Dagur - 30.11.1960, Page 8
8
Fiskiðnskóli innan þriggja ára Miklabæjdr-Sólveig Verðlir
frumsýnd í næslu viku
í STAVANGER í Noregi var ár
ið 1952 vígður iðnskóli fyrirt
niðursuðuiðnaðinn. Það kostaði
um 16 milljónir íslenzkra króna
að reisa skólann, en áætlað er,
að reksturinn kosti um 800 þús.
krónur á ári. Allan þennan
kostnað greiddu niðursuðuverk-
smiðjurnar sjálfar. Fyrst söfn-
uðu þær álitlegri upphæð, svo
hægt væri að byrja, en síðan
var lagður skattur á hvern
kassa af niðursuðuvörum, sem
út var fluttur. Aðalverkefni
skólans er að útskrifa verk-
stjóra og tekur það nám eitt til
eitt og hálft ár. Eitthvað á
þessa leið gætum við farið að.
Þótt heldur óvænlega horfi nú
í bili með útveginn, þá getur
það nú ekki varað um eilífð. Og
það þarf ekki að byrja á að
reisa höll fyrir skólann, heldur
nægði að tryggja honum lítið
frystihús og nokkrar kennslu-
stofur. Aðalverkefni hans verð-
ur svo að mennta verkstjóra og
matsmenn. Þeirra nám getur
vart staðið skemur en 1 til 2
ár. Halda þyrfti svo námskeið
fyrir flakara, pökkunarstúkur,
skoðunarfólk o. s. frv. Við eig-
um til menn, sem annazt geta
kennsluna, og vissulega er öll-
um orðið ljóst, að skólinn verð-
ur að komast upp sem allra
fyrst. Það vantar aðeins sam-
stillt átak. Það átak verður að
koma frá samtökum framleið-
enda. Að því ber að stefna, að
mál þessi verði tekin föstum
tökum hið allra fyrsta, og að
fiskiðnskóli verði tekinn til
starfa fyrir 1964.
(Sjávarafurðadeild SÍS).
Fuilkomið íþrótfahús a Húsavík
Þar æfa að staðaldri 80 manns knattleiki,
r
bæði konur o<í karlar - A«ætt áhorfendasvæði
í FRÉTTUM frá Húsavík segir,
að í hinu nýja íþróttahúsi kaup
staðarins, sem áður getur í frétt
um, og er fullkomnasta íþrótta-
hús utan Reykjavíkur, æfi nú
að staðaldri um 80 manns, bæði
konur og karlar. Handknatt-
leikur og badminton eru vinsæl
ustu íþróttirnar þar ennþá, en
væntanlega bætast fleiri íþrótta
greinar við, svo og leikfimi, áð-
ur en langt um líður. í íþrótta-
salnum er , ágætt áhorfenda-
svæði.
Búið er að tefla aðra umferð
(Framh. á 7. síðu).
í NÆSTU VIKU verður sjón-
leikur um Miklabæjar-Sólveigu
sýndur í Samkomuhúsinu á Ak-
ureyri undir leikstjórn Jóhanns
Ogmundssonar.
Sennilega mun tilhugsunin
ein setja hálfgerðan hroll að
fólki, svo harmþrungin var saga
Sólveigar og Odds prests á
Miklabæ, svo kynngimögnuð og
næstum djöfulleg varð Sólveig
á Miklabæ í meðférð skálda,
listamanna og almennings yfir-
leitt. Sólveig varð að hálfgerðri
forynju í þjóðtrúnni, en færri
gera sér grein fyrir því, að þessi
unga kona var talin myndarlég,
dugleg og ást hennar heit.
Þótt ekki séu liðin tvö hundr-
uð ár frá því kona þessi svipti
sig lífi og Oddur prestur hvarf
á dularfullan hátt, að því sagan
segir, veit engin deili á ætt
hennar né uppruna. Nafn henn-
ar var máð úr kirkjubókum. En
þótt kirkjunnar mönnum hafi
þóknast að gera Sólveigu út-
læga, er nafn hennar greypt í
huga sérhvers manns, vafin í
eina römmustu þjóðsögu, sem
til er.
