Dagur - 26.10.1960, Síða 2

Dagur - 26.10.1960, Síða 2
2 Vefrarfarvegur Laxár opnaður Framhald af 1. siðu. lokum, sem opna má og loka á svipstundu. Þar í gegn er hér eftir vetrarvegur Laxár. Á sumrin fellur hún í sinn gamla farveg í Syðstukvísl, en Mið- kvísl er stífluð og verður ekki opnuð aftur. Þar verður þó lítils háttar vatnsmagn látið renna árið um kring og byggður fisk- vegur. Stíflan opnuð. Fi'á Akureyri var ekið í stór- um ferðabíl undir fararstjórn Knúts Otterstedt rafveitustjóra. Þegar austur kom, var fáni dreginn að hún. Sigúrður Thor- oddsen verkfræðingur lýsti framkvæmdum og síðan var stíflan opnuð og áin fyllti skurðinn og flóði yfir bakka. — Gegnum stífluna geta runnið 110—120 m3 á sek. Meðal- rennsli Laxár er 40—50 m3 á sek. Um 35 m3 á sek. þarf til fullrar orkuframleiðslu Laxár- virkjunar. Með stíflunni erhægt að nota vatnsmagnið til að ryðja krapastíflum, sem mynd- ast kunna. Sérstakur hitabúnaður er í stíflunni, sem á að gera auðvelt að opna og loka að vild, hversu sem veðrar. Holt er undir. Nálægt stíflunni eru bústaðir starfsmanna og aðrar bráða- birgðabyggingar. Að sjálfsögðu eru allar byggingar austur þar á bjargi byggðar, en þó er það svo, að undir hraunhellunni er holt á stóru svæði og má fara þar fram og aftur. Þar skammt fi»á er hellir einn svo mikill, að þar má hýsa 100 hesta. í eldaskála starfsmanna voru góðar veitingar fram bornar og þar flutti Iildriði Helgason, for- raaður Rafveitastjórnar, ávarp. í sambandi við þann ófanga í framkvæmd við upptök Lax- ár er þó ré.tt að minna ó, að enn er eftir að dýpka Mývatn við upptök Geirastaðakvíslar. Það er mikið verk og verður fram- kvæmt með dælum. Verður það gert samkvæmt þeirri reynslu, sem næsti vetur lætur í té. Kostar 7,5 milljónir. Kostnaður við þessar fram- kvæmdir voru 1. sept. sl. um 7,5 millj. króna. En þeim er ekki lokið og rafmagnstruflanir, sem verða kunna í vetur, skera ekki endanlega úr um gildi þess, sem þegar hefur verið framkvæmt. Verkstjóri framkvæmdanna hefur verið Georg Karlsson, Akureyri. Um það voru skiptar skoðan- ir í upphafi* hversu unnið skyldi að til að jafna rennsli Laxár. Till. var gerð um skurð á öðrum stað en valinn var og studdu hana margir kunnugir menn, svo sem áður hefur verið frá sagt hér í blaðinu. Sam- kvæmt kostnaðaráætiun var sú framkvæmd dýrari, en hafði þann augljósa kost, að sá skurð- ur hefði legið í Mývatn, þai' sem aðdjúpt var. Það er von allra þeirra, sem á orkuveitu- svæði Laxár búa, að betur tak- ist til en svartsýnh' menn ætla og að rennsli Laxár verði tryggt með þeim framkvæmd- um, sem verið er að gera. En Laxá er þeirrar náttúru, að hana þekkja þeir einir, sem bú- ið hafa á bökkum hennar um áratugi. Það hafa verkfræðing- ar þegar reynt. En vonandi tekst full sam- vinna við hið mikla og fagra vatnsfall, sem talin er vera feg- urst laxá í heimi og skilgetið afkvæmi sjálfs Mývatns, sem ásamt sveitinni, sem við það er kennt, er eitt furðulegasta völ- undarsmíð náttúrunnar. □ NOTAÐ MÓTATI.VIBUR til sölu. Til sýnis eftir kl. 5 e. h. við Álfabyggð 28. TIL SÖLU FIAT 1100 1954, í ágætu lagi. Afgr. v. á. KOLAKYNNTUR MIÐSTÖDVAR- KETILL, verð 400 krónur, til sölu í Lækjargötu 22. TIL SÖLU: Drengjalöt á 12—13 ára, Nýleg. — Sími 1592. TIL SÖLU Sófasett, sófi, 2 stólár, al- stoþpað. — Enn fremur Borðstofuborð og 4 stól- ar. — Tækifærisverð. Til sýnis í Vanabyggð 2 F. Nýlegur BARNAVAGN TIL SÖLU. Sími 1196. BARNAVAGN TIL SÖLU. Uppl. í Hafnarsiærti 33 (neðri hæð). * UNG KÝR til sölu. Rósa Jónsdóttir, Þverá. JAKKI á 10—11 árá dreng er til sölu. Afgr. vísar á. SKÁKMÓT U. M. S. E. Fjögurra manna sveita- keppni hefst að Melum í Hörgárdal þriðjudaginn 1. nóv. kl. 