Dagur - 02.12.1959, Síða 5
4
ÐAGUft
Skrifstnl.i í Ilufiiavsti.rti !)() — Sitni IltiG
RITSTJÓRl:
E R L í N G II R I) A V í 1) S S Ö N ,
___ /y
Aut;lýsittR.'t'itjói i: / f
J Ó N S V MITLSS O'N /
.\n»angttrtnn kostar kr. 75.00
ltlaiSiiS kvtttttr út á iniAvikiuliigum og
laugartifigttni, |ict»ar cíni stamla til
Cíjal<lrlai»i cr 1. júlí
RRTNTVERK ODDS IIJÖRNSSONAR H.F.
„Leiðin til bættra lífskjara44
I í FIMMTÁN ÁR hefur þjóðin árlega eytt
: 5% meira en þjóðartekjurnar leyfðu og
horft upp á 200 milljón któna greiðsluhalla
á ári á sama tíma. En þetta liefur líka verið
leið hinna bættu lífskjara fólksins í landinu.
Oft hefur þetta verið gert að umtalsefni, var-
I að við hættunni af því að brjóta hina ein-
földu, sígildn gi’undvallarreglu viðskipta-
lífsins, að eyða ekki meiru en aflað er. En
t hljómgrunnur fyrirfannst enginn.
1 Ilorgarbúiiin, sem um hver áramót skuldar
meira en við næstu áramót á undan og ekki
hefur aukið eign sína, er illa á vegi staddur.
Bóndinn, sem safnar skuldum, en bætir jörð-
ina til frambúðar, getur hins vegar verið á
V réttri leið, svo að dæmi séu tekin.
: Þjóðarbúskapurin neinkennist af mörgum
hliðstæðum þáttum. — Uppbygging atvinnu-
veganna og stórframkvæmdir hafa krafizt er-
fends fjánnagns í bráð, en skilar síðan inarg-
földum gjaldeyri eða sparar erlendan gjald-
eyri. Þar gildir sama máli og um framtak
bóndans. Hins regar er innflutningur óhófs
vara og óarðbærar fjárfestingar hliðstæða
hins eyðslusama borgarbúa, og afleiðing
þeirrar viðleitni þjóðarinnar um langt árabil,
að eyða meiru en aflað er. Mörgum þykir
hyggilegra að kaupa sér útvarpsgrammófón
eða jafnvel brennivín, heldur en leggja spari-
fé sitt á vöxtu í almennum peningastofnun-
um. Þessir fjármunir dragast frá lífsnauðsyn-
legri uppbyggingu atvinnuveganna.
i „Leiðin til bættra lífskjara“ er eins konar
f slagorð jiessa 15 ára tímabil, er liggur
langt fram hjá viðurkenndum leiðannerkj-
um, sem aðrar frjálsar þjóðir hafa ekki treyst
sér til að víkja frá á hinni vandgengnu leið
efnahagsmálanna. Því miður verður það að
segjast eins og er, að stjórnmálaflokkar okkar
hafa boðið landsfólkinu hreinar miitur fyrir
hverjar kosningar. Hin stórfelldustu mútu-
boð felast í orðum eins og þessum: „Leiðin
'til bættra lífskjara er auðfarin ef þið trúið
j okkur fyrir stjórn landsins. . . .“ Flokkur,
| sem gefur slík loforð, véít, að hann gétur
ekki efnt þau, nema að ganga enn lengra á
þeiiTÍ villigötu efnahagsmálanna, að miða
enn við stundargengi og tefla sjálfstæði lands-
I :ins í voða.
Núverandi stjómarflokkar em uppvísir að
einhverjum stórkostlegustu kosningablekk-
I ingum, sem um getur í sögunni. Á öðrum
degi hinnar nýju stjórnar sagði forsætisráð-
| herrann, að 250 millj. vantaði í Útflutnings-
I sjóð og ríkissjóð á næsta ári, gagnstætt full-
! yrðingum fyrir kosningar. Flokkurinn, sem
i bauð hæsta boð fyrir kosningamar, skelfist
i nú loforð sín og gylliboð og stendur ráðþrota
: frammi fyrir vandamálum þjóðarínnar.
