Dagur


Dagur - 12.10.1960, Qupperneq 2

Dagur - 12.10.1960, Qupperneq 2
2 Reglulegt Alþingi hvatt saman SexfuQsafmæli Finnasfaðahióna Ketill Guðjónsson bóndi á Finnastöðum í Eyjafirði várð sextugur í gær, 11. október, og var auðheyrt á samtölum manna, að margir hugðust heimsækja hann, að dagsins önn lokinni, til að óska afmælis- barninu til hamingju og til þess einnig að færa húsfreyjunni, Hólmfríði Pálsdóttur, konu hans, hamingjuóskir. En hún átti sextugsafmæli hinn 1. þ. mánaðar. Ketill á Finnastöðum er mik- ill atorkubóndi, vel gerður maður, bæði andlega og líkam- lega, óvenjulega vinsæll og hef- ur notið mikils trúnaðar. Hann er fulltrúi eyfirzkra bænda á Búnaðarþingi og var fulltrúi þeirra í Stéttarsambandi bænda. Á Finnastöðum hefur hann búið hálfan fjórða áratug, ásamt konu sinni, sem er hin mesta myndarkona og ágæt húsmóðir. Finnastaðir urðu að stórbýli í höndum þeirra hjóna og auk þess hefur Ottar, sonur þeirra, byggt sér nýbýlið Árbæ í landi þeirra, en þá þegar hafði jörðinni verið sá sómi sýndur í stórfelldum umbótum, að rúmt var um báða. Önnur börn þeirra eru: Margrét húsfreyja á Barká, Hreinn bóndi á Sval- barðsströnd, Sigríður húsfreyja í Holtakoti, Auður húsfreyja að Merkigili og Gylfi, sem er í heimahúsum. Að vísu er saga Ketils á Finnastöðum ekkert einsdæmi. Litlar jarðir og jafnvel örgustu kot hafa orðið að stórbýlum. — - Húsavíkurskólinn Framhald af 1. siðu. nýja skólahúsi má geta þess, að forsalur er að grunnflatarmáli nokkru stærri en gamli barna- skólinn. Áskell Einarsson stjórnaði vígsluathöfninni og rakti bygg- ingarsöguna. Aðrir ræðumenn voru‘ Séra Friðrik A. Friðriks- son prófastur, sem flutti pi-o- dikun, Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra, Þórhall- ur Snædal byggingameistari, skólastjórarnir Kári Arnórsson. og Sigurjón Jóhannesson, Sig- urður Gunnarsson, fyrrv. skóla- stjóri Ingimar Jóhannesson fulltrúi fræðslumálastjóra, Að- alsteinn Eiríksson námsstjóri og Stefán Jónsson .námsstjóri Kvæðið Skólaminni eftir Jó-' hannes Guðmundsson var sung- ið af kirkjukórnum, sem einnig söng sálma við athöfn þessa. En aldrei hefur sú saga orðið án frábærs dugnaðar bónda og húsfreyju og aldrei hefur sá dugnaður verið fullþakkaður. Þetta fólk vinnur með hag fram tíðarinnar fyrir augum og er í fremstu röð þeirra landsmanna, sem eru að skapa íslendinga- sögu tuttugustu aldarinnar. Síðan íslendingar hurfu frá landbúnaði og dreifbýli að stór- um meirihluta og tóku sér ból- festu í þéttbýli, hafa þeir fund- ið sér nýja guði í dægurlaga- söngvurum, kvikmyndaleikur- um og íþróttafólki og dægui'- dvöl í sorpritum, kvikmynda- húsum og fleiri ónáttúrlegum hlutum. Hinum nýju hálfguð- um er þröngvað upp á þjóðina með allri hugsanlegri nútíma- tækni. En löngu eftir að þeir eru allir og gleymdir vitna störf manna eins og Ketils á Finna- stöðum um karlmennsku og framsýni, og þá verða menn þakklátir öllum þeim, sem gengu í lið með vorinu og gró- andanum og gerðu landið betra en það