Dagur - 13.01.1960, Síða 4

Dagur - 13.01.1960, Síða 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 13. janúar 1960 KlTSTJÓttl. E R L I X G l ' R J) A V i 1) S S (> \ Auglýxiiigactjori: J Ó N S \ M l ELSSON Ánjar.;;iiriim kosiar kr. 7S.00 Jilai\ii\ kciimi' lil á miiiviknclöijum og Imig.irilögnm, |>s-"ar ofni standa til <.jaliltl;i(M rr 1. jiilí 1'RF.NTVPlíK ODDS UJÓRNSSONAR H.F. Þegar einsfaklings- framtakið bregzf FLESTIR viðurkenna réttilega, að ein- staklingsframtakinu ínegi ekki sníða of þröngan stakk innan þjóðfélagsins. En allir vita og hafa sannreynt, að þar sem verkefni er einstaklingnum ofviða verða fleiri að koma til, ríki, bæjarfélög eða annar félags- skapur manna, Fyrir 10 árum tók skuldugur útgerðarmaður á ísafirði sig skyndilega upp og' flutti vélbáta sína vestur til Nýfundna- lands og hugðist gera þá út þar. Fyrir 30 ár- um gáfust menn einkaframtaksins í sama kaupstað upp við bátaútgerð og bærinn var á heljarþröm í atvinnumálum. Þá stofnuðu Is- firðinsar félag, létu smíða 5 40 tonna báta í Svíþjóð og gerðu þá síðan út þar vestra. Rétt eftir stríðið var stofnað til togaraút- gerðar á Akureyri. Annan togarann, Jörund, átti einstaklingur, Guðmundur Jörundsson. Fyrir tveim árum seldi hann skipið til Stykkishólms Nú er hann að kaupa nýjan helmingi stærri togara, eða 1000 rúmlesta skip. Þegar hann fékk leyfi fyrir hinum nýja togara ákvað hann að flytja suður til Reykja- víkur og gera út þaðan. Á sínum tíma studdi bærinn hann til að kaupa Jörund og var það eðlilegt. Útgerðin gekk vel, því að eigandinn var dugmikill og allmiklir fjármunir söfnuð- ust í eins manns hönd vegna útgerðarinnar og hagkvæmrar sölu togarans. Þessir fjár- munir flytjast nú til höfuðstaðarins. í viðtali við Morgunblaðið, nú nýlega, hefur svo Guðmundur látið hafa þau ummæli eftir sér, sem mjög eru til þess fallin að vekja ótrú á togaraútgerð frá Akureyri. Þessi sami maður hefur verið frambjóðandi á lista Sjálfstæðis- flokksins við Eyjafjörð. Að liinum togaranum, Kaldbak, stóð al- menningur í bænum. Sú útgerð hefur að vísu orðið fyrir áföllum, sem þó verða fremur rakin til einstaklinga en almenningssamtaka. Skipin eru þó orðin 4 og búið er að koma upp miklu hraðfrystihúsi- Þessi skip hafa skotið styrkum stoðum undir bæinn. Þau hafa skapað atvinnu handa fjcllda manns, sennilega framfærslu, beina eða óbeina, fyrir 1500—2000 manns. Dæmin, sem hér hafa verið tekin af útgerð einstaklinga og félaga, sýna, að almenningur á \iðkomandi stöðum þarf að hafa hönd í bagga um útgerðina. Því að svo getur farið, jafnvel hjá hinum harðfengustu og ágætustu framkvæmdamönnum, sem vissulega em virðingarverðir, að þeim segist svo hugur um einhvern daginn, að betra sé að flytja allt sitt í brott og byrja á öðrum stað, án tillits til þess hverjum afleiðingum það veldur á brottfararstað, að öflug atvinnutæki hverfi þaðan. Viðkomandi staður verður þá að byrja á því á nýjan leik að byggja sér upp ný atvinnutæki, einstaklingar eða félög. Einar Guttormsson biður íyrir eftiríarandi í Fokdreifar: ÞEGAR eitthvað vantar í