Höfundur leikritsins, Böðvar
Guðjónsson frá Hnífsdal, bregð-
ur upp nýjum myndum af hin-
um sögulegu atburðum. Hann
tekur ekki undir hin illu eftir-
mæli þjóðsagnanna um Sól-
veigu og Odd prest, en mælir
af skilningi eftir konu, sem ann
heitt, en er svikin. □
Skákþing Norðlendinga er nú háð á Blönduósi
Keppendur eru 22, þar af 8 í meistaraflokki
Á FUNDI í Verkamannafélagi
Akureyrarkaupstaðar og Verka
kvenna féalginu „Einingu“, sem
haldinn var 27. þ. m., var eftir-
farandi tillaga samþykkt með
öllum atkvæðum:
„Sameiginlegur fundur í
Verkakvennafélaginu Einingu
og Verkamannafélagi Akureyr-
arkaupstaðar, haldinn sunnud.
27. nóv. 1960, mótmælir öllum
samningum við Breta, eða
hvaða erlent ríki sem vera skal,
um nokkra eftirgjöf á fiskveiði-
lögsögu íslands, svo sem veiðar
innan 12 mílna frá grunnlínu
um lengri eða skemmri tíma.
Telur fundurinn allan undan-
slátt í þeim efnum bæði van-
sæmandi og hættulegan sjálf-
stæði landsins og skorar á allan
landslýð að rísa gegn öllum
slíkum samningum. Ennfremur
skorar fundurinn á Alþingi að
láta fram fara þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið tafarlaust."
Mörg laus prestaköll
SAMKVÆMT upplýsingum
séra Sigurðar Stefánssonar,
vígslubiskups, eru fimm laus
prestaköll í umdæmi hins forna
Hólastiftis, víðsvegar á Norður-
landi.
Breiðabólsstaður í Vestur
Hópi. Þar þjónaði séra Stanley
Melax til skamms tíma, en er
nú fluttur til Reykjavíkur og
orðinn aldraður maður. Hann
er Eyfirðingur að ætt, fæddur
á Þelamörk.
Æsustaðaprestakall I Langa-
dal. Síðasti prestur þar, var
séra Sigurvin Elíasson. Hann
er nú settur prestur í Raufar-
hafnarprestakalli og búsettur á
Raufarhöfn.
Grímseyjarprestakall er einn-
ig laust og hefur enginn prestur
átt þar heima síðan séra Robert
Jack flutti þaðan. Hann er nú
prestur á Tjörn á Vatnsnesi, en
séra Pétur Sigurgeirsson, sókn-
arprestur á Akureyri, hefur
þjónað þar síðustu árin.
Laufásprestakall í Suður-Þing
eyjarsýslu losnaði í haust, er
séra Birgir Snæbjömsson flutti
til Akureyrar sem nýkjörinn
prestur þar. Vatnsendapresta-
kall í Suður-Þingeyjarsýslu
losnaði einnig nú í haust, er
séra Stefán Lárusson flutti að
Núpi í Dýrafirði og tók við em-
bætti þar. Þá er Raufarhafnar-
prestakall laust, þótt þar sé
settur prestur eins og áður er
frá sagt. □
SKÁKÞING Norðlendinga fyr-
ir árið 1961 hófst á Hótel
Blönduósi 27. þ. m. Þar keppa
8 skákmenn úr meistaraflokki
og 14 skákmenn úr fyrsta og
öðrum flokki saman, samkv.
Monroekerfinu.
Skákstjórar eru Pétur Pét-
ursson og Þorsteinn Matthías-
son. Tefldir eru 45 leikir á 2%
klukkutíma.
Gufutúrbínan á Skagaströnd.
Til að bæta úr rafmagnsþurrð
hjá hinum samtengdu orkuver-
um á Blönduósi og Sauðár-
króki, var gufutúrbína ríkis-
verksmiðjunnar á Skagaströnd
tekin í notkun. En hún skilar
850 kw. Með þessu á svo að
heita, að rafmagn sé nóg. Mesta
álag er 1400 kw. Vatnsskortur
er enn tilfinnanlegur í Laxá og
Gönguskarðsá og á meðan svo
er, skila virkjanir við ár þessar
ekki mikilli orku. Víða er einn-
ig vatnslaust á bæjum hér og
hvar í sveitum.
Hinn 1. des. verður Guðrún
Jónsdóttir Espolin, Köldukinn
í Torfulækjarhreppi, sjötug.
