Dagur - 11.05.1960, Page 8
8
Sjúkraflugvélin á Akureyri stödd í Grímsey á laugardaginn var, búin til heiniferðar. — (Ljósmynd: E. D.).
Norskur sérfræðiugur í niðursuðutækni er
yæntanlegur í maí
Um nokkurt skeið hefur stað-
ið til, að fenginn yrði hingað á
vegum Iðnaðarmálastofnunar
íslands (IMSÍ) og tækniaðstoð-
ar Bandaríkjastjórnar (ICA)
BÍL STOLIÐ
Fyrir helgina var bíl stolið
hér í bæ og fannst hann illa
skemmdur út hjá Glerárbrú,
svo og ökumaðurinn, sem tók
lífinu með ró og sofnaði á
staðnum.
I MJÖG ÁRÍÐANÐI |
I FLOKKSMÁL I
Aðalfundur Framsóknarfélag-
anna í — fyrrverandi — Eyja-
fjarðarkjördæmi verður hald-
inn í verzlunarhúsi KEA
(efstu hæð) finimud. 19. þ.
m. Fundurinn hefst k!. 1 e. h.
og verður þar á dagskrá mjög
áríðandi flokksmál, auk venju-
legra aðalfundarstarfa.
Nonnahúsið á Akureyri verð-
ur opnað almenningi á sunnu-
daginn kemur, þ. 15. þ. m. Hús-
ið verður opið á sunnudögum
frá kl. 2.30 til kl. 4, og e. t. v.
oftar, ef ástæða þykir til, og
verður það þá auglýst. Ferða-
mannahópar geta þó fengið að
skoða húsið á öðrum tímum,
geta þeir í því tilefni leitað
upplýsinga í símum 1396 og
1-364.
Zontaklúbbur Akureyrar hef-
ur haft forgöngu um það menn-
ingarstarf að varlveita Nonna-
húsið og koma þar upp safni
um séra Jón Sveinsson, Nonna.
Hafa þar margir velviljaðir
aðilar komið við sögu, þeirra á
meðal Haraldur Hannesson
hagfræðingur í Reykjavík, sem
er mesti Nonnafræðingur hér á
landi.
Mikilla viðgerða er enn þörf
á húsinu, svo að það megi varð-
veitast, en fjárskortur hefur
hamlað framkvæmdum. Þó eru
sérfræðingur til leiðbeiningar
fyrir íslenzkan niðursuðuiðnað.
Var niðursuðuverksmiðjunum
tilkynnt í maí 1959 um þetta og
létu þær allflestar í ljós ein-
dreginn áhuga fyrir málinu. —
Ráðgert var, að hingað kæmi
þekktur, bandarískur sérfræð-
ingur í þessu skyni, en hann
féll frá skömmu áður en för
hans skyldi hefjast.
Að svo komnu máli var
ákveðið að reyna að fá hingað
norskan sérfræðing, sem starf-
aði hér um mánaðarskeið á sl.
ári og er nokkrum aðilum í
niðursuðuiðnaði okkar þegar
að góðu kunnur. Er hér um að
Skólaslit í Ólafsfirði
Ólafsfirði 9. maí. Fiskafli er
ti-egur, þó fá trillurnar einn og
einn góðan róður og fá þá um
2000 pund.
konur í Zontaklúbbnum bjart-
sýnar á, að þeim muni takast
að láta gera Nonnahúsið svo úr
garði, að bænum verði það til
sóma og ánægju í framtíðinni.
Þess má geta að nokkrum
sinnum hefur verið heitið á
Nonnahúsið og því viljað vel
til.
Heimsóknir í húsið munu
vera nokkuð á þriðja þúsund
síðan það var opnað á 100 ára
fæðingardegi Nonna, 16. nóv.
1957, þ. á. m. margir útlend-
ingar.
