Dagur - 09.07.1960, Blaðsíða 5

Dagur - 09.07.1960, Blaðsíða 5
4 5 Bagur TÍU ÁRA ÁÆTLUN HAFNARGERÐA HIN AGÆTU fiskimið í kringum land notasl því aðeins, að bátum og skipum sé búin viðunandi aðstaða í landi. Hafnarmannvirki eru víða dýr, en þau eru undirstaða nútíma sjó- sóknar, aukinnar framleiðslu og at- vinnu um land allt. Frumvarp Gísla Guðmundssonar og nokkurra fleiri Framsóknarþing- manna, sem lagt var fram á síðasta Alþingi og fjallar um lántökuheimild til hafnarframkvæmda, lýsir vel stefnu Framsóknarfokksins í þessu höfuðmáli. Frumvarpið var um það, að 22 milljónir af því fé, sem eftir stóð af erlendu Iáni, sem samið var um í fyrra, skyldi varið til þessa, og að heimilað yrði að taka viðbótarlán, allt að 2 millj dollara, til hafnargerða. Atvinnutækjanefnd vinnur nú að því, í samráði við vitamáastjóra, sam- kvæmt ályktun Alþingis 1958, að gera 10 ára áætlun um hafnarframkvæmd- ir í landinu. Líklegt er, að sú áætlun liggi fyrir á næsta vetri. Arlega eru nú á fjárlögum veitt ríkisframlög til nálega 60 hafna víðs vegar um land. I flestum þessara hafna, og raunar fleiri, er mikið óunnið og sumar eru á byrjunarstigi. Framtíð atvinnulífs- ins í mörgum sjávarplássum er mjög undir því komin, að ekki dragist lengi úr þessu að skapa þar þau skilyrði, sem til þess þarf, að fiskibátar og fiskiskip, sem bezt henta á hverjum stað, geti athafnað sig þar eftir þörf- um og notið þar öryggis og að hægt sé að afgreiða þar vöruflutningaskip á viðunandi hátt. Sums staðar liggja mannvirki undir skemmdum, af því að þau eru hálf- gerð, og stofnkostnaður verður meiri en skyldi, vegna þess að of Iítið er unnið í einu á hverjum stað. Vita- málastjórnina skortir Iíka vélar og tæki og er það bagalegt. Byggingu hafna fylgja eflaust fram- leiðsluaukning og vaxandi útflutning- ur, sem staðið getur undir lántökum í erlendum gjaldeyri, a. m. k. mjög víða. Miklar skemmdir verða árlega á skipum vegna hinna lélegu hafnar- skilyrða, sem víða eru ennþá og úr- bóta þurfa við. Þau urðu annars enda- lok frumvarps Framsóknarmanna um hafnarbætur, að því var vísað til nefndar og kom þaðan ekki aftur, því að fulltrúar stjórnarflokkanna beittu sér gegn nauðsynlegri afgreiðslu þess. Látið var í veðri vaka, að stjórnin myndi sjálf bera fram tillögur, er gengju í sömu átt. En þær tillögur komu aldrei. I þessu sambandi er rétt að minna á, að þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru svo múlbundnir, að þeir leggjast á móti hagsmunum fólksins, sem kaus þá. Þannig greiddu þingmenn þesa flokks í Norðurlandskjördæmi eystra atkvæði á móti auknu framlagi hins opinbera til dráttarbrautarinnar á Akureyri, svo sem þingtíðindi herma, en Framsóknarm. kjördæmisins fluttu tillögu um hækkun framlagsins. Nauðsynlegar hafnarbætur auka jafnvægi í byggð landsins. Með þeim skapast bætt atvinnu- og framleiðslu- skilyrði, frumskilyrði vaxandi byggð- ar. | Þátturinn, sem aldrei var fluttur I Það er stundum gert hreint á vorin. Kvenfólkið er þá óðfúst, lætur okkur bera út húsgögnin og berja teppin. Við reynum að taka þessu af karlmennsku og umburðarlyndi, látum helzt eins og ekkert sé, en þegar blessaðar konurnar ætla svo líka að gera vorhreingerningu hið innra í skrifborðum okkar, þá rísum við þó upp til varnar. Við viljum, að allt þar fái að vera á sínum gamla stað. Þótt „róðaríið“ séu talsvert og ryk- ið, þá er þetta