Dagur - 09.06.1960, Blaðsíða 8
8
Húsnæðið enn aukið og getur stofnimin tekið
á móti linndrað börnum til dvalar á sumrin
f alliliða góðhesíakeppninni á annan hvítasunnudag sigraði Draum-
ur. Eigandi og knapi er Magni Kjartansson, Litla-Garði. Draumur
er rauður að lit, fínbyggður og fjölhæfur gæðingur og kannast
raargir við þennan góðhest frá fyrri sýningum og góðhestakeppni.
Þessi mynd var tekin á skeiðvelli Léttis við Eyjafjarðará í fyrra.
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri
var stofnað 1907, eða ári síðar
en Ungmennafélag Akureyrar.
Onnur félög tóku upp merki
ungmennafélagsins, en kvenfé-
lagið starfar enn af miklum
dugnaði og einbeitti sér að því
verkefni, sem lengi mun vitna
um vit og þrek kvenna á Akur-
eyri. En það er Barnaheimilið
Pálmholt.
Ný viðbygging.
Á laugardaginn buðu Hlífar-
konur fréttamönnum í Pálmholt
til að sjá nýja viðbyggingu, sem
verið er að taka í notkun, og er
það mjög rúmgóð leikstofa og
fleira.
Jónína Steinþórsdóttir, for-
maður félagsins, minntist þess,
að Pálmholt væri 10 ára, og að
Gunnhildur Ryel hefði gefið
land fyrir barnaheimilið, sem
síðar var skipt á, er þessi staður
var valinn.
Síðan var Pálmholt byggt í
áföngum. Viðbót gerð 1954, þar
sem nú er borðstofa og svo önn-
ur nú. Þetta barnaheimili er
mjög vistlegt, og barnaheimilis
var brýn þörf. Það rúmar nú
Frá kappreiðum á skeiðvelli Léttis 6. jiiní
Mikif! áhugi fyrir hestamennsku
Hinar árlegu kappreiðar
Hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri fóru fram á skeiðvelli
félagsins á bökkum Eyjafjarð-
arár á annan í hvítasunnu. —
Veður var milt, skeiðvöllurinn
laus við ryk og ánægjulegt
hestaunnendum þar að vera. —
Gestir voru 4—500 og sýnir það
meiri áhug.n fyrir hesta-
mennsku, eða a. m. k. fyrir
kappreiðum, en búast mátti við.
Keppt var í folahlaupi (250
m.), 300 metra stökki, 350 m.
stökki og skeiði. Ennfremur var
góðhestasýning.
Góðhestasýningin.
I alhliða góðhestakeppninni
voru 8 hestar, en 5 í keppni
klárhesta með tölti. Þar voru
margir góðir hestar og sumir
þeirra atorkugæðingar, en flest-
ir nokkuð vandmeðfarnir og
misviljugir á að sýna kosti sína
alla.
í alhliða góðhestakeppninni
hlaut Draumur Magna Kjart-
anssonar, Litla-Garði, fyrstu
verðlaun.
Víkingur Árna Magnússonar
hlaut fyrstu verðlaun klárhesta
með tölti.
Bæði verðlaunin voru farand-
bikarar. Báðir hestarnir eru
kunnir gæðingar.
Folahlaupið.
Fyrstur varð Funi, 5 vetra,
rauðskjóttur. Eigandi Alma
Magnúsdóttir, knapi Þorvaldur
Pétursson. Tími 20,3 sek. —
Stjarna Guðlaugar Stefánsdótt-
ur varð önnur. Tími 20,7 og
þriðji varð Blesi á 31,0 sek.
300 metra stökk.
Jarpskjóni Ásgeirs Guðjóns-
sonar, knapi Alfreð Arnljóts-
son, hlaut fyrstu verðlaun. Tími
hans var 23,9 sek. Jarpskjóni er
7 vetra og eyfirzkur að ætt.
Lýsingur Jóns Matthíassonar
varð annar á 24,1 og þriðji Bliki
Alfreðs Arnljótssonar á 24,8.
350 metra stökk.
Fyrstur varð Logi, rauður, 8
vetra, skagfirzkur. Eigandi
Þorsteinn Kristjánsson, knapi
Alfreð Arnljótsson. Tími 28,8
sek. og hlaut hann 2. verðlaun.
Perla Svavai’s Jóhannssonar
hlaut þriðju verðlaun. Tími
28,9.
Skeið, 360 metrar.
Stígandi Hergeirs Valgarðs-
sonar rann skeiðið á 34,5 sek.
Hann er eyíirzkur, 6 vetra,
r.auður að lit. Tími hans nægði
ekki til verðlauna og áðrir lágu
ekki á skeiðinu.
100 börn. Að þessu sinni bárust
95 umsóknir og eru börnin á
aldrinum 3 ára og jafnvel yngri
og upp í 6 ára. Mánaðargjald er
400 krónur og sér heimilið um
flutning á börnunum og lætur
í té morgunmat, hádegisverð og
síðdegisdrykk og börnin koma
kl. 9 f. h. og fara kl. 6 síðdegis.
Fyrsta forstöðukona Pálm-
holts var Ingibjörg K. Jónsdótt-
ir. Ráðskona er Sigurlaug Pét-
ursdóttir og hefur verið það
síðustu 8 árin.
Bærinn, ríkið og gjöfulir ein-
staklingar hafa lagt barnaheim-
ilinu lið. Byggingarkostnaður
og húsgögn munu hafa kostað
fast að hálfri milljón og er það
ódýrt. Byggingin er hátt á
þriðja hundrað fermetrar að
stærð.
Stjórn Hlífar skipa nú, auk
Jóninu Steinþórsdóttur: Lauf-
ey Tryggvadóttir, gjaldkeri,
Laufey Sigurðardóttir, ritari,
Elinborg Jónsdóttir, varaform.,
og Dóróthea Kristinsdóttir,
meðstjórnandi.
Fréttnæmt má það kallast, að
meðal gefenda, er stutt hafa
Barnaheimilið Pálmholt, er
Bindindisfélagið Dalbúinn í
Saurbæjarhreppi, sem hafði
leiksýningu á Akureyri í vor og
gaf Pálmholti ágóðann.
í sambandi við vígsluna á
laugardaginn kl. 4 e. h., verður
þar kaffisala og væri vel til fall-
ið að bæjarbúar skryppu þang-
að í eftirmiðdagskaffi.
Það hefur verið Kvenfélaginu
Hlíf mikil gæfa að hafa helgað
einu aðalmálefni krafta sína hin
síðari ár. Hundrað barna dag-
heimili í Pálmholti er glæsileg-
ur árangur þess. Og það er bæj-
arfélaginu nokkurs virði, að
eiga gæfuhendur Hlífarkvenna.
Víkingnr Árna Magnussonar híact fyrstu verðlaun klárhesta. Jarpskjóni Ásgeirs Guðjónssonar sigraði í 300 metra stökki. —
Sterkur drátt-
arbátur
í skipasmíðastöð Mjellem Sz
Karlsen í Björgvin var hleypt
af stokkunum fyrir skömmu
dráttarbátnum og ísbrjótinum
„Herkúles“, sem smíðaður var
fyrir h.f. Björgunarfélag Nor-
egs í samvinnu við ríkið. Er
bátur þessi talinn með sterk-
ustu bátum heims af sinu tagi.
„Herkúles“ er 53 m. langur og
knúinn fjórum 1100 hestafla
vélum. Er honum m. a. ætlað að
brjóta ísinn í Oslóarfirði, þegar
þess gerist þörf.
Barnaheimilið Pálmliolt 10 ára