Dagur - 07.01.1960, Síða 1

Dagur - 07.01.1960, Síða 1
$*> DAGUR kemur næst út miðviku- dagimi 13. janúar. XLin. árg. Akureyri, fimmtudaginn 7. janúar 1960 1. tbl. Rúlla í stað kraftblakkar á Eyjaf jarðarbát Mynd þcssa tók Jóh. Kristinsson kl. 12 a gamlaarskvöld vcstur yfir Pollinn. Um 170 Akureyringar sfunda búskap Sauðfé f jölgar og er uin 3300 og stórgripir 754 Bátar frá Eyjafjarðarhöfnum eru flestir komnir suður á vertíð og margir leigðir þangað að þessu sinni. Stjarnan, skip Kristjáns Guð- mundssonár, er leigð Kirkjusandi og er farin suður. Vörður frá Grenivík fór suður fyrir jól með rfeknet og rær siðan með línu frá Grindavík. Áskell, Grenivík, fór um áramótin og er gerður út frá sama stað. Hlutafélagið Gjögur gerir út báða þessa báta. Kristján, Ólafsfirði, er leigður til Stykkishólms, Þorleifur Rögn valdsson suður, Einar Þveræing- ur er 'hér á höfninni og á förum suður, Gunnólfur er í slipp á Akureyri og Stígandi er leigður til Suðurlands. Bátar og skip Valtýs Þorsteins- sonar eru öll fyrir sunnan. — Akraborg í útilegu, Garðar á síld, Gylfi 2. með línu og þorska- net og Gylfi 1. með hringnót. — Sá síðastnefndi af bátum Valtýs hefur engan hringnótabát, en dregur nóttina inn á skipið með rúllu, sem drifin er frá vökva- Vb. Rafnkell talinn af Enn er v.b. Rafnkcls frá Sand- gerði saknað. Ilann fór í róður sl. mánudagsnótt, en síðan hefur ekkert til hans spurzt. Báturinn var með 6 manna áhöfn og er nú talinn af. vindunni, og kemur í stað kraft- blakkar. Byrjað var með þennan nýja útbúnað í haust og hefur hann gefizt vel. Skipstjórinn, Sigurður Þórðarson, og Valtýr Þorsteinsson létu gera Framhald á 2. siðu Guðrún Kristinsdóttir leikur á Tónlistarfélagið hefur fyrir því happi, að rétt fyrir jólin kom hingað heim til Akureyrar ungfrú Guðrún Kristinsdóttir pianóleikari og hefur hún ennþá dvalið við nám erlendis. Ekki er vafi á að því að bæjarbúar munu almennt fagna því að fá að heyra píanóleik hennar á ný, þar sem jgjl l' nokkuð langt er síðan hún hélt hér píanótónleika á vegum Tón- listarfélagsins. — Tónleikarnir verða í Nýja-Bíó þriðjudaginn 12. jan. kl. 9 síðdegis. Hún mun leika lög eftir Schubert, Beet- hoven, Bartók og Debussy. Akureyringar hafa ekki lagt búskapinn á hilluna, þótt menn verði þessa lítið varir við aðal- umferðaæðar bæjarins. Búskap- inn stunda menn jöfnum höndum sér til hugarhægðar og til að afla tekna. Hið fyrmefnda mun þó oftar ráða, þótt hvort tveggja geti farið saman. Ennfremur eru svo 20 bændur innan takmarka kaupstaðarins, sem búskap stunda eingöngu, og auk þess eru stórbú tilraunaráðs á Galtalæk og búfjárræktarstöð eyfirzkra bænda að Lundi. Hjáverkabúskapur bæjarbúa fylgir útjöðrum kaupstaðarins og er á sífelldum flótta undan bygg- ingum íbúðarhúsa. Þó eiga fjár- hús og hesthús sér griðland á fá- einum stöðum og eru þar eins konar nýlendur, smáhýsi mörg og af margs konar gerð allt frá yfirbyggingu skipa til söluturna. En öll eru þau á vetrum full af fénaði, vel fóðruðum, og þar