hvort tveggja meinlaust. Við hleypum því engum hreingerningarfreygát- um inn fyrir 12 mílna skrif- borðslandhelgina, og þar við situr. — Árin líða, og allt er við það sama í skrifborðsskúffun- um, nema hvað hrærigrautur- inn eykst heldur. Fari maður niður í vissa skúffu og vilji líta sér til ánægju í gamalt ást- arbréf, þá lendir maður kann- ski á útsvarskvittun frá 1947 eða einhverjum happdrættis- miða frá 1949. Að lokum verð- ur þó að taka til, það vill mað- ur gera sjálfur. Eg tók til í skrifborði mínu um daginn, öllum skúffum og skápunum báðum. Það er kom- ið eitthvað talsvert á annan árautg síðan allsherjarhrein- gerning var gerð. Eg fann margar gamlar og gleymdar ritsmíðar. Sumt var krotað með blýanti, annað vélritað, og flest var þetta eftir hinn ágæta rithöfund, Gösk. Sá höfundur er h'tt þekktur, en ýmislegt setti hann saman hér áður fyrr — og margt af viti. Hér birtist i því nær heilu lagi „útvarpsþáttur" eftir Gösk; var hann saminn fyrir Geysi, og ætlunin var að flytja hann á skemmtun í Vaglaskógi, en þessi skemmtun fórst fyrir. — (Ö. S.) „ÚTVARPSÞATTURINN.“ (Elftir hin fræga höfund Gösk.) Útvarp Reykjavík. Hér koma ýmsar tilkynningar: Tilkynning frá skömmtunar- stjóra: Hérmeð tilkynnist öllum þeim, sem eiga stofnauka r. 13, að í eina viku,frá deginum ídag að telja, verður hann, ef til er, innkaupaheimild fyrir einum ameriskum ísskáp eða strauvél, ef þessi tæki skyldu vera til í verzlunum á þessu tímabili. Skömmtunarstjóri. Tilkynning frá verðlagsstjóra. Með tilvísun til tilkynningar 'frá skömmtunarstjóra nr. 2987, sem dagsett er í dag, um heim- ild til kaupa á ísskápum og strauvélum, skal verð á þeim í smásölu vera sem hér segir: Isskápar kr. 5400.00 í Reykja- vík og Hafnarfirði. Isskápar kr. 7200.00 úti á landi. Strauvélar kr. 4300.00 í Reykjavík og Hafnarfirði, en verða ekki seldar annars1 stað- ar, þar sem þeirra mun ekki þörf úti á landi. Verðlagsstjóri. Tilkynning frá Ríkisstjórninni: Með skírstkotun til auglýs- ingar vorrar nr. 52381, sem birt var í gær, um hugsanlega sölu og dreifingu amerískra heimil- isvéla, samanber lög frá 18. fe- brúar 1923 um viðauka við lög nr. 127 frá 1754, um innflutning og dreifingu á þvottabrettum o. fl., samanber ákvæði í Járnsíðu nr. 5, bls. 9 neðst, um gjaldeyr- isverzlun og verðlag innan- lands, þá hefur útreikninga- deild vísitölunefndar Fjárhags- ráðs, ásamt Hagstofunni, reikn- að út nýja vísitölu framfærzlu- kostnaðar fyrir þessa viku, og reyndist hún vera 108 stig í Reykjavík og Hafnarfirði — eða einu stigi lægri en í fyrri viku, en úti á landi hefur hún verið ákveðin 104 stig í samráði við Bæjarstjórn Reykjavíkur. Samband skagfirzkra kirkju- kóra heldur söngmót að Ytri- Kotum næstkomandi sunnudag kl. 9 árdegis. Söngmálastjóri setur mótið. Á eftir verða mörg skemmtiatriði. Athöfnin verður kvikmynduð.Hljómsveit frá Akureyri. Gömlu dansarnir. Nefndin. Orðsending til Karlakórsins Geysis: Karlakórinn Geysir staddur í Stórarjóðri í Vaglaskógi. Til hamingju með daginn, kæru söngbræður! Hænsnabú Hinrik Thor- arsens, Glerárþorpi. Dagskrá kvöldsins, að lokn- um fréttum, verður sem hér segir: Kl. 10.20: Útvarpshljómsveit- in leikur lög eftir útvarpsstjóra. Kl. 20.20: Helgi Hjörvar flyt- ur frásöguþátt. Kl. 21.00: Andrés Björnsson les smásögu eftir Helga Hjörv- ar. 21.20: Helgi Hjörvar les kvæði eftir Andrés Björnsson. 