Dagur - 02.12.1959, Qupperneq 8
Bagujr
Miðvikudaginn 2. desembcr 1959
Afhyglisverl nýmæli á ís-
lenzkum verSbréfamarkðSi
FréUatilkynning frá Seðlabankanum
Samkvæmt lögum nr. 35 frá 23.
maí 1959 var stjórn Sogsvirkjun-
arinnar heimilað að bjóða út til
sölu 30 millj. kr. skuldabréfalán
og skyldi fénu varið til virkjun-
arframkvæmda við Efra Fall,
sem eru langt komnar eins og
kunnugt er.
Skuldabréf þessi koma á mark
aðinn 2. desember, en tekið verð-
ur við áskriftum frá og með 1.
desember. Sölu þeirra og dreif-
ingu annast Seðlabankinn, en í
Reykjavík eru þau til sölu í öll-
um bönkum, sparisjóðum og auk
þess hjá mörgum verðbréfasöl-
um. Uti á landi eru bréfin til sölu
hjá stærri sparisjóðum og útibú-
um bankanna.
Ekki verður sagt, að á íslenzk-
um verðbréfamarkaði hafi til
þessa verið um sérlega auðugan
garð að gresja, a. m. k. síðasta
áratuginn, og hefur þátttaka al-
mennings í verðbréfakaupum því
verið lítil. Orsök þessa hefur
einkum verið sú, að yfirleitt hafa
aðeins verið á boðstólum bréf til
langs tíma og að ekki hefur ver-
ið um að ræða tryggingu gegn
verðmætisrýrnun bréfa af völd-
SEXTUGUR
Sæmundur í Fagrabæ
Sæmundur Guðmundsson
bóndi í Fagrabæ í Höfðahverfi
varð sextugur síðastliðinn föstu-
dag, 27. nóvember. Hann er eitt
hinna mörgu systkina fi'á Lóma-
tjörn. Sæmundur og kona hans,
Guðrún Jónsdóttir frá Hóli í
sömu sveit, hófu búskap í Litla-
gerði í Dalsmynni árið 1929, en
að Fagrabæ fluttust þau 1938 og
hafa búið þar síðan myndarbúi.
Þau eiga 10 börn, hið yngsta 13
ára og öll mannvænleg.
Sæmundur er með vöskustu
mönnum, mikill búsýslumaður
og sérlega laginn fjárræktarmað-
ur, enda hefur hann fjölda fjár.
Lítt sér á, að maðurinn sé
sextugur orðinn, hann er ungleg-
ur í útliti, léttur í spori og ung-
ur í anda.
Blaðið sendir Sæmundi í
Fagrabæ sínar beztu hamingju-
óskir í tilefni afmælisins.
um verðbólgunnar, nema að
nokkru vísitölubréf veðdeildar.
Með útgáfu þessa skuldabréfa-
láns Sogsvirkjunarinnar er horf-
ið inn á pýjar brautir, og eru nú
kaupendum boðin hagstæðari
kjör en áður hefur þekkzt á op-
inberum, íslenzkum verðbréfa-
markaði. Sérstaklega skal bent á,
að verðbréf þessi eru til skamms
tíma, frá 1—5 ára og verðgil.din
1000 kr. og 5000 kr. Gjalddagi er
1. nóvember.
Vexth' á 1 árs bréfum eru
5 %%.
Vextir á 2 ára bréfum eru
5.%%.
Vextir á 3 ára bréfum eru
6%.
Vextir á 4 ára bréfum eru
6y2%.
Vextir á 5 ára bréfum eru
7%.
Hér er einnig sú aðferð við
höfð, að vextirnir dragast frá
nafnverði lbréfanna við sölu
þeirra, þannig, að kaupandi
greiðir þeirri upphæð minna en
nafnverð þeirra hljóða á. Allir
vextirnir eru því fyrirfram
greiddir. Kaupverð t. d. á 1000
kr. skuldabréfi til 5 ára er því
718.00 kr. miðað við, að það sé
keypt 1. desember 1959.
Verðtrygging skuldabréfa þess
ara verður einnig að teljast at-
hyglisvert nýmæli á íslenzkum
verðbréfamarkaði. Henni er á
þann veg háttað, að við innlausn
hvers skuldabréfs greiðist verð-
lagsuppbót á nafnverð þess í
hlutfalli við hækkun rafmagns-
verðs í Reykjavík frá því sem
var í okt.—nóv. 1959, við útgáfu
skuldabréfanna til gjalddaga
þeirra. Lækki hins vegar raf-
magnsverðið á sama tímabili, er
skuldabréfið samt innleyst á
nafnverði. Vextir eru einnig
tryggðir á sama hátt, og er það
einnig nýmæli. Innlausn bréf-
anna fer fram í Landsbanka ís-
lands, Seðlabankanum. — Rísi
ágreiningur um framkvæmd
þessarar verðtryggingar, skal
málinu vísað til nefndar þriggja
manna. Er hagstofustjóri odda-
maður hennar, en hinir eru skip-
aðir af Seðlabankanum og stjórn
Sogs virk j unarinnar.