! Hann á það ráð lielzt að víkja alþíngis-
< mönnum af hinu nýkjörna þingi og slá
! vandamálunum á frest um nokkurn tíma.
| Vandséð er, hversu hann efnir loforð sín um
I bætt lífskjör.
D A G U R
Miðvikudagimi 2. desember 1959 Miðvikudaginn 2. desember 1959
D A G U R
5
tjtgáfubækur Setbergs
Landhelgisbókin.
Setberg gefur út 12 bækur í
ár, þeirra á meðal bækur eftir
íslenzka höfunda, þýddar bæk-
ur og margar barna- og ungl-
ingabækur. Stærsta bókin verður
„Landhelgisbókin“, sem Gunn-
ar M. Magnúss hefur tekið sam-
an. Ritið fjallar um fiskveiðar og
landhelgismál íslands frá árinu
1400 fram til vorra daga. Þar er
rakinn einn stórbrotnasti þáttur
í sögu landsmanna, sókn og vörn
kynslóðanna fyrir réttindum sín-
um gegn yfirgangi erlendra
þjóða í landhelgi íslánds. Fyrri
hluti bókarinnar nær frá árinu
1400 til 1958. Hefst frásögnin,
þegar hinir fyrstu erlendu menn
koma hingað til fiskveiða, en þeir
fóru síðar oft með yfirgangi og
ofríki á hendur landsmönnum til
lands og sjávar. Þá er í bókinni
annáll, er greinir frá 200 sögu-
legum atburðum í hálfa sjöttu
öld. Síðari hlutinn hefst, þegar
s/kipafldti íslenqinga leggur úr
höfn 1. sept. 1958 til þess að verja
hina nýju 12 mílna landhelgi og
lýkur 1. sept. 1959. í bókinni,
sem er prentuð á vandaðan
pappír, eru 160 myndir efninu til
skýringar, ýmsar þeirra stór-
sögulegar frá fyrri tímum fram á
þennan dag.
Dýrkeýptur sigur.
Af þýddum bókum má nefna
þessa skáldsögu eftir enska rit-
höfundinn John Braine. Bókin
kom út í Englandi 1957 úndir
nafninu „Room at the Top“ og
vakti strax gífurlega athygli. —
Kvikmynd hefur nýlega verið
gerð af sögunni, þar sem franska
leikkonan Simone Signoret leik-
ur aðalhlutverkið, en fyrir leik
sinn í kvikmyndinni hlaut hún
gullpálmann á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í aprílmánuði 1959.
Ný ljóðabók
mannssonar: Ljóð af lausum
blöðum. Hér eru 73 ljóð og löng
kvæði á 170 þéttprentuðum síð-
um í stóru broti. Og þessi furðu-
lega fjölbreyttú ljóð bera með
sér, að þau eru sprottin úr frjó-
um jai-ðvegi og vel ræktuðum.
Og þótt oft næði svalt um ís-
lenzka mold, og klaki sé títt
seinn að þiðna, þá er stöðugt vor
í vændum, og vorblær í lofti.
Oma söngvar, æskan hlær.
Allt er létt til svifa.
Sólin skín og grasið grær.
Gaman er að lifa.
Þannig er einkunnar-erindi
ljóða þessara. Tjáning heilbrigðr-
ar og starfsglaðrar æsku! Hér er
slíkur fjöldi prýðilegra ljóða og
fállegra, að eigi eru tök á að
fjölyrða um í stuttum ummælum.