21.40: Hendrik Ottóson frétta maður útvarpsins ræðir um dagskrá útvarpsins við þá Jón Magnússon, fréttastjóra, og Andrés Björnsson. Kl. 21.50: Jón Þórarinsson ræðir við Jósep Bach, sonar- sonarsonarsonarsonarsonarson Jóhanns Sebastíans Bachs, en Jósep er nú sem stendur kaupamaður austur á Rangár- völlum. Kl. 22.00: Fréttir og dag- skrárlok. (Klukkusláttur.) . Hér koma crlendar fréttir: 1 herstjórnartilkynningu Mac- Arthurs segir, að herir Samein- uðu þjóðanna hafi verið i stöð- ugri sókn í dag — en hafi hins vegar, af öryggisástæðum, fært víglínu sína afturábak um 75 kílómetra. Reutersfregn frá Briissel hermir, að nú þyki fullvíst, að Leópold konungur og Sjang- kæsékk marskálkur muni báðir sækja um bæjarstjórastöðuna á Húsavík. I fréttum frá Kaupmanna- höfn segir, að Skúli Guð- mundsson hafi í dag sett nýtt íslandsmet í hástökki. Stökk hann 197XA cm. og bætti þar með fyrra met sitt um 21,-) mm. Þó er vafasamt, að metið verði staðfest, því að uppstreymi var nokkuð mikið. Einkaskeyti til útvarpsins frá New York: Samkvæmt skeyti frá Evrópu fréttaritara Volstrítsjúrnal hef- ur það vakið mikla athygli á Alþjóðaþingmannaráðstefnunni í Strassborg, að aðeins sjö full- trúar voru frá íslandi. Höfðu þeir konur sínar og börn með. Tjáðu íslenku þinugmennirnir blaðamönnum, að gjaldeyris- skortur væri nú mjög tilfinn- anlegur á íslandi, og hefðu þeir af þeim ástæðum orðið að skilja tengdamæður sínar eftir. Innlendar fréttir. í dag var þoka um allt veiði- svæðið og veiði með minna móti. Þó er vitað um 15 skip, sem fengu allgóð köst eða sam- tals 27 síldar, þar af 16 smá- síldar og 2 lóðnur. Er þetta 9 síldum og 1 loðnu meira en veiddist sama dag í fyrra. Mest af aflanum var lagt upp í Hær- ing, en hann hefur enn ekki náðst út, þar sem hann stendur við Höpfnersbryggju. Mun bræðslu á þessu magni lokið um mjaltaleytið annað kvöld. Drengjamót Óspakseyrar í frjálsum íþróttum var haldið dagana 11.—13. næstsíðasta mánaðar. — Ungmennafélagið Morgunroðinn sá um mótið. Sigurvegarar í einstökum greinum urðu þessir: 100 m. hlaup: Indriði Helga- son, Umf. Röðull. 1500 m. hlaup: Óli Kristjáns- son, Umf. Laxdæla. Hástökk: Ingimundur Árna- son, Umf. Morgunroðinn; stökk hann 1.21 m., sem er nýtt Óspakseyrarmet, vallarmet, sýslumet og fjórðungsmet, og auk þess persónulegt met hans sjálfs. Langstökk: Jón Guðmunds- son, Umf. Sólnes. Þrístökk: Eyþór Tómasson, Umf. Lindin. Stangarstökk: Þórður Sveins- son, Umf. Laxdæla. Kúluvarp: Óskar Sæmunds- son, Umf. Morgunroðinn. Kringlukast: Kristján Jóns- son, Umf. Röðull. Spjótkast: Kristinn Jónsson, Umf. Faxi. Tugþraut: Steinn Steinsen, Umf. Morgunroðinn. Hæstu stigatölu hlaut Ung- mennafélagið Morgunroðinn og vann þar með mótið. Nýlega hafa Víkverja verið veitt hin árlegu verðlaun úr málvöndunarsjóði Björns Jóns- sonar, en verðlaun þessi eru veitt þeim íslenzkum blaða- manni, sem bezt mál ritar. Að þessu sinni voru verðlaunin líkneskja úr gulli af flugfreyju, en J^ví heiti hefur Víkverji komið inn í íslenzkt mál. Áður voru flugþernurnar nefndar flugþernur. Vegavinnumenn í Ljósavatns- skarði fundu nýlega forna dys, er þeir voru að leita að möl til ofaníburðar. Þjóðminjavörður hefur nú rannsakað dysina, og fundust þar konubein mikil og sterkleg og ýmsir munir, svo sem hálsmen, sylgja, gull- hringur og hylki undan varalit. telur þjóðminjavörður, að þarna hafi dysjuð verið tengda- móðir Þorgeirs Ljósvetninga- goða. