Dagur - 03.02.1960, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 3. febrúar 1960
JÓN JÓNSSON, SKJALDARSTÖÐUM:
NOKKRIR ÞÆTTIR UM
Úr þáttum Jóns á Skjaldarstöðum um Jónas Hallgrímsson, í jóla-
blaði „Dags“, hafa fallið niður nokkur orð á eftirtöldum stöðum: Á
eftir orðunum á bls. 21, fremsta dálki, 3.—4. línu a. n.: „Rannveig
systir hans giftist 19 ára gömul“, á að koma, „fyrri manni sínum,
Tómasi Ásmundssyni“, og í öðru lagi á bls. 22, á eftir orðunum „orti
mörg“ í 8. 1. a. n., á að standa: „veizlukvæði á dönsku um konungs-
ættina, jólasöngva fyrir dönskumælandi yfrstéttarbörn og önnur
samkvæmisljóð.“
í>á er í sama þætti sagt að þeir séra Einar Thorlacius í Saurbæ og
séra Hallgrímur á Hrauni og Steinsstöðum væru systrasynir. Er
þetta tekið eftir æviminningum Jónasar Hallgrímssonar með Helga-
fellsútgáfunni á verkum hans. En samkvæmt upplýsingum Hólm-
geirs Þorsteinssonar frá Hrafnagili, er þetta ekki rétt, þeir voru
systkinasynir. Ólöf, móðir séra Einars, og séra Þorsteinn í Stærri-
Árskógi voru systkin, bæði börn séra Hallgríms á Grenjaðarstað
Eldjárnssonar.
Áður en eg flyt úr nágrenni Steinsstaða langar mig til að
minnast á lítið atvik, sem kom fyrir Jónas skáld á bernskuár-
tim hans á Steinsstöðum, en mér láðist að geta í minningum
um hann. Það var þannig:
Þegar Jónas var 9 eða tíu ára var hann að kafa í fönninni
eftir fyrstu vetrarhríðarnar og staddur í mýrinni sunnan við
túnið á Steinsstöðum, líklega verið að líta eftir „tryppinu
henni Toppu“, sem honum mun Iiafa verið gefið og úti var
hjá öðrum hrossum í hríðinni. Fann hann þá grátittling, fros-
inn niður í fönnina og þíddi vænginn nteð munninum, unz
hann losnaði og 'flaug brott feginn lausninni. Flestir, Jónasi
eldri, mundu hafa reynt að losa vænginn með höndinni og þá
hætt við að vængurinn hefði skemmzt. Þegar Jónas kom heim
Irá þessu atviki, fannst þeim það merkilegt að hann, svona
ungur, fann þessa skynsamlegustu lausn á cfni þessu. — Um
þennan atburð yrkir Jónas löngu síðar hið hugljúfa kvæði
Grátittlingurinn, þar sem þessi erindi eru í:
Eg fann á milli fanna
í fellino- á blásvelli,
lófalága \ ið þúfu
lítinn grátittling sýta.
Flogið gat ei hinn fleygi,
frosinn niður við mosa.
Augunum ótta bljúgum
á mig skaut dýrið gráa.
Kalinn drengur í kælu
' á kalt svell og Ijúft fellur.
Lagðist niður og lagði
lítinn munn á væng þunnan.
Þíddi alveg og éyddi
öllum dróma með stilli,
sem að frostnóttin fyrsta
festi með væng á gesti.
Um leið og Jónas yrkir þetta verður honum hugsað til f jár-
hagsörðugleika sinna og vanheilsu og bætir þessu dapurlega
erindi við:
Felldur er eg að foldu,
frosinn og má ei losast.
Andi guðs á mig andi;
ugglaust mun eg þá huggast.
Meiri gleðibragur er á kvæði Jónasar þegar hann skoðar
Þingvallahraun og fjallið Skjaldbreið. Þess er getið, að jónas
átti afburða reiðhest, hvítan að lit, sem Rannveig móðir
hans hafði gefið honum, nefndi hann hestinn Baldur. Versið
er svona:
Vel á götu ber mig Baldur
breikkar stirðnað eldasund.
Hvenær hefur heims um aldur
hraun það brunað fram um grund.
Engin þá um ísafoldu
unað hafa líii dýr.
Enginn leit þá maður moldu
móðu steins er uridir býr.
Jónas átti vitran hund, sem hann hafði með sér í rannsókn-
arferðum sínum. Hann hét Valdi. Vandi hann Valda á að
sitja fyrir aftan sig á hestinum yfir vatnsföllin á leið þeirra
sem voru mörg og stór. Um hann gerði hann þessa gaman-
sömu vísu:
(Framhald.)