bóndans bú, sem honum er nauð- synlegt að hafa, og hægt er að veita sér, verður honum fyrst fyrir að bæta úr því. Nokkuð svipað flaug mér í hug eftir útvarpsumræðurnar um frestun Alþingis og orsakirnar til hennar. Stjórnin nýja bar sig hálf illa og kvartaði yfir því, að hún fengi ekki vinnufrið fyrir andstæðingunum. Ef satt er, þá er þetta eigi aðeins slæmt, heid- ur hábölvað. — Núverandi lýð- veldisstjórn íslands vanhagar um næði. Slíkt hefur víst sjaldan skeð fyrr. En hvað um það, hún vill ekki láta vekja upp gamlar ávirðingar. Væri nú ekki vænlegt til ráðs, til þess að slíkt komi ekki fyrir aftur, að ákvæði á þá lund yrði tekið upp í hin nýju stjórnskip- unarlög lýðveldisins, að sérhver alþingismaður, sem tæki sæti i stjórn þess, legði þá þegar niður þingmennsku, en varamaðurinn kæmi í staðinn. Ef til vill má breyta þessu með einföldum lög- um, ef ráðherrunum fyndist ósanngjarnt að taka við tvöföld- um launum. Sérhver ráðherra á aðeins að hafa eitt starf á hendi, ráðherra- embættið. Hvaða stöðu sem menn hafa, eiga þeir að leggja niður um leið og þeir gerast stjórnendur íslenzka lýðveldisins. Með þessu fyrirkomulagi er öll- um stjórnmálaflokkum gert jafn hátt undir höfði. Þessi tilhögun ætti að koma í veg fyrir aliar kvartanir um, að stjórnin hefði ekki vinnufrið. Ráðherrar mættu sitja þing- fundi og hafa málfrelsi í stjórn- armálefnum, bæði til framsögu, eins og t. d. fjármálaráðherra, og til varnar, hvor fyrir sína stjóm- ardeild. Öðru eiga þeir ekki að koma nærri í störfum Alþingis, hvorki að kjósast í nefndir né hafa atkvæðisrétt. Alþingi á að vera spegill þjóðaróskanna, en stjórnin skuggsjá þingviljans. Ut frá þessum tillögum er eg viss um að koma mætti á viðun- andi tilhögun, sem ekki þyrfti sífelldra breytinga við. Verði tillaga þessi talin þess verð, að tekin verði hún til at- hugunar af hinum vitru, og hljóti náð fyrir þeirra augum, verður ekki sagt, að umræðunum 7. des. hafi verið útvarpað að þarflausu. Svo vill Jói fá orðið: HINN allsráðandi sími hringdi rétt einu sinni og einhver kven- maður spufði eftir pabba. Það var sú hin sama og 'hringdi rétt áðan að spyrja eftir pabba. Það er svo sem ekkert óvenjulegt, að spurt sé eftir honum. Og eg sagði sem var, að hann væri ekki enn- þá komin heim af skrifstofunni, en hann hlyti að fara að koma. — Síminn er annars óþolandi, hann hringir þegar verst stendur á, til dæmis þegar maður er að borða, eða þá sjaldan að eitthvað skemmitlegt er í útvarpinu, jafn- vel eftir að maðui' er háttaður og sofnaður. Alltaf er stokkið til og anzað þegar síminn hringir. Ein hringing af hverjum tíu er vit- laus, þ. e. sá sem hringir ætlaði að hringja í allt annað númer og bölvar svo vanalega í stað þess að biðja afsökunar. Svona er síminn. Og enn var hringt. „Það er Fæðingardeildin,“ sagði ákveðin kvenmannsrödd, og bað fyrir skilaboð til pabba, að hringja tafarlaust á Fæðingardeildina, þegar hann kæmi heim. Já, já, sjálfsagt að skila því, sagði eg. Og svona til vonar og vara leit eg inn í eldhúsið og sagði mömmu að pabbi ætti strax að hringja