Dagur - 09.06.1960, Síða 5

Dagur - 09.06.1960, Síða 5
4 5 Dagur Traust samtök 1 GÆR hófst hinn árlegi aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. — Kaupfélag Eyfirðinga telur á sjötta þúsund félaga og er 74 ára félagsskap- ur, sem enn er í vexti, nýtur trausts og virðingar í auknum viðskiptum, og árlega hrindir í framkvæmd ýmsum þeim málum, sem einstaklingum eru ofviða. í skýrslu félagsstjórnar KEA, sem Brynjólfur Sveinsson flutti í fundar- byrjun og prentuð er í nýjum Félags- tíðindum, segir svo meðal annars: „Allir samvinnumenn vita vel, að ískyggilegar blikur eru á lofti og boð- ar og blindsker á viðsjálli siglinga- leið. Stjórn félagsins telur einsætt að hefla seglin og gæta ýtrustu varfærni, þar til betur verður séð, hversu ræðst um afkomu og framtíðarhorfur ís- lenzkra samvinnufélaga. Hitt er ann- að mál, að ekki er ástæða til að ör- vænta eða leggja árar í bát. Máttar- viðir Kaupfélags Eyfirðinga eru sterk- ir og óbrotgjarnir. Það stendur fjár- hagslega traustum fótmn og það á samhug og velvild meira en fimm þúsund félagsmanna í eyfirzkmn bæj- um og byggðum. Slík samtök eru ekki auðrofin, og hver, sem það reynir, mun hljóta af því skapnaðarvirðing, svo notuð séu orð þjóðskáldsins borg- firzka fyrir þúsund árum. Hins er gott að minnast, að fyrr hefur syrt í álinn fyrir íslenzkum samvinnufélögum, en jafnan hefur aftur birt í lofti og leið- in orðið greiðfær. En eitt er naúðsyn- legt: AHir íslenzkir samvinnumenn verða að standa saman og slá órjúf- andi skjaldborg um hugsjónir og menningararf samvinnustefnunnar. Þá er hún ósigrandi og á enn auðlegð óeyddra hamingjudaga.“ Framkvæmdastjóri félagsins, Jakob Frímannsson, segir meðal annars: „Árið 1959 var góðæri til lands og sjávar fyrir Akureyringa og Eyfirð- inga. Atvinna mjög góð hér á Akur- eyri, afli með betra móti frá verstöðv- um við Eyjafjörð, heyskapartíðin ágæt síðastl. sumar og skepnuhöld víðast hvar góð. Svipaða sögu má segja um verzlun og framleiðslu Kaupfélags Eyfirðinga, enda afkoma félagsins og velgengni mjög nátengd afkomu félagsmannanna, sem eðlilegt er, þar sem heita má, að hver búandi maður í Eyjafjarðarsýslu og á Akur- eyri teljist félagsmaður í kaupfélag- inu og hafi þar mest sín viðskipti.“ Og í niðurlagi segir svo: „Hversu alvar- legar afleiðingar hinar illræmdu „efnahagsráðstafanir“ munu hafa á framtíð samvinnuverzlunar landsins, er ekki unnt að segja að svo stöddu, ekki sízt þar sem enn standa til stór- kostlegar aðgerðir til viðbótar því, sem komið er, í þá átt að þrengja kosti kaupfélaganna. (Eru nú fram komnar með breytingu á útsvarslög- uniun.) En við samvinnumenn skul- um vera þess minnugir, að þctta er ekki í fyrsta sinn, sem andstæðingar samvinnustefnunnar veitast harka- lega að samvinnufélögum landsins, en þeim árásum hefur jafnan verið hrundið, með því að sameinast cnn fastar inn hugsjónir þessarar stór- merku félagsmálahreyfingar." Gagnfræðaskóli Akureyrar lýkur þrítugasfa starfsári sínu Varphólminn var eins og hátíðasvæði Gagnfræðaskóla Akureyrar var slitið miðvikudaginn 1. júní. Skólastjórinn, Jóhann Frímann, flutti