9 e. h. — Sama fyrirkomulag verður á mótinu og sl. ár. Þeir sem geta mæti með skákklukk ur. — Þátttaka tilkynnist fyrir 30. þ. m. til Þórodds Jóhannssonar, Byggðaveg 140 A, Akureyri, sími 2522, sem veitir nánari upplýsingar. B—| iHiii ELDRI DANSA KLÚBBURINN Dansleikur í Alþýðuhús- inu laugardaginn 29. þ. m. kl. 9 e. h. — Aðgöngu- miðar verða seldir í Al- þýðuhúsinu fimmtudag- inn og föstudaginn 27. og 28. október frá-kl. 8—10 e. h. — Eldri félagar vitji miðanna fyrra kvöldið og velji sér borð. Stjórnin. FREYVANGUR Dansleikur laugardaginn 29. okt. kl. 10 e. h. Sæta- ferðir frá Ferðaskrifstof- unni. Kvenfélagið Aldan. SKEMMTISAMKOMU heldur slysavarnarlélagið „Svala“ í samkomuhúsi Svalbarðsstrandar, laug- ardaginn 29. október n. k. kl. 21.30. Til skemmtunar verður: 1. Ræða. Séra Sigurður Haukur Guðjónsson. 2. Bögglauppboð. .3. Dans., (H1 jómsveit leikur). Nefndin. IÐJU-KLÚBBURINN Skemmtiklúbbur Iðju, félags verksmiðjufólks, heldur spilakvöld föstu- dagskvöldið 28. ]r. m. kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu. Spiluð verður félagsvist. Góð kvöldverðlaun. Dans á eftir. IUjómsveit hússins leikur Iðjufélagar komið þangað sem fjörið er mest. KLÚBBSTJÓRNIN. ÓSKILALAMB I haust var mér dregið lamb með mínu marki. Heilrifað hægra, tvístýft fr. biti aftan vinstra. — Þar sem ég á ekki þetta lamb getur réttur eigandi vitjað andvirðis þess að frádregnum kostnaði til mín. Hannes Haraldsson, Víðimýri 6. Akureyri. ÞRÍLITUR KÖTTUR (læða) í óskilum. Uppl. í síma 1073. STARFSSTÚLKUR VANTAR að Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri. Upplýsingar. gefur yfirhjúkrunarkonan, sími 2299. KRAKKA VANTAR til að bera út TÍMANN í Glerárhverfi. Afgr. Tímans, sími 1166. Ung stúlka með eitt barn ÓSKAR EFTIR VINNU Má vera heimilisstörf. — Þarf að fá herbergi á sama stað. Uppl. í síma 2025. WILLY’S LANDBÚN- AÐÁRJEPPI TIL SÖLU Uppl. í síma 2346. TIL SÖLU Ford Junior í ágætu lagi. Afgr. vísar á. TIL SÖLU RÚSSNESKUR JEPPI model ’57, með blæjum. Keyrður aðeins 2(i þús. km. Verður til sýnis hjá Akurhóli, Grenivík, næstu daga. Upplýsingar gefur Valdimar, mjólkurbílstj. SKODA 440 í góðu ásigkomulagi til sölu. Uppl. í síma 1626 og 1301. FORD ZEPIIYR 1955 TIL SÖLU. Bíllinn er mjög vel með farinn og aðeins ekinn 37.000 km. Útborgnn eft- ir samkomulagi. Upplýsingar gefur Halldór Karlsson, Smurstöð Þórsliamars. Prestkosningar NÝLEGA fór fram talning at- kvæða frá prestskosningunum að Núpi í Dýrafirði. Þar var mikil kjörsókn, af 100 á kjör- skrá kusu 88. Þrír prestar voru í framboði. Þau urðu úrslit kosninganna, að séra Stefán Lárusson í Vatnsendaprestakalli í Suður-Þingeyjarsýslu var kjörinn lögmætri kosningu, 59 atkv. Séra Sigurjón Einarsson á Brjánslæk hlaut 27 atkv. og tvö atkv. hlaut séra Kári Vals- son. Utrunninn er umsóknarfrest- ur um Eskifjarðarprestakall. Ein umsókn barst til biskups- skrifstofu og er það Jón Hnefill Aðalsteinsson, cand, theol., sem sækir. Enn er óákveðið hvenær prestskosning fer þar fram. □ Auglýsingar þurfa að beiast fyrir hádegi dag- inn fyrir útkomudag. TAKIÐ EFTIR! Adrett hárkremið nýja er komið -k Danski kaneláburðurinn góði með rósinni kominn aftur -K Gillette rakblöðin extra-góðu, í hvítu pökkunum KLÆDAVERZLUN SIG. GUBMUNDSSONAR H.F.. r Urvals tegundir af þurrkuðum Á V Ö X T U M : APRICOSUR EPLI BLANDAÐIR SVESIvJUR RÚSÍNUR KÚRENUR VÖRUHÚSIÐ H.F. HRÖKKBRAUÐ úr nýmöluðu rúgmjöli. Verð: Kr. 10.85 pk. VÖRUHÚ5IB H.F. FUNDUR verður haldinn í B YGGINGAMEíSTARAFÉLAGI AKUREYRAR miðvikudaginn 26. okt. kl. 8.30 e. h. að Hótel KEA (Rotarysal). D A G S K R Á : Inntaka nýrra félaga. Önnur mál. STJÓRNIN.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.