Dagur - 05.12.1959, Page 8
8
Daguk
Laugardaginn 5. desembcr 1959
Ung menntasfofnun í álögum
Stundum voru ungar og fagrar
konur í álögum og eru kannski
enn. Göfuglyndir menn gátu
leyst þær úr álögum, oft var það
sjálfur konungssonurinn.
Hér á Akureyri er ung og
myndarleg menntastofnun á
fögrum stað, Húsmæðraskólinn.
Skólinn var byggður sem heim-
angönguskóli, starfaði um nokk-
urt skeið, en var síðan lagður
niður sem slíkur. Síðan hefur
skólinn skotið skjólshúsi yfir
aðra skóla. Iðnskólinn starfar þar
að mestu og öll matreiðslu-
kennsla Gagnfræðaskólans fer
þar fram. En sjálfur heldur skól-
inn fjölmörg húsmæðranámskeið
í saumum, vefnaði og mátreiðslu.
Hið myndarlega húsnæði og góða
aðstaða er því nýtt til hins ýtr-
asta dag hvern.
Nú standa yfir þrjú námskeið
■uncjir stjórn hæfra kennara. í
fyrra sóttu yfir 160 konur þessi
námskeið. Á þann hátt njóta
fleiri konur kennslu í skólanum,
en verða myndi í föstum skóla.
Námskeiðakennslan hefur marga
augljósa kosti.
En hin unga menntastofnun var
ekki til þess byggð að þjóna öðr-
um skólum fyrst og fremst eða
verða hluti af þeim, heldur til að
veita húsmæðrum og verðandi
húsmæðrum bæjarins þá fræðslu
er hann mætti.
Flestir eða allir skólar, aðrir
en Húsmæðraskólinn, eru að
LANDHELGISMERKI
OG ÞYRILVÆNGJA
Landshelgismerkin svokölluðu,
sem seld voru um land allt kosn-
ingadaginn, og seldust ágæta vel
alls staðar, nema í Reykjavík,
báru áletrunina: Friðun miða —
framtíð lands.
Andvirði mei'kjanna varð um
600 þús. krónur, samkvæmt upp-
lýsingum Lúðvíks Guðmundss.,
formanns samtaka þeirra, sem að
þessari merkjasölu stóðu.
Ákveðið er, að hagnaðurinn af
merkjasölunni renni í Land-
helgissjóð og verði varið til
kaupa á þyrilvængju á nýja
Óðin, varðskipið, sem verið er
að ljúka srníði á.
Tilboð hafa þegar borizt um 6
gerðir þyrilvængja, frá Banda-
ríkjunum, Frakklandi, Póllandi
og Þýzkalandi.
sprengja utan af sér vaxandi
fjölda nemenda. Þegar úr því
verður bætt og Húsmæðraskól-
inn losnar, er um það að velja að
endurreisa skólann í upphaflegri
mynd, nýta hann til námskeiða-
kennslu eða byggja við hann
heimavist og starfrækja hann
sem venjulegan húsmæðraskóla.
Síðasta leiðin virðist þegar hafa
verið valin með 50 þús. króna
framlagi bæjarins til byggingar
nýrrar heimavistar.
En konungssoninn er ekki að
finna í þeirri peningaupphæð, og
álagafjötrana leysir enginn nema
almennur áhugi, sem einhverju
vill fórna fyrir málefnið.
Boðið í leikhús
Ung hjón, sem nýflutt voru í
nýja húsið sitt, fengu einn morg-
uninn tvo leikhúsmiða senda í
pósti. Þau urðu glöð, því að mið
arnir giltu að leik, sem vinsæll
var í borginni, en sendandi hafði
ekki getið nafns síns, svo að þau
gerðu lítið það sem eftir var dags
annað en gizka á, hver hefði ver-
ið svona hugulsamur.
Hjónin skemmtu sér prýðilega
í leikhúsinu um kvöldið, en þeg-
ar þau komu heim, sáu þau, að
brotizt hafði verið irm og stolið
öllum brúðargjöfunum. Á borð-
inu lá miði frá þjófnum, og á
honum stóð: „Þá vitið þið það.“
Dánardægur
Þriðja des. fór fram að Lund-
arbrekku jarðarför Sigrúnar
Þorvaldsdóttur, fyrrum hús-
freyju að Víðikeri, sem andaðist
í Fjórðungssjúkrahúsi'nu á Ak-
ureyri 27. f. m., 81 árs. — Sigrún
var ættuð úr Eyjafirði. Hún
fluttist ung að Stóru-Tungu og
giftist Tryggva Guðnasyni, er þar
bjó þá með móður sinni. — Síðar
fluttust þau að Víðikeri og
bjuggu þar allan sinn búskap,
eða þar til Tryggvi andaðist 1937.
Sigrún var hin ágætasta kona.
Þrjár starfsstúlkur Þvottahússins við vinnu sína. — (Ljósm.: E. D.).
Þvoffahúsið Mjöll í nýju, góðu húsnæSi
Er eina þvottahúsið á Akureyri og nýtur vaxandi
viðskipta - Veitir betri þjónustu en áður
Þvottahúsið Mjöll á Akureyri, sem lengi hafði aðsetur í
brekkunni ofan við Sjöfn, flutti í haust í ágæt húsakynni við
Skipagötu og starfar þar að fullum krafti og veitir viðskipta-
vinunum betri þjónustu en áður og starfsfólkinu ólíkt betri
vinnuskilyrði.