eiga margir, bæði ungir og gamlir Akureyringar, ótal yndisstundir meðal vina. Blaðið hitti nýlega forðagæzlu- mann bæjarins, Þórhall Guð- mundsson, og spurði hann um heyskap í sumar og tölu búfjár hér í bæ. Gaf hann greið svör og góð og fara hinar tölulegu upp- lýsingar hér á eftir. Heyskapur. Heyskapur á Akureyri varð í sumar 30750 hestar, þar af 460 hestar úthey og 880 hestar af töðu, verkaðri sem vothey, og er það um 4300 hestum meira en ár- ið áður. Á fóðrum. Á fóðrum eru nú 3295 kíndur INGIMAR EYDAL FYRRVERANDI RITSTJÓRI LÁTINN Ingimar Eydal, sem andaðist 28. desember sl., var jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 5. janúar sl. Hann var 86 ára að aldri. Ingimar Eydal var fyrsti ritstjóri Dags og annaðist rit- stjórn hans samtals í 1814 ár, ýmist einn eða með öðrum hin síðari ritstjórnarár. Hann lagði hornstein og hlóð gunninn að farsælli útgáfu þessa blaðs í höfuðstað Norð- urlands fyrir rúmum fjórum áratugum af sinni alkunnu skarpskyggni og dugnaði. Hugsjónir samvinnustefnunnar og baráttumál Framsóknarflokksins fyrir alhliða framför- um og bættum hag almennings, mótuðu starf og stefnu blaðsins frá öndverðu og gerðu það sncmma að stærsta og öflugasta málgagni Norðlendinga. Hinn fjölgáfaði, rökfasti og drenglyndi ritstjóri var ágætlega ritfær og aðsópsmikill ræðumaður. Haim unni listurn og glaðværð, en var þó djúphugull alvörumaður — átti jafn auðvclt með að starfa með Lcikfclagi Akureyrar og að stjórna fundum bæjaryfirvaldanna úr forsetastól. — Ingimar Eydal voru falin margvísleg trúnaðarstörf auk rit- stjórastarfsins, bæði fyrir Framsóknarflokkinn, sam- vinnustefnuna, bæjarfélagið og ýmis félagasamtök innan þess. Þjóðfélagið sæmdi hann heiðursmerki og nokkur félög veittu honum þá virðingu, sem þau geta mesta vcitt. Ingimar Eydal var hamingjuinaður vegna þess hve fjöl- mörg áhuga- og baráttumál hans komust farsæþcga í liöfn. Hann var virtur vegna vitsmuna sinna og dréngilegrar og ötullar baráttu fyrir framfara- og menningarmálum og hann naut ástríkis stórrar fjölskyldu til hinztu stundar. Dágur kveður hinn látna og fyrsta ritstjóra sinn, Ingimar Eydal, með dýpstu virðingu og þakklæti fyrir sína hönd og þúsunda lesenda sinna og sendir ástvinum hans innilegar samúðarkveðjur. Vinir og samherjar minnast hins látna annars staðar í blaðinu í dag. og þrjár geitur. Ær eru aðeins færri en í fyrra, en lömb til muna fleiri, og er því útlit fyrir að enn fjölgi sauðfé, þrátt fyrir Framhald á 2. siðu. NÝR BANKASTJÓRI Rétt fyrir áramótin var Júlíus Jónson, fyrrum bankag'jaldkeri og settur bankastjóri um skeið, skipaður bankástjóri útibús Ut- vegsbankans á Akureyri, og mun sú ákvörðun hafa verið gerð með atkvæðum allra bankaráðs- manna. Júlíus Jónsson er 44 ára og hefur starfað við bankann yfir tvo áratugi og getið sér hið bezta orð bæði í því starfi og utan þess. Blaðið árnar hinum nýja bankastjóra allra heilla. LANiJbtíUftÁSÁbN 229994 ISIANDS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.