á Fæðingardeildina þeg- ar hann kæmi heim. Það var þá síður hætt við að við gleymdum því bæði. Það er svo leiðinlegt þegar maður gleymir skilaboðum úr símanum, eins og maður væri einhver hálfviti. Á Fæðingardeildina? sagði mamma og snarstanzaði með búrhnífinn í annarri hendinni og kjötlæri, sem hún ætlaði að fara að steikja í hinni og blóðlitað vatnið úr nýþíddu kjötinu draup á bládröfnóttan gólfdúkinn. Það lekur úr kjötinu, mamma, sagði eg. Jæja, sagði hún, og munnsvipurinn varð einsogþegar eg mölvaði stóru rúðuna óvart og alltaf er verið að stagast á. — Stóri bróðir stakk hausnum út úr sínu herbergi og var allur eitt glott en spurði ósköp sakleysis lega, hvert pabbi hefði átt að hringja. Á Fæðingardeildina, sagði eg eins og satt var og svo lokaði hann hurðinni og það kvað við þessi rokna hlátur. Það voru einhverjir strákar inni hjá honum. En mamma tók til við kjötið með þessari líka litlu vonzku og skellti því svo á steikarapönnuna. Og rétt í þessu kom pabbi, bauð gott kvöld og blés eins og hann er vanur, vegna ístrunnar. Þú átt að hringja á Fæðingar- deildina, sagði eg við hann, það liggur víst einhver ósköp á. —; Hver var það nú, sagði hann, en það vissi eg auðvitað ekki, en lét þess getið, að það væri einhver stúlka, sem væri búin að hringja hvað eftir annað. Já, ekki öðruvísi, sagði pabbi, og mamma kom fram í eldhús- dyrnar með samanherptar varir og horfði fast á pabba til að vita hvórt honum brygði nokkuð. Pabbi tók símann.... dálítið erfitt, já, já, það má búast við því. ... 8 klukkutíma.... jú.. . það er ekki gaman, já. .. . jamm, eg kem þá rétt strax. ... jú, það er ennþá betra, ef þú gætir komið því við. Strákarnir hlógu eins og vit- lausir inni í herberginu. Hver var þetta, með leyfi að spyrja? sagði mamma fastmælt. Gömul vinkona, sagði pabbi. Hún er á Fæðingardeildinni og.... og lengra komst pabbi ekki, því að mamma var komin á það stig, þegar hún vill hafa orðið. . . . Þegar hringt er frá Fæðingar- deildinni, þá eru það feðurnir, sem hringt er til, og svo sagði hún öll ósköp, sem eg man ekki hvað var og var vond, og pabbi sagði: Góða mín, því er nú ver, að maður á ekkert þar, og eg á ekki von á neinu — ekki nokki'- um sköpuðum hlut. Það verður ekki fyrr en þú. . . . Rétt í þessu er bankað og ung og falleg hjúkrunarkona kom í dyrnar og heilsaði glaðlega. Eg þekkti það á röddinni að það var sú sama og í símanum. Eg vona að það hafi. ekki valdið misskiln- ingi að eg hringdi úi' Fæðingar- deildinni, sagði hún og hló svo hjartanlega að jafnvel mamma, sem ennþá var hrent ekki laus við grunsemdir, tók undir. Nei, nei, auðvitað ekki. Eftir augnablik stigu þau öll upp í nýja bílinn hans pabba og það lá vel á þeim. Þau voru að fara í afmrelisveizlu fram í sveit, og einhver bíll hafði verið 8 klst. í gær að komast þá leið. Svo er stundum sagt, þegar síminn hringir: Ætli það sé nú frá Fæðingardeildinni, og þá fara allir að hlæja, nema þá helzt mamma. — Jói. Frá Æskulýðsheimili templara í vetur hefur Æskulýðsheimili templara að Varðborg verið opið á þriðjudögum og föstudögum