Dagur - 09.07.1960, Blaðsíða 8

Dagur - 09.07.1960, Blaðsíða 8
8 „Eitt kíló af heimsku“ Sunnanblöðin segja .frá nýút- kominni ljóðabók með frum- legri uppsetningu, og er hún aðeins gefin út í 300 tölusettum eintökum. Eitt dagblaðanna kynnir bókina með eftirfarandi ljóði: Seldu mér eitt kíló af heimsku svo eg geti lifað. Gerðu það fyrir mig, aðeins eitt kíló svo eg þurfi ekki að deyja. Þó það væri ekki nema eitt pund. | Ráodvraveiðar í i í Noregi I Síðustu 5 árin hafa verið greidd verðlaun fyrir 128.000 refi skotna í Noregi. Á sama tíma voru skotnir 10 birnir, en' verðlaun greidd aðeins fyrir 5 þeirra. Fækkar þeim nú óðum í Noregi, og verða eflaust frið- aðir, áður en þeim verði útrýmt að fullu. Á sama tímabili hafa verðlaun einnig verið greidd fyrir 5 úlfa, 106 jerfi (fjall- fress), 29 gaupur, 10051 villi- minka, 3397 merði (ilder smá- merðir), 1009 erni, 612 bergugl- ur (húbró), 894 vali, 12213 hauka, 4612 smyrla, 89.517 krákur og 23.340 skjóa. Síldarsöltmi og brúarsmíð Dalvík, 8. júlí. — Eldborg kom hingað með fyrstu síldina, rúmlega 600 tunnur uppmæld- ar, eða rúmlega 300 tunnur upp- saltaðar, og var það á miðviku- daginn. í gær kom Hannes Hafstein með 100 tunnur uppmældar. Veiðzt hefur ofurlítið á línu og einn bátur, sem stundað hef- ur færaveiðar, hefur aflað vel. Langt er komið byggingu brú- ar á Karlsá, norðan við Dalvík, en veg vantar að henni. Brúar- smiðurinn er Jónas Snæbjörns- son. Hann mun fara til Skaga- fjarðar þegar vinnu er lokið hér og byggja brú á Hjaltadalsá og síðan byggir hann brú á Öxna- dalsá. Taokarnir tilbúnir Raufarhöfn, 8. júlí. — Sig- urður Bjarnason frá Akureyri er eina skipið, sem komið hefur með síld í dag, ca. 200 tunnur, og von er á öðru. Búið verður að salta í um 1500 tunnur í kvöld. Bræðslusíldin er 50—60 þús. mál, og er rétt lokið bræðslu þeirrar síldar, sem kom fyrir veðurskiptin. Verksmiðjurnar SÍLDARSÖLTUN í GRÍMSEY Grímsey, 8. júlí. — Hér hefur staðið yfir síldarsöltun, hvíldar- laust frá því kl. 6 í gærmorgun og enn er ofurlítið eftir. í kvöld verður búið að salta í 650 tunn- ur eða nálægt því. Leó frá Vestmannaeyjum kom hér með sérstaklega fallega og góða síld frá Kolbeinsey. Síðustu daga hefur verið ágætis þarskafli og allir bátar fengið mikið. Aðkomufólk er margt, eða álíka margt og heimafólk, en nú vantar fleira fólk, sérstaklega stúlkur í síldina. Trúlegt er að hingað berist nokkur síld fram- vegis vegna hinnar hagstæðu legu eyjarinnar fyrir síldar- skipin. Hingað kom í gær kærkom- inn gestur, Richard Beck pró- fessor og fögnuðu menn komu hans og höfðu mikla ánægju af því að ræða við hann, þótt tím- inn væri naumur. Prófessorinn greip hér í verk, m. a. flatn- ingu. Fyrstð skemmtiferSaskipiS á sumrinu Á fimmtudaginn kom hingað þýzka skemmtiferðaskipið Ari- adne með 250 farþega. Flestir farþegarnir komu í land og brugðu sér austur að Goðafossi í stórum og litlum farþegabifreiðum. Veður var þurrt en sólarlítið. Meiri straumur erlendra ferðamanna er nú til landsins en undanfarið, þótt aðeins hluti ferðamannanna leggi leið sína til Norðurlands. Einstök fegurð. Án þess að kasta rýrð á sunlenzka náttúrufegurð, mun það ekki ofmælt, að hringferð í bifreið frá Akureyri, með við- komu hjá Goðafossi, brenni- steinshverunum í Námaskarði, Dettifossi og Ásbyrgi, er stór- kostleg í góðu veðri. Ferðafólkið, sem hingað kom með Ariadne, var flest amerískt og af æskuskeiði, hressilegt fólk og hinir ágætustu gestir. Skipsbátur með ferðafóik að leggjast að bryggju á Akureyri. — (Ljósmynd: E. D.). voru farnar að skila mjög góð- um afköstum. Nýju síldartankarnir, sem taka eiga yfir 30 þús. mál síld- ar, eru nú fullgerðir. Þróar- rými er nú 60—70 þús. mál og kemur vonandi síld, svo að um munar, áður en langt líður. Þrír leikflokkar hafa verið hér á ferðinni. Fyrsta síldin Ólafsfirði, 8. júní. — Síldar- söltun hófst sunnudaginn 3. júlí. Gunnólfur kom með 260 tunn- ur, Guðbjörg með 186 tunnur og rösklega 200 mál í