Dagur - 18.05.1960, Page 7

Dagur - 18.05.1960, Page 7
7 Svelta ísl. stúdentar í Skotlandi? Herra menntaniálaráðherra, Gylíi Þ. Gíslason, Reykjavík. Með bréfi þessu viljum vér staðfesta símskeyti, sem yður hefur þegar verið sent, skv. samþykkt félagsfundar 30. april sl., þar sem vakin er athygli yðar á vanrækslu hlutaðeigandi yfirvalda heima, um að senda íslenzkum námsmönnum hér námslán og styrki, sem þegar hefur verið úthlutað. Sú venja hefur verið viðtek- in á undanförnum árum, að stúdentar- fái þessa upphæð í hendur um mánaðamótin marz —apríl, enda jafngildi hún venjulegri námsyfirfærslu fyr- ir einn ársfjórðung. Að þessu sinni heíur þó afhending lána og styrkja gersamlega brugðizt, og hafa stúdentar hér ekki fengið yfirfærðan gjaldeyri á fimmta mánuð, þótt seinasta yfirfærsla hafi aðeins verið veitt til þriggja mánaða (jan., febrúar, marz). Þarflaust ætti að vera að benda á, að stúdent- ar geta ekki af eigin rammleik borið allan kostnað af námi sínu, sízt eftir þær firn miklu hækkanir á erlendum gjald- eyri, er sigldu í kjölfar efna- hagsráðstafana ríkisstj órnarinn- ar á sl. vetri. Þeim er því brýn nauðsyn á, að afhending styrkja menntijmálaráðs drag- ist ekki úr hömlu. Sá dráttur, sem þegar er á orðinn, hefur valdið því, að stúdentar bafa ekki getað stað- ið við skuldbindingar sínar um greiðslu húsnæðis og önnur óhjákvæmileg útgjöld, og jafn- vel verið án matar dögum saman. Vér lítum svo á, að fram- koma sem þessi af hálfu opin- berra aðila sé með öllu óafsak- anleg og getum ekki látið hjá líða að mótmæla henni opin- berlega. Afrit af bréfi þessu verður sent dagblöðum í Reykjavík og Degi á Akureyri til birtingar. F. h. Félags íslenzkra stúdenta í Skotlandi. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður. ! BORGARBÍÓ E Sími 1500 i | Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 i i Mynd vikunnar: § I CASINO DE PARIS I E Bráðskemmtileg, fjörug og i i mjög falleg, ný, þözk-frönsk- i i ítölsk dans- og söngvamynd i i í litum. i i — Danskur texti. — E | Aðalhlutverkið leikur og i i syngur vinsælasta dægur-1 i lagasöngkona Evrópu: i ! CATERINA VALENTA ! i ásamt ítalska kvennagullinu i | VITTORÍO DE SICA ! i og franska dægurlaga- | i söngvaranum i í GILBERT BÉCAUD. í i Þessi mynd var páskamynd i i Austurbæjarbíóis og sýnd i i við mikla aðsókn. ÚIIMIIMMIMMMIMMMMMMMI.. SUMARSKÓR karlmanna, nýkomnir. * HVANNBERGSBRÆÐUR Sumarhattarnir komnir. Fjölbreytt úrval. VERZLUNIN LONDON Sími 1359 SUMARKÁPUR og DRAGTIR Ný sending. ----o--- Sumarkjólaefni Sumarkjólar Blússur MARKAÐURINN Sími 1261 ÓDÝRAR SLÆÐUR SÓLOLÍA SÓLSPRAY VERZLUMIN SKEMMAN Sími 150-4 YINNUFATNAÐUR SJÓKLÆÐI á gamla verðinu. VÖRUHÚSIÐ H.F. I. O. O. F. — 142520814 — Hjálpræðisherinn. Kveðju- samkoma fyrir kaptein Dyveke Lahti verður í kvöld, miðviku- daginn 18. maí, kl. 