Seðlabankinn væntir þess, að
hinum nýju verðbréfum verði vel
tekið af landsmönnum. Kjörin
eru hagstæð, og fénu er varið íil
nauðsynlegra framkvæmda við
rafvæðingu landsins. Á óvissum
tímum er það ekki lítils virði
fyrir væntanlega kaupendur
verðbréfa sem þessara, að geta
keypt rafmaguið á því verði, sem
það kostar í dag, til næstu fimm
ára.
Rafmagnstryggingin er því
kaupendum hagstæð verðtrygg-
ing og ásamt fyrrnefndum kjör-
um gerir hún almenningi verð-
bréfakaup aðgengilegri en verið
hefur nokkru sinni fyrr.
Fra?nhald á 7. siðu.
Ymis flSindi úr nágrannðbyggðom
Kvikiiaði í verkstæði
Sauðárkróki, 23. nóv. 1959. — í
haust var slátrað hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga um 31 þúsund fjár,
og er það allmiklu minna en á
fyrra ári. Meðalþungi dilka var
nokkru betri en þá, eða 13.97
kg. Hæsti meðalþungi dilka frá
einu heimili reyndist vera 17.49
kg., og var það frá Gauksstöðum
á Skaga, en þar býr Jón Stefáns-
son. — Tveir dilkar reyndust
þyngstir og jafnþungir, 25 kg.,
var annar frá Beingarði í Hegra-
nesi, eigandi Bogi Pálsson, en
hinn var eign Sverris Björnson-
ar, Viðvík.
Af kjöti þessu hafa verið flutt
út um 70 tonn. Að öðru leyti er
kjötið geymt hér á frystihúsi
kaupfélagsins.
Hjá Verzlunarfélagi Skagfirð-
inga var slátrað um 5000 fjár.
Ekki var að fullu lokið útreikn-
ingi á meðalþunga dilka þar.
Hrossaslátrun var mun minni
en undanfarin ár, um 500, og var
hér eingöngu um folöld að ræða.
Föstudaginn 20. nóv. varð eld-
ur laus í Vélaverkstæðinu Áki á
Sauðárkróki. Talið er að kviknað
hafi í á þann veg, að neisti af
smergelskífu hafi hrokkið í
benzín. Nokkrir bílar voru á
verkstæðinu, en þeir náðust allir
út án skemmda.
Eldurinn magnaðist fljótt og
var kominn upp í þak hússins á
svipstundu.
Slökkviliðinu tókst þó að ráða
niðurlögum hans eftir stutta
stund.
Tjón varð mikið á húsinu og
áhöldum, og er það metið á um
150 þús. krónur. — G. I.
Gert við sæstrengiiin
Hrísey 1. des. — í gær var lok-
ið viðgerð á rafmagnsstrengn-
um og erum við búnir að fá Lax-
árrafmagnið. Viðgerðin hefur
staðið yfir nær 3 vikur. Streng-
urinn var færður nokkru norðar,
en hann áður var og er botn þar
sendnari og líklegt að minni
hætta verði á skemmdum.
Tekjurnar brugðust
Dalvík, 1. des. — Tekjurnar af
marsvínavöðunni ætla að verða
minni en fyrst var ætlað, og
missir nýja kirkjan spón úr ask-
inum sínum, því að ákveðið var,
að hagnaðurinn af þessum hval-
reka rynni óskiptur til- hennar.
Vinnan við hvalskurðinn var
sjálfboðavinna.
Söluheimild var af tekin vegna
ótta við mjólkureitrun í kjötinu,
en hér er mikið borðað af þessu
ágæta kjöti og aldrei betra
heilsufar. Spikið er brætt í
beinaverksm. KEA á Ak, en
Krossan.verksm. annast mjölv.
Afli togbátanna er lítill og
hálfs mánaðar ógæftir hömluðu
veiðum.
Fimmtug er í dag frú Anna
Stefánsdóttir, Sólgarði.
Enn er leitað að fé
Reynihlíð, 1. des. — Enn er
verið að leita að fé og enn eru
menn að finna það. Ekki vantar
mikið, og minna en ætlað var. —
Austur á Fjöllum mun vanta 3. af
hundraði ennþá. Lítið fæst af
rjúpu, en verðið er hátt. Heilsu-
far er gott, en engin mannamót.
Ný vatnsveita
Þórshöfn, 1. des. — Hér er unn-
ið að nýrri vatnsveitu. Vatnið er
tekið á nýjum stað, 3—4 km. frá
þorpinu — og byggður nýr söfn-
unargeymir. Framkvæmdum er
um það bil að ljúka.