áður var. Eg óska þeim Finnastaðahjónum til hamingju með það, að hafa valið ser þetta hlutskipti og valdið því. Um leið sendi eg þeim beztu afmæl- isóskir. — E. D. Ötivist barna Utdráttur úr 20. gr. lögreglu- samþykktar Akureyrar: Unglingum innan 16 ára er óheimill aðgangur að almenn- um knattborðstofum, dansstöð- um og öldrykkjustofum. Þeim er óheimill aðgangur að al- mennum kaffistofum eftir kl. 20, nema í fylgd með fullorðn- um, sem bera ábyrgð á þeim. Eigendum og umsjónarmönnum þessara stofnana ber að sjá um, að unglingar fái þar ekki að- gang né hafizt þar við. Börn yngri en 12 ára mega ekki vera á almannafæri seinna en kl. 20 á tímabilinu frá 1. október til 1. maí og ekki seinna en kl. 22 frá 1. maí til 1. októ- ber, nema í fylgd með fullorðn- um vandamönnum. Börn frá 12—14 ára mega ekki vera á almannafæri seinna en kl. 22 á tímabilinu frá 1. október til 1. maí og ekki seinna en kl. 23 fró 1. maí til 1. októ- ber, nema í fylgd með fullorðn- um vandamönnum. Þegar sérstaklega stendur á, getur bæjarstjórnin sett til bráðabirgða strangari reglur Alþingi var sett á mánudag- inn. Eysteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs í Sameinuðu þingi, utan dagskrár, og bar fram Minni síldveiði í síðustu viku veiddust um 1500 tunnur af millisíld á Poll- inum og innanverðum Eyjafii'ði, bæði í lagnet og snurpunót. — Síldin var fryst til beitu, einnig soðin niður. — í gær var minni veiði, aðeins um hálft tunna í net. Málverkasýning Málverkasýning Guðmundar frá Miðdal, sem aðeins var opin 4 daga í Landsbankasalnum, var vel sótt. Þar voru 50 myndir, bæði olíumálverk og vatnslita- myndir. Margar myndanna seldust og fjöldi manns hefði eflaust sótt sýninguna, ef ekki hefði þurft að rýma húsnæðið. En í Blómabúð KEA verður gluggasýning á 12 málverkum Guðmundar um helgina. Málviorkasýning Guðmundar frá Miðdal þótti mörgum sálu- bót og allir, sem þangað komu, nutu listrænnar fegurðar og áttu þangað erindi. Enginn þurfti að gera sér upp gleði yfir „listrænum óskapnaði“. Góð kolkrabbaveiði Undanfarnar nætur hafa 20 —30 bátar verið á kolkrabba- veiðum grunnt út _af Þorgeirs- firði og hafa veitt vel, þegar hagstætt veður hefur gefið. Til marks um góða veiði er það, að Draupnir frá Hauganesi fékk 11 tunnur á 10 tímum og voru þó aðeins þrír menn um borð. Formaður á Draupni er Kristján Þorvaldsson. — Kol- krabbinn er frystur til beitu. um útivist barna allt að 16 ara. Foreldrar og húsbændur barnanna skulu, að viðlögðum sektum, sjá um að ákvæðum þessum sé fylgt. Barnaverndarnefnd Akureyrar.. Auglýsingar þurfa að berast fyrir háclegi dag- inn fyrir útkomudag. ORGELVELTAN Jóhann Ó. Haraldsson greiðir 50.00 krónur í orgelsjóð. stutta fyrirspurn um landhelg- is málið, og óskaði þess að for- sætisráðherra gæfi yfirlýsingu um að ekkert yrði aðhafzt frekar í málinu án fulls sam- ráðs við Alþingi. Hanr. mót- mælti því harðlega að samn- ingaviðræður við Breta væru uppteknar. Rríkisstjórnin hefði gefið um það skýlaus loforð, að