Dagur - 02.12.1959, Page 1
Fylgizt með því sem gcrist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út Iaugar-
daginn 5. desember.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 2. desember 1959
66. tbk
Æflar stjórnin að fresta Álþingi?
Fyrsta mnræða fjárlaga hefur ekki farið fram
- Eteáðahirgðalögin eru óafgreidd - Kvartað
undan málfrclsi stjórnarandstöðunnar
Þingsályktunartillaga Ólafs
Thors hefur enn ekki komið til
atkvæða, en líklegt þykir að ný-
kjörið þing verði rekið heim,
þrátt fyrir hörð mótmæli stjórn-
arandstöðunnar. Finnst mönnum
það hin mesta óhæfa, þar sem
fjölmörg mikilvæg mál, m. a.
efnahagsmálin, eru enn í full-
kominni óvissu. Fjárlagaræð-
unni og fyrstu umræðu um hana
Hreindýr og sauðnaut
svelta á Grænlandi
Á svæðinu kringum Scoreby-
sund í Grænlandi er nú haglaust
með öllu og þúsundir sauðnauta
og hreindýra í sveltu. — Danski
landshöfðinginn í Grænlandi
hefur afþakkað boð bandaríska
flughersins um að flytja fóður til
dýranna í flugvélum.
Að sjá jólasveininn
Nokkur brezk börn munu koma
til Reykjavíkur 17. des. til að sjá
jólasveininn. Með þeim verður
hjúkrunarkona og kvikmynda-
og sjónvarpsmenn. Síðar á að
sýna atburðinn í sjónvarpi. —
Ekki er þess getið að börn þessi
komi í herskipafylgd. — En það
er fyrirtækið Nestle’s ásamt
Flugfélagi íslands, sem undirbúa
för þessa.
ætlar ríkisstjórnin að fresta og er
það einsdæmi, en sýnir ótta við
opinberar umræður.
Þá er það föst venja, að bráða-
birgðalög, sem ríkisstjórn sér sig
til neydda að gefa út milli þinga,
séu lögð fyrir næsta Alþingi til
staðfestingar. Bráðabirgðalögin
um verð landbúnaðarvara, sem
gilda eiga til 15. des., þorir
stjórnin ekki heldur að leggja
fram og heldur þar sá einstæði
og stórfurðulegi skrípaleikur
Sjálfstæðisflokksins áfram. Ef til
vill þykir stjórninni heppilegra
að sniðganga þingræðisvenjur og
gefa bara út ný bráðabirgðalög
varðandi landbúnaðarvörur. —
Sýnilegt er, að Sjálfstæðisflokk-
urinn getur í hvorugan fótinn
stigið í þessu máli. Hann lofaði
opinberlega fullum bótum er
þing kæmi saman. Enn hefur
hann ekki fundið ráð til að svíkja
það loforð ,en eflaust verður þess
leitað.
Samkvæmt áliti kjördæma-
byltingarmanna, er Alþingi nú
skipað „samkvæmt þjóðarviljan-
um“. Mikil ávirðing er því ger, ef
nú á að taka fram fyrir hendur
þess í þingbyrjun.
Stjórnarblöðin kvarta nú mjög
yfir málfrelsi stjórnarandstöð-
unnar og telja málþóf er tefji
störfin! Svo gjörsneidd og ósam-
stæð er núverandi ríkisstjórn öll-
um úrræðum, að hún vill senda
alþingisipenn heim og slá vanda-
málunum á frest.
r
Anægjuleg kvöldstund
Góð kvöldvaka. Ferðafélag Ak-
ureyrar efndi til kvöldvöku í Al-
þýðuhúsinu fimmtudaginn 26.
nóv. Þar las Rósberg G. Snædal
úr verkum sínum og Björn Páls-
son sýndi litskuggamyndir. —
Kvöldvaka þessi var mjög vel
sótt, enda hin ánægjulegasta. —
Mun félagið, að sögn Kára Sig-
urjónssonar, form. F. A., efna til
annarrar kvöldvöku síðar á vetr-
inum.
Churcliill 85 ára
í afmæliskökunni voru efni frá
130 löndum. Meðal annrs voru
bananar frá íslandi. — Gamla
manninum bárust ógrynni
heillaskeyta og gjafa hvaðanæfa
úr heiminum.
Þegar hin aldna hetja gekk
hægum skrefum inn í neðri mál-
stofuna stöðvaðist umræða þegar
í stað, en fagnaðaróp kváðu við
frá þingmönnum beggja flokka.
Churchill mælti þá: „Leyfiðmér
að segja, að eg er djúpt snortinn
og þakklátur fyrir góðar óskir
ykkar og tek á móti þeim með
SleðL“ •, . um.
■
Snjóplógur að verki á Akureyri. — (Ljósmynd: E. D-)-
Hvers vegna er umboð Tóbakseinkasölu
ríkisins á Akureyri lagf niður?