Dilkar voru hér með lélegra
móti, 15.1 kg. á mótiá 16 kg. tvö
fyrirfarandi haust.
Síldin tekin
HYAR ER STEINGRIMUR?
Margir hafa hringt til blaðsins
að undanförnu og spurt eitthvað
á þessa leið: Hvar er Steingrím-
ur? Er Steingrímur veikur?
Steingrímur hefur ekki komið
með blaðið ennþá. Og hér er átt
við Steingrim Jóhannesson blað-
burðarmann, en hann er svo sem
ekki týndur og ekki heldur veik-
ur. En hann er hættur að bera
út blöð, og er að því hin mesta
eftirsjá fyrir kaupendur Dags
hér á Akureyri, og einnig fyrir
blaðið sjálft. Og hér sjáið þið
mynd af Steingrími, sem tekin
var fyrir helgina.
Steingrímur Jóhannesson, fyrr-
um bóndi í Yztu-Vík, nú til
heimilis í Eiðsvallagötu 1 hér í
bæ, er orðinn 76 ára og búinn að
bera Dag til kaupenda á stóru
svæði á Akureyri undanfarin 14
ár, án þess að niður hafi fallið
nokkru sinni. Og enginn hefur
unnið við blaðið af meiri trú-
mennsku en hann.
Einu sinni segist Steingrímur
ekki hafa getað lokið við blað-
burðinn á réttum tíma vegna
veðurs. Þá átti eg, sagði hann,
eftir þrjú blöð, fen veðrið var
óstætt, bílar ultu, símastaurar
brotnuðu og eg varð að hætta,
komst ekki á milli húsa.
En hvernig hefur þér annars
líkað starfið?
Degi fylgir oftast gott veður og
fólkið hefur verið mér gott, und-
antekningarlaust, og svo þakk-
lótt fyrir blaðið, að starfið hefur
verið mér mjög ánægjulegt. Hins
vegar hef eg stundum lent í
vandræðum með að koma blað-
inu sómasamlega frá mér, þegar
hvergi er hægt að koma því inn
fyrir dyr og engin önnur ráð en
að smeygja því á hurðarhand-
fangið, og þannig vil eg helzt
ekki ganga frá blöðunum.
Líklega er þér ekki fagnað al-
veg eins mikið þcgar þú crt að
innlieimta blaðgjöldin?
Jú, og þá kemst eg ekkert
áfram, þ.ví að konurnar eiga oft
heitt á könnunni og margir vita,
að mér þykir kaffisopinn góður.
En eg er farinn að stirðna og
sjónin ekki góð, og betra að
hætta við blaðburðinn í sæmi-
legu lagi, heldur en að láta
kvarta um vanskil.
Dagur þakkar Steingrími störf-
in hans öll við blaðið, bæði blað-
burðinn og alla snúningana, sem
hann hefur á sig tekið án endur-
gjalds, og svo ánægjuna af fram-
úrskarandi samstarfi.
Steingrímur hefur líka haft á
hendi afgreiðslustörf fyrir Tím-
ann um fjölda ára og leyst störf
sín jafn vel af hendi fyrir það
blað. — E. D.
Raufarhöfn, 1. des. — Katla og
Helgafell voru að taka hér síld til
Rússlands og Finnlands. Engir
teljandi fjárskaðar urðu hér í
nágrenni.
Jón Trausti selur í Grimsby í
dag og er það fyrsta söluferð
þessa nýja togskips.
Hesthiis og tamninga-
stöð á Blönduósi
Blönduósi, 1. des. — Hér er al-
veg snjólaust. Fé er haft við hús,
en ekki gefið ennþá.
Viðbótarbygging Snorra Arn-
finnssonar, gestgjafa, er að kom-
ast undir þak.
Hestamannafél. A.-Hún. hefur
byggt 24 bása hestliús á Blöndu-
ósi og hyggst reka tamningastöð
í vetur.
Daglega er flutt héðan 3—4,5
tonn af mjólk til Reykjavíkur.
Mjólkurframleiðslan eykst veru-
lega í sýslunni.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína Sverrir Haraldsson,
Gautsdal, Bólstaðarhlíðarhreppi,
og Jóhanna Þórarinsdóttir,
Neðstabæ, Vindhælishreppi.
Nýr Þjóðgarðsvörður
Séra Eiríkur J. Eiríksson, Núpi
í Dýrafirði, hefur verið ráðinn
Þjóðgarðsvörður í stað séra Jó-
hanns Hannessonar. — Umsækj-
endur voru 6, auk séra Eiríks.
Jarðfall við Faxafall
Um helgina hljóp skriða eða
jarðfall á veginn utan við Faxa-
fall, skammt frá Garðsvík á Sval-
barðsströnd, svo að ófært varð
bifreiðum. Vegurinn var fljótt
ruddur með dráttarvél.