Og svo fjölbreyttur auður verk-
ræns æsku-áhuga með síungrar
uppsprettu syngjandi starfsgleði
á öllum sviðum heilbrigðs lífs
streymir út frá ljóðum þessum,
að eigi er unnt að birta dæmi né
rekja langa sögu sumra þeirra,
þótt freistandi sé. Hér skulu þó
aðeins nefnd fáein minnisstæð
ljóð: Hannes Hafstein. Sjó-
mannaljóðin á bls. 22—33 og Til
vers. Mold og menning. Hátíðar-
ljóð 17. júní 1944. Vor. Sumar-
morgunn í sveit. Draumadísin. Á
norðurleið. Máttur ljóðs og lags.
Minni konunnar o. m. fl.
Hér eru innileg og gullfalleg
ættjarðar- og átthagaljóð — allra
alda og allra tíma. — Allt hug-
rænt og starfandi líf er hér yrk-
isefni í léttri, hversdagslegri frá-
sögn og hugleiðingum, gaman-
söm glettni, hrifbjartur fögnuður
heilbrigðrar æsku í leik og söng
og íþróttum, gleði jarðræktar-
mannsins við gróandi mold, og
hvating áhugamannsins til vor,
sem hvatvíslega krefjumst„réttar
vors“ af fósturjörðinni, að rækja
engu síður skyldur vorar við
hana og lífið! — Svona auðugt er
lífið af yrkisefnum, þótt fjöldi
ungra skálda virðist hvorki sjá
það né skynja!-----— —
Betri jólagjöf en „Ljóð af laus-
um blöðum“ er tæplega hægt að
velja ljóðelskum vini og ung-
mennum, — piltum og stúlkum
— sem enn hljóta að vera til — á
strjálingi í landi sögu og ljóða!
Máttur ljóðs og lags.
„Lát þú tónanna mátt lyfta
huganum hátt.
Legg þú hörpu á kné eða fiðlu að
armi.
Syng þú hyldýpið blátt við sinn
himin í sátt.
Kveð þú harm þinn og söknuð
að kærleikans barmi.
Hvert sem liggur þín leið, hvort
sem gatan er greið,
eða gerist þér örðug um torsótta
vegi,
getur stuðull í brag, fagurt Ijóð
eða lag
gert þig léttari á fæti á nóttu sém
degi.
■ •• I ' l ! 'I iT-jl : ■■-Ú I i~|
Lát söngvanna klið boða fögnuð
og frið,
veita flóðbylgju hljómsins um
titrandi strengi
á vor fengsælu mið, um vor
sólroðnu svið,
á vor sígrænu tún og vor litfögru
engi.
Þó að pyngjan sé full, og þó gott
sé þitt gull,
er það gagnslaust í nesti til
ódáinsheima.
En í orði þess óðs og í lagi þess
ljóðs
sem lifir, felst auður, er sálirnar
geyma.
Ver þú tungunni trúr undir skini
og skúr.
Tem þú skap þitt með gripum á
hörpunnar strengi.
Lát þú tónanna mátt lyfta
huganum hátt
yfir hverfulleik jarðar — og
endast þér lengi.“
Helgi Valtýsson.
Ármann Dalmannsson: Ljóð
af lausum blöðum. Bókaforlag
Odds Björnssonar, Ak. 1959.
Rímsnjöllum manni og ljóð-
elskum, starfsglöðum og fjölhæf-
um til þjóðnýtustu starfa verður
allur vettvangur lífsins að yrkis-
efni! Og það verður bjart yfir
þeim vettvangi, þar sem lífið
sjálft er í grózkufullri gróandi.
Um hann allan leikur ljúfur
blær. Glettinn með köflum og
fjörkippóttur. En inn á milli
blandinn hæglátum niði alvar-
legrar undiröldu. — Svo víð-
feðman vettvang og fjölskrúðug-
an er nú orðið sjaldgæft að fyrir-
hitta nema hjá einstöku ung-
mennafélaga af eldra árgangi,
sem svo djúpt varð snortinn af
æskuhugsjónum þeim, sem gerðu
heila kynslóð að drengjum, að
allt hans líf upp frá því hefur
orðið líkamning hugsjónanna:
landið allt og landinu allt!