Megn óánægja verzlunarstéttarinnar
Fjármálaráðherra beðinn um skýringar
Þótt þróun í verzlunar- og
viðskiptamálum hafi orðið sú á
allra síðustu áratugum hér á
landi, að yngri menn í verzlun-
arstétt þekki ekki frjálsa verzlun
vegna afskipta hins opinbera, ber
einnig að þakka betri og stór-
aúkna þjónustu hinna ýmsu
yerzlana og verzlunarfyrirtækja
við almenning. Þá bættu þjón-
ustu ber fyrst og fremst að þakka
hinni heppilegu samkeppni
kaupmanna og kaupfélaga.
En á tímum hinnar miklu
þjónustu getur út af brugðið. —
Fyrirtæki með nafninu Tóbaks-
einkasala ríkisins hefur haft hér
umboðssölu á tóbaksvörum í nær
30 ár. Umboðið hefur Kaupfélag
Eyfirðinga annast frá byrjun.
Nú hefur umboð .þetta verið
lagt niður frá 20: oóvember sl. og
Guðrún Kristinsdóftir frá Ákureyri
fær ágæfa dóma í Kaupmannahöfn
Ungfrú Guðrún Kristinsdóttir
píanóleikari frá Akureyri hélt
nýlega hljómleika í Oddfellow-
húsinu í Kaupmannahöfn, en hún
hefur um alllangt skeið stundað
nám í Vínarborg.
Um hljómleika þessa fóru
danskir hljómlistargagnrýnend-
ur mjög lofsamlegum orðum. —
Meðal annars segja þeir: Guðrún
náði sterkum tökum á leik sínum
og leysti hin vandasöm viðfangs-
efni með öruggri tækni og leik-
snilli, svo að hvert einstakt verk
hélt sínum sérstaka hljóm. — Þá
segir ennfremur að leikur ung-
frúarinnar hafi verið hlýr og
hver tónn hafi fengið gullna
vængi. Túlkun hennar hafi verið
næm og sönn og telja verði að
þessir hljómleikar hafi borið af
öðrum slíkum að undanförnu.
öðrum ekki verið falið það. Ak-
ureyringar verða því að panta
tóbaksvörur að sunnan og vekur
þetta að vonum mikla gremju
meðal kaupmannastéttarinnar,
bæði hér á Akureyri og meðal
annarra Norðlendinga, sem skipt
hafa við umboðið hér, sér til
mikils hagræðis. Þá hefur Akur-
eyrarumboðið afgreitt tóbaks-
vörur um allt land í júlímúnuði,
er starfsfólk Tóbakseinkasölunn-
ar í Reykjavík tekur sér sumar-
frí.
Ekki hefur blaðið getað aflað
sér rökstuðnings, sem mæli með
þessari breytingu og ekki sýnast
nokkrar líkur til, að þetta spari
fyrirtækinu útgjöld. Hafi um-
boðið hér ekki reynzt starfi sínu
vaxið, var eðlilegt að öðrum væri
falið það. Ekki er því heldur til
að dreifa.
Það kemur að sjálfsögðu harð-
ast niður á miður fjársterkum
aðilum er með tóbak verzla, þeg-
ar Akureyrarumboð Tóbaks-
einkasölu ríkisins fellur niður og
er þessi ráðstöfun algerlega gagn
stæð bættri þjónustu hinna ein-
stöku fyrirtækja við almenning.
Tóbakseinkasala ríkisins lýtur
stjórn fjármálaráðherra, Guðm.
f. Guðmundssonar, og væntir
blaðið þess, að þaðan komi upp-
lýsingar um ástæður fyrir því,
að margnefnt umboð sé of mikil
rausn við Akureyringa og aðra
Norðlendinga.
Uggvekjandi fréttir
Nær daglega birta sunnanblöð-
in fréttir af glæpum höfuðborg-
arinnar, ránum, líkamsárásum,
nauðgunum, innbrotum, skjala-
fölsunum o. fl. auk hrottaleg-
ustu umferðaslysa.
Þríburafæðing
Það bar nýlega til á Fæðingar-
deild Landsspítalans, að kona ein
ól þríbura. Er það fyrsta þrí-
burafæðingin í þeirri 28 ára
gömlu stofnun. Móðirin er 22ja
ára gömul. Hún og maður hennar
eiga tVö börn fyrir. Hinir nýju
borgarar vógu: Stúlka 10 merk-
ur, stúlka 7 merkur og drengur 9
merkur. Ollum líður þeim vel.
Barn varð undir drátt-
arvél og lærbrotnaði
Fyrir helgina lenti ungur
drengur, sonur Sigurður Stef-
ánssonar í Stærri-A,rskógi, undir
dráttarvél og lærbrotnaði. —
Drengurinn var fluttur í sjúkra-
hús.
Bændaklúbbsfundur
verður lialdinn að Hótel KEA
mánudaginn 7. des. n.k. og hefst
kl. 9 síðdegis. — Fundarefni:
Hagnýting íslcnzkra fæðueína og
grænmetis. Frummælandi verður
Stcingerður Ingimundardóttir,
húsmæðrakennari. Þess er vænzt
að húsmæður í héraðinu láti sig
mál þetta rniklu skipta og fjöl-
menni á fundinn og taki bændur
sína með.