skólaslitaræðuna og drap fyrst á, að þetta væru þrítug- ustu skólaslit Gagnfræðaskól- ans. Minntist hann í því sam- bandi ýmissa atriða úr starfs- sögu skólans á liðnum þrjátíu árum, nemenda hans og kenn- ara og síðast, en ekki sízt, tveggja fyrrverandi skólastjóra, þeirra Sigfúsar Halldórs frá Höfnum og Þorsteins M. Jóns- sonar. Þá skýrði hann frá því, að nú hefði fengizt byrjunar- framlag bæði frá ríkissjóði og bæjarsjóði Akureyrar til við- bótarbyggingar við skólahúsið, sem brýn þörf væri á. Lýsti skólastjóri ánægju sinni yfir því að geta flutt þessi góðu tíðindi á þessum tímamótum. Síðan gaf skólastjóri stutt yf- irlit um skólastarfið á liðnum vetri. Innritaðir nemendur voru alls 449, og skiptust þeir í 18 bekkjardeildir, 12 bóknáms- deildir og 6 verknámsdeildir. Fastir kennarar eru 20 við skólann og 6 stundakennarar. Skólastarfið var mjög í svipuðu horfi í vetur og undanfarin ár, bæði um nám og félagsstarf- semi. Heilsufar í skólanum var yfirleitt gott. Hæstu einkunn í öllum skóla á vorprófi hlaut Steinunn Stefánsdóttir úr II. bekk, I. einkunn 8,96. Jafnframt hlaut hún verðlaun fyrir fram- úrskarandi skrift og frágang prófverkefna. Var það forláta góður lindarpenni, sem Búnað- arbanki fslands, útibúið á Ak- ureyri, gaf í þessu augnamiði. Gagnfræðapróf þreyttu 57 nem- endur IV. bekkjar, 34 úr bók- námsdeild og 23 úr verknáms- deild. Hæstu einkunn á gagnfræðaprófi hlutu Laufey Bjarnadóttir, I. einkunn 8,26, og Skúli Ágústsson, I. einkunn 7,88. Þessir tveir nemendur hlutu og bókaverðlaun frá Lionsklúbb Akureyrar fyrir ágæta frammistöðu í stærð- fræði, bókfærslu og vélritun. 25 nemendur úr III. bekk skól- ans gengu undir landspróf mið- skóla, en úrslit í því prófi eru ekki kunn ennþá. Gagnfræðingarnir fóru í sex daga ferðalag til Reykjavíkur og Suðurlands að loknu prófi, og landsprófsnemendur fóru í nokkurra daga ferð um sömu slóðir. Sú nýbreytni var upp tekin í sambandi við nemenda- ferðir skólans að þessu sinni, að landsprófsnemendur völdu sjó- leiðina, austur um land til Rvíkur, en koma landleiðina til baka. Þegar skólastjóri hafði af- hent prófskírteini og verðlaun flutti hann hinum nýju gagn- fræðingum ágætt ávarp og sagði síðan skólanum slitið. Ás- kell Jónsson, söngkennari, stýrði söng við athöfnina. - Félagsheimiii Sjálfsbjargar vígt Framhald af 1. síðu. hvítasunnudag. Ræður fluttu: Sigursveinn D. Kristinsson, Emil Andersen, Stefán Ág. Kristjánsson, Magnús E. Guð- jónsson, Valdimar Hólm Hall- stað, Sveinn Þorsteinsson og Orn Snorrason, og hann las einnig upp sögukafla eftir Ein- ar Kristjánsson. En sögu félags- ins rakti Aðolf Ingimarsson og stjórnaði hann hófinu. Söngvar- arnir Jóhann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson sungu fjóra dúetta við undirleik Guð- rúnar Kristinsdóttur, en Áskell Jónsson stjórnaði almennum söng á milli atriða. Allt fór hóf þetta hið bezta fram. Hið nýja hús teiknaði Sig- tryggur Stefánsson iðn- fræðingur. Flatarmál þess er 195 m2. Þar af er salur, sem er 14,50x8,40 m., auk þess eldhús, tvær forstofur, fundarherbergi, snyrtingar og kjallari að nokkru. Kostnaðarverð