Brjóstlíkan af séra Jóni er
væntanlegt í húsið nú á næst-
unni, er það gjöf til safnsins
frá Herder, útgefanda Nonna-
bókanna í Þýzkalandi. Líkan
það, se mhingað kemur, mun
vera afsteypa úr eyr, en frum-
myndin verður í Þjóðminja-
sáfninu.
Kolbeinn Kristinsson verðuf
leiðbeinandi eins og að undan-
fömu.
ræða norska vélaverkfræðing-
inn hr. Carl Sundt-Hansen og
er nú afráðið að hann komi
hingað 4. maí.
Sundt-Hansen er mjög kunn-
ur, ráðgefandi verkfræðingur í
ýmsum löndum, sérstaklega á
sviði niðursuðu sjávarafurða.
Starf Sundt-Hansens, sem
mun dveljast um tveggja mán-
aða skeið hér á landi, er hugs-
að þannig í framkvæmd, að
einstöku niðursuðuverksmiðj-
um verði gefinn kostur á að fá
hann í nokkra daga til leiðbein-
ingastarfs í sambandi við fram-
leiðslutækni og rekstur, og að
hann skili hverri verksmiðju
skýrslu um þau atriði, sem tek-
in eru til meðferðar. Þá er
jafnframt gert ráð fyrir, að
Nýlokið er barna- og ungl-
ingaskóla. Unglingaprófi luku
22. Hæsta einkunn fékk Ásdís
Hartmannsdóttir, 8,88. Barna-
prófi luku 13 og fékk Björk
Arngrímsdóttir hæsta eink-
unn, 8,37.
Við skólaslitin afhenti skóla-
stjórinn, Sigursteinn Magnús-
son, verðlaun frá Rotaryklúbb
Olafsfjarðar fyrir bezta hegðun
og ástundun í skólanum. Ásdís
Hartmannsdóttir og Oskar Sig-
urbjörnsson hrepptu þau. Verð-
launin voru kvæði Gríms
Thomsen.
Að lokinni skólauppsögn var
handavinnusýning nemenda,
bæði pilta og telpna, svo og
teikningar og skrift og þótti
margt vel gert. Þar var m. a.
líkan af íbúðarhúsi, sem sér-
staka athygli vakti.
Á síðustu góðviðrisdögum
hafa tún grænkað. Sauðburður
er byrjaður í bænum og stend-
ur sem hæst. Frammi í sveit
eru ærnar látnar bera heldur
síðar, en þar er þó sauðburður-
inn að hefjast. Afli er mjög
tregur hjá togveiðibátum.
Merkisafmæli í Skagaf.
Sauðárkróki 9. maí. Ársþing
Ungmennasamb. Skagafjarð-
ar var haldið hér um síðustu
helgi. í sambandi við það var
50 ára afmæli Ungmennasam-
hann taki saman yfirlitsskýrslu
um vandamál niðursuðuiðnað
arins í heild og geri tillögur
um með hverjum hætti megi
örva þróun hans.
Þess skal getið, að IMSÍ hef-
ur haft nána samvinnu við dr.
Sigurð Pétursson, gerlafræðing
við Atvinnudeild Háskólans,
um undirbúning þessa máls og
mun hann, ásamt IMSÍ, vinna
að því að starf hfns norska sér
fræðings hér komi niðursuðu-
verksmiðjunum að sem mest-
um notum.
Æskilegt er, að þeir aðrir,
sem hugsa sér að njóta góðs af
starfi Sundt-Hansens og ekki
hafa þegar haft samband við
Iðnaðarmálastofnunina þar að
lútandi, gefi sig fram sem fyrst.
bands Skagafjarðar minnzt sér-
staklega með fjölmennu hófi að
Bifröst á laugardagskvöldið. —
Þar voru um 200 manns. í sam
bandi við þetta merkisafmæli
var gefið út vandað minningar-
rit. Meðal viðstaddra utanhér-
aðsmanna voru Ben. G. Waage,
forseti ÍSÍ, Skúli Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands ísiands, og Árni
Guðmundsson, skólastj. íþrótta
kennaraskólans á Laugarvatni.