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að verða við til- mælum Sameinuðu þjóðanna um að senda her til Kóreu. Er hér um að ræða 10 manna her- deild norðlenzka, vel vopnum búna. Þessi herdeild er að vísu ekki fjölmenn, en þó ber þess að gæta, að þetta mun vera mesti herstyrkur, sem nokkur Sameinuðu þjóðanna sendir til Kóreu að tiltölu við fólksfjölda. Liðið er þannig skpað: Generáll: MacArthur Guð-: múndsson, Akureyri. Majór-briggader: Júlíús Hav- steen, Húsavík. Briggader: Jón Sigurðsson, Yztafelli. Majór: Ólafur Siguxðsson, -'Helhrlajrdi. . -VKapSnn: Illugi Jónsson, JEéýkjaEIíð. : Lautinant: Stefán Stefánsson, Svalbarði. Sarsjant: Jón Þorbergsscn, Laxamýri. Korpórall: Baldur Eiríksson, Siglufirði. Óbreyttur Kristinn Þorsteins- son, Akureyri. Óbreyttur: Sæmundur Jó- hannesson, Akureyri. Hefur liðið þegar fengið ein- .kennisbúninga, fagra mjög og gyllta. Hafa allir axlaskúf nema hinir óbreyttu hermenn, en þeim er gert að skyldu að lesa 20 bls. á dag úr Fornaldarsög- um Norðurlanda eða Sturl- ungu. Þar að auki æfa þeir sig í spjótkasti, sleggjukasti, grjót- kasti og annarri skoafimi. Herinn fer austur með Súð- inni um n.k. mánaðamót og verður sendur strax til víg- stöðvanna. Veðurfregnir hafa ekki bor- izt ennþá. Fleira er ekki í fréttum. •MlinitMtHIMinMHIIMIMMMMMMMMMMMMMltlMMIIlÞ | SYNDIÐ | 1 200 metrana | «1II MMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMM111111111* FRA FJORÐUNGSÞINGI NORÐLENDINGA JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU: ........ Hvers vegna féllu 19 vaskir ungiingar í Veslmannaeyjum? (Framh. úr síðasta blaði.) 8. Lögheimiluð öfugþróun átalin. Fjórðungsþing Norðlendinga, haldið í Húsavík dagana 11. og 12. júní 1960, átelur, að gefnu tilefni, þá öfugþróun í fjármál- um, að sparifé landsbyggðar- innar s éflutt til Seðlabankans í Reykjavík. 9. útvarpsúrbætur fyrir austurhluta Norður-Þingeyjar- sýslu. Fjórðungsþing Norðlendinga, haldið í Húsavík 11. og 12. júní 1960, skorar á stjórn útvarps- má:la ríkisins að gera strax ráð- stafanir til þess að bæta hlust- unarskilyrði fyrir fólk í austan- verðri Norður-Þingeyjarsýslu. 10. Lýðskólar utan núverandi skólakcrfis. Fjórðungsþingið telur brýna nauðsyn á að settir séu á stofn lýðskólar, sem með.hæfu kenn- araliði og skólastjóra gæti orðið til andlegrar vakningar og lyftj- stöng hvers konar þjóðlegri menningu innanlands. 11. Leikstarfsemi norðanlands. Flutningur íslenzkra leikrita. Fjórðungsþingið fagnar því, að, hér norðanlands eru starf- andi leikfélög, sem hafa vakið á sér mikla athygli. Þingið skorar á þessi félög sérstaklega að beita sér fyrir flutningi ís- lenzkra leilírita, en leikritagerð í landi þér Rgfur sérstaklega þróast í skjóii slíkra smáfélaga, og mun verða enn um skeið. Ransóknar þörfv Meðal margs annars, sem allt lýsir gálausu hugarfari þeirra er að opinberum verkum starfa hér í bæ, er það, hve margar kantsteinsbrúnir við gangstéttir bæjargatnanna eru muldar og flísaðar, eftir vélar þær, sem notaðar eru, ýmist til heflunar eða snjófærslu. Sömuleiðis það, hversu margir stoppkranar vatnsveitulagnanna eru oft eyðilagðir með sömu vélum, kengbeygðir, svo að skipta verð- ur um þá, en hetturnar, sem lagðar eru í göturnar, yfir toppa krananna, liggja marga metra frá, sumar í molum. Vafasamt er, hvort nokkuð þessu líkt