er um 600 þús. krónur, eins og bygg- ingin er nú. Byggingameistarar voru Jón Gíslason og Jón B. Jónsson, raflagnir og miðstöð annaðiít KEA, málningu Guð- varður Jónsson, og Karl Frið- riksson hafði umsjón með ýms- um framkvæmdaatriðum bygg- ingarinnar. Félaginu bárust gjafir í tilefni vígslunnar: Guðmundur Hall- dórsson gaf tvö málverk, Magn- ea Sæmundsdóttir og Heiðrún Steingrímsdóttir gáfu fána með félagsmerkinu, Emil Andersen gaf innrammað merki félagsins og einnig bárust peningagjafir og blóm. Formaður félagsins þakkaði hlýhug allan og hinar góðu gjafir fyrr og nú. Félagið Sjálfsbjörg var stofn- að 8. okt. 1958 af 39 manns. Á vegum þess hefur verið stunduð margs konar föndurvinna og skemmtana- og kynningarkvöld Hið nýja félagsheimili, Bjarg, er gleðilegur vottur þess, hve hinir vanheilu eru máttugir þegar þeir leggjast á eitt. Sam- tökin opna þeim leið til kynn- ingar, sem mörgum var áður næstum lokuð. Og hinir al- mennu borgarar vita, að í nú- tíma þjóðfélagi gildir annað og meira en vöðvaaflið eitt saman, og að haltur maður og handar- vana getur skilað ágætu dags- verki á ýmsum sviðum atvinnu- lífsins, þegar hann fær störf við sitt hæfi. Samfélagið þarf að hlynna að þeim, sem ekki eru fullkomlega eins líkamlega hraustir og aðrir. Og fatlað fólk þarf að standa fast saman um áhugamál sín á félagslegum grundvelli. Megi framtíð hinna fötluðu verða á traustara bjargi byggð í þjóðfélagi okkar en verið hef- ur til þessa. Fyrir nokkrum dögum áttum við Jónas Kristjánsson samleið til Sauðárkróks, gerðum þá lykkju á leið okkar og heim- sóttum bóndann á Hellulandi, Olaf Sigurðsson, og Ragnheiði Konráðsdóttur, konu hans, þeirra erinda að sjá æðarvarpið í hólmum Héraðsvatna. Sólberg Þorsteinsson, mjólkurbússtjóri á Sauðárkróki, hafði þá bætzt í hópinn, og réri Ólafur okkur yfir í hólmana og gengum við þar á land. Það var eins og að koma á hátíðasvæði að koma í aðal-varp hólmann. Þar voru marglit flögg á lágum flaggstöngum um allan hólmann og þar sátu 5— 600 æðarkollur á eggjum. Hólm inn var hvítflekkóttur af úandi æðarblikum, en margir þeirra voru þó á sundi umhverfis. Á varphólma þessum er nokkur víðigróður, kjörgróður í æðarvarpi, og hvílíkt iðandi líf/ Blikarnir færðu sig skjótt frá en voru þó mjög gæfir. Koll- urnar sátu sem fastast á eggjun- um, þar til komið var fast að þeim. Ólafur strauk nokkrum þeirra á hreiðrunum og talaði við þær í gælutón. Flestar flögr- uðu þó af, sumar út á ána en aðrar nokkra metra og biðu þess að við héldum örlítið lengra, svo að þær gætu óhultar annazt börn og bú. Við gengum eftir hólmanum endilöngum. Hreiðrin eru sums staðar svo þétt, að undrun sætir, og þarf að ganga um með hinni mestu gát. Sumar koll- - urnar gáfu sér tíma til að byrgja eggin með hinum mjúka og fræga dún. Og tvær kollur, sem styggðust upp rétt við fæt- ur mér, sá eg breiða yfir egg nágrannakonunnar um leið og þær fóru þar hjá. Þegar við höfðum gengið hólmann á enda, voru æðar- kollurnar, sem fyrst urðu á vegi okkar, aftur komnar í hreiður sín, og þar sem við stóðum og virtum þetta fyrir okkur, hurfu