Eldur í stofunni í
Víðinesi
Öxarfirði 1. febrúar. Á laugar-
daginn bar svo við, er heimilis-
fólkið að Víðinesi var að borða
hádegisverðinn, að reyks varð
vart. Þegar farið var að athuga
þetta betur, kom í Ijós, að stofa
þar í húsinu var full af reyk og
var þar kviknað í rúmfataskáp.
Magnús Þorbergsson bóndi
slökkti eldinn á stuttri stund. í
stofu þessari var ungbarn og
hresstist það fljótlega er það kom
í ferskt loft. En þarna mátti þó
engu muna.
Um eldsupptökin er ókunnugt
og hefur ekki fengist önnur
sennileg skýring en sú, að á skáp
þessum var glerskraut, sem sólin
skein á er þetta gerðist. En það
hefur við borið nokkrum sinnum,
að t. d. glerkúlur verki sem
brennigler og valdi íkveikju.
TOGARARNIR
Kaldbakur kom í morgun með
ca. 140 tonn.
Svalbakur er væntanlegur á
morgun.
Harðbakur fór nýlega á veið-
ar.
Sléttbakur kemur sennilega
hingað á mánudaginn.
Norðurlaiidsmót í
körfuknattleik
Þessir leikir hafa verið leiknir
síðan blaðið kom út síðast:
B-lið Þórs vann B-lið KA 58:50.
A-lið KA vann A-lið Þórs 113:31.
A-lið KA vann ÍMA 84:30.
B-lið KA vann ÍMA 44:41.
Mótinu lýkur í vikunni.
Herbergi til leigu
SÍMI 1303 eftir kl. 6.
NYKOMIÐ
Spænskar Moceasínur
karlmanna.
Telpna-töflur
Stærðir: 27-33.
Hvannbergsbræður
ÚISÁLA
í ÁSBYRGI
KJÓLAEFNI (crepe)
í kjólinn kr. 60.00.
VELOUR-PEYSUR
kr. 65.00.
LEISTAR
> 'Tr. 5,00.
BARNASOKKAR
kr. 7.00.
SPORTSOKKAR, hvítir
kr. 10.00.
DÖMU-BUXUR
kr. 18.00.
ÚTIFÖT
(buxur, vesti, stakkur)
kr. 100.00.
VERZL. ÁSBYRGI
SKAUTASKOR
KVENNA
stærðir 35—41.
SKAUTASKÓR
KARLA
stærðir 37—45.
SKÍÐA- 0G
SKAUTAKLOSSAR
fyrir börn og unglinga.
SKÍÐASKÓR
margar tegundir.
o o
ÖTSALA
MORGUNKJÓLAR
' ' kr. 125.00.
SLOPPAR
kr. 150.00.
KJÓLAR
kr. 350.00.
PEYSUR - BLÚSSUR
BÚTAR
og margt fl.
MARKAÐURINN
SÍMI 1261.
Samvinnubyggingafélag Eyjafjarðar
heldur AÐALFUND mánudaginn 8. febrúar n. k. kl.
2 e. h. að Hótel KF.A (Rotarysal).
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Deildarstjórar, sem eigi hafa greitt gjöld sín til félags-
ins, eru áminntir um að gera það hið fyrsta. — Kr. 10.00
af hverjum lélagsmanni.
F. h. stjórnarinnar.
ÁRNI JÓNSSON.
ISABELLASOKKAR
LEÐURSEÐLAVESKI
og BUDDUR.
✓
VERZLUNIN SKEMMAN
Sími 1504
Útlend
Jarðarberjasulfa
á aðeins kr. 13.00 dósin.
KJÖTBÍIÐ K.E.A.
Saltkjöfshakk
gott og ódýrt.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
Union innihurðarskrár
og handföng
Stakar skrár
Stök bandföng
Eldhússkápalæsingar
krómaðax
Glugsralokúr
DO
krómaðar
JÁRN- OG GIÍERVÖRUDEILD
GÆSADÚNN
HÁLFDÚNN
ÆÐARDÚNN
Kaupið nú, því verðið er
liagstcctt.
P ó s t s e n d u m.
JÁRN- OG .GLERVÖRUDEILD
Nýkomið!
POPLÍNKÁPUR
með hettu. — Wttfóðraðar.
CALYPSO-SOKKAR
Tízkulitir.
CAPRI-SOKKAR
ÍSABELLUSOKKAR
saumlausir og með saum.
KLÆÐAVERZLUN
SIGURÐAR
GUÐMUNDSSONAR H.F.