Dagur - 07.01.1960, Side 2
2
D A G U R
Fimmtudaginn 7. janúar 19G0
Fremiir rólegf hér um jó! og nýár
Gamansömum mönnum segist
svo frá, að í fréttum frá höfuð-
stað landsins hafi fullyrt verið
um hver áramót síðustu áratugi,
að aldrei hafi ölvun og óspektir
verið minni, muni því einhvern
tíma hafa verið líf í tuskunum
þar syðra.
Samkvæmt upplýsingum yfir-
lcgregluþjóns hér í bæ, Gísla
Ólafssonar, var fremur rólegt á
götunum og engar óspektir á
gamlaárskvöld, eins og stundum
hefur við borið rpeðal unglinga.
Unglingar undu sér við 12
brennur í útjöðrum bæjarins
undir umsjón lögreglunnar í stað
þess að safnast saman á götunum
og glettast við verði laga og rétt-
ar og aðra borgara bæjarins.
Hins vegar bar töluvert á ölv-
un eftir miðnætti. Dansleikir
voru haldnir á fjórum stöðum í
bænum og þurfti lögreglan að
hafa meiri afskipti af fólki þar
en á síðasta ári. Tveir menn
slösuðust á eða við þessa
skemmtistaði og voru fluttir í
sjúkrahús og rúða í verzlunar-
glugga var brotin í ölæði.
Kl. 12 á miðnætti á gamla-
árskvöld var flugeldum skotið áð
venju og varð bærinn eitt Ijóshaf
Skákþing Norðlendinga
Skákþing Nórðlendinga hefst á
Akureyri 24. jan. n.k. Búast for-
ráðamenn Skákfélags Akureyrar,
sem standa fyrir þinghaldinu, við
mikilli þátttöku í öllum flokkum,
þar sem skákáhugi hefur farið
mjög 'vaxandi, bæði í bæ og nær-
liggjandi sveitum. — Formaður
Skákféiags Akureyrar, Jón Ingi-
marsson, tekur á móti þátttöku-
tilkynningum.'
Skákkeppni
Skákkeppni fór fram sl. sunnu-
dag milli Skákfélags Akureyrar
og Ungmertnasamb. Eyjafjarð-
ar. Teflt vaf á 51 borði. Úrslit
urðu þau að Skákfélag Akureyr-
ar vann með 30 vinningum gegn
21. Sérstaka athygli vakti þátt-
taka Guðmundar Árnasonar,
fyrrv. pósts, sem tefldi með
Skákfélagi Al^ur.ey.rar, hann er
nú 84 ára gamall.
um stund. Og á sama tíma gladdi
augað ártalið 1960, sem búið var
til úr 75 kyndlum í Vaðlaheiði
og biasti við. Að þessari smekk-
legu og nýstárlegu skreytingu
stóðu þeir Guðvarður Jónsson
málari, Trausti Reykdal yngri og
Jón Ingólfsson iðnverkamaður.
- Bátar og skip á vertíð
Framhald af 1. siðu.
breytingu hér fyrir norðan, að
því er Hreiðar Valtýsson fulltrúi
skýrði blaðinu frá í gær, og taldi
hann líklegt að þessi útbúnaður
myndi henta vel á síldveiðunum
fyrir Norðurlandi, þangað til
eitthvað enn betra væri fundið
upp, er hentaði bátum af þessari
stærð.
Valtýr Þorsteinsson hefur í
hyggju að láta smíða 180—200
tonna stálskip í Noregi þegar
bankarnir veita nauðsynlega fyr-
irgreiðslu.
Hér liggja í höfn togskipin
Sigurður Bjarnason, Akureyri,
Björgvin frá Dalvík, Skagfirð-
ingur frá Sauðárkróki, Jón
Trausti, Raufarhöfn, Bjarnarey,
Vopnafirði og Hafþór frá Nes-
kaupstað. Enníremur Snæíell,
Akureyri.
Nú er verið að brjóta upp
kjölfestu Skagfirðings og Haf-
þórs og hækka horðstokkana á
Skagfirðingr,- Jóni Trausta og
Björgvin. Oll munu þessi skip
innan skammt tíma fara á tog-
veiðar.
Nær fisklaust er hér innfjarðar
um þessar mundir og virðist
friðunin annars staðar koma íyrr
í ijós.
r
Friðrik Olafsson kemur
Friðrik Ólafsson stórmeistari
er væntanlegur til Akureyrar um
næstu mánaðamót í boði Skákfé-
lags Akureyrar, mun hann dvelja
hér aðeins um eina helgi og tefla
við Akureyringa og iicprsveita-
ménn.
Happdrætti Framsóknarílokksins
Slærsti vinningurinn var íbúð
í Laugarásnum í Reykjavík og
kom hann á númer 18500. Miðinn
var seldur í Reykjavík.
Aðrir vinningar voru þessir:
2. Mótorhjól á nr. 178. Seldur í
Reykjavík.
3. Matar-, kaffi- og mokkastell
á nr. 30139. Seldur á Akra-
nesi.
4. Riffill á nr. 14068. Scldur á
Hólmavík.