kl. 5—7 fyrir börn úr 4., 5. og 6. bekkjum barna- skólanna og sömu daga kl. 8—10 fyrir unglinga. — Nærri því öll miðhæð hússins er notuð fyrir þessa starfsemi, og er þar komið fyrir góðu bókasafni, lesstofu og leiktækjum. Aðsókn unglinganna hefur aldrei verið eins mikil og í vetur. Aðgangur er ókeypis fyrir alla. Fyrir áramótin fóru fram tvö námskeið í papp- írsvinnu, sem aðallega voru ætluð börnum innan 12 ára aldurs. Þá fóru einnig fram tvö námskeið í flugmódelsmíði, auk þess hefur Módelklúbbur Ak- ureyrar ókeypis húsnæði fyrir starfsemi sína í Æskulýðsheimilinu. Meðlimir klúbbsins vinna þar oftast tvö kvöld í viku. Á næstunni hefjast námskeið í eftirfarandi greinum: 1. Námskeið í bast- og tágavinnu hefst 18. jan. Þar verða gerðir lampaskermar, skálar, föt, bakkar o. fl. Einnig verður unnið úr kaðli, perlum og fleiru. Þetta er einstakt tækifæri til þess að læra gagnleg og skemmtleg tómstundastörf. Kennslan verður sennilega í fjórum flokkum. Námskeiðið hentar bæði ungum og gömlum. Kennari verður frú Sigrún Gissurardóttir frá Rvík, en hún hefur mörg undanfarin ár leiðbeint þar á slíkum nám- skeiðum. Sökum annríkis dvelur hún hér aðeins um tveggja vikna tíma, og er því nauðsynlegt að þeir, sem vilja nota sér þetta einstæða tækifæri tryggi sér aðgang sem allra fyrst. 2. Námskeið í ljósmyndagerð hefst svo fljótt sem hægt er. 3. Námskeið í pappírsföndri fyrir yngri börn (8 —11 ára.) Námskeið í skák mun fara fram, ef næg þátttaka fæst. 5. Frímerkjaklúbbur verður stofnaður miðviku- daginn 20. jan. kl. 8 e. h. Aðallega er hann hugs- aður fyrir 12—16 ára unglinga. Er líklegt að margir ungir frímerkjasafnarar vilji notfæra sér þetta tækifæri til þess að ná sambandi við aðra, sem hafa sama áhugamál og þeir. Þetta verður fyrsti frímerkjaklúbburinn, sem starfar í þessum bæ. Allar upplýsingar um námskeiðin og aðra starf- semi Æskulýðsheimilisins má fá hjá Tryggva Þor- steinssyni í Varðborg á þriðjudögum og föstudög- um kl. 5—7 og kl. 8—10. Sími 1481. ÆSKUMAÐURINN Mamma, mamma, þú vísaðir leið, bess vegna verður ævibrautin greið. Eg aldrei gleymi yndisstundum þeim, eg á líka sjálfur dýi'ðarheim. Ársólin gyllir ylríka strönd á bak við eru öll mín björtu lönd. Þú last mér sögur um ævintýraheim og bjart verðui' alltaf yfir löndunum þeim. Mamma, eg man jólin, eg þakka fyrir allt, eg yla mér við minningar ef mér verður kalt. Mamma, góða mamma, þú gafst mér fögur jól, Jesúbarnið fæddist, þegar skein ei nokkur sól. Jesú bar birtu í heiminn, blessuð er sú stund, hann er mér styrkur og stoð á lífsins grund. Eg hugsa um mína æsku, aldrei gleymi eg því, hve indælt vár að vera föðurfaðmi í. Eg finn að lífið brosir í fegurstu mynd, eg vil vaxa og auðgast af hinni tæru lind. Mörg eru verkefni sem mér finnst bíða mín, eg vil vinna af kappi meðan sólin skín. Við erum bræður og systui' ei má gleyma því, friðarins hugsjón hæsta hún ber þessum orðum í. Eg legg glaður á lífsins stig, leiðtoginn ljúfi 'leiddu mig. Kristín Jóhannesdóttir frá Syðra-Hvarfi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.