
Tók upp merki bróður síns.
Öllum er kunnugt um afdrif
hinnar fyrri sjúkraflugvélar, sem
Jóhann heitinn Helgason flug-
maður fórst með á Vaðlaheiði,
ásamt farþegum. Þá ríkti sorg
um norðlenzkar byggðir og bæi.
En bróðir Jóhanns, Tryggvi
Helgason, sýndi þá óvenjulegu
manndómslund, á meðan flestir
voru enn í sárum eftir hinn sorg-
lega atburð, að bjóða fram krafta
sína og hvetja til kaupa á sjúkra-
flugvél öðru sinni. Hann tók hið
fallna merki bróður síns, undir-
bjó málið ásamt Slysavarnadeild
kvenna á Akureyri og Rauða-
krossdeildinni hér, með þeim ár-
angri, sem hin nýja sjúkraflugvél
sýnir. Margir lögðust á eitt við
útvegun fjármagns með sameig-
inlegu átaki, undir forystu frk.
Sesselju Eldjárn. (Frh. á 2. sí.).
Drangur hinn nýi fánum skrýddur við Torfunefsbryggju. — Ljósmynd: E. D.).