Ur þessum jarðvegi er sprottin
hin mikla og óvenju fjölskrúð-
uga ljóðabók Ármanns Dal-
Ámerískar drengjaskyrfur
stærð 4-12, með slaufu og ermahnöppiim,
í fallegum gjafakössum er tilvalin jólagjöf.
ANNA & FREYJA
DOMUR!
Við bjóðum yíur bezta fáanlega úrvalið af
BRJÓSTAHÖLDUM, SOKKABANDABELT-
LM, LÍFSTYKKJUM, NÁTTKJÓLUM,
UNDIRKJÓLUM og S0KKUM.
ANNA & FREYJA
Hinn 20. f. m. var til moldar
borinn, að Ljósavatni, Sigurður
Lúther Vígfússon á Fosshóli.
Hann var fæddur að Úlfsbæ í
Bárðárdal 30. sept. 1901. Árið
1930 reisti hann nýbýli á gljúfur-
barmi Skjálfandafljóts, skammt
frá Goðafossi, og nefndi það
Fosshól. Þar dvaldi hann til ævi-
loka. Hann virtist ganga heill til
starfa fyrrihluta dags hinn 12.
nóv., gunnreifur og gleðimáll að
venju. Að morgni næsta dags var
hann látinn.
Sigurður Lúther valdi sér að
bólfestu óvenjulega fagran stað.
Við strengleika fljótsins, stemmdi
hann sína strengi. Honum fylgdi
jafnan flugniður fossins hvar sem
hann fór. Frá Fosshóli liggja
opnar leiðir í allar höíuðáttir.
Auðveldar, til þriggja dala-
byggða, en í austri rís Fljótsheiði
og í vestri Vaðlaheiði, viðsjálar
torfærur á vetrum, fyrir allan
þann mikla mannfjölda, sem þarf
yfir þær að sækja.
Sigurður á Fosshóli tók sér
snemma stórbrotin og vinsæl
verkefni fyrir hendur. Hann var
fylgdarmaður og hjálparhella
þeirra sem um torleiði þurftu að
fara. Hann vísaði veginn þegar
dimmviðri og stórhríðar geisuðu
og öðrum brást ratvísin. Hann
lagði til farartækin þegar aðra
skorti. Hann skipulagði ferðir
þegar vanda bar að höndum.
Hann færði sjúkum lyf og lækn-
ishjálp, þegar mikils þurfti með.
Honum virtist nautn að vaka um
nætur við símastöðina á Foss-
hóli, án endurgjalds, þegar síma-
sambands þurfti við vegna sjúkl-
inga eða þeirra, sem fjallvegir og
hríðar seinkuðu för á vetrum,
meir en eðlilegt var talið.
Þrátt fyrir þetta rak hann bú-
skap á Fosshóli ár hvert. Var
póstur um skeið norður um Kinn
og oft á vetrum til Akureyrár.
Rak veitingaþjónustu á Fosshóli.
Annaðist símstöð og pósthús.
Hann var eftirlits- og viðgerðar-
maður símalínunnar inn að Vaðla
heiði og austur á Fljótsheiði. —
Auk þess var hann í ýmsum fé-
lagsmálastörfum innan sveitar,
sem oft tóku drjúgan tíma. Full-
trúi var hann mörg hin síðari ár
á aðalfundi þriggja nærliggjandi
kaupfélaga. Fréttaritári ýmsra
blaða o. fl. o ,fl.
Sigurðar á Fosshóli mun lengi
minnzt af öllum þeim fjölda
manna, sem af honum höfðu
kynni. Hann var orðinn þjóð-
kunnur maður sem gestgjafi,
símstjóri og póstafgreiðslumaður.
En hann var frægastur í sveit
sinni og héraði sem maðurinn
Sigurður á Fosshóli, sem var lífs-
nautn í hverjum starfsdegi, er
gaf honum tækifæri til þess að
breyta eftir þeim boðorðum, sem
hann lifði eftir og voru hans
gullvæga lífsregla: að neita aldr-
ei sanngjarnri bón nokkurs
manns — að greiða götu hvers
manns.