þekkist annars staðar á hnett- inum. Eflaust á þetta og þvílíkt skeytingarleysi rót sína að rekja til sama „karaktérs“ og það, að í bæ þessum ber all- mjög á því, að bifreiðastjórar, sem aka opinberum bílum, nota þá í sína eigin þágu. Einn sést kanski vera að draga saman hey sín, einn góðan þurrkdag, með opinberum bíl, á opinberu benzíni. Annar kannski að byggja sér íbúð og flytur til . hennar efni-á sama hátt og hinn j bílstjórinn. Lætur svo bílinn standa meðan hann er að vinnu, en fer á honum í mat og kaffi, allt upp á opinbert benzín, sem kvað bera dýrt nú. Og þó að bílstjórarnir séu fastráðnir mánaðarmenn hjá opinberu fyr- irtæki, virðast þeir hafa tíma til alls þessa í eigin þágu, í miðj- um vinutíma, dag eftir dag. Og ef þeir skyldu hafa leyfi til at- 12. Verndun geifjárstofnsins. Fjórðungsþing Norðlendinga varð fyarst til þess að vekja at- hygli á, að yfir myndi vofa ger- eyðing geitnastofnsins í landinu og gerði áskorun um, að opin- berir aðilar snerist þar í gegn. Nú fyrst hefur Alþingi með lög- gjöf hafizt handa til úrbóta. Fjórðungsþingið lítur svo á, að löggjöf þessi nái ekki tilætluð- um árangri og muni vart stöðva eyðingu þessara merkilegu hús- dýra, og skorar því á ríkis- stjórnina að koma í veg fyrir það með frekari aðgerðum. 13. Nafnaskilti við lieimreiðar. Fjórðungsþing Norðlendinga, haldið 11. og 12. júní 1960, bein- ir því til búnaðarsambanda í fjórðungnum, að þau hlutist til um að bæjarnöfn verði sett á skilti við heimreiðar bæjanna. 14. Ríkið kosti allt lögreglueftirlit á samkomum. Fjórðungsþing Norðlendinga, haldið dagana 11. og 12. júní 1960, telur brýna nauðsyn bera til að haldið sé uppi föstu og skipulegu lögreglueftirliti á op- inherum samkomum, vegna vaxandi ölvunar og annarrar þar af leiðandi óreglu við slík tækifæri. Telur þingið að kostn- að af slíkri lögreglu eigi ríkið eitt að bera. Skorar það á alla þinngmenn kjördæmanna í fjórðungnum að beita sér fyrir því, að kostnaður við þetta eft- irlit verði að fullu greiddur af ríkissjóði. hæfanna, sem hér skal þó ákveðið dregið í efa, þá væri slíkt leyfi ólöglega gefið af op- inberum yfirmönnum, — og verður að athugast, — m. a. með rannsókn frá hendi þeirra stjórnardeilda í Ráðuneyti ís- lands, sem viðkomandi stofnan- ir heyra undir. Vill Dagur ekki koma þessu rétta boðleið? — S. Lúðrasveit telpna. 1 BARNASKÓLA AK. er bú- ið að stofna lúðrasveit drengja, og er hún undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Stjórnar hann henni af mikilli prýði, og á hann miklar þakkir skilið fyrir það, eins og allt sitt starf á tón- listarsviðinu. Eg hef hlustað á lúðrasveitina mér til mikillar ánægju. En nú hefur mér dottið í hug, hvort ekki væri hægt að fá ein- hver hljóðfæri, sem hægt væri að kenna stúlkunum á, og stofna einhvers konar hljóm- sveit fyrir þær. Eg er viss um að í barnaskólanum eru margar stúlkur, sem hefðu gaman af að læra á hljóðfæri, og myndi það auka á tónlistarlífið í bænum, éf þessu yrði komið í fram- kvæmd. Bið eg þá, sem tónlist og æskumálum unna, að taka það til athugunar fyrir haustið. — Kristín Jóhanesdóttir, Helga- magrastræti 49. Margir Sölvar á ferðinni. HVAÐ skyldu þeir vera marg- ir fleikflokkarnir, sem nú þeysa um landið þvert og endilangt og Fyrir nokkrum vikum settust 23 nemendur í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja að prófborði í virðulegum þætti