Margir eldri félagar og nokkrir
stofnendur voru þama einnig
mættir.
Formaður Ungmennasam-
bands Skagafjarðar er Guðjón
Ingimundarson á Sauðárkróki
og hefur hann verið í stjórn
þess hátt á annan áratug, og
lengst af formaður.
Verið að moka Siglu-
fjarðarskarð
Siglufirði 9. maí. Nú er verið
að moka Siglufjarðarskarð. Ein
ýta er byrjuð Siglufjarðarmeg-
in. En einnig er verið að ryðja
snjó af Lágheiðarvegi. Þegar
því verki er lokið, verður sú
jarðýta, sem þar vinnur nú, sett
til vinnu við snjómoksturinn
Skagafjarðarmegin. Verða' þá
tvær ýtur að verki, sennilega
frá fimmtudegi að telja. Snjór
er ekki venju fremur mikill á
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
ENN ÞEGJA ÞEIR
Það hefur vakið eftirtekt,
að stjórnarblöðin á Akur-
eyri hafa ekki með einu orði
reynt að hrekja þær tölu-
legu staðreyndir, sem hér
hafa verið birtar um frum-
vörp til laga um veltuútsvar
og breytingar á lögum um
útsvör og tekjuskatt.
Með veltuútsvörum verða
bændur landsins gerðir að
skattgreiðendum bæjanna,
sem numið getur 4 þús. kr.
af aðeins 200 þús. króna við-
skiptum bónda við kaupfé-
lag sitt. '
Og bent hefur verið á, að
með stefnu ríkisstjórnarinn-
ar um útsvör og tekjuskatt
lækka þessi gjöld um 700.00
kr. á miðlungsfjölskyldu,
sem liefur 60 þús. kr. nettó-
árstekjur, en um 16.500.00
kr. á fjölskyldu með 150 þús.
kr. árstekjur, miðað við
sömu fjölskyldustærð.
Þessi tvö dæmi eru mjög
ljós og táknræn um þá
íhaldsstefnu, sem landinu
hefur verið forðað frá um
30 ára skeið, en núverandi
stjórnarflokkar eru að leiða
yfir þjóðina. Og þetta gerir
ríkisstjórnin í algerðu heim-
ildarleysi, því að allt önnur
stefna var boðuð fyrir kosn-
ingar og Um hana kosið, en
ekki þessa hörmungar- og
hungurstefnu, sem gerir þá
ríku ríkari og þá fátæku enn
fátækari.
Siglufjarðarskarði nú. Þó er
áætlað að ekki taki skemmri
tíma en hálfan mánuð að gera
veginn akfæran, og er það
ágizkun ein.
Togararnir hafa verið með
reitingsafla, en togskipin lítinn.
Aftur á móti hafa trillurnar oft-
ast komið með ágætan afla.
Folöldin að fæðast
Blönduósi 9. maí. Hér hefur
verið einmuna tíð og farið að'
gróa. Sauðburður er að byrja.
og einstaka folald fætt.
Hér bar það við í vor, að bát-
ar lögðu net sín næstum inn á
móts við Blönduós og hefur það
ekki komið fyrir í 12—15 ár.
En fyrrum var hér fiskur nærrí
landi. Þykja þetta góð tíðindi
og samhljóða þeim tíðindum,
sem víða spyrjast um vaxandi
fiskigengd eftir friðunina.
Mllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllltllllllllllllllllllll*
{ Segja upp störfum |
í síðustu fundargerðum bæj-
arráðs er frá því sagt, að Sig-
tryggur Stefánsson iðnfræðing-
ur hafi sagt starfi sínu hjá bæn-
um lausu, ennfremur að Mar-
teinn Sigurðsson hafi sagt upp
starfi sínu sem framfærzlufull-
trúi og Ásgeir Valdimarsson
bæjarverkfræðingur hefur sagt
upp störfum sínum hjá bænum.
Nonnahúsið opnað-á sunnudaginn
Brjóstlíkan af síra Jóni Sveinssyni væntanlegt