Það er sjónarsviptir að slíkum
manni. Það eru hörð örlög há-
aldraðrar móður og þungt áfall
ungri dóttur, að sjá honum á bak,
og það er stórt skarð höggvið í
hinn fámenna hóp dalsins, þar
sem hann var búinn að starfa að
flestum þáttum hins daglega lífs
af sínu kunna eldfjöri og áhuga.
Eg flyt Sigurði Lúther þakkir
mínar og fjölskyldu minnar fyrir
öll liðnu árin og sendi fjölskyldu
hans allri fyllstu samúðarkveðj -
ur. Eg flyt honum líka þakkir
fyrir hönd allra sveitunga minna.
Við eigum allir skuld að gjalda.
Sigurður á Fosshóli er horfinn
úr hópnum. Hans er hollt að
minnast lengi, fyrir allt það, er
hann hefur vel gert. Hann var
ávallt með þeim fremstu í flokkn
um. Karlmennið er hnigið í val-
inn. — Veitingamaðurinn, sem
veitti mörgum kulvísum gesti og
gangandi hollan brjóstyl. Ferða-
maðurinn, sem lagði fyrstur á
torfæruna. Gleðimaðurinn, sem
hóf fyrstur dansinn. Drengskap-
armaðurinn, sem leýsti annarra
vandræði þegar mest reið á og
hafði svo óvenjulegar vinsældir,
að hann átti næstum hvers
manns hug. Maðurinn, sem um
margt var einn hinn sérstæðasti
er Þingeyjarsýsla hefur alið á
síðari árum.
Sem lítinn vott þakklætis,
kostuðu Ljósavatns- og Bárð-
dælahreppar útför hans.
Ófeigsstöðum, 23 nóv. 1959.
Baldur Baldvinsson.
Alla setti hljóða, er andláts-
fregn Sigurðar Lúthers barst
þeim. svo mikil ítök átti hann í
hugum samferðamanna sinna á
lífsleiðinni.
Mér er næst að halda, að yfir-
leitt hafi menn ekki búizt við
andláti hans svo fyrirvaralaust
sem raun varð á. Þess vegna
stóðu menn ráðvana frammi fyrir
þeim dómi er enginn fær áfrýjað.
Allir gamlir sveitungar Sig-
urðar Lúthers minnast hans með
þökk, virðingu og söknuði. Eg
segi gamlir sveitungar vegna
þess, að í þessum tveim hreppum,
Bárðdælahreppi og Ljósavatns-
hreppi, sem áður voru einn —
átti Sigurður Lúther heimili sitt
frá vöggu til grafar.
Þegar hann, ásamt móður sinni,
fluttist frá sínum fæðingarstað
norður á hólinn við Goðafoss, fór
hann yfir landamerki þessara
sveita, og þótt vegalengdin væri
ekki mikil, — aðeins ein bæjar-
leið, — var þeirra saknað af
þeirra sveitungum, og þrátt fyrir
það, að skarð þeirra á heimajörð-
inni væri fyllt af bróður hans og
hans konu.
Nú vita allir, að Sigurður
Lúther gleymdi aldrei eitt augna
blik sínum uppruna og þeim stað,
þar sem vagga hans stóð.
Það er mín trú, að þar hafi
aldrei hallað frá helmingaskiptum
um viðhorf hans til sinna góðu
sveita. Það var ekki tilviljun ein,
sem réð því, að Sigurður Lúther
tók sér bólfestu á svo víðsýnum
stað sem hóllinn við Goðafoss
var. Það var miklu fremur lífs-
viðhorf hans, sem því réð.
Sigurður Lúther þúrfti að sjá
vel til „veðurs“, hann þurfti að
sjá vftt til vega. Vera þar, sem
umferðin var mest og fjölbreytt-
ust í héraðinu, — sjá menn. —
Þarna mátti líka segja að „Veg-
ur væri undir, vegur yfir og veg-
ur á alla vegu“, og þar settist að
„réttur maður á réttum stað“.