8.30. Veit- ingar. Kapteinn Dybvik stjórn- ar. Allir velkomnir. Fermingarmessa á Möðruvöll- um í Hörgárdal sunudaginn 22. maí og að Bægisá á uppstign- ingardag, 26. maí, kl. 2 e. h. Fermingarbörn á Möðruvöll- um í Hörgárdal sunnudaginn 22. maí: Margrét R. Guðmundsdóttir, Hj alteyrarskóla. Steinunn Guðmundsdóttir, Ytri- Reistará. Arinbjör n B. Arnbjörnsson, Gásum. Guðmundur B. Agnarsson, Hjalteyri. Guðmundur Ingólfsson, Forn- haga. Þorvaldur Grétar Hermanns- son, Syðra-Kambhóli. Fermingarbörn að Bægisá á uppstigningardag, 26. maí: Guðrún Ágústa Halldórsdóttir, Steinsstöðum. Þóra Sverrisdóttir, Skógum. Garðar Pálmason, Efstalandi. Guðmundur Búason, Myrkár- bakka. Hreinn Hrafnsson, Myrká. Karlakórinn Geysir heldur samsöng n.k. fimmtudag og föstudag kl. 9 e. h. í Nýja-Bíó. I. O. G. T. — Stúkan ísafold- Fjallkonan nr. 1 heldur fund 19. þ. m. kl. 8.30 e. h. í Lands- bankasalnum. — Fundarefni: Vígsla nýliða. Rætt um sumar- starfið. Hagnefndaratriði. Upp- lestur. Dans. Mætið vel og stundvíslega. Æðstitemplar. Bifreiðaskoðunin. Bifreiða- eigendur eru minntir á að mæta með bifreiðir sínar til skoðun- ar á réttum tíma. Skoðun lýkur 26. maí, samkv. auglýsingu bæjarfógetans. NÝKOMIÐ! Poplinkápur, hálfsíðar --------o--- Hvítt Baby-ullargarn ---o---- Ódýrar slæður. ---o---- Nylon- og perlonsokkar með gamla verðinu. KLÆÐAVERZLUN SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR H.F. PIJÓLKOPPUR af Standard-bifreið tapað- ist á leiðinni Dalvík—Ak- ureyri. Vinsamlegast skil- ist á afgreiðslu blaðsins eða tilkynnist í síma 1365 Akureyri. Afgreiðslustúlka (helzt með gagnfr.prófi) óskast sem fyrst. Pálf Sigurgeirsson. Hjúskapur. Síðastliðinn laug- ardag voru gefin saman í hjóna- band í Lögmannshlíðarkirkju ungfrú Sigríður Guðrún Torfa- dóttir og Sævar Sigtýsson raf- virkjanemi. Heimili þeirra er á Dalvík. — Sama dag voru gef- in saman í Akureyrarkirkju ungfrú Anna Lilly Daníelsdótt- ir og Kristján Árnason prent- nemi. Heimili þeirra er að Norðurgötu 39, Akureyri. Drengir, athugið í íþrótta- þættinum drengjanámskeið 23. —29. maí. — FRA. Sundnámskeið barna eru að hefjast. Hringið í síma 2260. Barnaverndarfél. Akureyrar heldur aðalfund sinn sunnudag- inn 22. maí kl. 4 e. h. Venjuleg aðalfundarstörf. — F undurinn verður haldinn í leikskóla fé- lagsins, Iðavelli, Oddeyri. — Skorað er á sem flesta félags- menn að mæta. Stjórnin. Minningarspjöld Krabba- meinsfélagsins fást á pósthús- inu. Akureyringar! Munið muna- og kaffisölu Sjálfsbjargar í Al- þýðuhúsinu á sunnudaginn kl. 2 e. h. Gjöf í orgelsjóðinn. Menning- arsjóður KEA heíur í dag af- hent 5 þús. kr. gjöf í orgel- sjóð Akureyrarkirkju. Þökk- um kærlega. — Ak. 16. maí 1960. — Fjáröflunarnefnd. — Blöðin Dagur og íslendingur taka á móti áskorunum og peningum í orgelveltuna. — Til þátttakenda á Laugamótið annan í hvítasunnu. Lagt