flestarkollurnaraf ánni upp í hólmann, og kyrrðin var aðeins rofin af hinum þægi- lega „úandi“ söng æðarblik- anna, sem ýmist fylgdu konum sínum fast eftir og settust hjá hreiðrunum, eða syntu enn á ánni og gáfu nánar gætur að því, sem fram fór. Og ekki var trútt um, að þeir sýndu hinu veikara kyni nokkra ástleitni, stundum margir í senn, en makinn varði rétt sinn og sæmd sinnar mjúkfiðruðu hús- freyju af hinni mestu hörku. En blikarnir eru farnir að verða ögn lausari við heimilin síðan líða tók á varptímann og brátt halda þeir til sævar, en mæðurnar annast ungana, sem nú skríða úr eggjunum hvað af hverju. 4—6 egg eru í hreiðri. Tíminn var fljótur að líða í varphólmanum og unun að dvelja þar í sumarblíðunni meðal hinna fögru og villtu náttúrubama, sem beinlínis sækjast eftir vernd mannsins, . njóta hennar og greiða ríkulega fyrir sig með hinum heims- fræga dún. ísland er mesta varpland æðarfuglsins. Og hér er æðarfuglinn nytsamastur allra fugla. Þó eru lifnaðarhætt- ir hans lítt kunnir ennþá og er ekki vansalaust. Æðarfuglinn gefur árlega um 4000 kg. af dún, að því er talið er. Ennfremur munu varpeig- endur taka eitt egg úr hreiðri og eru þau herramannsmatur. Hvert kg. af æðardún kostar nú 1340 krónur. Ur 50 æðarhreiðr- um fæst eitt kg. af dún. Hin hvimleiða og óþrifalega dún- hreinsun, eins og hún hefur tíðkazt frá fyrstu tíð og fram. undir síðustu ár, er að mestu úr sögunni, vegna nýrra og hug- vitsamlega gerðra véla, sem Þingeyingur fann upp fyrir ör- fáum árum og eru nú hvarvetna notaðar. En varpið þarf þó hirðingar við eins og áður og einmitt á þeim tíma, þegar venjulegar vorannir við hvers konar bústörf eru mestar. En það er dýrt að vanrækja gott æðarvarp og það er til mikils að vinna að koma upp varpi og slík ævintýri gerast þó, sem betur fer. Heima á Hellulandi bar eg fram nokkrar spurningar við- komandi æðarvarpi og svaraði Ólafúr þeim góðfúslega af sín- um:' alkunna áhuga og þekk- . ingu, en hann er nú opinber leiðbeinandi um þessi mál og fagnar því hve margir hafa þrátt fyrir fólksfæð og annir í sveitum, áhuga á að kynna sér möguleika á þessu sviði. Hvernig á að koma upp æðar- varpi? Ekki verður það sagt í fáum ' orðum, en óhætt er að segja, að hringinn í kringum landið og ennfremur víða við ár og vötn er hægt að koma upp arðsömu Tálblikar. Þetta þarf að gera snemma vors, því að æðarfuglinn fer þá að fljúga inn yfir landið og at- huga væntanlega varpstaði. Það gerir hann um nætur þegar há- sjávað er og veita fæstir þessu könnunarflugi eftirtekt. En þá tekur fuglinn sinar ákvarðanir. Svonefnda tálblika er gott að setja upp, þar sem nýtt varp á að verða. Það eru uppstoppaðir blikar eða líkan af þeim með réttu litaskrúði. Þetta vekur eftirtekt fuglanna á athugana- ferðum þeirra og getur haft hefur gerzt í Vigur og á fleiri stöðum. Fuglinn hefur þckað sér í áttina til bæja og virðist una þar betur. Vargurinn sækir fast á. Óvinir æðarfuglsins eru margir, fyrir utan manninn, sem of víða er skilningssljór á aðrar nytjar æðarfugls en þær, að drepa hann og setja í pott- inn. Versti óvinurinn er þó svartbakurinn, sem