landsprófs- skipulagsins. En þegar þeim leik var lokið lágu 19 nemendur í valnum. Þeir höfðu fallið í úr- slitaglímunni, bæði í móður- málinu og reikningi. Um sömu mundir féllu 6 landsprófsnem- endur í litlu þorpi á Suður- landi. Vandamaður eins af þess- um sexmenningum, Úlfur lækn- ir Ragnarsson, hefur í Tímanum lýst ýtarlega og sanngjarnlega þjáningum námsfólksins, sem býr sig vetrarlangt undir lær- dómsár vordaganna og kemur svo að lokum heim með dóm um fallið. Sömu sögu geta hundruð feðra og mæðra um land allt sagt á hverju ári, þar sem börn þeirra eiga í þrot- lausri baráttu með landsprófs- undirbúninginn. Víkjum nú aftur að Vest- mannaeyjum, fyrir 30 árum var þar stofnsettur ungmennaskóli. Húsakynni voru lítil. Gamall timburhjallur tekinn á leigu. — Helztu valdamenn kaupstaðar- ins voru algerlega mótfallnir þessu skólahaldi, en þó komu strax til náms nokkur efnileg ungmenni. Að skólanum valdist til forstöðu vaskur kennari, auglýsa sýningar? Allir virðast þeir kunna vel til verka, hvað auglýsingar og áróður snertir. Þeir eru líka töluvert góðir í landafræði og vita upp á sína tíu fingur hvar von er að fáist eitthvað af fólki til að láta aura fyrir skemmtun. Hérna um kvöldið minntu tveir þessir leikflokkar á um- renningana, sem aldrei litu hver anna réttu auga og máttu helzt ekki hittast, án þess að fara í hár saman. Leikflokkar þessir auglýstu sem sagt í útvarpinu, hver um sig, að hann væri ekki hinn leikflokkurinn. En nöfn þeirra voru ofurlítið keimlík. Ekki skal því neitað, að stund- um veitir þetta förufólk góða skemmtun. Það gerði Sölvi Helgason líka og margir hans líkar, því að hver hefur til síns ágætis nokkuð. — Förumenn sungu, aðrir sögðu sögur eða fréttir, hermdu eftir fólki og dýrum og gerðu sérgrein sína að list og unnu þannig fyrir mat sínum og ígangsklæðum. Sagnir herma, að sumt þetta fólk hafi verið heimtufrekt og vandmeð- faríð i fæði og öllum aðbúnaði. Leikflokkarnir selja aðganginn dýru verði, oft alveg úr hófi fram. Margir leikaránna í þessum leikflokkum, sem nú fara um landið þvert og endilangt, eru þekktir listamenn, en margir eru annars og þriðja flokks eða alls ekkert listafólk. Hið sama er að segja um hljómsveitir og dægurlaga- söngvara, sem líka leggja land Framhald. á 7. síðu. Þorsteinn Víglundsson, Aust- firðingur að uppruna, greindar- maður, vel undirbúinn og áhugamaður um kennslu, bind- indisstarfsemi, samvinnumál og almennar umbætur í mannfé- laginu. Þorsteini Víglundssyni tókst á mörgum árum með þraut- seigri baráttu og aðstoð dug- andi manna úr öllum stjórn- málaflokkur að reisa byggingu handa gagnfræðaskóla í Vest- JÓNAS JÓNSSON frá Hriflu. mannaeyjum. Það er eitthvert myndarlegasta hús í öllum kaupstaðnum, þar er vel séð fyrir húsrými fyrir fjölbreytta unglingakennslu, að því er snertir bókfræði, íþróttir, smíð- ar og sjómennskunám. í Vest- mannaeyjum er góð aðstaða til að framkvæma mjög fullkomna ungmennafræðslu. Kennaralið er þar í betra lagi,en landsprófs lögin frá 1946 eru þar, sem ann- ars staðar, höggormur í aldin- garði íslenzkrar æsku. Eg hef nokkrum sinnum, bæði í út- varpi og blaðagreinum, rakið hörmungarsögu skólaæskunnar, eins og þeim málum háttar nú. OIl þjóðin veit að þetta er rétt, en borgarana vantar framtak til útbóta. Hið mikla fall bráðefni- legra nemenda í Vestmannaeyj- um er harður áfellisdómur um