5. Veiðistöng á nr. 32432. Seidur
í Reykjavík.
6. Herrafrakki á nr. 11063. Seld-
ur í Reykjavík.
7. Dömudragt á nr. 9011. Seld-
ur í A.-Hún.
JEPPI
Hefi til sölu góðan Willy’s
landbúnaðarjeppa.
GiU'dm. Skaftason, lidl.,
Hafnarstræti 101, 3. hæð.
Sími 1052.
S. Málverk af Helgafelli á nr.
10275. Scldur á Húsavík.
9. Ferð til Kaupmannahafnar og
heiin á nr. 31990. Seldur í
A.-Skaft.
10. Flugfar til Englands og heim
á nr. 35570. Seldur í V.-Skaft.
Véla- og raftækjasalan h.f.
Strandgötu 6. — Sími 1253
Ávallt mikið og f jöl-
breytt úrval af góðum
vörum með góðu verði.
Óskum öllurn okkar mörgu
viðskiptavinum gleðilegs drs
og þökkum viðskiptin
á því liona.
Véla- og rafíækjasalan h.f.
Strandgötu 6. — Sími 1253
Sjónleikur og eftirleit
Fosshóli 5. des. — Nýlega fóru
tveir ungir bændasynir í eftirleit,
þeir Tryggvi Harðarson, Svart-
árkoti, . og Gunnar Þórólfsson,
Stórutungu. Þeir fóru á skíðum
og leituðu í Grafarlöndum, við
Móflárhnausa og í hrauninu á
allstóru svæði. Lambhrút, bilað-
an í fæti, fundu þeir og komu
honum til byggða. Enn vantar fé
í Bárðardal.
Kinnungar hafa sett sjónleik-
inn Vængstýfðir englar á svið og
leikið fyrir fullu húsi í Yztafelli
og á Hólmavaði. í kvöld sýna
þeir sjónleikinn hér á Fosshóli.
Leikstjóri er frú Kolbrún Björns
dóttir, Yztafelli.
Sæmilegt færi er um sveitir,
einnig yfir Fljótsheiði, og í gær
fór áætlunarbíllinn frá Húsavík
yfir Vaðlaheiði.
Áttræður varð Sigurgeir
Guðnason, Jarlsstöðum, Bárðar-
dal, á annan í jólum.
Þakkarávarp
Ollum þeim félögum og ein-
staklingum, sem á liðnu ári hafa
sýnt okkur vinsemd, sótt okkur
heim og veitt ánægju og til-
breytingu með myndasýningum,
tali og tónum, eða boðið til
skemmtunar utan hælis, svo og
forráðamönnum kvikmyndahús-
anna á Akureyri, sem hafa lánað
okkur myndir til sýningar, flytj-
um við alúðarþakkir og árnurn
þeim heilla á komandi dögum.
Sjúklingar í Kristneshæli.
Gjafir til Iðavalla
Þann 22. des. kom hingað her-
flugvél af Keflavíkurvelli með
góðar gjafir til nýja leikskólans,
Iðavalla. Meðal þeirra gjafa voru
nokkur þríhjól, smávagnar og
ýmiss konar leikföng af öðru
tagi.
Herprestur afhenti gjafir þess-
ar, en á móti þeim tók Theodór
Daníelsson framkvæmdastjóri
Iðavalla og Magnús E. Guðjóns-
son bæjarstjóri. — Þökkuðu þeir
gjafirnar, en aðrir munu sam-
gleðjast börnunum með hina
nýju dægradvöl.
■ Búskapur Akureyringa
Framhald af 1. siðu.
landþrengsli í haga. Afurðir
sauðfjárins eru furðu miklar,
miðað við aðstæður. Féð er yfir-
leitt kappfóðrað og víðast haft á
grindum.
Nautgripir eru 574, þar af 208
geldneyti, og er það 4 geldn. og 1
kú færra en síðasta ár.
Hross eru um 180 og um 20
færra en í fyrra og mikið um
góðhesta, sem kunnugt er.
Svín eru á nokkrum stöðum,
auk þess hænsn, endur og gæsir.
Nær 170 bæjarbúar stunda
búskap, flestir í hjáverkum, auk
20 bænda.
Þrátt fyrir landþrengslin eru
hér á fóðrum um 200 nautgripir á
vegum hins opinbera og bænda-
samtakanna, sefir forðagæzlu-
maðurinn að lokum. ,
- Bafnandi sambúð þjóða
Framhald af 8. siðu.
Sjálfstæðisflokkurinn þjóðinni
þær mútur, að bæta lífskjör
hennar, ef hann næði stjórnar-
taumunum í sínar hendur. Slag-
orðin, „leiðin til bættra lífskjara“
voru notuð í öllum tölublöðum
flokkshlaðanna um margra vikna
skeið og ræðumenn flokksins
„skreyttu“ sig með þessum slag-
oi'ðum, þar sem tveir menn eða
fleiri voru saman komnir. Efnd-
irnar geta menn gizkað á af ára-
mótaboðskap forsætisráðherra og
efnahagssérfræðinga ríkisstjórn-
arinnar. í stað þess að minnast á
„leiöina til bættra lífskjara", er
nú komið nýyrðið „óðaverð-
bólga“. I stað þess að efna gefin
heit frá því 'fyrir kosningar um
bætt lífskjör, segir ríkisstjórnin
nú, að við blasi „greiðsluþrot út
á við og upplausn inn á við“. 250
mil'Ij. kr.'vanti í Út.fl.sjoð aðöðru
óbreyttu. „Þjóðin hefur lifað um
efni fram“ og „allir verða að
fóx-na nokkru".