talið er að hafi tífaldazt á þessari öld. — Hann etur þriðjunginn af æð- areggjunum og sennilega um 70 mikla þýðingu. Og þegar for- vitni þeirra er vakin og í Ijós kemur við nánari athugun ■þeirra, að . þar eru hentug hreiðurstæði í mjúkri sinu eða e. t. v. runnagróðri, sem er allra bezt, og að þar er ekki búpen- ingur á beit, en í þess stað eitt- hvað fyrir auga og eyra, svo sem flögg o. fl„ geta ævintýrin gerzt: . Nokkur hreiður fyrsta árið og siðan fleiri. Og Ólafursegir nokkur dæmi um þetta. Bóndi nokkur flutti af góðri varpjörð og á aðra, þar sem ekkert varp var eða hafði nokkru sinni verið. Eftir nokk- ur ár var hann búinn að koma varpi og stundum með lítilli fyrirhöfn. En hægast er að koma varpinu upp við sjc, þar sem landið er lágt, grösugt og alfriðað fyrir ágangi búfjár. Víða hagar vel til, þar sem ár eða lækir renna til sjávar, á nesjum, eyraroddum eða í ár- hólmum. Fyrsta skilyrðið er að girða landið traustri girðingu. Þá þarf að útbúa hreiðurstaði og er það hægt með því að veita skjól með hnaus eða hellublaði og láta heyvisk þar sem vænt- leg hreiðurgerð fer fram. Þá er gott að setja upp flögg, rellur og hjarðbjöllur. upp hjá sér góðu æðarvarpi. Á Bessastöðum urpu 12 æðarhjón þegar Ólafur kom þar til að leiðbeina. Nú eru þar sögð um 200 hreiður eftir 4 eða 5 ár. Æðarfuglinn vill nágrenni mannsins. • Víða má sjá, að æðarfuglinn sækist eftir nágrenni við mann- inn, ef til vill til þess að forðast með því skæðustu óvinina:- veiðibjöllu, hrafn, tófu og mink. Á Illugastöðum á Vatnsnesi er varphólmi. Nú hefur varpið færzt í land og er nú þéttast beint á móti bænum. Svipað —80% af æðarungunum, vélð- ur ekki meint af að renna nið- ur 6—7 æðarungum í einni lotu. Hrafninn er víða skæður í varplöndum, þá er tófan til binnar mestu óþurftar og mink- urinn er einnig skaðvaldur, þar sem hann nær einhverri fct— festu. Hvernig heldurðu varginum í skefjum? Við eitrum egg, ag árangúr- inn hefur orðið ágætur. í vor var mikið um veiðibjöllu cg hrafn. Veiðibjallan gengur um varpið á næturnar, á meðan æð- arkollurnar eru enn ekki setzt- ar á, en búnar að verpa einu eða tveimur eggjum í hreiður. Kollurnar breiða yfir eggin, þegar þær fara, en veiðibjallan leitar í hverju hreiðri og etur óhemju mikið. En ef hún etur eitrað egg eru dagar hennar taldir og hún liggur dauð og eins fer fyrir hrafninum, segir Ólafur, og fór maður þá að skilja, hvers vegna hræ þessara fugla voru á víðavangi á leið manns í varpið. En tófan og minkurinn? Grenjaskytturnar herja á tófuna á hverju vori, halda stofninum niðri svo að hér er lítið vart við hana. Minkarnir eru á undanhaldi í héraðinu síðan duglegir veiðihundar komu til sögunnar og hjálpuðu í baráttunni. Þetta og margt fleira sagði bóndinn á Hellulandi okkur, bæði á leiðinni í varpið og yfir rjúkandi kaffinu á eftir og þakka eg þær upplýsingar og þeim hjónum fyrir móttökurn- ar. — E. D. Auglýsingar þurfa að berast fyrir hádegi dag- inn fyrir útkomudag. SJALFSTÆÐISMENN KVEÐAST Á Oft hafa menn á Alþingi vitn- að í ljóð góðskálda. Hitt mun varla hafa tíðkazt til þessa, að menn hafi þar yfir sinn