landsprófsskipulagið, því að allt fyrirkomulag þessa kennslu- skipulags er jafn fordæmanlegt. Ungmennin eiga þar að læra útlend tungumál, reikning, sem engin íslezk maneskja notar í daglegu lífi, málfræði, sem virð- ist vera samin af fábjánum. Þá er þar kennd landafræði, nátt- úrufræði á þann hátt að náms- staglið deyfir námslöngun æsk- unar til að kynnast þessum menntalindum. Eg vil segja frá einu dæmi, af ótal mörgum, um þetta herfi- lega fyrirkomulag íslenzkra kennslumála. Eg bað dreng, sem las undir landspróf í vor að sýna mér kennslubókina sína í málfræði. Hann opnaði kverið, þar sem rætt var um samteng- ingar á tveimur blaðsíðum. Eg bjóst við að þar væri borið fram auðskilinn og nauðsynlegur fróðleikur, en þar var efnið ann- að og enn verra en eg hugði. Á þessari einu opnu í bókinni voru taldar hinar ýmsu undir- deildir samtenginga og til við- bótar um 120 minisatriði. Hér var ekki um að ræða tækifæri til að glæða skilning efnilegra barna, þar var ekkert nema sál- arlaus utanaðlærdómur, sem varð að læra, ef von átti að vera um sigur í landsprófi á þessum vígvelli. Fall 19 efnilegra nemenda í Vestmannaeyjum er eingöngu á ábyrgð kennsluskipulagsins. — Vestmannaeyingar, bæði ungir og gamlir, eru hraustir og dug- legir menn, djarfir og áhuga- samir við störf og íþróttir.Húsa- kostur og kennaralið í Eyjum er í betra lagi og með þeirri að- stöðu, sem þar er í boði, er hægt að koma við góðri og gagnlegri kennslu, þar sem ung- menni og aðstandendur þeirra geta talið sínu fólki vel borgið. Hér verður að gerast alger stefnubreyting. Það verður að hverfa frá því óráði að lög- þvinga alla unglinga til þess að byrja á fermingaraldri að stunda útlend tungumál, þar með talda þunga málfræði. Enn- fremur ber þeim að þekkja alla firði í Danmörku, fjöll á Spáni, andlit sandmaðksins og veldis- ár konunga og keisara í allri Norðurálfu. Öll sú kennsla, sem landspróf heimta, er gegnsýrð af kröfu um það að læra utan- bókar óendanlegan fjölda smá- atriða. Efnið er yfirleitt mjög óhugðnæmt og erfitt að koma þar við skilningi og sjálfstæðri athugun, langmestur hluti þessa þekkingarforða er ónothæf, andleg eign í daglegu lífi. Það hvílir skylda á þeirri kynslóð, sem hefur brotizt í að byggja hin mörgu skólahús hér á landi, að sumu leyti betri heldur en tíðkast í flestum öðr- um löndum, að tryggja viðunan- leg námsefni. Kynslóðin, sem hefur hvatt til að reisa skólana og byggja þá, verður nú að hefjast handa með kröfu um gerbreytingu á innihaldi skóla- starfsins í landinu, það er hægt að starfrækja marga skóla og mörg próf, þar á meðal lands- próf, ef menn vilja halda því nafni, en það verður að hætta að hafa kennsluefnið leiðinlegt og fráhrindandi, og að búa svo að æskunni, að hún leggist ekki undir þekkingarböggunum eins og þreyttur hestur undir óbær- um klyfjum. Sú menning, sem íslendingar hafa notið í þúsund ár, er vissulega ekki boðin fram við landsprófin. Hér verður að gerast umbót, og hún ekki lit.il. Sú kynslóð, sem hefur komið til leiðar að hér á landi hafa verið reistir fjölmargir myndarlegir skólar, verður líka að skilja svo við þetta mál, að kennsluefnið í þessum stofnunum verði sam- boðið þjóðinni, fortíð íslendinga og framtíð þeirra, sem fæðast upp í landinu og hafa bæði hæfileika og orku til að lifa hér sem frjáls þjóð og vel mennt. (

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.