Dagur - 04.11.1959, Qupperneq 7
Miövikudaginn 4. nóvember 1959
D A G U R
7
J ■
Námsvísur og reglur
_ •
''-'H gi
SÉRHLJÓÐARNIR ERU 14
SAMHLJÓÐARNIR ERU 22
Sérhljóðana a og e
í áflogum á gólfi sé,
en samhljóðarnir c og b
sitja á mínu andans hné.
Sérhljóðarnir segja nafn sitt sjálfir.
Það er liægt að stafa í samhljóðana.
É er sérhljóði.
Sérhljóðarnir standa tveir og tveir saman í
stafrófinu, (a, á o. s. frv.).
I stafrófinu tveir og tveir
teljast vinir svarnir.
Fast og lengi faðmast þeir,
fjórtán sérhljóðarnir.
Tvíhljóðarnir au ei og ey teljast til breiðu
sérhljóðanna.
Með’tveimur ey(ei)um auið býr,
ætti varla að kveljast.
Tvíhljóðarnir þessir þrír
til þeirra breiðu teljast.
• 1
Tómir léreftspokar
eru til sölu í útibúum vomm.
NÝLENDUVÖRUDEILD OG ÚTIBÚIN
□ Rún 59591147 — Frl.:
I. O. O. F. — 140116814 —
I NÝJA - BÍÓ \
| Sími 1285 í
= Aðgönguniiðasala opin frá 7—9 =
Mynd vikunnar:
I VÍKINGARNIR I
fTHE VIKINGS.)
= Heimsfræg, stórbrotin og við- =
1 burðarík, amerísk stórmynd I
j frá Víkingaöldinni. — Myndin j
er tekin í litum og
CINemaScOPC
á sögustöðum í Noregi og
Englandi.
jAðalhlutverk:
Kirk Douglas,
j Tony Curtis, j
j Janet Leigh, j
Ernest Borgine.
j Bönnuð börnum.
“ *■
7iiN ..........iiiimiii....
j BORGARBÍÓ
É Sími 1500
| Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 =
I ÍSJÁVARHÁSKA |
I Spennandi og viðburðarík, ný, =
j amerísk kvikmynd um mann- |
= raunir og björgun skipa úr j
É sjávarháska í Norðurhöfum. =
jAðalhlutverk:
j John Derek,
j Wanda Hendrix,
= WaJter Brennan. j
j Næsta mynd: j
| ÁST |
í (LIEBE.) É
j ■ ,.■> / /': > >.■; j
j Ný, þýzk úrvglsmynd, snilld- =
j arvel leikin og áhrifamikil. — j
É Byggð á skáldsögunni: „Vor j
j Rehen wird ge\varnt“, eftir =
j hina iþekktu skáldkonu Vicki j
É Baum. — Danskur texti. — =
jAðalhJutverk:
É Maria SchcIJ, j
Rai Vallone.
É Þetfa er ein meðal beztu é
j kvikmynda er hér hefur verið j
i sýnd. j
7ll ..................
MÍR MÍR
42 ára afmælis
Ráðstjórnarríkjanna
verður ininnzt með skennnti-
samkomu í Alþýðuhúsinu,
sunnudaginn 8. nóvember, kl.
3 síðdegis.
TILHÖGUN:
1. Samkoman sett.
2. Upplestur.
3. Stutt ræða.
4. Kvikmynd.
Þeir, sem vilja geta fengið
keypt kaffi eða gosdrykki.
Ókeypis aðgangur.
AKUREYRARDEILD MÍR
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e.
h. Sálmar m\: 346 — 219 — 127
—131 — 44. — K. R. — Messað í
Lögmannshlíðarkirkju kl. 2 e. h.
sunnudaginn kemur. Sálmar nr.:
516 — 333 — 346 — 669 — 454. —
P. S. — Tekið á móti gjöfum í
líknarsjóð kirkjunnar fyrir flótta
fólk. — Að lokinni messu verður
aðalsafnaðarfundur.
Sunnudagaskóli Ak.kirkju cr á
sunudaginn kemur kl. 10.30 árd.
í kapellunni fyrir börn 5 og 6
ára, í kirkjunni 7—13 ára. —
Bekkjarstjórar mæti kl. 10.15.
Aðaldeild. Fundur
í kapellunni kl. 5 e.
há sunnudaginn.
Um þessar mundir stendur yf-
ir fjársöfnun í kirkjum landsins
í líknarsjóð Lútherska Alheims-
sambandsins, til þess að hjálpa
nauðstöddu flóttafólki. í Akur-
eyrarkirkju söfnuðust síðastlið-
inn sunnudag á 4 þúsund kr.
Konur í Kvenfélagi Akureyr-
arkirkju og aðrir, er vildu gefa
muni á bazar félagsins, eru vin-
samlegast minntir á að bazarinn
verður 14. nóvember. — Bazar-
nefndin.