eigin kveðskap í þingræðum. En á hinu nýja þróunarskeiði stjórnskipulagsins hefur orðið breyting á þessu. Jón Pálmason varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins í Norð- urlandskjördæmi vestra hafði fyrir hönd kjörbréfanefndar framsögu um kjörbréf annars varamanns Sjálfstæðisflokksins, Sigurðar Bjarnasonar. Jón lauk ræðunni með eftirfarandi stöku: „Á varamönnum er vaxandi trú og vonirnar hafa því með sér. Sigurður vinur er sigurviss nú er sæti hann tekur að nýju hér.“ Á Alþingi var í vor allmikið rætt um frumvarp til laga um takmarkað leyfi til dragnóta- veiði innan fiskveiðilögsögunn- ar, undir vissu eftirliti. Ekki var þetta flokksmál. Jón Pálmason mælti gegn frumvarp inu og skýrði meðal annars frá því, að dragnótabátur hefði eitt sinn strandað nærri landi sínu og hefði skipshöfnin vakið sig upp að næturlagi. Pétur Sig- urðsson 12. þingmaður Reyk- víkinga svaraði Jóni og lauk ræðu sinni á þessa leið: „Er sól á himni rennur senn og skella hestahófar, vekið ekki varamenn vondir flatfiskþjófar.“ Þrem dögum síðar kvaddi Jón Pálmason sér hljóðs og svaraði þá flokksbróður sínum í ræðulok: „Pétur strengi stillti lina stóran fengið hefir drátt. Dragnót þrengir kölskans kyna kann þó engan bragarhátt." Þá kvað Pétur: „Jón á Akri vaskur verst voðamönnum dragnótar. í lijólatík um botninn berst böðull þingsins háðungar." HELGI VALTÝSSON: BORIS PASTERNAK I. Boris Pasternak er dáinn. Hann fékk leyfi til þess. Og einnig að fá að hvíla í sinni ástkæru rússnesku mold, sem hann vildi ekki yfirgefa fyrir tveimur árum, er við borð lá, að hann yrði gerður landrækur — fyrir að verða heimsfrægur Æskumynd af Boris Pasternak. Sennilega af mólverki eftir íöður hans, sem var frægur mál- ari, móðir hans var píanóleikari. í einni svipan! — Enda var það án leyfis og tilstilli Sovét- ' stjórnar! En eigi myndi það talið neitt furðulegt öfugmæli, er „ver- aldarsaga Sovétríkjanna" verð- ur endursamin enn á ný innan skamms, að „hið heimsfræga skáld Sovétveldis, Boris Past- ernak“ verði þar talinn einn glæsilegasti andlegur Sovét- spútnik, sem „kominn sé á braut“ umhverfis hnatt-kríli vort, en sá spútnikk mun þá knúinn aíli rússneskrar list- hneigðar og andagiftar, og ekki aðeins um mjög takmarkaðan tíma, heldur um aldur og ævi, þótt landar hans hefðu hvorki drengskap né þroska til að meta hann réttilega í lifanda lífi! Boris Pasternak lézt að Hverjir skoða skipin? Eftirlits og skoðunarmenn Skipaskoðunar ríkisins á Ncrðurl. eru: III. eftirlitssvæði: Magnús Bjarnason skipaeftirlitsmaður, Akureyri. Frá Hrútafjarðarbotni að Skagatá: Páll Guðmundsson, Höfða, Hvammstanga. Guð- mundur Sigurðsson, smiður, Holti. Þórður Jónsson, vélstjóri, Skagaströnd. Frá Skagatá að Haganesvík: Jón Nikódemusson, vélsm., Sauðárkróki. Ásgrímur Einars- son, skipstjóri, Sauðárkróki. Þorgrímur Hermannsson, báta- smiður Hofsós. Frá Haganesvík að Siglu- nestá: Sveinn Þorsteinsson, skip- stjóri, Siglufirði. Snorri Stefáns- son, vélstjóri, Siglufirði, Sigurð- rrr Björnsson, skipasmíðameist- ari, Siglufirði. Frá Siglunestá að Ólafsfjarð- armúla: Jón Frímannsson, vél- smiður