bræðslu. Víðir II kom hér í nótt með 286 tunnur í salt og 100 í frystingu. Guðbjörg kom aftur með 130 tunnur, sem lokið er við að salta. Átta færabátar hafa lagt upp góðan afla, frá 11 og allt upp í 32 skippund. Afli og heyskapur Sauðárkróki, 8. júlí. — Ingvar Guðjónsson kom með 65 tonn af fiski á miðvikudaginn og Skagfirðingur er að losa 65 tonn í dag. Aflinn er góður á færabáta, en engin síld hefur borizt hingað. Heyskapartíð er eins góð og hægt er að kjósa sér og sprett- an er ágæt. Sundmót Ungmenansambands Skagafjarðar verður haldið hér á Sauðárkróki á sunnudaginn kemur. Silungsveiði í ósum Héraðs- vatna var góð í vor, en lax er ekki genginn. Bera á beitilönd Ilúsavík, 8. júlí. — Verið er að undirbúa áburðardreifingu úr lofti í landi kaupstaðarins. í fyrra var nokkru dreift, en nú er fyrirhugað að auka áburðar- gjöfina. Athuguð hefur verið flugbraut við Höskuldsvatn á Reykjaheiði, og er heppilegur staður til aðseturs fyrir áburð- arflugvélina þar. Fyrstu síldina til söltunar kom Smái’i með, 300 tunnur, og í morgun kom Helgi Flóvents- son með 195 tunnur. Lítil veiði í Blöndu Blönduósi, 8. júlí. — Lítil laxveiði hefur verið í Blöndu það sem af er, enda hefur hún lengst af verið í vexti og mjög gruggug. í öðrum ám hér vestx’a hefur veiði einnig vei'ið fremur treg. Þann 12. þ. m. verður Bjai-ni Jónsson, Bollastöðum, 75 ára. Kona hans er Ríkey Gestsdótt- ir. Þau dvelja hjá Ingólfi syni sínum á Bollastöðum, en bjuggu um tveggja áratuga skeið í Kálfárdal. Sauðfjárrúningi er lokið og þeir síðustu að reka fé á afrétt. Víða er búið að hii’ða um helming töðunnar, en misjafn- lega mikið á bæjum. Á Skagaströnd er góður hand- færaafli, og betri en á sama tíma undanfai’in ár. Ýmislegt austan heiðar Nesi, 7. júlí. — Heyskapurinn hefur gengið ágætlega í Fnjóskadal og spx’ettan er góð. Slætti að Ijúka á þeim bæjum, sem lengst eru komnir, enda er tíðin mjög hagstæð. SauÓ'fjárrúningur stendur yf- ir, en er þó lokið í afréttarlönd- unum. T\rær kirkjur í dalnum verða 100 ára á þessu sumri, Hálskii’kja og Illugastaðakirkja. Þetta eru timburkirkjur. Af- mælisins vei’ður minnst 24. júlí og mun biskupinn yfir íslandi, hei-ra Sigurbjörn Einarsson, verða viðstaddur. í næstu viku kemur vinnu- flokkur frá Rafmagnsveitum ríkisins til að sti’engja línur á staura þá, sem niður voru settir í haust í miðdalnum. Nú er unnið að því að möl- bera Fnjóskadalsveginn í Dals- mynni. Fé vantar þó til að full- gera hann, en reynt verður að gera hann akfæran. Fljótlega verður hafin vinna við að byggja brýr Éf Skarðsá og Gref- ilsgil. Dálítið varð vUrt við Lax í Fnjóská í fyrra og hafa veiði- menn sótt fast að komast í ána nú í sumar. Gera menn sér von- ir um, að laxveiði glæðist í ánni og mai’gir telja nauðsyn- legt að sprengja betri fiskaveg við Laufásfossa, sérstaklega . vegna bleikjuxmar. í 20 ár hafði Fnjóská verið í leigu ensks veiðimanns, mr. Fartescue að nafni, en losnaði áx'ið 1957. Síðan hefur veiðifélag bændanna í dalnum tekið' veiði- skapinn í sínar hendur og selt veiðileyfi. Vaglaskógur er fallegur í sumar. Gunnar Finnbogason skógfi’æðingur kom í Fnjóska- dal í sumar og hafði meðferðis bjöllutegund eina, sem hann hafði fengið í Noregi, og þar þykir hin þarfasta til að eyða lús af trjám. Mun hann hafa sleppt þarna um 1700 stk. Bjöll- urnar hafa vei’ið nefndar Maríu- hænur eða Maríubjöllur, og vonandi gera þær gagn en ekki skaða. Tólf minkar hafa vei’ið unnir í Fnjóskadal, bæði hjá Þing- mannalæk og fi’ammi í dalnum, hjá Sörlastöðum og fi’aman við Reyki, og hefur Páll G. Björns- son í Gaiði eytt þessum dýrum. Hann, ásamt Bi’aga í Birkihlíð, liggja nú á tófugreni milli eyði- býlanna Þúfu og Vestari-Króka og hafa ekki önnur greni fund- ið. Bragi er refaskyttan í Háls- hx-eppi. Eftir er að gera herferð í Flateyjardal. Þar er engin byggð, en margt um refi og minka, að því er talið er. Fjár- rekstrarmaður drap þar mink fyrir stuttu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.