í þvottahúsinu vinna að jafnaði veitt því forstöðu síðastliðin 12
14—16 stúlkui' og hafa mikið að
gera. Unnur Sigurðardóttir hefur
ár, eða frá þeim tíma að sam-
vinnumenn keyptu það, og
Þvottahúsið Mjöll í nýjum húsakynnum. — (Ljósmynd: E. D.). —
Fimmfíu ára afmæli unpennafélagsins Framtíð
í Hrafnagilshreppi var 18. nóv.
Afmælisfagnaðurinn haldinn að Laugarborg
Pétur Jónsson skósmiður.
(Sjá grein á 7. síðu.)
Miðvikudaginn 18. nóvember
héldu ungmennafélagar í Hrafna
gilshreppi hátíð, í tilefni 50 ára
afmælis félags síns, að Laugar-
borg.
Ungmennafélagið Framtíð var
stofnað 10. jan. 1909 að Grund,
að tillögu Hólmgeirs Þorsteins-
sonar. Stofnendur voru 22 og
fyrstu stjórn félagsins skipuðu:
Jón Guðlaugsson í Hvammi, for-
maður, Kristján Árnason, verzl-
unarmaður, Grund, og Hólmgeir
Þoi’steinsson.
Samkoman í Laugarborg hófst
með því, að núverandi formaður
félagsins, Óttar Skjóldal, Ytra-
Gili, setti samkomuna og rakti
sögu félagsins, störf þess og fram
kvæmdir fram á þennan dag.
Fyrstu framkvæmdir félagsins
voru sund'laugarbygging fyrir
ofan Kristnes, við heitar upp-
sprettur þar. Næsta starf félags-
ins var að koma upp trjáræktar-
stöð að Hrafnagili og var byrjað
á því vorið 1913. Þá réðist félag-
ið í að taka þátt í byggingu þing-
húss að Hrafnagili 1924. Síðar
byggði það steinsteypta sundlaug
við Laugar að Hrafnagili. En
Hólmgeir Þorsteinsson gaf land
og afnotarétt að lauginni. Síðasta
stóra átak ungmennafélagsins
var þátttaka þess í byggingu hins
nýja og glæsilega félagsheimilis,
Laugarborgar.
í afmælishófinu, sem var mjög
fjölsótt af eldri og yngri félögum
og gestum, var glatt á hjalla og
margs að minnast.
Að ræðu formanns lokinni
tóku nokkrir af eldri félags-
mönnum til máls og minntust
fornra, ánægjulegra atburða frá
fyrstu árum félagsins. Þeir voru:
Halldór Guðlaugsson, Hvammi,
Jónas Kristjánsson, samlagsstjóri,
Hólmgeir Þorsteinsson frá,
Hrafnagili, og voru þessir menn
meðal stofnenda félagsins. — Þá
tóku og til niáls: Þórir Guðjóns-
son, málari, Akureyri, Hreiðar
Eiríksson, garðyrkjubóndi, Laug
arbrekku, og að lokum flutti
Þóroddur Jóhannsson, formaður
UMSE, kveðju frá ungmennafé-
lögum við Eyjafjörð og árnaðar-
óskir. Á milli ræða var sungið.
Leikinn var gamanþáttur og að
lokum stiginn dans.
Veitingar voru hinar rausnar-
legustu, og fór samkvæmið hið
bezta fram að öllu leyti, og sást
ekki vín á einum einasta manni.
Unnur Sigurðardóttir,
forstöðukona Mjallar.
stjórnað því á myndai-legan hátt,
og er mjög ánægð yfir breyting-
unni.
Þótt vélar og tæki séu í góðu
lagi og húsakynni góð, hefst ekki
undan að þvo og ganga frá taui,
enda er ekki annað þvottahús til
í bænum og væri þó sennilega
nægilegt verkefni fyrir tvö góð
þvottahús.
Þvottahúsið tekur á móti öll-
um þvotti, sem venja er á slík-
um stöðum, en stundum er af-
greiðslufrestur lengri en æskilegt
væri, vegna þess hve verkefnin
eru mikil.
Ætla mætti, að með hinum
nýju og fullkomnu tækjum, sem
komin eru á nær hvert heimili,
minnkaði þörfin fyrir þvottahús.
Svo virðist þó ekki vera, því að
þvottufinn, sem til þvottahússins
berst, eykst ár frá ári.
Þvottahúsið Mjöll veitir ódýr-
ar^ þjónustu en þvottahús höfuð-
staðarins. Það er hin þarfasta
stofnun og þess vegna er ánægju-
legt að betur sé að henni búið en
áður var.
Rætin frásögn
Morgunblaðið birti frétt af flugi
Tryggva Helgasonar flugmanns á
Aliurcyri í gær. — Hún er rætin
mjög og ósönn, og hefur blaðið
neitað að gefa upp nafn heimild-
armanns. — Síðar verður vikið
nánar að þessari sorpblaða-
mennsku.
Akureyringar! Hin gullfallegu
jólakort Slysavarnafélags íslands
eru seld á skrifstofu Jóns Guð-
mundssonar, Túngötu 6, Markað-
inum og hjá Sesselju Eldjárn.