Maður, sem í rauninni mat allt fá
nýtt nema að veita, veita öðrum
af sinni auðlegð, gæðasemþer fá-
ar hliðstæður á, ljúfmennsku og
hógværð, sem hvern mann prýð-
ir og dreifir beiskju og mót-
drægni, sem oft er á næsta leiti.
Slíkt hlaut ætíð að hjaðna við að
hitta Sigurð Lúther. Ekki stóð til,
að slíkur maður aflaði sér verald-
arauðs. En hann aflaði sér auðs,
sem „mölur og ryð fá ekki
grandað". Auður bóndans og
mannsins, Sigurðar Lúthers, var
frelsið til að hugsa öðruvísi og
meta hlutina öðruvísi en allur
fjöldinn, frelsið til að ganga á
sinni eigin jörð, frelsið til að gera
náunganum allan greiða, sem
hann mátti framast, hvaðan sem
hann kom og hvert sem hann fór.
Hvort sem hann þekkti hann eða
þekkti hann ekki. — Frelsið til að
gera svo þetta allt fyrir sjáífan
sig, eins og hann sagðist sjálfur
gera. Þetta er hin sanna auðlegð
hins ágætasta manns.
Nú hefur breyting orðið á.
Hóllinn við fossinn er að vísu
hinn sami, víðsýnið þaðan hið
sama og vegirnir til allra átta
hinir sömu. En hinn rétti maður
á þessum stað er kallaður burt og
dóminum verður ekki breytt.
Eg veit, að eg mæli fyrir munn
allra íbúa hans gömlu sveitar,
þegar eg flyt honum látnum
beztu þakkir og óska þess og bið,
að á ,,hólnum“, þar sem hann nú
stendur, sé einnig vítt til vega að
sjá, bjartara og greiðara, og nú
sé hann leiddur þar, svo sem
hann áður vildi að aðrir væru
leiddir.
Og móður hans, háaldraðri, og
dóttur hans, sem enn eru heima
á hólnum við fossinn, gefi Guð
líkn með þraut.
Minning mannsins lifir, þótt
hann falli.
Þórólfur Jónsson.
Sigurður á Fosshóli var lands-
kunnur ferðagarpur og gestgjafi,
frábærlega vinsæll maður og um
margt sérstæður. Hann var fædd-
ur að Úlfsbæ í Bárðardal, vand-
ist fagurri heiðavíðáttu, grónu
hrauni, stórkostlegum gljúfrum
og hvíldarlausum söng Goðafoss.
Og þetta umhverfi mótaði hann
og varð honum svo samgróið, að
hvergi undi hann sér til lengdar
annars staðar. Örskotslengd frá
þeim stað, er Ljósvetningurinn
sögufrægi kastaði goðum sínum í
fossinn, sem síðan ber nafn af
þeim atburði, byggði Sigurður
Lúther bæ sinn og nefndi Foss-
hól. Á þeim stað eru krossgötur
á fjölförnustu leiðum Þingeyinga
og mót þriggja hreppa sýslunnar.
Um Sigurð má segja, að
hann byggði bæ sinn um þjóð-
braut þvera, og að hann greiddi
hvers manns götu, meira en
nokkrum manni getur talizt
skylt.
Fosshóll vai’ð brátt miðstöð
næstu sveita. Þar var símstöð,
póstafgreiðsla og viðkomustaður
ferðamanna, og síðast, en ekki
sízt: Þar var Sigurður Lúther
Vigfússon, sem fáa átti sína líka
í hjálpsemi, bjartsýni, hreinskilni
og ólgandi lífsfjöri og fyndnum,
landskunnum tilsvörum.