Hún er gift Kristjáni Kristó-
ferssyni og bjuggu þau að
Köldukinn allan sinn búskap
og dvelja þar enn hjá syni sín-
um, Kristófer bónda. □
iiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiim
Barnabók eftir Hjörí Gíslason
ÚT ER KOMIN ný barnabók
eftir Hjört Gíslason, verka-
mann á Akureyri. Bókaforlag
Odds Björnssonar gefur hana
út.
Hjörtur hefur áður kvatt sér
hljóðs á skáldaþingi í bundnu
og óbundnu máli.
Nýja bókin, Salómon svarti,
sem er um 120 blaðsíður að
stærð, prýdd teikningum Hall-
dórs Péturssonar, er líkleg til
að afla sér mikilla vinsælda og
skjótra. Hún er sennilega
skemmtilegasta barnabókin,
sem B. O. B. hefur gefið út og
■IIIIIIIIIIIIIIIIIIIMII
Vinsæll kaupfélagsstjóri kvaddur
FYRR í ÞESSUM mánuði var
haldið fjölmennasta hóf, sem
um getur í Fljótuln. Þá voru
Salómon Einarsson kaupfélags-
stjóri og kona hans Sigurborg
Björnsdóttir kvödd, eftir 14 ára
starf við Samvinnufélag Fljóta-
manna.
Salómon veitir nú kaupfélagi
Kópavogs forstöðu.
Vinsældir þeirra hjóna í
Fljótum voru framúrskarandi
og stjórn Salómons á málefnum
samvinnumanna mjög farsæl,
enda maður sá mörgum kostum
búinn.
Eftirmaður hans í Haganes-
vík er Helgi Rafn Traustason.
Salómon var í mörg ár frétta-
ritari Dags og er blaðinu skylt
og Ijúft að þakka þau störf
hans alveg sérstaklega.
Helgi Rafn, hinn nýi kaup-
félagsstjóri, hefur tekið að sér
fréttaþjónustu fyrir blaðið í
Fljótum og Haganesvík.
í samtali við hann, skýrði
hann svo frá nú um helgina, að
í sumar hefði verið opnaður nýr
SALÓMON EINARSSON,
nú kaupfélagsstjóri í Kópavogi.
vegur frá Haganesvík til Reykj-
arhóls. Liggur vegurinn ná-
lægt sjó og vérður ekki mjög
snjóþungur. Flaganesvík ætti
því að vera í sæmilegu vega-
sambandi við aðra staði Skaga-
fjarðar framvegis. Enn háttar
svo til, að allar vörur verður að
flytja á Uppskipunarbátum og
er ófært, ef úrbætur þurfa að
dragast að mun.
Nokkur áhugi er vagnaður
meðal bær da á þvþ. að auka
mjólkurframleiðslu og breyta
um búskaparhætti að nokkru.
Siglufjarðarskarð var fært á
mánudag, a. m. k. fyrir jeppa.
Lágheiði var bílfær. I Fljótum
er lítils hátta föl. Fljótaá er
vatnslítil mjög. Skeiðsfossvirkj-
un er starfandi á daginn, en á
nóttunni verður hún að safna
kröftum, þ. e. vatni. Ennþá
leysa ríkisverksmiðjurnar á
Siglufirði vandann og fram-
leiða rafmagn. Spennan er þó
stundum svo lág um nætur, að
ekki kviknar á flúrósent-lömp-
um. □
HJÖRTUR GÍSLASON,
höfundur hinnar mjög umtöl-
uðu, nýju barnabókar.
eru þó margar góðar bækur
fyrir yngstu lesendui'na við það
bókaforlag kenndar. □
1111111111111111
Undirbiinmgur f
| undir álaveiðar í
LOFTUR JÓNSSON, sá sem
hóf loftflutninga á nýjum fiski
til Hollands í sumar er leið,
er nú að undirbúa nýja braut-
ruðningu. Hann hefir tryggt
sér réttindi til álaveiða á Snæ-
fellsnesi og fengið hingað hol-
lenzka sérfræðinga til þess að
athuga allar aðstæður. Þegar
hafa verið fengin feikn af veið-
arfærum til veiðanna, sem
væntanlega hefjast næsta sum-
ar. (Sjávarafurðadeild SÍS)