Akureyringar! Föstudaginn 6.
nóv. kl. 20.30: Samkoma í kirkj-
unni. S. major Hákon Dahlström,
hljómlistarritari frá Noregi, tal-
ar. — S. major Nilsen og Óskar
Jónsson aðstoða, ásamt séra
Kristjáni Róbertssyni, foringjum
og hermönnum flokksins. Kirkju
kórinn syngur. — Laugardaginn
kl. 20.30: Afríkukvöld með kvik-
mynd í sal Hjálpræðishersins. —
Sunnudaginn kl. 16: Fjölskyldu-
samkoma. Kl. 20.30: Almenn
samkoma. — Allir eru hjartan-
lega velkomnir á þessar sam-
komur. — Hjálpræðisherinn.
Zíon. Sunnudagur 8. nóvember:
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. Öll
börn velkomin. — Almenn sam-
koma kl. 8.30 síðd. (fórnarsam-
koma). Benedikt ArnkeJsson,
cand. theol., talar. Allir hjartan^
lega velkomnir.
| Leiðrétting. Forstöðukona nýja
leikskólans á 'Akureyri heitir
Dórótea, en ekki Theodóra, eins
og sagt var frá í síðasta blaði og
leiðréttist það hér með.
Frá Náttúrulækningafélaginu.
Þeir félagsmenn, sem hafa hug á
að kaupa epli, tali við gjaldkera
félagsins, Pál Sigurgeirsson,
Vöruhúsinu, simi 1420, sem fyrst.
Viðskiptavinir, athugið! Rak-
arstofan er lokuð alla fimmtu-
daga. Sigtr. og 'Jón.
Sjá auglýsingu um spilakvöld
Skemmtiklúbbs Léttis í blaðinu.
Fundur verður haldinn i
Kveníélaginu Framtíðin föstu-
daginn 6. nóvember kl. 8.30 e. h.
Kvikmyndasýning. — Haíið kaffi
með. — Stjórnin.
Bazar hefur Kvenfélagið Fram-
tíðin að Túngötu 2 sunnudaginn
8. nóvember kl. 4 e. h. —
Nefndin.
Vhiningar í merkjasölubapp-
drætti Blindravinafélagsins íéllu
þannig: Nr. 1008 Körfuhúsgögn.
— Nr. 17489 Bókahilla. — Nr.
13265 Armstóll. — Nr. 35287
Vcfflujárn. — Nr. 21855 Kafíi-
steJJ. — Nr. 9479 Gufusti'aujárn.
— Nr. 28653 og 18249 Borðlamp-
ar. — Nr. 24830 og 7163 Blaða-
grindur. — Birt án ábyrgðar. —
Vinninganna má vitja Amaró-
-búðina.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Hulda Þór-
unn Valdimarsdóttir, Halldórs-
stöðum, Bárðardal, og Jón Aðal-
steinn Hermannsson, Hlíðsksóg-
um, Bárðardal.
Hjúskapur. Síðastl. sunnudag,
1. nóv., voru gefin saman í hjóna
band á Akureyri ungfrú Gíslína
Óskarsdóttir og Tryggvi Val-
steinsson. Heimili þeirra er að
Ránargötu 2, Akureyri. — Sama
dag voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Fanney Þórðardótt-
ir, Sílastöðum, Glæsibæjar-
hreppi, og Guðjón Sigurður
Guðbjartsson, Strandgötu 51,
Akureyri. Heimili þeirra verður
að Strandgötu 29, Akureyri. —
Föstudaginn 30. okt. voru gefin
saman í hjónaband á Möðruvöll-
um í Hörgárdal ungifrú Birna
Gunnlaug Þorbergsdóttir frá
Syðri-Reistará og Pétur Sig-
mundsson frá Hælavik í Sléttu-
hreppi, bæði nú til heimilis á
Hjalteyri.
Gctum enn bætt við nokkrum
börnum í leikskólann. — Upp-
lýsingar gefnar í síma 1239 eftir
kl. 7. — Barnaverndarfélagið.
I. O. G. T. — Stúkan ísafold-
Fjallkonan nr. 1 heldur fund
fimmtudaginn 5. þ. m. kl. 8.30 e.
h. — Fundarefni: Vígsla nýliða.
— Frú Margrét Jónsdóttir skáld-
kona les upp úr verkum sínum.
— Happdrætti. — Dans. — Að-
gangur 10 kr. — Allur ágóði
re.nnur í líknarsjóð stúkunnar. —
Mætið vel og stundvíslega. —
Æðstitemplar.
STÁLBORÐBÍINAÐIIR
Mikið og jjölbreytt lírval.
Úra og skartgripaverzlun
FRANC MICHELSEN
Kaupvangsstræíi 3 . Sími 2205
ELBHÚSKLUKKliR
Höfum fengið margar gerðir
af eldhúsklukkum.
Verð frá kr. 376.00.
Úra og skartgripaverzlun
F R A N C MICHE.L S E N
Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205
Herbergi til leigu
Uppl. í sima 2016.
Trillubátur til sölu
Til sölu er 19 feta trillubát-
ur með 8 lia Albin-vél. Bát-
ur og vél í góðu ástandi. —
Upplýsingar í síma 1765
eítir kl. 7 e. h.
ÍBÚÐ
1 — 2 herbergi og eldunar-
pláss óskast til leigu nú
þegar. Smábarnagæzla gæti
komið til greina.
Afgr. vísar á.
Bílskúrinn minn
við Oddeyrargötu er til
sölu.
Vikingur Björnsson,
sími 1321.