Ferðamenn vissu, að ef Sigurð-
ur Lúther gat ekki brotizt yfir
fjöll og heiðar í myrkri ogskamm
degisbyl, var öðrum það ofraun,
og ef Sigurð vantaði að veizlu-
borði til mannfagnaðar var mik-
ils áfátt, því að hann var hrókur
alls fagnaðar, hvar sem hann
kom og var heill og einlægur
gleðimaður og jafnan veitandi á
vinafundum. Og jafn heill og
óskiptur var hann í svaðilförum
og mannraunum, lagði líf sitt og
hesta sinna og bifreiðir sínar í
hættu, án þess að spyrja um
greiðslu, þegar mikils þurfti með.
Sigurður gekk að hverju vanda-
máli æðrulaus, fullur af lífsgleði,
þrekmikill og djarfhuga.
Hann var í sérflokki, rétthærri
en aðrir menn. Hann var gæfu-
samur glanni, sem guði hlýtur að
hafa þótt vænt um.
Ekki safnaði Sigurður á Foss-
hóli veraldarauði, en hérað hans
varð auðugra af honum. Þúsundir
manna eiga honum þakkarskuld
að gjalda, og nú finnst mönnum
autt og tómt við Fljótsheiði, er
hann er allur.
Undirritaður þakkar hinum
látna, góða drengskaparmanni,
ógleymanleg ferðalög og öll góð
kynni á fyrri árum og fyrir hönd
þessa blaðs þakka eg honum
fréttaritarastarf, sem hann innti
af hendi af sérstakri trúmennsku
um fjölda ára.
Háaldraðri móður hans og
einkadóttur sendi eg innilegustu
samúðarkveð j ur.
—o—■
En eftir dimman vetur mun
heiðin anga á ný, fossinn syngja
fagnaðarlag, regnboginn hvelf-
ast í glitrandi fossúðanum og
minning hinna beztu sona hér-
aðsins verma þá, sem nú eiga
vinar að sakna.
Erlingur Davíðsson.
HALLDÓR GUDLAUGSSON
í HVAMMI SJÖTUGUR.
í gær, sunnudaginn 29. nóvember, átti vinur
minn, Halldór í Hvammi, sjötughafmæli. Þann dag
var mikið um að vera á heimili þeirra hjóna í
Litla-Hvammi. Eftir hádegið fylltist heimilið af
fjölskyldufólki og vinum, sem komnir voru til að
árna heilla ög þakka liðna daga. Þegar líða tók á
kvöldið söfnuðust nálega allir íbúar Hrafnagils-
hrepps saman í hinu nýja, glæsilega félagsheimili,
Laugarborg, en þar höfðu hreppsbúar myndarlegt
boð inni fyrir afmælisbarnið ásamt fjölskyldu, svo
og margt annarra gesta. Allir, sem þarna komu,
höfðu brýnt erindi, sem var það, að óska Halldóri
og konu hans, Guðnýju, til hamingju og þakka lið—
in ár, en sem kunnugt er hefur Halldór, meira en
nokkur annar maður, annast félagsmálastörf fyrir
Hrafnagilshrepp á liðnum áratugum, og þótt slík
störf reynist sumum mönnum lítt til vinsælda, þá
hefur slík gæfa fylgt Halldóri í störfum þessum, að
hann nýtur þakklætis og virðingar allra er til
þekkja.
Halldór Guðlaugsson er
fæddur í Hvammi 30. nóv.
1889. Olst hann þar upp hjá
foreldrum sínum, Guðlaugi
Jónssyni og Kristbjörgu
Halldörsdóttur, en þau
bjuggu góðu og myndar-
legu búi í Hvammi um 30
éra skeið. Þau hjón voru
bæðí fæddir Eyfirðingar,
en því miður er ekki kost-
úr á að rekja ætt þeirra
nánar hér.