verð- ur af stað frá kirkjunni kl. 1 e. h. mánudaginn 6. júní. Þátttak- endur hafi með sér svefnpoka (eða sæng), handklæði og sápu, skriffæri, nýja-testamenti. — Einnig æskilegt að hafa með- ferðis sundskýlu, íþróttaföt og myndavél. — Þátttökugjald kr. 100.00 og ferðakostnaður kr. 50—60 báðar leiðir. Þau ferm- ingarbörn, sem ætla að fara, en hafa ekki skrifað sig á listann, verða að tilkynna þátttöku sína. Frá Mæðrastyrksnefnd. Ak- ureyringar! Mæðradagurinn er á sunnudaginn kemur. Seld verða blóm á g'ötum bæjarins, einnig verður Blómabúð KEA opin. Börn, sem vildu gera svo vel að selja blóm á götunum, eru beðin að gefa sig fram við Margréti Antonsdóttur, Skó- verzl. Hvannbergs, eða aðrar nefndarkonur. Styrkjum mæð- urnar! Skógræktarferð í Kjarna kl. 7.30 á fimmtudagskvöld. — Farið frá Hótel KEA. Skorað er á alla, sem vilja leggja skógræktinni lið, að mæta til gróðursetningarinnar. Látið Tryggva Þorsteinsson vita um þátttöku. (Sími 1281.) Fx-á UMSE. Gróðursetningar- ardagvu- Sambandsins er sunudaginn 29. maí næstk. — Gróðursett verður að Mið- hálsstöðum í Öxnadal og hcfst kl. 2 e. h. — Félagar, mætið vel. — Stjórnin. Skógræktarfél. Tjarnargerðis heldur félagsfund að Stefni fimmtudaginn 19. maí kl. 8.30 e. h. Rætt um ferð í Tjarnar- gerði. Framhaldssagan lesin. — Takið kaffi með. Stjórnin. IBUÐ OSKAST AÐEINS FYRIR SUMARIÐ Upplýsingar gefur JÓN SAMÚELSSON afgr. Ilags. Kappreiðar! - Góðliestakeppni! Öllum hestaeigendum heimil páttaka. Iíestaniannafélagið Léttir hefur ákveðið að halda KAPPREIÐAR og GÓDHESTAKEPPNI 6. júní (annan hvítasunnudag). Þar verður keppt í 250 m skeiði, stökki 250, 300 og 350 m. — Æfingar ákveðnar 22., 26. og 29. maí. Æfingar hefjast alla dagana kl. 16. Lokaskráning fer fram 29. maí. Þá ber að skrá alla þátttökuhesta. Tilkynningum um þátttöku sé skilað í síma 1673 og 1960, Þorsteins Jónssonar eða Alberts Sigurðssonar. — ICeppt verður um mörg og fjölbreytt verðlaun. NEFNDIN. f , 1 é Innilegt pakklœti sendi ég öllnm peim, sem glöddu t © mig á nirœðisafmeeli minu, 9. mai, með heimsóknum, % gjöfum og skeytum. — Guð blessi ykkur öll. f é JÓRUNN KRISTINSDÓTTIR frá Hjalteyri. f & J vv v I .. . I | Öllum peim mörgu vinurn og vandamönnum, sem -t glöddu mig á áttræðisafmcelinu 10. mai 1960 með heim- <3 sóknurn, símtölum, skeytum og gjöfum og gerðu mér t daginn ógleymanlegan, fœri ég minar alúðarfyllslu ^ pakkir. — Lifið heil. f t <3 VALDIMAR VALDIMARSSON, Böðvarsnesi. I s #ú©'H*S'©'>^©'K:-S'©'i-'s;r-*-©'M’';S'$'i-í£s-©'í-?SS-©S-íKS'©'i-i#S-©'i-í|SS-©'i-#S'©' Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andiát og jarðarför HALLDÓRS INGIMARS HALLDÓRSSONAR, Skútum. Guð blessi ykkur öll. Guðríður Erlingsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og systkini liins látna.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.