utanríkismálanefnd yrði leyft að fylgjast með viðræðunum við Breta, en þetta loforð hefði verið svikið. Ennfremur fór Eysteinn þess á leit við forsætisráðherra að hann gæfi skýrslu um hvað gerzt hefði. Forsætisráðherra lofaði því, að úrslitaákvarðanir yrðu ekki teknar án samráðs við Alþingi. Ekkert hefði gerzt í málinu enn sem komið væri. Friðjón Skarphéðinsson var kjörinn forseti sameinaðs þings og Sigurður Ágústsson vara- forseti. BXFREIÐ AKEN NSLA Aðalsteinn Jósepsson. Sími 1750. DÖMUR, ATHUGIÐ! l’firdekki beliisspennui. hef mót fyrir 2'/> cm og 5 cm belti, sauma einnig belti úr yðar eigin efnum, cf óskað er. Þórhildur Skarphéðinsdóttir Hafnarstr. 29, niðri. NOTAÐUR KOLAKETILL óskast lil kaups.. Upplýsingar í sitna 2159. STÚLKA óskast allan daginn til áramóta. Sporí- og hljóðfæraverzlunin Ráðhústorgi 5 ÓSKILALAMB Á Þverárrétt nú í haust var mér dreginn hvítur lambhrtitur. Mark: Hálft af aftán hægra og fjöður aftan vinstra. Þetta lamb á ég ekki og getur eig- andi vitjað þess gegn áftillnnm kostnaði. Einar Tr. Thorlacius, Tjarnarlandi. . HERBER til leigu og barr sölu í Helgamai íureyrinj Sala happdrættismiða Styrktarfélags vangefinna stend- ur yfir. Bifreiðaeigendur! Enn getið þið fengið miða með núrneri bifreiðar yðar, annars frjáls sala á mið- um. Dregið 1. nóv. n. k. um 10 vinninga. Þar á meðal 1 á 250 þúsund (Opel Capitan L). Pantið rniða í sím- um 1656 og 1570. — Styrkið golt málefni. STYRKTARFÉLAG VANGF.FINNA. Umboðið, Akureyri, Bjarkarslíg 1. TIL SÖLU á Grenivík þriggja tonna trillubátur með 5—9 ha. Sabb-vél. Bátur og vél í mjög góðu ásigkomulagi. Allar uppíýsingar gefur Svafar Gunnþórsson, Grenivík. UNG KÝR TIL SÖLU Guðm. Sigurgeirsson, Klauf. TIL SÖLU: Barnavagn, harmonika, rafmagnsgítar og ógang- fært mótorhjól. Uppl. í síma 2573. H R Ú T A R Þrír I. verðlauna lmitar til sölu ( 2 veturgamlir og 1 þriggja vetra) Guðm. Rósinkarsson Skriðulandi TIL SÖLU er nýlcgur dívan á dívanaverk- stæði Karls Bárðarsonar Hanarstr. 96 — Sími 1658 TIL SÖLU Lítið notuð jakkafiit á 12—14 ára dreng og margs konar annár fatnaður. Upplýsingar eftir há- degi í síma 2463. TIL SÖLU Marz-skellinaðra í góðu lagi. Sírni 2536. SKÝLISRERRA til söhi. Upplýsingar í síma 1121. KYNBÓT AHRÚTAR Hef til siHu nokkra fyrstu veið- launa kynbótahriita, Armann Þorsteinsson I’verá í Öxnadal. PÁFAGAUKUR Þriðjudaginn 4. þ. m., slapp páfagaukur út úr húsinu Þórunnarstr. 97, Akureyri. — Þeir, sem ,kynnu að hafa orðið fúgls varir, eru vinsam- legast beðnir að gera að- vart í síma 1243. ELDHÚSVASKA- BLÖNDUNARTÆKI tapaðist á leiðinni frá Blikksmiðj- unni að Frystihúsi Ú. A. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 1764. I>Ú SEM TÓKST í misgripum pönnu af slátri á frystihiisínu, vinsamlegast gefðu þig fram t ið starfsmenn ffysti- hússins. HJÓLBÖRUR töpuðust á leiðinni frá Grænugötu á Akureyri, frám að Grund. Finnandi er vinsamlega beðinn að géra aðvart á afgreiðslu blaðsins.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.