Halldór lauk gagnfræða-
prófi við GagnfræðaSkól-
ann á Akureyri vorið 1910,
en fimm árum síðar hóf
hann búskap í Hvammi
ásamt sinni ungu og glæsi-
legu konu, Guðnýju Pálsdóttir, Hallgrímssonar frá
Möðrufelli í Eyjafirði, og hafa þau búið þar alla tíð
síðan, eða í nærfellt 45 ár. Hefur heimili þeirra
verið í fremstu röð um reglusemi, myndarskap og
gestrisni. Þau hjón eiga sjö uppkomin og mann-
vænleg börn. Búa nú tveir synir þeirra heima í
Hvammi, þar sem þeir, ásamt konum sínum, yrkja
jörðina og ala upp nýja kynslóð.
Halldór í Hvammi er merkur og sterkur hlekkur
í lifandi keðju aldamótakynslóðarinnar. Ungur að
árum tók hann ástfóstri við hugsjón ungmennafé-
laganna og gerði hana að lífsstefnu sinni og að
veruleika í hverju starfi. Þetta viðhorf hans hefur
rh. a. gert hann að þeim gæfumanni, sem hann hef-
ur verið, er enn í dag og mun verða.
Snemma var Halldór vel valinn til félagsforystu
og trúnaðarstarfa fyrir sveit sína og hérað, og hann
brást heldur aldrei trausti þeirra, sem hann vann
fyrir, og heldur ekki hinna, sem með honum voru í
starfi. Stundum mun það hafa hent að mál, sem
honum voru fengin til meðferðar eða umsjár fyrir
aðra, komu allhart niður á hans eigin pyngju, án
þess að um væri fengist af hans hálfu. Halldór hef-
ur átt sæti í hreppsnefnd Hrafnagilshrepps um 40
ára skeið og þar af oddviti á annan áratug. Hann
hefur lengi verið sýslunefndarmaður fyrir sinn
hrepp og unnið mikið í félagsmálum fyrir Kaupfé-
lag Eyfirðinga. En þrátt fyrir þessi tímafreku störf
hefur hann ætíð stundað búskap sinn af kappi og
forsjá og jafnan átt afurðamikinn búpening. Hall-
dór var aðalfrumkvöðull að stofnun Sambands
nautgriparæktarfélaga Eyjafjarðar, sem stofnað var
fyrir 30 árum og hefur hann lengst af verið for-
maður þess. Þetta starí hans hefur borið góðan ár-
angur og bændur héraðsins vænta sér mikiis af
hinni nýju búfjárræktarstöð S. N. E. í Lundi. —
Bygging félagsheimilisins Laugarborg reis af
grunni á tveimur árum og var það tekið í notkun á
þessu ári. Það er mikið átak fyrir lítið hreppsfélag,
að koma upp slíku félagsheimili og búa það viðeig-
andi tækjum, en íbúar hreppsins hafa staðið þar
fast saman og unnið þar ólaunuð störf af lofsamleg-
um áhuga og látið auk þess mikið fé af mörkum.
Og nú stendur félagsheimilið fullbúið og glæsilegt,
sem tákn saYneiginlegs átaks samtaka fólks, sem
veit hvað það vill. En einnig þetta átak sameinaðs
hreppsfélagsc hefur verið unnið undir forustu
Halldórs í Hvammi.
í samsætinu í gærkveldi í Laugarborg var glatt
á hjalla, margar ræður voru fluttur fyrir minni
heiðursgestanna, eins og áður er sagt. Að lokum
ávarpaði Halldór sína kæru sveitunga, þakkaði
þeim auðsýnt traust og vinátta á liðnum áratugum
og afhenti síð.an hreppsfélaginu, fyrir hönd þeirra
hjóna, 50 þúsund krónur að gjöf, sem renna skyldi
í skólasjóð Hrafnagilshrepps til eflingar því mennt-
unarhlutverki, sem sjóðnum er ætlað að gegna. Á
þennan fyrirmannlega hátt minntust hin vinsælu
hjón merkra tímamóta á lífi sínu.
Kæri vinur, Halldór. Um leið og eg lýk þessum
orðum sendi eg þér beztu hamingjuóskir mínar,
(Framhald á 7. síðu.)
r