Ef þjóðin lætur sér slíkar
blekkingar vel líka, þá er illa
farið.
Ef stjórnmálaflokkar mega
endui'taka vinnubrögð af þessu
tagi, og það hafa þeir vissulega
gert, þá þarf engan að undra þótt
hér þrífist það illgresi, sem á sér
rætur í öðru landi, en nærist hér
á afglöpum og ráöleysi lýðx-æðis-
flokkanna, og á eg þar við
komm.únisía.
Niðurlagsorð. ,
Þótt drepið hafi verið á nokk-
ur sönn atriði úr stjórnmálalífinu
til viðvörunar, þá ætti það að
vera einlæg von allra lands-
manna, að stjórnai'völdunum
takist sem bezt að leysa hið erf-
iða vei-kefni efnahagsmálanna. —
Sennilega er það aðeins á fæi'i
samstjórnar allra flokka, að
skapa nýtt efnahagskeiúi, sem
ailur almenningur sættir sig við,
; Hinar nýju leiðir verða .síðar
TÍLKYNNING
frá Verkamannafélagi
Akureyrarkaupstaðar
Ákveðið hefur verið að kosn-
ing stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Verkaniannaléla«s
o
Akureyrarkaupst. fari fram að
viðhafðri allsherjaratvkæða-
ojreiðslu.
o
Kjörlistum með meðmæl-
um 46 fullgildra félagsmanna
skal skila til formanns kjör-
stjórnar, ]óns Ingimarssonar,
Byggðaveg 154, fyrir kl. 6 e. h.
miðvikudaginn 13. jan. n. k.
Stjórn Verkamannafélags
A kureyrarkaupstaðar.
til umræðu og verða ekki dæmd-
ar fyrirfram. En efnahagsmál
þjóðar verða auðvitað aldrei
leyst fyrir. langa framtíð. Þau
verða dagsins mál á hverjum
tíma eins og hvers einstaks
þjóðfélagsþegns. En um þau ber
að fjalla á þann hátt, að hverjum
meðalgreindum manni séu þau í
aðalatriðum ljós og að hægt sé að
treysta yfirlýsingum æðstu
manna þjóðfélagsins.
Hvort sem menn kveðja hið
liðna ár með söknuði eða ekki,
ber á það að líta, þegar horft er
til framtíðarinnar, að aldrei fyrr
hefur þjóðin átt meiri eða fjöl-
breyttari atvinnutæki, aldrei
skapað önnur eins verðmæti og
aldrei lifað við jafnari eða betri
kjör, en hún gerir hin síðari ár.
Iðnaðurinn er orðinn stórveldi
í landinu, sjávarútvegui'inn vex
ört hin síðustu ár, lahdgrunnið er
raunverulega friðað og fiski-
gegnd eykst og enn eru ótæmandi
vei'kefni í auðlindum lands og
sjávar. Með þetta allt í huga er
hægt með miklum rétti að horfá
vonglaður til komandi tíma og
ekki ástæða til að mála horn og
klaufir á hverja mynd framtíðar-
innar. Á meðan svo heldur sem
horfir í mikilli, vaxandi og verð-
rnætri framleiðslu og mark'aðir
þrengjast ekki eríendis, jxarf ísg
lenzka þjóðin engu að kvíða urfj
framtíð sína, hvort sem hinir
vísu 1 a ;i d sf a ú u r—f i m
inginn krónu eða krónuna fimm-
eyring — og þó að einn spónn
vcrði tekinn úr aski hinná fá-
tæku og ein ausa úr aski þeirra
í'íku, yrðu lífskjör íslendinga
samt betri en flestra eða allra
nágrannaþjóða okkar.
Megi nýja árið færa öllum
landsmönnum gengi og gæfu. “
Erlingur Davíðsson.
Hinar margeftirspurðu gráu
ÐRENGJANÆRBUXLR
eru komnar aftur, einnig
KARLMJNÆRBUXUR
UGLUGARN
NÝKOMIÐ.
Fallegir litir.
Hvítar dömupeysur
með grólu prjóni,
væntanlegar í dag.
KLÆÐAVERZLUN
SIGURÐAR
GUÐMUNDSSONAR H.F.
Jeppi til sölu
árgerð 1954.
Snæbjörn á Grund.
Frá Húsmædraskóla Akureyrar
Námskeiðin í fatasaunr, handavinnu, vefnaði og mat-
reiðslu hefjast aftur um miðjan janúar. — Skrásetning
jreirra, er námskeiðin ætla að sækja, fer daglega lram í
skölanum kl. 7—8 síðdegis. — SÍMl 1199.