Ólafsfirði. Páll J. Þor- steinsson, skipstjóri, Ólafsfirði. Frá Ólafsfjarðarmúla að Gjögri, svo og Grímsey: Jóhann Jóhannsson, útgerðarmaður, Dalvík. Elías Halldórsson, vél- smiður, Dalvík. Valmundur Guðmundsson, vélsmiður, Akur- eyri. Jóhannes Júlíusson, skip- stjóri, Akureyri. Júlíus Stefáns- son, trésmiður, Hrísey. Frá Gjögri að Tjörnesi, svc og Flatey á Skjálfanda: Jóhann Sig- valdason, Húsavík. Árni Jóns- son, Húsavík. Frá Tjörnesi að Gunnólfsvík- urfjalli: Kristján Vigfússon, tré- smiður, Raufarhöfn. Sveinn Nikulásson, vélsmiður, Raufar- höfn. Asgrímur Hólm Kristjáns- son, Þórshöfn. kvöldi dags, og þegar síðdegis næsta dag íluttu cll vestræn blöð, víðs vegar um heim, frétt- ina um lát hans og lofsamleg ummæli með samúð og virð- ingu um skáldið og rithöfund- inn rússneska. En rússnesk blöð (t. d. Pravda, ísvestia, Þjóðviljinn o. fl.) gátu þessa ekki einu orði næstu dægrin. En er Moskvu-útvarpið og blöð- in gátu ekki lengur gert sig að undri og afglöpum, réðust þau með illyrðum og skömmum á brezk og önnur erlend blöð fyr- ir lofsamleg ummæli þeirra um hið látna rússneskra skáld, og töldu þau „pólitiskt skrum, and- sovéskan áróður og róg um rússnesku þjóðina“! o. s. frv. Á vísindalegum tækni-vett- vangi hafa Rússar unnið sér það til frægðar síðustu árin, að senda nokkra „Spútnikka" út í himingeiminn á undan Banda- ríkjamönnum, enda hefur því verið haldið óspart á lofti. Á andlegum vettvangi Rússa spratt upp — í íyrsta sinn eftir byltinguna — mikil rússnesk skáldsaga með heimsbókmennta sniði. Þetta var hin mikla skáld- saga Boris Pasternaks um Zivagó lækni. Saga þessi spegl- ar byltingarþróun Rússlands frá 1905 og fram til sigursins yfir Þjóðverjum 1945, — og viðhorf einstaklingsins til þessarar þró- unar. — Dr. Zivagó er þvi eins konar sjálfsævisaga, persónu- lega berorð og hreinskilin. — En það hentaði ekki byltingar- stjórninni, sem hélt' „veraldar- sögu Sovétveldis" í hendi sér og hagaði henni og breytti eftir hentisemi sinni. Saga þessi var ekki birt né borin fram af ákveðinni klíku og miklu fjármagni, heldur af einstaklingi, sem í kyrrþey og allmikilli einangrun hafði rækt- að með sér kjarngresi rússnesks anda í ást til síns mikla fóstur- lands og birti hug sinn allan í sögu sinni til kynningar og heiðurs ástkæru föðurlandi sínu í augum alheims! En stjórn föðurlandsins af- neitaði þessum bezta syni þess. Lokaði fyrir útgáfu sögu hans heima fyrir. Hún hentaði ekki stjcrnarvöldum Sovétlýðveldis- jns. (Síðari kafli i næsta blaði.) 11111 ■ 1111111111111 | Sýming Hafsteins [ | Austmanns I Ungur abstraktmálari, Haf- steinn Austmann, opnaði mál- verkasýningu í Gagnfræðaskól- anum á Akureyri laugardaginn fyrir hvítasunnu. Sýning þessi hefur verið sæmilega sótt og nokkrar myndanna selzt. Alls eru 38 myndir á sýningunni og þar af 5 olíumálverk. — Sýn- ingin er á vegum Ásgeirs Jakobssonar bóksala hér í bæ, og er ánægjulegt að bæjarbú- um gefst kostur á að kynnast þessari tegund listar, svo sem öðrum listgreinum. Sýningin. er opin daglega kl. 2—10 e. h.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.